Morgunblaðið - 05.01.1999, Qupperneq 1
2. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Evrópumyntm sýmr styrk
á fyrsta degi viðskipta
Reuters
DANSARAR og loftfimleikamenn fklæddir sérhönnuðum búningum
sýndu listir sínar á götum Parísar í gær í tilefni af tilkomu evrunnar,
hér fyrir utan kauphöll frönsku höfuðborgarinnar.
Lundúnum. Reuters.
EVRAN, hin sameiginlega Evrópu-
mynt sem ellefu aðildarþjóðir Evr-
ópusambandsins (ESB) tóku upp
um áramótin, styrktist í gær, fyrsta
daginn sem viðskipti með hana fóru
fram á alþjóðlegum gjaldeyrismörk-
uðum. Stjórnmálamenn og kaup-
hallarfjárfestar fógnuðu tilkomu
evrunnar sem sögulegum tímamót-
um í efnahagslegri samrunaþróun
álfunnar. Gengi hlutabréfa í kaup-
höllum aðildarlanda Efnahags- og
myntbandalagsins (EMU), þar sem
yfir 290 milljónir manna búa, tók
gott stökk upp á við, eða í kringum
5% að meðaltali.
Gengi evrunnar gagnvart Banda-
ríkjadollar hækkaði fyrst eftir opn-
un markaða í gær, upp fyrir 1,19
dollara, en lækkaði síðan lítillega.
Pað endaði í 1,18, en það er vel yfir
lokagengi ECU, fyi-irrennara evr-
unnar, sem lauk hlutverki sínu á
gamlársdag þegar gengið var frá
gengisskráningu evrunnar gagnvart
hinum „gömlu“ gjaldmiðlum þátt-
tökuríkjanna.
Verðbréfamarkaðir um alia Evr-
ópu tóku gildistöku EMU vel; hluta-
bréfagengi hækkaði talsvert vegna
þess að vonir eru bundnar við að til-
koma hins nýja gjaldmiðils muni ýta
undir hagvöxt og velmegun á evru-
svæðinu.
Mótvægi við dollarann
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjómar ESB, sagðist þess
fullviss að evran, sem næiri jafn
voldug efnahagsblokk er að baki og
Bandaríkin, muni verka á alþjóðleg-
um gjaldeyrismörkuðum sem mót-
vægi við bandaríkjadollar og jap-
anska jenið.
„Petta var eitt meginmarkmið
okkar,“ sagði Santer. „Evran verð-
ur trúverðugur gjaldmiðill sem
alþjóðlegir gjaldeyrismarkaðir
treysta." Og Gerhard Schröder,
kanzlari Pýzkalands, sagði að hinn
nýi gjaldmiðill myndi stuðla að
auknum framförum í Evrópu.
„Evran mun byrja að bjóða doll-
aranum birginn sem forystugjald-
rrr-
miðill heimsins um leið og Evr-
ópski seðlabankinn og hinn nýi
gjaldmiðill hafa sýnt fram á trú-
verðugleika sinn - sem sennilega
mun gerast bráðlega," skrifaði
bandaríski hagfræðingurinn Fred
Bergsten í International Herald
Tribune.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fagnaði tilkomu evrunnar í gær.
„Við fógnum stofnun evrunnar,
sögulegum áfanga sem ellefu Evr-
ópuþjóðir hafa tekið í átt að nánara
Efnahags- og myntbandalagi,"
sagði Clinton í skriflegri yfirlýs-
ingu. „Efnahagslegt bandalag sem
leggur sitt af mörkum til að gera
Evrópu kraftmikla samræmist ljós-
lega langtímahagsmunum okkar.“
Spennufall
Efth' hinn mikla undh'búning und-
anfarinna mánaða fannst mörgum
sem nærri alþjóðlegum fjármálavið-
skiptum koma að þegar loks á hólm-
inn var komið og viðskipti hófust
með evrur yrði eins konar spennu-
fall.
„Eg myndi segja að það sem við
sjáum gerast í dag er náttúruleg og
vel heppnuð fæðing evrunnar.
