Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 45

Morgunblaðið - 10.09.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1998 45 + Sigurlaug Magnúsdóttir fæddist í Hafnar- nesi við Fáskrúðs- fjörð 1. nóvember 1908. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- vikur 30. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin María Sigurðardótt- ir frá Djúpavogi f. 19.11. 1876, d. 1.1. 1954, og Magnús Guðmundsson, bóndi í Hafnarnesi, f. 16.9. 1868, d. 21.4. 1912. Alsystkini Sigurlaugar voru fimm. Tveir bræður henn- ar dóu ungir, systur hennar eru Margrét, verkakona á Akur- eyri, f. 14.9. 1899, d. 27.9. 1989, gift Ingólfi Árnasyni, f. 1.3. 1904, d. 21.12. 1995, Jóhanna Kristín, f. 15.3. 1904, d. 8.2. 1996, gift Guðmundi Stefáns- syni, f. 2.4. 1895, d. 15.6. 1976, og Björg Andrea, f. 22.10. 1910, gift Jens Lúðvíkssyni, f. 29.9. 1910, d. 24.3. 1969. Hálfsystkini Sigurlaugar sammæðra voru Þóra Kristín Sigurðardóttir, f. 8.2. 1913, d. 30.6. 1991, gift Júl- íusi Kemp, f. 5.2. 1913, d. 19.2. 1962; og Jón Ragnar Steinsson, f. 22.5. 1915, d. 7.12. 1975. Hinn 15. apríl 1932 giftist Sigurlaug Kristjáni Stefánssyni, Elsku amma Sigurlaug, þá fékkstu hvíldina nær níræð, vonandi líður þér vel núna. Við vitum að það verður tekið vel á móti þér því bæði Anna Kristín systir okkar og hann afí Kristján eru ánægð að fá þig til sín. En söknuðurinn er mikill hjá okkur, svo mikill að orð fá því varla lýst. Bai’a tilhugsunin að geta ekki heimsótt þig á Droplaugarstaði, þar sem þú áttir heima síðasta hálfa ár- ið, kallar fram tár í augum okkar. Að hugsa til þess að þú verðir ekki á jólunum heima hjá mömmu, þar verður stórt skarð sem ekki er hægt að fylla í okkar stóra fjölskylduboði. Amma hefur alltaf verið ein af okkur. Við systkinin eyddum mikl- um tíma með henni þar sem hún bjó á neðri hæðinni á Sæbrautinni og passaði okkur þegar mamma og pabbi voru að vinna. Ekki má gleyma mjólkurgrautnum hennar á laugardögum í hádeginu og jóla- grautnum á aðfangadag þar sem amma passaði ávallt upp á að mandlan væri komin á einhvern diskinn. Þær voru ófáar stundirnar sem við eyddum með henni ömmu Sigur- laugu. Þegar við fórum í bæinn var alltaf komið við í Hattabúð Reykja- víkur þar sem hún amma vann í mörg ár. Yndislegri ömmu hefði ekki verið hægt að hugsa sér og alltaf vildum við hafa hana með í öllu og þau voru ófá fjölskylduboðin þar sem við komum saman og áttum góðar stundir. Við vorum fjögur systkinin þar til fyrir tólf árum, þá lést yngri systir okkar, hún Anna Kristín, og var það mikið áfall fyrir ömmu. Það var alltaf einhver af okkur systkinunum að kíkja til hennar. Augasteinninn hennar var nú hann Kristján bróðir okkar, alltaf boðinn og búinn fyrir hana ömmu sína, hvort sem það var nú að heimsækja hana eða laga fyrir hana sjónvarpið eða annað. Drífa systir sá um að hand- og fótsnyrta ömmu reglulega því enginn gerði það betur að henn- ar mati og hún Mjöll systir okkar sá um að hún amma væri alltaf fín um hárið og það líkaði minni vel. Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir okkur öll, því við vissum að hún amma ætti ekki marga dagana eftir. En huggun okkar er að við öll eigum góðar minningar um ömmu. Elsku amma Sigurlaug, við kveðj- um þig með tárum og söknuði. Hvíl í friði. Þín Drífa, Kristján og Mjöll. sjómanni í Reykja- vík, f. 1.9. 1908, d. 28.8. 1963. Foreldr- ar hans voru Anna Jónsdóttir og Stef- án Friðriksson. Sig- urlaug og Kristján bjuggu á Akureyri frá 1932 til 1954 er þau fluttust búferl- um til Reykjavíkur. Börn Sigurlaugar eru: 1) Anna Krist- jánsdóttir, f. 16.10. 