Morgunblaðið - 11.09.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1998 53
FRÉTTIR
ANNA Björg Aradóttir, verkefnisstjóri Heilsueflingar, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Sigurð-
ur Einarsson, forsljóri Kaupþings, og Ellert Schram, forseti ÍSÍ.
Kynslóðahlaupið verður
árlegur viðburður
Fyrirlestur
um tákn
með tali
PRÓFESSOR Irene Johansson
heldur fyrirlestur um „tákn með
tali“ á vegum Félags áhugafólks um
Downs-heilkenni
og Landssam-
takanna Þroska-
hjálpar sunnu-
daginn 13. sept-
ember kl. 14-17
á Grand Hótel
Reykjavík, Sig-
túni 38. Þessi
opni fyrirlestur
er fyrir foreldra,
áhugafólk og
fagfólk og er
þátttaka ókeypis.
Irene Johansson, prófessor í mál-
fræði og uppeldisfræðum við há-
skólann í Karlstad í Svíþjóð, hefur
um 20 ára skeið stundað rannsóknir
á málþroska og málörvun barna
með Downs-heilkenni. Johansson er
talin einn af virtustu fræðimönnum
á sínu sviði. Hún hefur samhliða
rannsóknum sínum stundað kennslu
og markvissa málörvun og talþjálf-
un fyiár börn með Downs-heilkenni.
Johansson er einn af frumkvöðlum í
því að nota „tákn með tali“ sem er
viðurkennd leið að talmáli og gagn-
ast vel börnum með Downs-heil-
kenni. I sínum heimabæ rekur hún
miðstöð fyrir börn sem nota „tákn
með tali“ og er með leiðsögn og
stuðning við foreldra allt frá fæð-
ingu barnsins til Ioka grunnskólaár-
| anna.
Áhugasamir um framgang „tákn
með tali“ eru eindregið hvattir til að
mæta.
GRÆNN lífseðill ætlar að standa
fyrir Kynslóðahlaupi 20. september
nk. kl. 14 og verður það árlegur við-
burður. Aðalstyrktaraðili Kynslóða-
hlaupsins er Kaupþing hf.
Grænn lífseðill er samstarfsverk-
efni ÍSÍ og heilbirgðisráðuneytisins
með það að markmiði að efla þátt-
töku almennings í hreyfingu og
ástundun íþrótta. Einnig að gera
fólk meðvitaðra um áhrif hreyfingar
og fæðuvals á heilsuna og sporna
gegn notkun tóbaks, áfengis og ann-
arra vímuefna. Framkvæmdaaðilar
Græna lífseðilsins eru íþróttir fyrir
alla og Heilsuefling.
Það er mat stjórnar Græna lífseð-
ilsins að íslenskar fjölskyldur hreyfi
sig almennt ekki eins mikið og
æskilegt er. Til dæmis sjáist alltof
sjaldan fjölskyldur þar sem þrjár
kynslóðir fara saman í gönguferðir,
sund eða taka þátt í íþróttaviðburð-
um nema þá í Kvennahlaupinu.
Kynslóðahlaupinu er ætlað að
brúa þetta bil á milli kynslóða og er
markmiðið að gefa stórfjölskyld-
unni tækifæri til að tvær, þrjár eða
fjórar kynslóðir hreyfí sig saman og
hafi gaman af því. „Hvetja þarf fjöl-
skyldur til aukinnar hreyfingar og
nú geta þær í sameiningu ákveðið
að ganga eða skokka tvo eða fjóra
kílómetra án þess að um nokkra
keppni eða tímatöku sé að ræða,“
segir í frétt frá Grænum lífseðli.
Kynslóðahlaupið verður haldið á
tíu stöðum um Iandið til að byrja
með. Þeir eru: Kópavogur, Aki’anes,
Stykkishólmur, ísafjörður, Sauðár-
krókur, Akureyri, Egilsstaðir,
Höfn, Vík og Reykjanesbær.
Irene
Johansson
Afmælissýning-
bólstrara
HÚSGÖGN vaxa ekki á trjám er yf-
irskrift afmælissýningar Meistara-
félags bólstrara (MFB) sem haldin
verður í Perlunni næstu helgi,
12.-13. september, en MFB er 70
ára á þessu ári.
Á sýningunni verða eingöngu ís-
lenskar framleiðsluvörur en íslensk-
ur húsgagna- og bólsturiðnaður er í
mikilli sókn um þessar mundir.
Samtök iðnaðarins standa að þess-
ari sýningu ásamt MFB enda er öll
áhersla á íslenska framleiðslu og
slagorðið „Veljum íslenskt“.
