Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 1
21. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS BJÖRGUNARMENN ganga yfír rústir húsa sem hrundu í borginni Armeníu í jarðskjálftanum sem reið yfír miðhéruð Kólumbíu í fyrrakvöld. Heilu hverfin jöfnuðust við jörðu f skjálftanum. Hundruð líka hafa fundist eftir jarðskjálfta í Kólumbíu Óttast að allt að 2.000 hafi farist Armeníu. Reuters. EMBÆTTISMENN í Kólumbíu sögðu í gærkvöldi að rúmlega 1.000 manns hefðu farist í öflugum jarð- skjálfta sem reið yfír miðhéruð lands- ins í fyrradag, að sögn fréttastofunnar AP. Þeir töldu að tala látinna gæti hækkað verulega og slökkviliðsstjóri í borginni Armeníu, sem varð verst úti í náttúruhamíorunum, sagði að 2.000 manns kynnu að hafa farist. Embættismennirnir sögðu að mjög erfítt væri að meta manntjónið þar sem kk fyndust á hverri mínútu og ekki hefði verið hægt að leita í rústum margra húsa sem hrundu. 650 lík höfðu fundist i Armeníu í gærkvöldi, að sögn AP. Tveir þriðju húsanna í borginni voru óíbúðarhæf og 180.000 manns misstu heimili sín. Mikið manntjón varð einnig í Pereira, höfuðstað nágrannahéraðsins Risar- alda, og tíu öðrum bæjum og þorpum á hamfarasvæðinu. fbúar Armeníu era tæp 300.000 og héraðsstjórinn Hemy Gomez sagði að það myndi taka mörg ár að endur- reisa borgina eftir náttúruhamfarim- ar. „Oll húsin hrundu eins og spila- borg,“ sagði einn borgarbúanna. „Menn vissu ekki hvort þeir ættu að hlaupa eða standa kyrrir, allt hrundi niður.“ Jarðskjálftinn mældist sex stig á Richterskvarða og var á meðal öflug- ustu skjálfta sem riðið hafa yfir Kól- umbíu. Tjónið var mest í Armeníu og tuttugu bæjum og þorpum i nágrenni borgarinnar en skjálftans varð vart út um allt landið. Byggingai- skókust í höfuðborginni, Bogota, og borginni Medellin í norðvesturhluta landsins. Gomez sagði að skjálftinn hefði ver- ið svo öflugur að þykkm' múr um- hverfís fangelsi í Airneníu hefði hrun- ið og áttatíu fangar notað tækifærið til að flýja. Kaffiverðið hækkar Heimsmarkaðsverð á kaffi hækk- aði vegna ótta við að jarðskjálftinn myndi valda uppskerubresti í Kól- umbíu og minna kaffiframboði í heiminum. Sérfræðingar spáðu því að verðið myndi lækka aftur þar sem talið var að jarðskjálftinn myndi ekki minnka kaffiframleiðsl- una í Kólumbíu verulega. Samtök kólumbískra kaffibaunaræktenda sögðu að ekki væri vitað til þess að uppskerutjón hefði orðið. ■ Eins og eftir loftárás/22 Saksóknarar Bandaríkjaþings vilja að Bill Clinton beri vitni Leggja til að þremur vitnum verði stefnt Washington. Reuters. ÞINGMENN öldungadeildar Band- arílqaþings ræddu í gær deiluna um vitnaleiðslur í réttarhöldunum í máli Bills Clintons forseta og saksóknar- ar fulltrúadeildarinnar hvöttu þá til þess að stefna þremur vitnum, þeirra á meðal Monicu Lewinsky, og bjóða forsetanum sjálfum að bera vitni. Saksóknararnir fóru þess á leit við öldungadeildina að hún stefndi Lewinsky, Vernon Jordan, vini Clin- tons, og Sidney Blumenthal, aðstoð- armanni forsetans, til að bera vitni fyrir luktum dyrum. Þeir óskuðu einnig formlega eftir því að Clinton yrði boðið að bera vitni í réttarhöld- unum, en aðstoðarmenn hans sögðu að hann myndi ekki gera það. Saksóknararnir sögðu að nauðsyn- legt væri að kalla vitni fyrir öldunga- deildina áður en hún skæri úr um hvort Clinton hefði framið meinsæri og lagt stein í götu réttvísinnar til að leyna kynferðislegu sambandi sínu við Lewinsky. Demókratar og tals- menn forsetans sögðu hins vegar að vitnaleiðslumar yrðu aðeins til þess að réttarhöldin drægjust á langinn. Tom Daschle, leiðtogi