Morgunblaðið - 05.01.1999, Qupperneq 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
SKÓLASTÚLKAN Carrie (Sissy Spacek) leitar huggunar
hjá móður sinni (Piper Laurie) í Carrie. Báðar voru til-
nefndar til óskarsverðlauna árið 1976.
HINIR vammlausu sótti efnivið sinn í gamla sjónvarps-
þætti. Kevin Kostner lék himm vammlausa Elliot Ness.
NANCY Allen (þáverandi frú De Palma), John Travolta og
Brian De Palma við tökur á Carrie, fyrsta kassastykki
leikstjórans.
MISTÆKARI mann en Briah De
Palma er vart að fínna í
Hollywood samtímans. Sveiflurn-
ar eru ótrúlegar. Uppsveiflan
slík að hann á fáa sína iíka
meðal starfsbræðranna þegar sá
gállinn er á honum. Enda einn af
sárafáum, sannkölluðum stjörnu-
leikstjórum, því fólk víða um
heitn getur tengt nafn hans við
myndirnar. Handbragðið er per-
sónulegt, hver svo sem útkoman
er. Niðursveiflurnar ná ótrúleg-
um dýptum. Það fengum við að
i sjá siðast í Snake Eyes, þar sem
De Palma var búinn að segja
okkur allt sem segja þurfti eftir
fyrsta stundarfjórðunginn. Obbi
myndarinnar fyrirsjáanlegur
bæslagangur, mikið veður útaf
engu.
Helstu einkenni flestra De
Palma-mynda (fyrir utan að vera
flestar kenndar við sálfræði-
trylla), er hinn magnaði, sjón-
ræni þáttur; hraði, spenna, of-
beldi og kynlíf. Hann hefur verið
gagnrýndur fyrir ofnotkun þess-
ara þátta en hefur ekki látið
deigan síga og heldur sínu striki
mað sérstæðum árangri. Hittir í
BRIAN DE PALMA
mark öðru hverju, öfugt við
flesta aðra starfsbræður sína,
sem gjarnan eiga skammvinna
gósentíð og falla síðan mishratt
af toppinum.
De Palma hóf kvikmyndagerð
sem nemandi við Columbia- og
Söru Lawrence-háskólana í New
York. Fyrstu myndirnar voru
The Wedding Party (‘66), Greet-
ings (‘68), og Hi, Mom! (‘70). Þær
voru andþjóðfélagslegar að inn-
taki, íjölluðu um eiturlyf, fijálsar
ástir og gagnrýndu stríðsbrölt
Bandaríkjamanna í Asíu. Á þess-
um tíma blómabarna og hippa sló
Easy Rider eftirminnilega í gegn.
Fyrsta verkefni De Pahna í
Hollywood var Get To Know Yo-
ur Rabbit (‘70), minniháttar
andþjóðfélagsleg satíra á þessum
nótum. Velgengni myndarinnar
hans Hoppers hjálpaði ekki uppá
aðsóknina, frumraun De Palma
fyrir einn kvikmyndarisann
kolféll. De Palma sótti mikið í
SEAN Penn og Michael Fox
léku bandaríska hermenn í
Víetnam í Fórnarlömbum
stríðsins.
ÓDU EGLU
KHALDI...
&
1959 - 1999
HAGKVÆMNI TIMASPARNAÐUR ORYGGI ISLENSKT OG VANDAÐ
...STEMMIR
STÆRDIN LIKA!
Egla bréfabindin hafa notið mik-
illa vinsælda meðal íslenskra fyr-
irtækja á undanfömum ámm, enda
um afar vandaða framleiðslu að
ræða. Þau fást í 5 mismunandi
stærðum og litaúrvalið eykur enn
á fjölbreytnina.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Fyrirtæki geta pantað þær möppur
sem þeim henta með því að hringja
í síma 562 8500, fax 552 8819
eða verslun Múlalundar á vefnum:
www.mulalundur.is
og möppumar verða sendar um hæl.
RÖE> OC REGLA
Múlalundur
Vínnustofa SÍBS
Sími: 562 8500
Símbréf: 552 8819
Veffang: www.mulalundur.is
smiðju meistara Hitchcocks í
næstu verkum, Sisters (‘72) var
sú fyrsta. Blóðidrifin hrollvekja
um aðskilda síamstvíbura með
Margot Kidder, Jennifer Salt og
Charles Durning. De Palma
framleiddi sjálfur og hagnaðist
vel. Þá var röðin komin að
rokkaðri útgáfu Phantom of the
Opera; Phantom ofthe Paradise
(‘74), tekin í hinni sögufrægu
Mekka rokksins, Filmore East.
Með Obsession (‘76) var leikstjór-
inn aftur kominn á spor
Hitchcocks, nánar tiltekið
Vertigo. Þetta er fín, dularfull
mynd með firnagóðum leikurum
frá þessum tíma, Cliff Robertson,
Genevieve Bujold og John Lith-
gow.