Markaðimir buðu evruna velkomna
nákvæmlega á þann hátt sem við
höfðum óskað okkur að þeir myndu
gera,“ sagði Jean-Claude Trichet,
seðlabankastjóri Frakklands.
Lítið sem ekkert fréttist af
tæknilegum óhöppum hjá fjármála-
stofnunum í tengslum við upphaf
viðskipta í evrum, en sérfræðingar
vöruðu við því að það tæki nokkra
daga að fá úr því skorið hvort fyrstu
viðskiptin hefðu öll farið rétt fram.
Kauphallarfjárfestar, sem nú
standa frammi fyrir risastórum,
sameinuðum verðbréfamarkaði,
tóku gildistöku fyrstu sannarlega
sameiginlegu myntarinnar sem gilt
hefur í Evrópu frá dögum Róma-
veldis opnum örmum. Um 5% hækk-
un varð á gengi hlutabréfa í Pýzka-
landi, Frakklandi, á Ítalíu og Spáni.
■ Efasemdir/26
Bandaríkín
Elizabeth
Dole fliugar
framboð
Washington. Reuters.
ELIZABETH Dole, fyrrverandi
vinnu- og flutningamálaráðherra
Bandaríkjanna, sem stóð við hlið eig-
inmanns síns,
Bobs Doles, í
kosningabarátt-
unni fyrir banda-
rísku forsetakosn-
ingamar 1996,
sagði í gær af sér
sem forseti Rauða
kross Bandaríkj-
anna og tilkynnti
að hún íhugaði að
gefa kost á sér
sem forsetaframbjóðandi repúblik-
ana í forsetakosningunum á næsta
ári.
Elizabeth Dole, sem er 62 ára,
hefur lengi verið álitin verðugt efni í
forsetaframbjóðanda, en hljóti hún
kosningu verður hún fyrsta konan
sem sest í valdamesta embætti
heims.
Eiginmaðurinn Bob, sem áður
var leiðtogi repúblikana í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, hefur lengi
lagt að konu sinni að gefa kost á
sér. „Ég ætla að íhuga þetta alvar-
lega ásamt öðrum valkostum," sagði
Elizabeth Dole á blaðamannafundi í
Washington í gær.
Skörungur
Hæfileikai’ hennar til pólitískrar
forystu komu glögglega í ljós á
flokksþingi repúblikana 1996 þegar
hún óð inn í mannþröngina með
hljóðnema í hönd og hleypti hug í
viðstadda með skörulegum ræðu-
flutningi. Þessir hæfileikar hennar
þóttu líka sjást í gær þegar hún til-
kynnti afsögn sína sem forseti
bandaríska Rauða krossins en því
starfi gegndi hún undanfarin átta
ár. Að mati stjómmálaskýrenda á
hún góða möguleika á að hljóta út-
nefningu Repúblikanaflokksinsi.
Baráttan gegn krabbameini
Lyfjameðferð bætt
með nýjum efnum?
Los Angeles. Reuters.
BANDARÍSKIR vísindamenn
kynntu í gær afrakstur rann-
sókna sem taldar eru geta valdið
straumhvörfum í meðhöndlun
krabbameins. Segja vísinda-
mennimir, sem stunda rann-
sóknir við Kaliforníu-háskóla í
Los Angeles (UCLA), í grein
sem birtist í dag í tímaritinu Jo-
urnal Proceedings of the
National Academy of Sciences,
að þeir hafi uppgötvað nýjan hóp
skyldra efna sem gæti gert
læknum kleift að breyta hefð-
bundinni lyfjameðferð og taka
upp meðferð sem byggist á notk-
un frumefnisins boróns.
