Morgunblaðið - 15.09.1998, Page 13

Morgunblaðið - 15.09.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1998 C 13 FASTEIGNAMIDLON SCIÐURLANDSBRAGT 46 (bláu húsin) SÍMI 568-5556 • FAX 568-5515 Félag Fasteignasala MAGNÚS HILMARSSON HAUKUR GUÐJÓNSSON EYSTEINN SIGURÐSSON lögg. fasteignasali. BIRNA BENIDIKTSD. ritari Sími 568 5556 VESTURBERG EINBÝLI Faiiegt ebv býlishús 190 fm ásamt 30 fm bílskúr og 100 fm kjallara sem gefur mikla möguleika. Parket og flísar. Frábært útsýni. Fallegur garður. Gott hús sem hefur verið vel viðhaldið. Nýtt þak. Fjöl- skylduvænt umhverfi. Verð 14,4 millj. 2759 FJALLALIND Glæsilegt nýtt parhús á 2 hæðum 172 fm með innb. 28 fm bílskúr. Glæsilegar innréttingar. Parket. Góður staður. Gróinn garður. Áhv. Húsbr. 6,5 millj. Verð 14,5 millj. AUSTURGERÐI - RVK. Sérstakt og fallegt 300 fm einbýlishús, kjallari, hæð og ris, með innbyggðum bílskúr á þessum eftirsótta stað. Hús í góðu ástandi, talsvert endumýjað, m.a. gler, gólfefni, þak o.fl. Fallegur, gróinn garður með miklum trjáaróðri. HÚS SEM BÝÐ- UR UPP Á MIKLA MOGULEIKA. Verð 17,3 millj. 2755 BREKKUHVARF við Elliðavatn. Paradís útivistarfólksins nú er aðeins eitt hús eftir af þessum glæsilegu 156 fm parhúsum á einni hæð með innb. bílskúr á þessum frábræra stað viö Elliöavatn. Skilast fullbúin að utan sem innan án gólfefna í okt./nóv. 1998. Lóð grófjöfnuð. Verð 13,5 millj. 2602 KJALARNES - EINBÝLI Fallegt ein- býlishús á einni hæð 218 fm með innb. bílskúr. 4 svefnherb. Fallegur staður. Áhv. góð lán 7 millj. Vel skipulagt og gott hús. 2768 VESTURFOLD Glæsilegt einbýlishús sem er hæð og tvöfaldur bílskúr samt. 153 fm ásamt kjallara undir öllu sem er ófrá- genginn og gefur mikla möguleika. Falleg ræktuð lóð. Frábært útsýni. Stórar hom- svalir. Góður staður. Áhv. húsbr. 5,3 millj. Verð 14,2 millj. 2746 GNOÐARVOGUR - BÍLSKÚR v0r- um að fá í einkasölu glæsilega 145 fm efri hæð í þessu fallega fjórbýlishúsi ásamt góðum bílskúr. Góðar innr. Stórar stofur. Góð her- bergi. Tvennar svalir. Frábært útsýni. Falleg eign í fínu standi. Verð 12,1 millj. 2724 REKAGRANDI Falleg 130 fm íb. hæð og ris í nýl. blokk ásamt bílskýli. Fallegar eikarinnr. Suðursv. Fjögur svefnherb. Áhv. 3,5 millj. byggsj. Skipti mögul. á minni íb. Verð 9,9 millj. 2256 STIGAHLÍÐ Glæsileg 4ra herb. íbúð 110 fm á jarðhæð í þríbýli. Lítið niöurgr. Fal- legar nýjar innr. Nýjar steinflísar á gólfum. Sértimburverönd í lóð. Sérinngangur, sér- hiti. Áhv. húsbr. 4,8 millj. Verð 9,2 millj. 2663 STIGAHLIÐ - 6 HERB. Mjög falleg og rúmgóð 6 herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Fallegar innréttingar. 2 stofur. Parket. Suður- svalir. Verð 9,3 millj. 2742 í smíðum GAUTAVÍK - GRAFARVOGUR Höfum til sölu mjög fallegt parhús 146 fm á einni hæð með innb. bílskúr. Húsið er í smíð- um, og er til afh. fljótlega. Afh. fullb. að utan, fokhelt að innan. Verð 8,6 millj. 2612 4ra herb. AUSTURBERG Falleg 4ra herb. íbúð á 4. hæð, efstu, ásamt bílskúr. Góðar innr. Stórar suðursvalir. Húsið nýgegnumtekið og málað að utan. Skipti mögul. á minni eign. Verð 6,9 millj. 2070 ÞVERBREKKA Falleg 4ra til 5 herb. íbúð 105 fm á 3ju hæð í lyftublokk. Sérþvottahús. Tvennar svalir. Fallegt útsýni. Verð 6,9 millj. 2573 LJÓSHEIMAR Góð 4ra herb. íbúð á 1. hæð 100 fm. Búið er að klæða húsið að utan og lítur þaö mjög vel út. Góð staðsetning. Nýir ofnar. Tvennar svalir. Verð 7,9 millj. 2554 3ja herb. ÁSGARÐUR Falleg 80 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli. Parket og marmari á gólf- um. Suðursvalir. Sérgeymsla. Sérþvottahús. Áhv. byggsj. 