Meðal sýningaratriða má m.a.
nefna ýmis verðlaunahúsgögn, ráð-
herrastól, fyrsta sveinsstykki sem
gert var á Islandi, fyrsta náms-
samninginn í bólstrun, mikinn
fjölda íslenskra húsgagna, gömul og
ný vinnubrögð við bólstrun, rókókó-
stóla, litabreytingar í tölvu, skóla-
húsgögn, rúm í ýmsum stærðum og
gerðum, bólstruð bílasæti, leð-
urprufur, áklæði, svampa, sjúkra-
rúm, húsgagnateikningar, antikhús-
göng, skrifstofuhúsgögn, skerm-
veggi, tölvumyndir, hráefni til
Gróska
fundar um
verkefni
GRÓSKA, samtök jafnaðarmanna
og félagshyggjufólks, heldur opinn
félagsfund laugardaginn 12. sept-
ember í Rúgbrauðsgerðinni undir
yfirskriftinni: Verkefni stjórnar
jafnaðarmanna fyrstu 100 dagana.
Á dagskrá fundarins verður um-
ræða um Opnu bók Grósku, kosning
miðstjórnar Grósku, Verkefni nýrr-
I ar stjórnar jafnaðarmanna fyrstu
100 dagana, umræða um drög að
þeim verkefnum, Jakob Frímann
Magnússon heldur erindi um hvern-
ig eigi að vinna kosningar, pall-
borðsumræða forystumanna félgs-
hyggjuflokkanna og að lokum verða
bólstrunar, leðurhúðir, springdýn-
ur, eggjabakkadýnur o.m.fl. Þá fá
allir gestir sýningarinnar afhentan
happdrættismiða og er heildarverð-
mæti 10 vinninga yfir 300.000 kr.
Loks verða ýmsar getraunir í gangi
sem gestum gefst kostur á að
spreyta sig á.
„Yfirskrift sýningarinnar er
„Húsgögn vaxa ekki á trjánum" og
er þar vísað til þess að stór hluti al-
mennings gerir sér oft lita grein
fyrir umfangi og þróun síðustu ára í
íslenskri húsgagnaframleiðslu. Is-
lensk húsgagnaframleiðsla er í mik-
illi sókn og sýnileg mjög víða, hvort
sem er hjá stórum eða smáum fyrir-
tækjum, opinberum stofnunum eða
á íslenskum heimilum.
Alls sýna 13 aðilar framleiðslu
sína og vinnu auk þess sem MFB
verður með bás þar sem ýmislegt
tengt bólstrun verður til sýnis. Af-
mælissýningin er opin á laugardag
frá kl. 11-17 og á sunnudag frá kl.
12-17 en kl. 17 verður dregið í
happdrætti sýningarinnar, segir í
fréttatilkynningu.
niðurstöður kynntar um verkefni
nýrrar stjórnar jafnaðarmanna
fyi-stu 100 dagana við völd.
-------♦•♦-♦----
Fyrirlestur um
sj*ávarútvegs-
sögu Grænlands
DANSKI sagnfræðingurinn Vinnie
Andersen heldur fyi’irlestur mánu-
daginn 14. september nk. í boði
Rannsóknaseturs í sjávarútvegs-
sögu og Sjóminjasafns Islands.
Fyi-irlesturinn, sem nefnist „The
interplay of climatic changes and
the development of fishing for ex-
port in Greenlands, 1900-1940“,
verður haldinn í fyrirlestrasal Haf-
rannsóknastofnunar á Skúlagötu 4,
1. hæð, og hefst kl. 16. Allir vel-
komnir.
KOLBRÚN Vala Jónsdóttir fyrir utan verslunina African Gallery.
African Gallery opnað
OPNUÐ hefur verið verslunin
African Gallery á Skólavörðu-
stíg 17b.
Verslunin er með handunna
trévöru, vefnað og skartgripi
frá V-Afríku.
Eigandi er Kolbrún Vala
Jónsdóttir. Verslunin er opin
mánudaga, miðvikudaga og
fóstudaga kl. 10-18, fimmtu-
daga kl. 10-21 og laugardaga
kl. 10-16.
Markaður fyrir
kristniboðið
HINN árlegi haustmarkaður
Kristniboðssambandsins verður
haldinn laugardaginn 12. september
nk. í húsi KFUM og K, Holtavegi 28
(gegnt Langholtsskóla) í Reykjavík.
Markaðurinn hefst kl. 14 og rennur
ágóðinn til starfsemi Kristniboðs-
sambandsins.