Gæti þessi uppgötvun orðið til
þess að lyfjameðferð reyndist
sjúkiingum mun auðveldari en
nú er, en eins og kunnugt er hef-
ur ki'abbameinslyfjameðferð oft
reynst fólki erfið, enda um afar
sterkar lyfjablöndur að ræða
sem ráðast ekki aðeins á krabba-
meinsfrumur, í þeim tilgangi að
drepa þær, heldur eitra allar
aðrar frumur líkamans líka. Hin
nýja lyfjameðferð myndi hins
vegar einungis ráðast gegn sýkt-
um krabbameinsfrumum.
Vísindamenn hafa lengi talið
að vel gæti gefist að beita borón-
ögnum gegn krabbameini. Upp-
götvun hins nýja „efnamengis"
vekur hins vegar betri vonir um
árangur því rannsóknir sýna að
efnunum gengur betur en áður
þekktist að koma borón-ögnum
inn í kjarna krabbameins-
frumna. Þegar þangað er komið
verðm- borónið „virkt“ með því
að dreifa nifteindum til krabba-
meinsfrumnanna sem valda því
að frumukjarninn - og þar með
frumurnar sjálfar - splundrast.
Enn á eftir að prófa þessa nýju
meðferð vel og rækilega.
Samgönguráðherra
Finnlands segir af sér
Hclsinki. Morgunblaðið.
SAMGÖNGURÁÐHERRA Finn-
lands, Matti Aura, sagði af sér í
gær vegna hneykslis sem tengist
einkavæðingu fjarskiptafyrirtækis-
ins Sonera, arftaka finnska lands-
símans. Áður hafði forstjóra
Sonera, Pekka Vennamo, verið vik-
ið úr starfi, en hann hafði tryggt
sér stóran hluta í fyrirtækinu þeg-
ar hlutabréf í þvi voru sett á al-
mennan markað fyrir skömmu.
Aura sagðist sjálfur ekkert hafa
gert af sér, en kvaðst líta svo á að
hann yrði að segja af sér vegna
þess að hann hefði gert mistök er
hann réð Vennamo til starfa. Sagð-
ist hann myndu láta af embætti eft-
ir að hann gæfi þinginu skýrslu um
einkavæðingu Sonera í næstu viku.
Ráðist var í einkavæðingu
finnska landssímans í nóvember á
síðasta ári, og seldi ríkið rúmlega
20% hlutafjár í nýja fyrirtækinu
Sonera á mjög hagstæðu verði.
Hlutabréfin reyndust vinsæl meðal
almennings og
var eftirspum
meiri en fram-
boð. Þannig
fengu flestir að-
eins að kaupa
brot af því sem
þeir buðu í. For-
stjórinn fékk
hins vegar að
festa kaup á eins
miklu hlutafé og
hann óskaði, og þar að auki keypti
eignarhaldsfélag Vennamo-fjöl-
skyldunnar allmörg hlutabréf.
Háar gagnrýnisraddir komu
fram á þingi og í fjölmiðlum þegar
það spurðist út að Vennamo hefði
fengið slíka fyrirgreiðslu. Um ára-
mótin kom ennfremur í ljós að
hann hefði selt bömum sínum
hluta af hlutafénu án þess að til-
kynna það til hlutafélagaskrár,
eins og reglur kveða á um, og voru
þessi mistök formleg ástæða upp-
sagnar hans. I uppsagnarbréfinu
er sérstaklega tekið fram að
Vennamo sé ekki grunaður um
lögbrot, en að ekki sé stætt á því
að efasemdir séu uppi um heiðar-
leika og siðferði forstjóra fyrir-
tækis af þessari stærðargráðu.
Álitshnekkir fyrir hægrimenn
Sjaldgæft er að finnskir stjóm-
málamenn segi af sér, þrátt fyrir
mistök í starfi. Þingkosningar fara
fram í Finnlandi eftir þrjá mánuði,
og þykir afsögn Auras álitshnekkii-
fyrir Sameiningarflokkinn, flokk
hægri manna. Sauli Niinistö, for-
maður flokksins og fjármálaráð-
hen-a, kom Aura til varnar í gær,
þrátt fyrir að hann (Niinistö) hafi
ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að
einkavæðing Sonera hafi ekki farið
fram með réttum hætti.
Matti Aura