1934, gift Bjarna Bjarnasyni, börn þeirra eru Sigur- Iaug Kristín, Guðrún Bjarney, Bjarni Guðjón og Anna María 2) Rafn Kristjánsson, f. 27.8. 1934, d. 1.6. 1937. 3) Stefán Örn Kri- stjánsson, f. 22.2. 1936, kvæntur Kolbrúnu Guðmundsdóttur. Börn þeirra eru Arna og Krist- ján. 4) Karen Kristjánsdóttir, f. 24.12. 1940, gift Daníel Stefáns- syni. Börn þeirra eru Drífa, Mjöll, Anna Kristín, sem er lát- in, og Kristján. 5) Friðrik Rafn Kristjánsson, f. 15.9. 1943, kvæntur Margréti Brynjólfs- dóttir, sem er látin. Börn þeirra eru Brynjar Þór og Bjarney. Barnabarnabörn Sigurlaugar eru 14. Útför Sigurlaugar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku Sigmdaug amma okkar allra er farin frá okkur. Hún er dá- in. Sum okkar skilja það, en ekki öll, það gerir aldurinn á okkur. En öll eigium við góðar minningar um hana ömmu okkar, því ávallt þegar við komum í heimsókn til hennar tók hún okkur opnum örm- um. Alltaf átti hún eitthvað gott handa okkur, hvort sem það var nammi eða bara kleina og mjólk, sem var gott að fá í kroppinn. Elsku amma, við vonum að þú hafír það betra þar sem þú ert núna hjá afa og Önnu Kristínu frænku okkar og litlu englunum. Við mun- um biðja englana og guð að passa þig í bænunum okkar. Hjartkæra amma, far í friði, föðurlandið himneskt á, þúsundfaldar þakkir hljóttu þínum litlu vinum frá. (Höf. ók.) Elsku amma Kæja, við vitum að þú fínnur til í hjarta þínu núna. Megi guðs englar vera hjá þér. Við hugsum til þín. Sofðu rótt, elsku amma Sigur- laug. Anna Kristín, Karen, Iris Thelma, Danfel og Arnór Dan. Mig langar að minnast ömmu minnar, Sigurlaugar Magnúsdóttur, nokkrum orðum. Hún hefði náð ní- ræðisaldri nú á þessu ári ef hún hefði lifað. Vissulega er það ávallt sárt að horfa á eftir nákomnum yfír móðuna miklu, jafnvel þó að allir viti að hverju dregur þegar líður á ævina. Þó er það svo að samhliða þessu er líka svolítið þakklæti. Þakklæti til máttarvaldanna, sem veita þeim hvíld er þjást og þrá hvíldina öðru fremur. • Eg er elsta barnabarn og nafna ömmu minnar. Afi minn Kristján lést árið 1963. Amma og afi voru í góðum tengslum við böm sín sem og bamabörn og barnabarnaböm. Þegar horft er um öxl leita margar notalegar minning- ar á hugann, sem gott er að ylja sér við. Minningarnar gefa okkur, sem eftir lifum, tilefni til þess að leitast við að vera eftirmynd þeirra sem horfnir em. Amma og afí, Kristján Stefáns- son, eignuðust saman fímm börn. Garðurinn er grösugur, en alls eru barnabörnin orðin tólf og þeim til viðbótar eru fjórtán bamabarna- börn og allt er þetta myndarfólk. Eg átti því láni að fagna að fá að hefja búskap minn undir hand- leiðslu ömmu minnar. Á þeim tíma bjó hún í Bogahlíðinni og þegar ég og eiginmaður minn, Þröstur Ey- vinds, byrjuðum að búa kom ekki annað til gi-eina en að búskapurinn hæfíst á heimili ömmu. Hún hafði bá verið ekkja í allmörg ár og hafði húsnæði aflögu, sem var vel þegið af okkur unga fólkinu. Hjá ömmu bjuggum við í tæp þrjú yndisleg ár. Þar var gott að búa og ekki spillti fyrir að geta notið handleiðslu ömmu fyrstu búskaparárin. Amma var af þeirri kynslóð sem þekkti ekki aðgerðarleysi. Aldrei féll henni verk úr hendi og vann hún m.a. í Hattabúð Reykjavíkur í mörg ár. Frístundirnar notaði hún til hannyrða, sem var hennar helsta tómstundagaman. Á langri lífsleið hennar gerði hún meðal annars ótal ísaumaða púða, klukkustrengi og myndir, svo ekld sé nú minnst á þá fjölmörgu stóla og rennibrautir sem hún saumaði í. Fjölskylda okkar er og hefur alltaf verið sérstaklega samheldin