demóki'ata í öldungadeildinni, gagnrýndi beiðni saksóknaranna en kvaðst telja að vitnaleiðslur væra nú „óhjákvæmi- legar“. Búist við atkvæða- greiðslu í dag Repúblikanar í öldungadeildinni höfðu hvatt til þess að óskað yrði eft- ir eins fáum vitnum og mögulegt væri og saksóknaramir ákváðu því að stytta vitnalista sinn og falla frá því að stefna Betty Currie, ritara Clintons, og John Podesta, skrif- stofustjóra Hvíta hússins. „Þeir sögðu okkur að því styttri sem list- inn yrði þeim mun líklegra væri að hann yrði samþykktur,“ sagði Henry Hyde, formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar. Áðm- en beiðni saksóknaranna um vitnastefnurnar verður borin undir atkvæði í öldungadeildinni þarf hún að taka afstöðu til tillögu um að ákæranni á hendur forsetanum verði vísað frá. Búist er við að deildin greiði atkvæði um frávísunartillög- una og vitnastefnurnar í dag. Reuters Ellefu bíða bana þegar bandarísk flugskeyti hæfa byggð í Suður-írak Saddam Hussein segir sigur nást Bagdad, Abu Fullous. Reuters. SADDAM Hussein, forseti íraks, endurtók í gær harkalega gagnrýni sína á Sádi-Arabíu og Kúveit og hét þjóð sinni að þær blóðfórnir sem hún hefði fært og sú þolinmæði sem hún hefði sýnt myndu leiða til sig- urs áður en yfir lyki. Saddam sakaði leiðtoga Sádi- Arabíu og Kúveits um að hafa átt þátt í loftárásum Bandaríkjamanna á Suður-írak á mánudaginn. Flug- skeyti sem skotið var úr bandarísk- um herflugvélum - eftir að Irakar höfðu ögrað þeim með skothríð frá jörðu - hæfðu að sögn íbúðarhús í þorpi suður af suður-írösku borg- inni Basra með þeim afleiðingum að 11 manns létust og tugir slösuðust. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið sagði að skotið hefði verið á flug- skeyta- og loftvarnabyssuhreiður íraka á flugbannssvæðinu í Suður- Irak, í því skyni að hlífa minnihluta- hópi síta-múslima þar við árásum af hálfu Irakshers. Anthony Zinni, yf- irmaður bandaríska Persaflóaher- aflans, sagði mögulegt að eitt flug- skeyti hefði borið af leið og að Bandaríkin hörmuðu það mjög ef óbreyttir borgarar yrðu fyrir tjóni. „Kæra þjóð. Sýnið þolinmæði, þar sem sigur vinnst með þolinmæði," sagði Saddam þegar hann ávarpaði írösku þjóðina. „Blóði ykkar var ekki úthellt til einskis." Hreyfing íraskra útlaga sagði að Saddam hefði látið flytja úrvals- sveitir og eldflaugar til suðurhluta íraks og fyrirskipað þeim að gera árásfr á herskip og herstöðvar Bandaríkjamanna ef þeir réðust aft- ur á landið. Það var þó ekki staðfest í gær. Sandy Berger, öryggismála- ráðgjafi Bills Clintons Bandaríkja- forseta, greindi frá því að banda- rískum herflugmönnum, sem flygju yfir flugbannssvæðin í Norður- og Suður-Irak, hefðu verið gefin fyrir- mæli um að gera ekki aðeins árásir á þær stöðvar írakshers sem reyndu að ógna öryggi þeirra, held- ur ættu þeir að beina árásarmætti sínum á víðtækari hátt að loftvarna- viðbúnaði Iraka almennt. Bandarískar flugvélar skutu í gær þremur flugskeytum á skot- mörk á nyrðra flugbannssvæðinu. Páfi ræðir við Clinton JÓHANNES Páll páfi fór í gærkvöldi í 30 klukkustunda heimsókn til Bandaríkjanna og ræddi við Bill Clinton forseta í borginni Saint Louis í Missouri. Clinton var sagður hafa útskýrt, stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum Iraks og Kúbu. Tals- menn Páfagarðs gagnrýndu í fyrradag árásir Bandaríkjamanna á Irak og sögðu að hernaðarað- gerðir leystu ekki vandamálin, heldur torvelduðu lausn þeirra. Páfi gagnrýndi einnig viðskipta- bannið á Kúbu þegar liann var þar í sögulegri heimsókn fyrir ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.