Morgunblaðið - 27.01.1999, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Skuldir IsaQarðar-
bæjar aukast í ár
FRUMVARP fjárhagsáætlunar
1999 fyrir Isafjarðarbæ og stofnan-
ir hans var lagt fram til seinni um-
ræðu í bæjarstjóm fimmtudaginn
21. janúar 1999. Niðurstöður frum-
varpsins eru að rekstrartekjur
bæjarsjóðs og stofnana hans eru
áætlaðar 1.388 millj. kr. en rekstr-
arútgjöld án vaxta 1.180 millj. kr.
Fjárfestingar eru áætlaðar 130
millj. kr., afborganir lána og vextir
283 millj. kr. og nýjar lántökur 219
millj. kr. þegar búið er að taka tillit
til annarra eignabreytinga. Heild-
arskuldir aukast um 34 millj. kr. á
árinu, segir í fréttatilkynningu frá
Isafjarðarbæ.
Til framkvæmda og greiðslu af-
borgana og vaxta skilar reksturinn
um 15% skatttekna eða 123 millj.
kr. Skatttekjur á árinu nema 807
millj. kr. og hækka um 59 millj. kr.
frá fjárhagsáætlun fyrra árs. Al-
mennar rekstrartekjur verða 362
millj. kr. en rekstrai-útgjöld 1.109
millj. kr. Peir málaflokkar sem
mest taka til sín í rekstri eru
fræðslumál með 273 millj. kr., fé-
lagsþjónusta með 119 millj. kr., yf-
irstjóm með 69 millj. kr., fjár-
magnskostnaður 62 millj. kr.,
íþrótta- og æskulýðsmál 58 millj.
kr. og hreinlætismál 55 millj. kr.
Framlög til
fjárfestinga lækka
Framlög til fjárfestinga og fram-
kvæmda lækka um 135 millj. kr.
milli ára. Megináherslan er lögð á
framkvæmdir til íþrótta- og menn-
ingarmála. Helstu fjárframlög til
einstakra verkefna eru 10 millj. kr.
til endurbóta á Safnahúsinu við
Eyrargötu og til sundlaugar á Suð-
ureyri, 17 millj. kr. Til margvís-
legra annarra framkvæmda verður
varið samtals 103 millj. kr.
Gert er ráð íyrir að greiða 155
millj. kr. í afborganir langtímalána
og 30 millj. kr. vegan ýmissa
skammtímalána. Heildarlántökur
eru áætlaðar 219 millj. kr. og munu
því heildarskuldir aukast um 34
millj. kr. á árinu.
Fjárhagsáætlun ársins ber það
með sér að rekstur sveitarfélagsins
verður erfiður á árinu. Skatttekjur
hafa ekki aukist í takt við útgjöldin
og fjárfestingar hafa verið óvenju-
miklar á síðustu tveimur árum sem
fjármagnaðar hafa verið með lán-
tökum, segir í fréttatilkynningu.
A árinu verður leitað allra leiða
til að hagræða í rekstri, skera niður
rekstrargjöld og láta þann spamað
koma fram í minni lántökum.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Morgunblaðið/Anna Ingólfs.
STJÓRN Heilbrigðisstofnunar Austurlands ásamt héraðslækni og
framkvæmdastjóra. Frá vinstri: Stefán Þórarinsson, Adolf Guðmunds-
son, Katrín Ásgrímsdóttir, Emil Sigurjónsson (sést á skjá), Þóra Krist-
jánsdóttir, Hreinn Sigmarsson og Viðar Helgason.