4,8 millj. Verð 7,4 millj. 2729 HVERFISGATA Falleg 3ja til 4ra herb. íbúð á 2. hæö 90 fm. með aukaherb. í kjall- ara. Parket. Góður bakgarður. Áhv. 3 millj. húsbr. og byggsj. Verð 6,2 millj. 2769 HRAUNBÆR Falleg 3ja herb. endaíb. á 3. hæö. Vestursvalir. Sérgeymsla. Sam. þvottah. m. vélum. Sam. sauna. Ahv. 2,9 millj. byggsj. Verð 5,4 millj. 2738 KAMBSVEGUR Falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu húsi. Parket. Geng- iö út í garð úr stofu. Laus fljótlega. íbúðin hentar vel fyrir fatlaða. Góður staöur. 2765 AUSTURBÆR Falleg 3ja herb. íbúð á 3ju hæð 63 fm. Frábært útsýni. Sérþvottahús. Sér- hiti. Getur losnað fljótt. Verð 5,3 millj. 2607 VESTURBÆR - LYFTUHÚS Fai- leg 3ja til 4ra herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Suðursvalir. Sérlega fallegt útsýni. Verð 7,4 millj. 2740 MÁNAGATA Falleg 3ja herb. neðri hæð 86 fm í þríbýli. Parket. Suðursvalir. íbúðin er á góðum staö í Norðurmýrinni. Áhv. byggsj. og húsbr. 4,3 millj. Verð 7,5 millj. MOSARIMI - LAUS STRAX Glæsi- leg 3ja herb. íbúð á 3ju hæð efstu 87 fm. Glæsilegar innr. og gólfefni. Sérþvottah. Suðaustursvalir. Sérínngangur. Áhv. 4,4 millj. húsbr. Verð 7,6 millj. 2708 SELVOGSGRUNN Góð 3ja herb. íbúð á jarðhæð í þríbýli 89 fm. Sérinngang- ur. Sérhiti. Góður staður. Góður garður. Laus strax. Verð 6,8 millj. 2712 SKÓGARÁS Falleg rúmgóð 3ja herb. íb. 82 fm á 2. hæð í litlu fjölbh. Fallegar nýj- ar innr. Steinflísar. Stórar suðursv. Þvh. og búr inn af eldh. Áhv. byggsj. og húsbr. 3 millj. Verð 7,2 millj. 2241 2ja herb. HVERFISGATA Faiieg 2ja herb. ósamþ. íbúð á 3. hæð í suðurenda stein- húss. Nýlegar innréttingar. Nýtt þak. Verð 2,5 millj. 2744 BERJARIMI - PERMAFORM Mjög falleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð með sérinngangi. Faliegar innr. Parket. Sérlega fallegt útsýni. Stórar suðvestursvalir. Sér- þvottah. FROSTAFOLD Glæsileg 2ja herb. íbúð á 3ju hæð í litlu fjölbýli. Fallegar innr. Parket. Suðvestursv. Fallegt útsýni yfir borgina. Áhv. byggsj. 2,2 millj. Verð 6,2 millj. HEIÐARÁS Falleg 2ja herb. íbúð á jarðhæð 60 fm í tvíbýli. Góðar innr. Fallegur staður. Verö 5,4 millj. 2574 BLIKAHOFÐI 1 og 3 FULLBÚNAR ÍBÚÐIR Á BESTA STAÐ í MOSFELLSBÆ íbúðir afhendast fullbúnar með vönd- uðum innr. frá AXIS og gólfefnum að hluta til. Flísalaght bað. Fullfrágeng- in lóð. Vandaður upplýsingabæklingur á skrifstofu okkar. FULLBUNAR IBUÐIR A BESTA STAÐ í MOSFELLSBÆ. FALLEGUR ÚTSÝNISSTAÐUR. SÉRLEGA G0TT VERÐ. FÁAR ÍBÚÐIR EFTIR. 3ja herb. íbúðir 86 fm 7.250.000 4raherb. íbúðir 102 fm 8.200.000 5 herb. ibúðir 120 fm 9.300.000 Rúmgóðir bílskúrar, 28 fm, geta fylgt 980.000. Sameign fullfrágengin að utan sem innan. Afhending í desember nk. Byggingaraðili: UPPLYSINGAR A SKEIFUNNI JS Járnbendmg ehf Byggingauerktakí Gerð húsa- leigusamninga Leigusamningur um húsnæði skal vera skriflegur, segir Sandra Baldvinsdóttir lögfræðingur Húseigendafélagsins. Hún bendir á að leigusali og leigjandi ættu að kynna sér vel húsaleigulögin þar sem síður komi til árekstra ef menn bekkja réttindi sín og skyldur. í FLESTUM tilvikum gengur út- leiga húsnæðis vel fyrir sig en í öðr- um koma upp vandamál sem í mörgum tilfellum hefði verið unnt að varast. Við gerð leigusamninga er ýmislegt sem þarf að huga að og með góðum undirbúningi er unnt að fyrirbyggja ýmis vandkvæði síð- ar á leigutímanum. Skriflegir leignsamningar Leigusamningur um húsnæði skal vera skriflegur. Húsnæðis- stofnun ríkisins