Morgunblaðið - 01.11.1998, Blaðsíða 16
MORGUNB LAÐIÐ
>16 B SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1998
%
*
BANDARÍSKA leikrita-
skáldið David Mamet hef-
ur að eigin sögn sérstak-
lega gaman af því að gera
kvikmyndir. Nýjasta myndin hans,
Spænski fanginn eða „The Spanish
Prisoner", með Steve Martin í að-
alhlutverki, er þó fjórða bíómyndin
sem hann leikstýrir sjálfur en hann
hefur skrifað í allt 14 kvikmynda-
handrit að ógleymdum 22 leikrit-
um, sex ritgerðarsöfnum og tveim-
ur skáldsögum. En dálæti hefur
hann á kvikmyndagerð, það er víst:
„Eg er aldrei hamingjusamari en
þegar ég er að gera bíómynd," hef-
ur kvikmyndatímaritið Neon eftir
honum. „Þá er eins og ég sé úti á
leikvelli með öllum bestu vinum
mínum.“ En þótt hann hafi gaman
af kvikmyndagerð er hann leikrita-
skáld fyrst og fremst og maður
orðsins. Hann er í fremstu röð leik-
skálda Bandaríkjanna og hefur
verið það í mörg undanfarin ár.
Einhver ritdómarinn sagði að hann
væri „síðasti ameríski snillingur-
inn.“ Kannski þess vegna er hann
ekki alltof ánægður með viðhorfið í
Hollywood. „í Hollywrood,“ segir
hann, „vilja þeir alltaf vita um bak-
grunn persónanna í verkunum,
sem er það hálfvitalegasta sem
hægt er að hugsa sér. Það er eins
og að horfa á málverk af manni og
spyrja í hvernig nærbuxum hann
er.“
Höfundur
kvikmyndahandrita
Hinar þrjár bíómyndirnar sem
hann hefur leikstýrt eru „House of
Games“ frá árinu 1987, „Things
Change" frá árinu 1988 og
„Homicide", sem hann gerði þrem-
ur árum síðar. Mamet er sannar-
lega þekktari fyrir leikrit sín en
kvikmyndahandrit en hann hefur
frá því hann fór að dufla við kvik-
myndirnar orðið einn athyglisverð-
asti handritshöfundur bandaríska
kvikmyndiðnaðarins. Einhver besta
mynd þessa áratugar er „Gleng-
arry Glen Ross“, sem byggð er á
samnefndu leikriti hans og er með
herskara þekktra leikara. Mamet
átti ekki síst þátt í því með handriti
sínu að sakamálamyndin Hinir
vammlausu fór sigurför um heim-
inn. Honum tókst að tryggja sér
óskarsverðlaunaútnefningu með
Dómsorðinu eða „The Verdict", en
það var eitt af fyrstu kvikmynda-
handritum Mamets. Hann skrifaði
handritið að „The Postman Always
Rings Twice“ eða Póstmaðurinn
hringir alltaf tvisvar, sem Bob Ra-
felson leikstýrði árið 1981 með
Jessica Lange og Jack Nicholson í
aðalhlutverkum.
Nýjustu mynd Mamets, Spænska
fanganum, er lýst sem margflókinni
spennumynd gerðri jafnvel í anda
meistara Hitcheocks. Hún segir frá
kaupsýslumanninum Joe Ross,
leikinn af Campbell Scott, sem sett
hefur saman mjög ábatasama við-
Maður
orðsins
Þótt David Mamet sé kunnari fyrir
leikrit sín en bíómyndir hefur hann
einstakiega gaman af að vinna við
kvikmyndagerð að eigin sögn. Hann
hefur leikstýrt fjórum myndum segir í
grein Arnaldar Indriðasonar en sú nýjasta
heitir Spænski fanginn, gerist á
sólarströnd og er með Steve Martin
í aðalhlutverki
Hann lærði inn á leiklistina i New
York með því að eyða einu ári við
Neighbourhood Professional Scool
of Theater og þegar hann snéri aft-
ur árið 1969 var hann ákveðinn í því
að gerast leikskáld. Að skrifa leik-
rit er miklu betra en að vinna fyrir
sér, hugsaði hann, „miklu betra.“
Hann starfaði við ýmislegt með-
fram skrifunum í byrjun. Hann var
leigubílstjóri, gluggaþvottamaður
og seldi fasteignir en reynsla hans í
því starfl nýttist honum mjög þegar
hann skrifaði meistarastykki sitt,
„Glengarry Glen Ross“. Hann snéri
aftur til háskólans í Vermont í
þetta sinn til að kenna leiklist og
einn af nemendunum hans þar var
leikarinn William H. Macy
(,,Fargo“), sem síðar átti eftir að
fara með aðalhlutverkið í einu af
umdeildari verkum Mamets,
„Oleanna". Macey minnist kennslu-
aðferða Mamets: „Það fyrsta sem
hann sagði var að ef þú mættir of
seint ættirðu að sleppa því að
mæta, ef þú kemur ekki undirbúinn
ekki koma, ef þú vilt læra að verða
leikari er ég sá sem get kennt þér
það. Ef þú ert ekki hér til þess,
skaltu fara út.“ Mamet sektaði þá
sem komu of seint um einn dollara
og brenndi seðilinn fyrir framan þá.