Oll sjúkrahús
á Austurlandi
sameinast
Egilsstöðum - Fyrsti stjórnarfund-
ur Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands var nýlega haldinn í húsnæði
Þróunarstofu Austurlands á Egils-
stöðum. Notaður var fjarfundabún-
aður þar sem einn stjórnarmanna
komst ekki sökum ófærðar frá
Vopnafirði.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
inniheldur allar sjúkra- og heilsu-
gæslustöðvar á Austurlandi, frá
Djúpavogi til Vopnafjarðar. Mark-
mið með þessari sameiningu er að
styrkja þjónustu heilbrigðismála á
Austurlandi og flytja ákvarðana-
töku og valdsvið frá ráðuneyti í
Reykjavík yfir til stjórnar stofnun-
arinnar. Ennfremur mun þessi
hagræðing efla faglegt starfsum-
hverfi og byggja upp faglegri
starfsvettvang starfsfólks í heil-
brigðisþjónustu á Austurlandi að
sögn Katrínar Asgrímsdóttur for-
manns stjómar.
Katrín sagði að eftir væri að
taka ákvarðanir um skipulag og
störf innan þess. Fulltrúar heil-
brigðisráðuneytis hafa verið fyrir
austan að aðstoða við stofnunina.
Katrín sagði ekki enn búið að
ganga frá ráðningu framkvæmda-
stjóra en sú staða verður auglýst
innan skamms. Umræða um sam-
einingu sjúkrastofnana á Austur-
landi hefur lengi verið í gangi en
reglugerð var samþykkt í október
sl. og nýskipuð stjórn tók til starfa
um áramót. Þær tillögur sem sam-
einingin byggist á eru að mestu
unnar af Stefáni Þórarinssyni hér-
aðslækni á Egilsstöðum.
Stjóm Heilbrigðisstofnunar
Austurlands skipa: Katrín As-
grímsdóttir, Austur-Héraði, Þóra
Kristjánsdóttir, Fáskrúðsfirði, Ad-
olf Guðmundsson, Seyðisfirði,
Hreinn Sigmarsson, Reyðarfirði,
og Emil Sigurjónsson, Vopnafirði.
Settur framkvæmdastjóri fyrir
stofnunina er Viðar Helgason.
Vetrargjöf
Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar fyrir 1999 lögð fram
HROSS á Rangárvöllum vora var færð á sólríkum vetrardegi
sólgin í ilmandi töðuna sem þeim fyrir skemmstu.
Teppadeild Foldu
hf. keypt til
Skagastrandar
Skrifstofur bæjarins
færðar undir eitt þak
Skagaströnd - Höfðahreppur og
Drifa' ehf. á Hvammstanga hafa
keypt teppadeild Foldu hf. á Akur-
eyri af Landsbankanum. Munu
vélar teppadeildarinnar verða
fluttar til Skagastrandar á næstu
mánuðum og verður að öllum lík-
indum komið fyrir í húsnæði því
sem áður var frystihús Hólaness
hf. Aætlað er að 6 manns muni
vinna við framleiðsluna eftir að
hún verður komin í fullan gang á
nýjum stað.
Drífa ehf. sem nýverið keypti
prjónadeild Foldu rekur sauma-
stofu á Skagaströnd og er með um-
fangsmikinn rekstur á Hvamms-
tanga. Ætlar fyrirtækið að koma
prjónadeildinni fyrir á Hvamms-
tanga og verður Drífa ehf. helm-
ingseigandi að hinu nýja teppafyr-
irtæki, sem nú verður komið á fót,
á móti Höfðahreppi. Verður á
næstu vikum stofnað nýtt hlutafé-
lag þessara aðila um rekstur
teppafyrirtækisins.
Að sögn forsvarsmanna Höfða-
hrepps þarf að fara í töluvert um-
fangsmiklar breytingar á húsnæði
frystihússins til að koma nýjum
vélum fyrir þar. Engin starfsemi
hefur verið í frystihúsinu í nokkur
ár og hefur það staðið að mestu
autt. í kaupsamningi er tryggt að
hinir nýju rekstraraðilar geti byrj-
að framleiðslu á Akureyri ef þeir
kæra sig um en verða þó að vera
búnir að taka vélamar um mitt
þetta ár.
Framleiðsluvörur hins nýja fyr-
irtækis verða værðarvoðir og
áklæði eins og áður hafa verið
framleiddar af teppadeild Foldu hf.
og hafa notið mikilla vinsælda.