hefur gefið út sér- stök eyðublöð, eitt fyrir leigusamn- ing um íbúðarhúsnæði og annað fyrir leigusamning um atvinnuhús- næði. Leigusamningurinn getur verið tímabundinn eða ótímabund- inn. Tímabundnum samningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila. Tímabundnum samn- ingi verður ekki slitið með uppsögn á umsömdum leigutíma nema samið sé um slíkt á grundvelli sér- stakra forsendna, atvika eða að- stæðna sem þá skulu tilgreind í leigusamningi og er þá gagnkvæm- ur uppsagnarfrestur a.m.k. þrír mánuðir. Uppsögn ótímabundinna samn- inga skal vera skrifleg og send með sannanlegum hætti. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á íbúðum er sex mánuðir nema ef leigjandi hefur haft íbúð á leigu lengur en fimm ár, en þá skal uppsagnarfrestur af hálfu leigusaia vera eitt ár. Upp- sagnarfrestur telst hefjast fyrsta dag næsta mánaðar eftir að upp- sögn var send. Tryggingar Leigusali getur krafist þess að leigjandi setji honum tryggingu fyrir réttum efndum á leigusamn- ingnum, þ.e. fyrir leigugreiðslum og skaðabótum vegna tjóns á hinu leigða sem leigjandi ber ábyrgð á samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga eða almennum reglum. Trygging getur verið með ýms- um hætti, t.d. ábyrgðaryfirlýsing banka, sjálfskuldarábyrgð þriðja aðila, leigugreiðslu- og viðskilnað- artrygging sem leigjandi kaupir hjá viðurkenndu tryggingarfélagi, tryggingarfé sem leigjandi greiðir til leigusala og hann varðveitir, eða aðrar tryggingar sem leigjandi býður fram og leigusali metur gilda og fullnægjandi, s.s. tryggingarvíx- il. Undirritun fyrir afhendingu Mikilvægt er að húsnæðið sé ekki afhent áður en ritað hefur ver- ið undir leigusamninginn og trygg- ingar verið afhentar. Ef samning- urinn er ekki undirritaður ræðst réttarsambandið einvörðungu af húsaleigulögunum, en ekki sérstök- um samningsákvæðum leigusamn- ingsins. Teljast aðilar þá hafa gert ótímabundinn leigusamning. Skriflegar orðsendingar Þurfi aðili leigusamnings vegna fyrirmæla húsaleigulaga að koma á framfæri við gagnaðila skriflegri orðsendingu, hverju nafni sem hún nefnist, þá skal hún send af stað með sannanlegum og tryggilegum hætti og innan þeirra tímamarka eða fresta, sem mælt er fyrir um, ef því er að skipta. Sé þess gætt, þá hefúr orðsend- ingin þá þýðingu og þau réttará- hrif, sem henni er ætlað að hafa, jafnvel þó hún komi afbökuð, of seint eða alls ekki til viðtakanda. Þannig þarf sendandi einungis að sýna fram á að hann hafi sent orð- sendinguna en hann þarf ekki að sanna að viðtakandi hafi móttekið hana. Úttekt Úttekt skal leggja til grundvallar ef ágreiningur verður um bóta- skyldu leigjanda við skil húsnæðis. Skylt er aðilum leigusamnings að láta fara fram úttekt á hinu leigða húsnæði við afhendingu þess eða við skil í lok leigutímans ef annar aðili krefst þess. Uttekt er framkvæmd af bygg- ingarfulltrúa eða á vegum húsnæð- isnefndar, að viðstöddum aðilum eða umboðsmönnum þeirra. A sér- staka úttektarlýsingu skal skrá sem ítarlegasta lýsingu á hinu leigða húsnæði og ástandi þess og getur leigjandi þá strax komið að aðfinnslum sínum og óskað úrbóta. Aðilar leigusamnings greiða að jöfnu kostnað vegna úttektar sem gerð er í upphafi eða við lok leigu- tíma. Þekktu réttindi þín og skyldur Leigusali og leigjandi ættu að kynna sér vel húsaleigulögin. Þegar aðilar leigusamnings þekkja rétt- indi sín og skyldur verður síður um árekstra og vandamál að ræða á leigutímanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.