Fram til þessa hafði De Palina
gert forvitnilegar myndir sem
flestar fengu góða dóma. Umtals-
verð velgengni lét enn á sér
standa. Ur því rættist með hroll-
vekjunni Carrie (‘76), gerðri eftir
metsölubók ungs höfundar sem
nefnist Stephen King ... Andi
Psycho sveif yfir Dressed to Kill
(‘80), óhugnanlegri spennumynd
um fjöldamorðingja, hún hélt
manni í greipum sínum þrátt fyr-
ir ótrúverðugleika. Blow Out
(‘81) sótti fleira en nafnið til
myndar Antonionis, Blow Up, en
Scarface var einfaldlega endur-
gerð hinnar klassísku myndar
eftir Howard Hawks frá 1932. í
hans hlutverki var A1 Pacino og
var myndin bæði feyki vinæl og
hlaut afbragðsdóma þrátt fyrir
yfírgengilegt ofbeldi. Vissulega
ein eftirtektarverðasta mynd
leikstjórans.
Kvalalosti, gægjufíkn og sjálfs-
píningarhvöt eru ekki langt und-
an í nokkrum mynduin De
Palma, ekki síst Body Double
(‘84), þar sem Melanie Griffith er
eftirminnilegust leikara. De
Palma er afleitur gamanmynda-
leikari, það sýndi hann með Wise
Guys (‘86). Næsta mynd, Ptinir
vammlausu (‘87), var hinsvegar
hans besta til þessa dags. Casu-
alties of War (‘89 gaf henni lítið
eftir.
De Palma var þó engan veginn
kominn á beinu brautina full-
komnunar, næsta mynd hans,
Bonefire of the Vanities (‘90), var
hörmung, þó hún væri byggð á
afbragðsgóðri metsölubók Toms
Wolfe, og prýdd forvitnilegum
leikhóp. Raising Cain (‘92) var
mistök, en forvitnileg, hér koma
tvíburar aftur við sögu og Lith-
gow fírnasterkur í mörgum hlut-
verkum. Carlito’s Way (‘93)
sannaði að De Palma er með fær-
ustu leiksljórum Bandaríkjanna.
Undur vel sögð sakamálamynd
um lánlausan glæpamann og
fangelsislim (A1 Pacino), sem
tekst ekki að halda sig réttum
megin laganna. Pacino og Sean
Penn eru aldeilis frábærir, báðir
tveir, og myndin ein sú besta frá
hendi leikstjórans. Sömuleiðis
Mission Impossible (‘96),
vinsælasta mynd De Palma frá
upphafi, en hann kom svo heldur
hastarlega niður á jörðina, eina
ferðina enn, með nýjustu mynd-
ina, Snake Eyes (‘98), einsog áð-
ur er getið.
Um þessar mundir er De
Palma önnum kafínn við undir-
búning Hughes, sem áætlað er
að komi á markaðinn árið 2000.
Titilpersónan er sjálfur Howard
Hughes, kvikmyndamógúllinn,
sérvitringurinn og iðnjöfurinn,
sem var goðsögn í lifanda lífi.
Myndin, með Warren Beatty og
Nicholas Cage í aðalhlutverkum,
lofar sannarlega góðu. De
Palma á örugglega eftir að
gleðja okkur fram á næstu öld.
Sígild myndbönd
HINIR VAMMLAUSU
(„THE UNTOUCHABLES“),
1987
Endurgerð sjónvarpsþáttanna.
Kevin Costner sem Elliott Ness,
hinn vammlausi leiðtogi lögregl-
unnar í Chicago á tímum vínbanns
og A1 Capone. Vopnaður vélbyssu
og Armani fötum. Sean Connery,
Andy Garcia og Charles Martin
Smith, allir eftirminnilegir, en Ro-
bert De Niro stelur senunni sem
erkibófinn Capone. Sígild
gangstermynd, frábær skemmtun.
Er á mjög meðvitaðan hátt mótuð
af langri hefð glæpamynda, frum-
leiki hennar liggur í klisju hefðar-
innar. Hér er allt ósvikið, á
skemmtilega óekta hátt.
(„CASUALTIES OF WAR „)
Víetnammynd De Palma fjallar
um atburði sem gerðust ‘66, þegar
fimm bandarískir hermenn rændu
og nauðguðu þarlendri stúlku.
Einn þeirra stóð utan við ódæðið
og var líf hans í hættu er hann
kærði félaga sína. Býr enn í felum.
Höfundur notar atburðinn til að
velta fyrir sér siðferðilegum spum-
ingum um stríðsrekstur og her-
menn í stríði, en það velkist ekki
fyrir neinum að það sem hermenn-
irnir gera víetnömsku þjóðinni
gerðu Bandaríkin Víetnam.
Frábærlega gerð, minnisstæð með
eindæma góðum leik (Michael J.
Fox, Sean Penn).
„CARRIE“
Yfirnáttúrulegir hæfileikar
menntaskólastúlkunnar Carrie
(Sissy Spacek) hjálpa henni að
klekkja á skólasystrum sínum er
þær niðurlægja hana á skólaballi.
Ein af bestu myndunum sem
byggðar eru á sögum Kings. Hroll-
vekjandi (maður minnist enn tryll-
ingslegra öskranna í Tónabíói
sáluga), blóðug, svört og sykurlaus.
Spacek og Piper Laurie, í hlutverki
móður hennar, eru báðar framúr-
skarandi og voru tilnefndar til
Óskarsverðlaunanna. Lokaatriðið,
aukaendirinn, er löngu klassískur,
sást síðast í Sögusögnum - Urban
Legends (‘98).
Sæbjörn Valdimarsson