Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 27.01.1999, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Tillaga frá Árna Johnsen um úttekt á nýtingn lítilla orkuvera, ÁRNI Johnsen alþingismaður hefur lagt fram tillögu til þingsá- lyktunar á Alþingi um að fela rík- isstjóminni að láta gera úttekt á nýtingu á þróunarmöguleikum lít- illa orkuvera þar sem kannað . verði hvort hagkvæm uppbygging *lh A'l ^SfGMUN/D- SKRIFAÐU eitt stk. míni-ver á þetta kot Finnur minn. Það er bullandi rafmagn hér. Nýr yfírlögregluþjónn tekur til starfa í Kópavogi Fyrsti yfírlögregluþjónninn hérlendis með lagamenntun FLEST bendir til að nýráðinn yfir- iögregluþjónn í Kópavogi, Friðrik Smári Björgvinsson, sé sá fyrsti hérlendis sem gegnir því starfi og er með lögfræðimenntun að baki. Friðrik Smári kom til starfa hjá embættinu 1. janúar síðastliðinn. „Eg veit ekki hvort menntunin hafi ráðið úrslitum um stöðuveiting- una og get ekki haldið því fram að um stefnubreytingu sé að ræða, í þá átt að yfirmenn hjá lögreglu hér- lendis hafi lögfræðilega menntun að baki. Ég held jafnvel að þetta tilvik sé ögn sérstakt að því leyti að ég var lögreglumaður áður en ég fór í lagadeild. Því er um sambland af reynslu og menntun að ræða og flest bendir til að fagleg sjónarmið hafi ráðið ferðinni við ráðninguna," segir hann. Hann segir sér ekki kunnugt um menntun annarra um- sækjenda. Þar til Friðrik Smári tók við stöðu yfirlögregluþjóns starfaði hann sem fulltrúi sýslu- manns í Kópavogi. í því starfi sinnti hann opin- berum málum og kveðst hafa verið í stöðugum samskiptum við lög- reglu og átt náið sam- starf við hana. Menntunin nýtist vel Hann segist teija að menntunin nýtist sér vel í starfi. „Daglega koma upp atvik sem reyna á túlkun laga og fram- kvæmd á lögreglustarf- inu, þannig að ég held að snertingin við lögin sé mikil,“ segir hann. Friðrik Smári kveðst telja líklegt að menntunin muni jafnframt hafa áhrif á stefnumótun á vegum yfir- lögregluþjóns, ekki síst starfshætti lögreglunnar í Kópavogi í ýmsum málum. „Ég held að maður með lögfræðimenntun líti öðrum augum á ým- islegt í tengslum við starfið en maður sem hefur ekki þá menntun, án þess að ég viiji til- taka einhver sérstök dæmi í því sambandi," segir hann. Friðrik Smári hóf störf í lögreglunni á Akranesi árið 1984, lauk seinni hluta náms í Lögregluskóla ríkisins árið 1988 og hóf í kjöl- farið störf hjá Lögregl- unni í Reykjavík. Hann starfaði hjá embættinu til 1992 þegar laganámið hófst, en eftir það eingöngu á sumrin. Hann útskrifaðist úr lagadeild HÍ 1997, var þá ráðinn fulltrúi hjá embætti sýslumanns í Kópavogi og gegndi því starfi til síðustu áramóta. FRIÐRIK Smári Björgvinsson. K I M I N ( i I O N Fara vel með þig Fáanlegar beintengdar,hleðslu og með rafhlöðum Fást í raftækjaverslunum, hársnyrtístofum og stórmörkuðum um allt land ÐREIFINGARAÐIU Sími: 533-1999, Fax: 533-1995 Von á þjóð- höfðingjum Eystrasalts- ríkjanna ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Lettlands og Eistlands munu að öllum líkind- um koma í opinberar heimsóknir hingað til lands á þessu ári og þjóðhöfðingi Litháens á næsta ári. Komelíus Sigmundsson forseta- ritari sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að þjóðhöfðingjunum hafi verið boðið hingað til lands við lok heimsóknar forseta Islands til landa þeirra. Kornelíus kvaðst eiga von á því að dagsetningar heimsóknanna, sem kynntar voru á ríkisstjómar- fundi í gær, verði ákveðnar innan skamms. Áhrif reykinga á tannholdsbólgu Tannlos er af- leiðing slæmrar tannholdsbólgu Ingólfur Eldjárn UM SÍÐUSTU helgi efndi Tannlæknafélag íslands til ráðstefnu um skaðleg áhrif tóbaksneyslu á tannheilsu. Tannlæknar þurfa að upp- lýsa sjúklinga sína um áhættu varðandi tóbaks- notkun og fræða um með- ferðarúrræði. Ingólfur Eldjám tannlæknir fjallaði á ráðstefnunni um áhrif reykinga á tannholds- bólgu. „Tannholdsbólga er bak^ teríusjúkdómur í munni. I flestum tilfellum er hægt að vinna bug á tannholds- bólgu og hún veldur þá ekki miklum skaða. Nái tannholdsbólgan að breið- ast út þá er hætta á að festan í munni losni og á endanum losni tennm-nar.