Morgunblaðið - 01.11.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 01.11.1998, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ J«teh wircnr tökum upp nýjar scndingar daglega. xfKRISTALL Kringlunni og Faxafeni Sérmerktar HÚFUR OG HANDKLÆÐI Afslátturtil 15. nóvember. Fáið sendan myndalista. Myndsaumur Hellisgata 17 220 Hafnarfjörður Sími 565 0122 www.if.is/myndsaumur ART THERAPY Aðalheiður Elva Jónsdóttir KONUR Helgarnámskeið fyrir konur í listmeðferð NÁMSKEIÐIN ERU HELGARNAR 7.-8. OG 28.-29. NÓVEMBER. Upplýsingar og innritun i síma 567 8007 eða h.síma 554 5603 Markmiö námskeiösins er að styrkja sjálfsmynd þátttakenda, auka á samskiptahæfileika, læra aö á við nýjar áhættur, hvetja til aukins frumkvæðis og efla sjálfsmeðvitund. Þátttakendur þurfa hvorki að kunna að teikna né máia. MA í listmeðferðarfræði frá Lesley College, Boston. TILBOÐSDAGAR á hreinlætistækjum, stálvöskum, sturtuklefum, blöndunartækjum o.m.fl. 20—50% afsláttur VATNS VIRKINN ehf Ármúla 21, sími 533 2020. http://www.islandia.is/vavirk MANNLÍFSSTRAUMAR IVIATARLISTÆrz/ franskar belgískarf Mqjon esrneii n ing í ÞVÍ mikla sælkeralandi sem Belgía er, tíðkast þó eitt sem í fljótu bragði hljómar ekki mjög matarmenningarlega, ef svo má að orði komast. Belgar borða nefnilega franskar kartöflur með nánast hverju sem er, einnig mikið einar og sér, með vænni slummu af majo- nesi. Mér leist nú í fyrstu ekki á þessa hefð, en ég verð að segja að ég hef breytt um skoðun og er nú dottin í frönsku kartöflurnar, eða öllu heldur þær belgísku, því franskar kartöflur eiga nefnilega ættir sínar að rekja til Belgíu, en ekki til Frakklands eins og flestir halda. Þær kallast alls staðar í Evr- ópu „frites", sem þýðir: það sem er djúpsteikt, semsagt stytting á djúp- steiktir kartöflustrimlar. Eg veit ekki um nein lönd nema ísland og Bandaríkin sem eigna Frakklandi þennan vinsæla kartöflurétt. eftir Álfheiði Hönnu Friðriksdóttur Um daginn borðaði ég hér ljúf- fengan kræklingarétt, sem er einn af þjóðarréttum Belga, og með honum vænan skammt af frönskum kartöflum. Þetta er ■■■■■■■ samsetning sem mér hefði aldrei dottið í hug að myndi ganga, en nú get ég varla hugsað mér kræk- ling án þess að hafa með honum franskar, ja ég segi það nú kannski ekki, en þetta bragðaðist allavega mjög vel. Með krækling og frönskum er síðan oft borið fram mjög gott sinnepsmajones. Þar komum við að öðrum kapít- ula, majoneskaflanum. Hér er það sko ekki bara Gunnars og búið, með fullri virðingu fyrir því ágæta majo- nesi. Nei, hér er sko hægt að fá óteljandi tegundir af majonesi, t.d. með sítrónubragði, léttmajones af ýmsum gerðum, majones með eggj- um og með sinnepi svo eitthvað sé nefnt. Hér er reglulega haldin mikil majoneskeppni, þar sem keppt er um hver sé mesti majoneskokkur- inn. Enda er majonesið hér afar gómsætt og ég sem yfirleitt borða varla majones er farin að fá mér FRANSKUR koss er þó alltaf franskur. stundum léttmajones með sítrónu- bragði ofan á brauð. Það er líka útbreiddur misskiln- ingur að majones þurfí að vera óhollt og mikill heilsuhrellir. ítalskt majones er t.d. búið einungis til úr úrvals ólífuolíu og eggjarauðum, stundum er ögn af sítrónusafa reyndar bætt út í. Þeim fínnst það alveg út í hött Itölum að sinnepi sé bætt út í majonesið, eins og tíðkast bæði hér í Belgíu og eins í Frakk- landi, en sinn er siður í hverju landi. Reyndar er heimatilbúið og ómeng- að ólífuolíueggjamajones algert lost- æti, en sinnepið getur átt oft við, eins og t.d. með hvítvínssoðnum kræklingum. Hér koma uppskriftir að þremur afar ljúffengum majo- nessósum, sem tilvalið er að dýfa t. d. djúpsteiktum kartöflustrimlum í, eða hráu grænmeti skomu í strimla. Til þess að búa til verulega gott majones fyrir 4-5 manns þarf ca. 3 eggjarauður, 240 ml af góðri exstrajómfrúrólífuolíu og salt. Setjið eggjarauðumar í þykka skál, ekki of stóra og þeytið þær með trépísk í u. þ.b. 1 mín. og bætið þá 1 tsk. af salti út í. Byrjið þá að hella ólífuolí- unni út í blönduna. Það er afar mik- ilvægt að hella henni nánast í dropa- tali og þeyta vel á milli þar til majo- nesið fer að líta út eins og maður þekkir það, þykkt og sællegt. Eftir nokkrar mín. má síðan fara að hella ólífuolíunni í aðeins stærri skömmt- um, eða þar til hún rennur í óslitinni og stöðugri, en mjórri bunu niður í eggjablönduna. Mjög mikilvægt er að hræra vel í allan tímann; majo- nesið á að verða mjög þykkt, með þykkleika nær á við þykka máln- ingu, en það verður ekki á þykkt við það majones sem flestir