Macy komst í innsta hring þeirra
skiptaáætlun er hann kallar ein-
faldlega Ferlið. Þar sem hann sólar
sig í fríi á karabísku eyjunni San
Estefe (sem ekki er til í raunveru-
leikanum) hittir hann fram-
kvæmdamann mikinn að nafni Jim-
my Dell (Martin) er lofar honum
gulli og grænum skógum en sam-
band þeirra leiðir til hörmunga.
Mamet er fæddur í Chicago fyrir
einum fímmtíu árum og segir systir
hans, Lynn, að hann sé „sá reiðasti
maður sem nokkru sinni hefur
dregið andann". Hann mun hafa átt
erfíða æsku þótt ekki tali hann mik-
ið um það. „Æska mín, eins og svo
margra annarra, var ekkert til þess
að hrópa húrra fyrir. Og hvað með
það?“
Betra en að
vinna fyrir sér
Hann ólst upp í Chicago í hverfi
sem þekkt var fyrir smákrimma,
fjárhættuspilara og hraðlygna
svikahrappa, sem með einum eða
öðrum hætti hafa fundið sér leið inn
í leikrit Mamets. Faðir hans var
lögfræðingur en móðirin seldi
tryggingar. Mamet sótti nám í lítt
þekktum háskóla í Vermont.
„Ég held að ég hafi verið
að læra bókmenntin
en ég sá aldrei neina
kennara," segir hann í dag.
sem Mamet safnaði um sig og kall-
aður var Mametsmafían. Um svipað
leyti sendi hann frá sér tvö fyrstu
leikritin, „Sexual Perversity In
Chicago", árið 1973, sem var að
nokkru leyti sjálfsævisögulegt og
naut mikilla vinsælda, og „Americ-
an Buffalo" árið 1974. Á næsta ára-
tug sendi Mamet frá sér fjölda leik-
rita, „The Water Engine“, „The
Shawl“, „Reunion“ og loks „Gleng-
arry Glen Ross“ árið 1984, sem
hlaut Pulitzerverðlaunin. Áhugi á
honum vaknaði í Hollywood og sá
áhugi var gagnkvæmur. Mamet tók
að skrifa kvikmyndahandrit.
„Hvers vegna að starfa í
Hollywood?" spyr hann og svarar
sjálfur: „Vegna þess að það er æðis-
legt fjör og launin eru góð. Á vissan
hátt er Hollywood aðalstaðurinn og
sem fjárhættuspilari hefur mig
alltaf langað að spila á aðalstaðn-
um.“
Hinir vammlausu átti aðeins að
vera nett sakamálamynd gerð í
minningu samnefndra sjónvarps-
þátta sjötta áratugarins en Mamet
breytti henni í magnaðan trylli um
ástandið í heimaborg sinni,
Chicago, á bannárunum og átti
myndin á endanum lítið skylt við
sjónvarpsþættina. Brian De Palma
kvikmyndaði handritið með glæsi-
legum árangri og myndin varð vin-
sæl um allan heim.
Um það leyti var Mamet tekinn
að gæla við að leikstýra sinni eigin
bíómynd og lét til skarar skríða.
Hann leikstýrði „House of Games“
og skrifaði handritið sérstaklega
með það í huga að hann leikstýrði
myndinni sjálfur með einum úr Ma-
metmafíunni _ í aðalhlutverki, Joe
Mantegna. Ári síðar gerði hann
„Things Change" einnig með Man-
tegna og Mantegna var líka í þriðju
myndinni sem Mamet leikstýrði,
„Homicide". Og nú er leikritaskáld-
ið sumsé komið aftur á stjá sem
kvikmyndaleikstjóri sjö árum síðar
með Spænska fanganum.
Mestur tími Mamets fer í að
semja og hann segir að þeir sem
hafi lifíbrauð sitt af því að skrifa
séu svipað innstilltir og þeir sem
stunda glæpi. „Sjálfsálitið er í ólagi
hjá báðum hópunum,“ segir hann.
Þegar hann er spurður að því hvað
það er sem fær hann til þess að
setjast við skriftir á hverjum degi,
svarar hann: „Ég skrifa til þess að
hljóta viðurkenningu." Og bætir
við: „Og til þess að fá útrás fyrir
hefndarþorstann."
• Heimild: Neon ofl.
LEIKRITASKALI
IÐ Mamet;
ur, ungur
A 'áujdsi^
MANTEGNA og sá
aldní Don Ameche í
„Things hange“.
cloSin
JOE Manegna, einn úr
Mametmafíunni, í
„Homicide“ frá 1991.
BESTA myndin til þessa; Alec Baldwin í „Glengarry G{£n Ross“.