“ Ingólfur segir að um 10% fólks fái slæma tannholdsbólgu með þeim afleiðingum að tannfestan losni. „Þetta er í raun mjög hátt hlutfall ef tekið er mið af þeim sjúkdómum sem hrjá fólk al- mennt.“ -Hvers vegna fær fólk tann- holdsbólgu? „Talið er að ónæmiskerfi fólks sé misvel undirbúið til að glíma við þær bakteríur sem haga sér svona í munni. Það þarf ekki að vera að ónæmiskerfið hjá þess- um einstaklingum sé verra en hjá öðrum en það ræður einfald- lega ekki við þessar bakteríur. Þama koma reykingar við sögu því þær hafa áhrif á ónæmiskerf- ið.“ Hann segir að reykingai- trufli blóðflæði í tannholdi og í munn- inum og geri bakteríunum auð- veldara íyrir. „Þetta er einn af mörgum áhættuþáttum varðandi tannholdsbólgu en það má einnig nefna atriði eins og munnhirðu og ýmsa sjúkdóma. Éinkenni tannholdsbólgu koma oft fram þegar fólk er búið að ná ákveðnum aldri eða er komið að fertugu." Ingólfur bendir á að hjá reykingamönnum komi ein- kennin miklu fyrr fram. „Svo virðist einnig sem ungh reyk- ingamenn fari verr út úr þessu en þeir sem eldri eru. Það er vissulega slæmt að vera að flýta fyrir þessum „öldrunareinkenn- um“ með reykingum." Hann segir að þeir sem reykja að staðaldri séu í meiri hættu á að fá tannholdssjúkdóma og ef þeir fá þá á annað borð, þá fari þeir líka verr út úr sjúkdómnum en þeir sem ekki reykja. -Getur sýking í munni ekki breiðst út um líkamann? „Rannsóknir sem að því lúta eru á byrjunarstigi en það er auðvelt að hugsa sér -------------------- að sýking í einum lík- Um 10% fólks amshluta geti haft fær tann- áhrif á aðra líkams- holdsbólgu starfsemi.“ ..... ■ ► Ingólfur Eldjárn er fæddur í Reykjavík árið 1960. Hann lauk tannlæknanámi frá tann- læknadeild Háskóla Islands ár- ið 1988. Að loknu námi starf- aði hann sem tannlæknir á Húsavík og Akureyri í nokkur ár. Ingólfur stundaði fram- haldsnám í tannholdslækning- um í Toronto í Kanada en þó aðallega við tannlæknadeild Gautaborgarháskóla þaðan sem hann útskrifaðist með sér- fræðigráðu í tannholdslækn- ingum árið 1995. Hann rekur eigin tannlæknastofu í Reykja- vík. Eiginkona Ingólfs er Guð- rún Björg Erlingsdóttir hjúkr- unarfræðingur og eiga þau þrjú börn. tannholdinu. Sjúkdómurinn greinist því jafnvel enn síðar hjá þeim sem reykja." - Hvernig er hægt að verjast tannholdsbólgu? „Ónæmiskerfinu breytum við ekki en við getum hjálpað því að berja á bakteríunum með góðri tannhirðu. Við getum líka fækk- að áhættuþáttunum t.d. með því að hætta reykingum eða byrja aldrei.“ Tannlæknar eru með langa reynslu í forvarnastarfi eins og sést á fækkun tannskemmda á Islandi og gætu kannski beitt sér meira á þessum vígstöðvum. Við erum í býsna miklu „návígi“ við sjúklingana okkar, fullmiklu finnst sumum, og erum oft einu læknamir sem ungt og frískt fólk hittir reglulega. Með þessum hópi væri til dæmis hægt að vinna býsna mikið starf.“ -Er í flestum tilfellum hægt að vinna bugá tannholdsbólgum? „Oft er hægt að komast fyrir tann- holdsbólgu en þó er talsvert um að fólk sé komið fram á - Hver eru fyrstu einkenni tann- holdsbólgu? „Tannholdsbólga er sjúkdóm- ur sem fer afar hljóðlega og fólk finnur yfirleitt ekki nein einkenni fyrr en í óefni er komið og tenn- urnar eru að losna. Eitt aðaleinkennið er blæðing úr tannholdi þegar tennurnar eru burstaðar eða verið er að nota tannþráð. Reykingar geta á hinn bóginn falið þessi einkenni því nikótínið dregur saman æð- arnar og sáralítið blóðflæði er í hengiflugið og búið að vera með sýkingu í munni í mörg ár án þess að það hafi hugmynd um það þegar það leitar sér hjálpar. Þá tekur það lengri tíma að vinna bug á sjúkdómnum og úrræðin við að koma hlutunum í lag eru færri. Til að komast fyrir tann- holdsbólgu þarf að hjálpa tann- holdinu með rækilegri tann- hreinsun og stundum þarf að grípa til skurðaðgerða. Éyrst og fremst ber þó að leiðbeina fólki um tannhirðu."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.