Drífa ehf. mun sjá um markaðs- og
sölumál nýja fyrirtækisins enda
telja eigendur Drífu að þessi nýja
framleiðsla muni fara vel með öðr-
um söluvörum fyrirtækisins.
Kaupverð vélanna og öllu þvi
sem þeim fylgir fæst ekki uppgefið
að sinni.
Hellissandi - Á almennum borgara-
fundi sem haldinn var í Klifi sunnu-
daginn 17. janúar sl. var lögð fram
og kynnt fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir árið 1999. I fjárhagsáætlun-
inni kemur fram að áætlaðar skatt-
tekjur eru 319,5 milljónir en al-
menn rekstrargjöld og tekjur
málaflokka nema 286,3 milljónum.
Áætlunin gerir því ráð fyrir rekstr-
arafgangi uppá 33,1 milljón króna.
Hefur þá ekíd verið tekið tillit til
greiðslubyrði vegna stofnana, eins
og félagsheimila og dvalarheimilis-
ins.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir
20,7 milljónum í gjaldfærða fjár-
festingu og 122,3 milljónum í eign-
færða fjárfestingu. Þar ber hæst
byggingu nýs íþróttahúss.
Fjárhagsáætlunin ber keim af
strangri aðhaldsstefnu í rekstri
bæjarins m.a. vegna byggingar
íþróttahússins. Gert er ráð fyrir
að skrifstofur bæjarins verði allar
settar undir eitt þak og mun
skrifstofunni sem rekin hefur ver-
ið í Ólafsvík verða lokað og starf-
semi hennar flutt í Röst á Hell-
issandi. Sýnir sig að spara má 5
milljónir króna í rekstri bæjarins
Aðhaldsstefna í
rekstri bæjarins
og fremur litlar
fjárfestingar
með þeirri ákvörðun. Ákvörðunin
er þó ekki hugsuð sem framtíðar-
lausn á skrifstofumálum bæjarins
heldur gert ráð fyrir að afstaða
verði tekin síðar til þess hvernig
þeim málum verður best hagað
með tilliti til þróunar bæjarfélags-
ins.
Starfsemi löggæslu og sýslu-
mannsembættis efld
Það sem gerði þó útslagið að
þessi ákvörðun var tekin var sú að
bæjarstjórn sá fram á að efla
mætti löggæslu og starfsemi
sýsluembættisins í bæjarfélaginu
með henni en hvorugt hefur haft
þá aðstöðu sem það þarfnast og
ríkissjóður taldi sér ekki unnt að
efla hana nema fá fullan aðgang að
Ólafsbraut 34 sem verið hefur
sameign ríkis og bæjar. Þótti
mönnum því til mikils að vinna að
starfsemi sýsluembættisins og lög-
gæslan efldust fremur en drægjust
jafnvel saman enda hefur það ver-
ið ósk íbúanna árum saman og vilji
sýslumanns að auka starfsemi
embættisins í Snæfellsbæ. Mun
dómsmálaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, væntanlegur vestur í
Snæfellsbæ 28. janúar nk. til að
ganga frá kaupum á efri hæð húss-
ins Ölafsbraut 34.
Þótt fjárhagsáætlunin beri
merki strangra aðhaldsaðgerða,
fremur lítilla fjárfestingu, utan
íþróttahúsið, mun þó með eðlileg-
um hætti verða haldið við götum,
holræsum og vatnslögnum. Sömu-
leiðis er ráðgert að ljúka frágangi
gangstétta víða um bæinn.
Til hafnarframkvæmda verður
varið talsverðum fjármunum,
þannig verður innsiglingarbauja í
Ólafsvík endurbætt og trébryggja
sem þarfnast lagfæringar. í Rifs-
höfn verður norðurgarður hafnar-
innar styrktur og er áætlað að það
muni kosta 9 milljónir króna. Af
smærri framkvæmdum má nefna
dýpkun hafnarinnar á Arnarstapa
og fé verður varið til lagfæringa á
hafnargarði á Hellnum.