„Það eru nokkrar konur í hópi
kristniboðsvina sem standa fyrir
markaðnum. Þarna verður selt ým-
iss konar grænmeti, allt eftir því
hvað kristniboðsvinir og aðrir vel-
unnarar vilja leggja fram af upp-
skeru sumarsins. Hvers kyns græn-
meti er vel þegið, kál, kartöflur, gul-
rætur, ber, sultur, o.s.frv., einnig
ávextir, blóm og' kökur og enda
hvað sem er matarkyns. Þessu er
veitt viðtaka í KFUM-húsinu fóstu-
daginn 11. september kl. 17-19,“
segir í fréttatilkynningu.
Boðið í sund
á Akranesi
SUNDFÉLAG Akraness fagnar nú
50 ára afmæli auk þess sem íþrótta-
miðstöðin á Jaðarsbökkum á Akra-
nesi er 10 ára á þessu ári. Af þessu
tilefni hefur Sundfélagið skipulagt
fjölbreytta dagskrá við Iþróttmið-
stöðina laugardaginn 12. september
og sunnudagínn 13. september.
Meðal þess sem verður á dag-
skránni er ljósmyndasýning þar
sem sögu Sundfélagsins eru gerð
skil. Efnt verðui- til Aki-anessunds
þar sem Akurnesingar og nærsveit-
armenn eru hvattir til að synda sér
til heilsbótar og veittur er bron-
speningur fyrir 200 m, silfurpen-
ingur fyrir 500 m og gullpeningur
fyrir 1000 m.
Á sunnudag verður dagskránni
haldið áfram með boðsundskeppni
á milli meirihluta og minnihluta
bæjarstjórnar, reiptogi og kapp-
róðri. Ný rennibraut verður tekin í
notkun í Jaðarsbakkalaug og af-
mælishátíð verður haldin í sal
íþróttmiðstöðvarinnar. Margt fleira
verður á dagskrá og verður frítt í
sund alla helgina.
------♦♦♦------
Sjóferðir og
gönguferðir
út í Engey
f TILEFNI af degi hafsins fer
Hafnargönguhópurinn í sjóferðir
og gönguferðir út í Engey laugar-
daginn 12. september ef sjóveður
leyfir.
Mæting í fyrri ferðina er við
Hafnarhúsið kl. 6.30, rétt fyrir sól-
ris, og gengið um borð í skip með
eftirbáti, siglt umhverfis eyjuna og
út undir Engeyjartagl og þátttak-
éndur fluttir í land á eftirbátnum.
Gengið verður með strönd austur-
hluta eyjunnar. Að því loknu er far-
ið um borð í skipið og til lands.
Mæting í seinni ferðina er kl. 18
við Hafnarhúsið fyrir sólarlag og
sami háttu hafður á og í fyrri ferð-
inni utan að landtaka verður við
Austurvör og gengið með strönd
vesturhluta eyjunnar.
í fréttatilkynningu segir að Eng-
ey sé náttúru- og mannvistarminja-
perla sem náttúran sjálf hafi séð
um að mestu frá að síðustu ábúend-
urnir fóru í land. Að þessu sinni
verði ekki um leiðsögn að ræða
heldur sé ætlast til að þátttakendur
njóti ferðarinnar hver á sinn hátt
og taki gjarnan með sér nesti. Stað-
kunnugur maður vísar leiðina.
--------------------
Vísindasagn-
fræðingur
heldur
fyrirlestur
BANDARÍSKI vísindasagnfræð-
ingurinn Michael Fortun heldur
fyrirlestur á vegum Siðfræðistofn-
unar Háskóla íslands og Siðaráðs
landlæknis mánudaginn 14. sept-
ember kl. 17 í hátíðarsal Háskólans.
Dr. Michael Fortun lauk dokt-
orsprófi í vísindasögu árið 1993 frá
Harvard University, Cambridge,
Mass. í Bandaríkjunum.
„Vísindarannsóknir og viðskipti á
sviði mannerfðafræði hafa verið í
örum vexti á undanfornum árum.
Það hefur leitt af sér nýja vitneskju
á sviði líffræði, fyrirheit á sviði
lækninga og erfið þjóðfélagsleg og
siðfræðileg vandamál. Ný svör og
nýjar spumingar um sjúkdóma,
friðhelgi einkalífs, lýðræði, réttlæti
og hver við séum fela í sér gríðar-
stór úrlausnarefni. Vísindamenn,
læknar, siðfræðingar, stjórnmála-
menn og almenningur þurfa að
finna nýjar leiðir til að hugsa um,
og spyrja viðeigandi spurninga um
þessi mál og móta um þau sameig-
inlega stefnu,“ segir í frétt frá
fundarboðendum.