og þar var amma svo sannarlega enginn eftirbátur. Hún var alltaf boðin og búin að hjálpa til ef eitt- hvað þurfti að gera. Áfmælisveisl- ur og aðrar uppákomur voru henni kærkomið viðfangsefni og þar lét hún ekki sitt eftir liggja og bakaði svo um munaði. Á meðan amma hafði heilsu til hafði hún yndi af því að fara í gönguferðir. Þrátt fyrir að hún væri orðin nokkuð fullorðin lét hún sig ekki muna um að fara daglega í bæinn með stræt- isvagni þar sem hún labbaði Laugaveginn ýmist upp eða niður. Þetta lét hún eftir sér allt til 87 ára aldurs, en þá fór heilsunni heldur að hraka og hún treysti sér ekki í þessar ferðir. Kynslóð ömmu minnar var og er lítið fyrir það að láta snúast í kring- um sig eða hafa fyrir sér á nokkurn hátt og þar var amma engin undan- tekning. Henni fannst hún alltaf vera að stela tíma frá okkur barna- börnunum ef við vildum Iétta undir með henni. Þegar tók að halla að ævikvöldi ömmu bjó hún í Furugerði, á meðal jafnaldra. Hið síðasta misseri ævi hennar var svo af henni dregið að hún fékk að dvelja á Droplaugar- stöðum. Þar átti hún gott ævikvöld og naut góðrar umönnunar starfs- manna sem við eftirlifendur þökk- um hjartanlega fyrir. Með þá vissu að ömmu verður vel tekið í nýjum heimkynnum þar sem fyrir dvelja sonur hennar og eiginmaður horf- um við björtum augum yfír myndar- legan hóp niðja hennar. Sigurlaug Kristín Bjarnadóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA MAGNEA HELGADÓTTIR, verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. september kl. 10.30. Sigurður Jónsson, Þóra Kristjánsdóttir, Þórdís Kristjánsdóttir, Helgi Kristjánsson Straumfjörð, Sæunn Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Kristjánsson, Þórólfur Kristjánsson, Hjördís Hjaltadóttir, Valborg Stefánsdóttir, barnabörn og langömmubörn. SIGURLAUG MAGNÚSDÓTTIR + Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, KRISTÓFER PÁLL GUÐNASON, lést 30. ágúst sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Helga Högnadóttir, Guðni Pálsson, Anna Bentína Hermansen, Gretar Hostert, Kristinn Vignir Ólafsson, Helga Rut Guðnadóttir, Ellen Elsa, Aldís Ása Guðnadóttir, Guðný Margrét Guðnadóttir, Sigmundur Árni Guðnason. + Faðir minn, bróðir og móðurbróðir, EIRÍKUR ÞORKELSSON frá Eskifirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaup- stað miðvikudaginn 2. september. Útför hans fer fram frá Eskifjarðarkirkju laug- ardaginn 12. september kl. 14.00. Jóhanna Eiríksdóttir, Ingvar Gunnarsson og systkini. + Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GUÐFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR frá Akrakoti, Álftanesi, lést mánudaginn 7. september sl. Erlendur Sveinsson, Þorgerður Erlendsdóttir, Júlíana B. Erlendsdóttir, Sveinn Erlendsson, Hugborg Erlendsdóttir. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, ANNA GUÐNÝ ANDRÉSDÓTTIR Ijósmóðir, Röðli, er lést föstudaginn 4. september, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 12. september kl. 16.00. Haukur Pálsson, Lilja Hauksdóttir og fjölskylda, Sesselja Hauksdóttir og fjölskylda. + Ástkær faðir okkar, SIGURÐUR HJÖRTUR BENEDIKTSSON, Frostafold 14, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 11. september, kl. 13.30. Þorbjörg Erla Sigurðardóttir, Elín Sigurðardóttir, Benedikt Sigurðsson, Eiríkur Sigurðsson. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, HERDÍSAR HLÍFAR ÁSGEIRSDÓTTUR, Gyðufelli 4, Reykjavík. Jón V. Sigurmundsson, Ingibjörg Huld Þorsteinsdóttir, Róbert Örn Jónsson, Þorsteinn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.