þekkja: majonesið sem festist við skeiðina og maður verður að hrista hana til að losa það af henni og síðan hlamm- ar það sér á diskinn með miklum smelli. Þetta majones er meira eins og mjög þykk sósa sem nær því ekki að verða hlaupkennd. Eins og ég sagði áðan getur maður bætt nokkrum dropum af sítrónusafa út í majonesið í lokin, sérstaklega ef borða skal fisk með því. Þá er það majonesuppskrift núm- er tvö. Hér er um að ræða grænt majones, sem er lagað alveg eins og ofangreint majones, nema síðan er bætt út í það hnefafylli af fínsaxaðri steinselju eða basil, fínsöxuðum funihnetum og pistasíum. I næstu majonesuppskrift er nóg að nota 2 eggjarauður á móti 120 ml af ólífuolíu og ögn af salti og sítrónusafa, þetta er ögn þykkara majones. Sigtið því næst um 60 gr af túnfíski í olíu og bætið út í majo- nesið. Þetta túnfiskmajones er frá- bært meðlæti með allskyns köldum réttum og sérstaklega ljúffengt með kjúklingi og harðsoðnum eggjum, sem viðbit í samlokum. Túnfískma- jonesfylltir hráir tómatar eru einnig ljúffengur forréttur. ÞfODLIFSÞANKARÆr ekki verðugt verkefnifyrir ís- lenskar konur að styðja stríðshrjáðar kynsystur sínar í Bosntuf Hjálp til sjálfshjálpar KONUR eru nú um 65% íbúa í Bosníu, þær búa margar hverjar við vatns- skort í hálfhrundum húsum eftir loftárársir og þurfa einar að sjá fyrir fjöl- skyldum sínum eftir missi eiginmanns. Ungar konur sem urðu fórnarlömb í skipulegum fjöldanauðgunum hafa alltof margar orðið að bera harm sinn í hljóði. Sumar konur hafa séð sig tilneyddar að gefa börn sem urðu til við hörmulegar aðstæður en aðrar reyna að búa börnum sínum og sjálfum sér einhverja frarntíð í þessu stríðshrjáða umhverfí, sem aldrei virðist ætla að verða vettvangur friðar, hamingju og gleði. Hvað kemur okkur þetta við og hvað getum við svo sem gert? - kann einhver að spyrja. Svarið er að eng- inn hefur bréf upp á að hörmungar kunni ekki að berja að dyrum hans og þá fínnur sá hinn sami hve hjálp í neyð er mikils virði. Slík hjálp getur til dæmis verið í formi þess að styrkja hjálparstarf sem fram fer á styrjaldar- svæðinu. Fyrir skömmu var ég viðstödd fyrirlestur sem Kvenréttindafélag íslands, Bandalag kvenfélaga í Reykjavík og Kvenfélagasambandið stóðu fyrir um hjálparstarf sem Þýskalandsdeild bosníska kvenfélagsins BISAR hefur með höndum í Sarajevo og víðar. íslensk kona á sæti í stjórn um- rædds félags, sem hefur nú snúið sér til íslenskra kvenfélaga með beiðni um aðstoð vegna athvarfs sem verið er að byggja upp fyrir illa staddar konur í Bosníu. Samhjálp er mikilsverð - ekki síst þegar um líf og framtíð barna er að tefla. Það er ekkert spaug að standa í þeim sporum sem fátækai- mæður í Bosníu gera nú. Þær búa að auki við mikið öryggisleysi og eiga í fá hús að venda. Þess vegna er mik- ils vert að konur, sem búa við þær aðstæður sem norrænar konur eru svo lánsamar að njóta allflestar, rétti hinum lítils megandi kynsystrum sínum hjálparhönd í neyð þeirra. Kvenfélagið BISAR var stofnað 1992 J eftír Guðrúnu Guðlaugsdóttur i Bosníu, fyrst frjálsra kvenfélaga. Þýskalandsdeild þessa ágæta félags hefur nú keypt hús í Sarajevo til þess að geta hýst þar aðstoðarstarf af ýmsu tagi við bág- staddar konur þar- lendar. Athvarf þetta er nú að taka til starfa og fá konur þar kennslu, áfallahjálp, lögfræðiaðstoð, læknis- hjálp og sitthvað fleira sem þær eru sárlega þurfandi fyrir. Óskað hefur verið eftir stuðningi íslenskra kvennasamtaka í þessu máli. íslensk kvenfélög hafa verið mjög dugleg að styrkja ýmiss konar starfsemi hér á landi sem lýtur að bættum hag kvenna hér. Þau vandamál sem ís- lenskar konm- eiga við að stríða eru sem betur fer oftast næsta auðleyst miðað við það sem bosnískar konur stríða nú við. Ekki aðeins eru úrræði hér miklu fleiri en þar heldur hafa konur í Bosníu margar hverjar lak- ari menntun og minna sjálfstraust en norrænar konur. Það er því rnjög margt sem hægt er að gera þeim til hjálpar en forsendan er að hafa at- hvarf þar sem hjálparstarfíð getur farið fram. Markmiðið er að hjálpa þessum illa stöddu konum til þess að hjálpa sér sjálfar. Hjálpa þeim til þess að öðlast trú á eigin getu og andlegan styrk til að standa af sér þær hörmungar sem yfir þær hafa dunið. Þetta hjálparstarf er verðugt verkefni fyrir samtök íslenskra kvenna til að styðja. I hverfulum heimi er mikilvægt að hver hjálpi öðrum eftir því sem geta og aðstæð- ur leyfa. Hjálp til sjálfshjálpar er oft sú aðstoð sem ber hvað ríkulegastan ávöxt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.