Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 11

Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 11 FRÉTTIR Fulltrúar Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Bessastaðahrepps Ekki eðlilegt að greiða arð til Reykjavíkur Sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur sem hafa m.a. keypt heitt vatn af Reykjavíkurborg telja sér ekki skylt að taka þátt í arðgreiðslu til borgarinnar. Jóhannes Tómasson kannaði afstöðu fulltrúa bæjar- stjórna um málið og borgarstjóri og félags- málaráðherra viðra einnig sjónarmið sín. SAMÞYKKT var á fundi bæjar- ráðs Garðabæjar í gær að fela bæj- arstjóra að reikna út þær fjárhæðir sem bærinn hefur greitt sem arð til orkufyrirtækja sem bærinn á við- skipti við undanfarin ár. Eru það Hitaveita Reykjavíkur, Rafmagns- veita Reykjavíkur og Rafveita Hafnarfjarðar. Var bæjarstjóra jafnframt falið að eiga viðræður við fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar og Reykjavíkurborgar um ákvörðun þjónustugjalda veitustofnana. Bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs og sveitarstjóri Bessa- staðahrepps sögðu í viðtali við Morgunblaðið að ekki væri eðlilegt að þessi bæjarfélög tækju á sig hluta af arðgreiðslum Hitaveitu Reykjavíkur til borgarsjóðs og kváðust vilja ræða það mál sér- staklega við borgaryfirvöld. Kemur sú afstaða þeÚTa m.a. í kjölfar lög- fræðiálits sem bæjarstjórn Hafnar- fjarðar hefur aflað sér þess efnis að Hitaveita Reykjavíkur hafi farið út fyrir mörk sem töku þjónustu- gjalds séu sett. Framangreind sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu ásamt Hafn- arfirði vinna um þessar mundir sameiginlega að könnun á framtíð- arskipan orkumála sinna, m.a. kaupum á raforku og heitu vatni og hafa skrifað undir samstarfssamn- ing við Hitaveitu Suðurnesja um forkönnun. Fulltrúar bæjarstjórna á þessu svæði sem Morgunblaðið ræddi við sögðu ekki ljóst á þessu stigi hvort samstarf yrði aukið við Hitaveitu Suðurnesja og dregið úr kaupum á heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur. Ingimundur Sigurpálsson, bæj- arstjóri í Garðabæ, sagði að rætt hefði verið um kaup Garðbæinga á heitu vatni hjá Hitaveitu Reykja- víkur á bæjarráðsfundi í gær. Hann sagði bæjaryfirvöld hafa átt viðræður við Hafnfirðinga og fylgst væri með málinu hjá þeim. „Við höfum lengi reynt að fá upp- lýsingar frá Hitaveitu Reykjavíkur um arðgreiðslur og ætlað að ræða við fulltrúa fyrirtækisins en ekki fengið svör við því,“ sagði Ingi- mundur í samtali við Morgunblað- ið. „Við viljum vita út frá hvaða töl- um Reykjavíkurborg er að reikna sér arðgreiðslurnar, ekki síst þeg- ar hún er að færa sig upp á skaftið eins og núna.“ Bæjarstjórinn kvaðst ganga út frá því að lækka mætti gjaldskrána til Garðbæinga, það hefðu menn lengi gert þar. Hann sagði að- spurður að ekki hefðu verið könnuð kaup á heitu vatni frá öðrum aðila, Garðabær ætti þó samstarf við Hitaveitu Suðurnesja, einkum um raforkumál en hugsanlega mætti einnig kaupa heitt vatn af fyrir- tækinu. Skýrist á næstu vikum Gunnar Valur Gíslason, sveitar- stjóri Bessastaðahrepps, tjáði Morgunblaðinu að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sunnan Reykjavíkur hefðu skrifað undir samning við Hitaveitu Suðurnesja um könnun á samstarfi þeirra við hitaveituna og væri þar um stefnu- markandi ákvörðun að ræða. Þar kæmu orkumál í víðu samhengi til skoðunar. Hann sagði vinnu við þessa könnun enn í gangi. Gunnar Valur sagði sjónarmið sveitarfélag- anna á þessu svæði að þau vildu ekki taka þátt í arðgreiðslum Hita- veitu Reykjavíkur í borgarsjóð. „Hvemig þetta endar, hvort við skiptum um seljanda á heitu vatni, skal ég ekkert segja um ennþá en það er áhugi á því að taka málin upp og skoða þau,“ sagði Gunnar. Bjóst hann við að málin myndu skýrast á næstu tveim til þremur vikum þegar forvinnu væri lokið. Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, segir yfirvöld þar hafa kvartað yfir því í mörg ár að íbúar Kópavogs þurfi að taka á sig greiðslu arðs til Reykjavíkurborg- ar, það se skattlagning, og hafi nýtt lögfræðiálit, sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi fengið, staðfest þá skoðun bæjaryfirvalda Kópa- vogs. Sigurður sagði málið verða rætt í bæjarráði á morgun, fimmtudag, og taldi víst að bæjar- félögin myndu verða samstiga í hugsanlegum viðræðum við Reykjavíkurborg vegna þessara mála. „Þessi mál virðast torsótt en næsta skref var að taka skipulega á þessu,“ sagði bæjarstjórinn. „Við teljum að með arðgreiðslunum sé verið að láta okkur borga skatt í Reykjavík og það er kolólöglegt. Ef þetta er sannanlega kostnaður við ákveðna þjónustu greiðum við hann en þegar menn ákveða rekstrarafgang fyrirfram horfir málið öðruvísi við.“ Borgarlögmaður tekur saman álitsgerð Vegna þeirrar hugmyndar Hafn- firðinga að krefjast endurgreiðslu á meintum ofteknum þjónustu- gjöldum Hitaveitu Reykjavíkur í kjölfar lögfræðilegrar álitsgerðar, sem bæjaryfirvöld hafa aflað sér, ætlar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri að óska álitsgerðar borgarlögmanns um málið. Munu borgaryfirvöld ekki aðhafast neitt í málinu fyrr en hún liggur fyrir. „Þegar álitsgerðin er tilbúin munum við kynna Hafnfirðingum hana og væntanlega Garðbæingum og þeir verða síðan að ákveða hvort þeir aðhafast eitthvað í framhaldi af því,“ sagði borgarstjóri. Ingi- björg Sólrún kvaðst ekki vilja segja neitt um ki-öfur Hafnfirð- inga, málið yrði að skoða vandlega. „Þetta em auðvitað ekkert annað en álitsgerðir lögmanna, unnar út frá sjónarhóli hagsmuna annars aðilans en það er ekki þar með sagt að þær hafi úrskurðargildi," sagði borgarstjóri ennfremur. Engin ástæða væri því til að bregðast á nokkurn hátt við áliti Hafnfirðinga að svo stöddu. Borgarstjóri kvaðst ekki geta sagt hvaða áhrif það hefði á rekst- ur Orkuveitu Reykjavíkur ef Hafn- arfjörður eða önnur sveitarfélög sem keypt hafa vatn af Hitaveitu Reykjavíkur snem sér annað, en athuga bæri að dreifikerfið væri í eigu Reykjavíkur. Ingibjörg Sól- rún minnti einnig á að farið hefði verið út í Nesjavallavirkjun á sín- um tíma til að geta útvegað ná- grannabæjunum heitt vatn. Hún hefði engum arði skilað til Reykja- víkur enn, það yrði ekki fyrr en framleiðsla á rafmagni hæfist. Miklir hagsmunir í húfi „Hér em miklir hagsmunir í húfi fyrir Orkuveitu Reykjavíkm- og íbúa þessara bæjarfélaga og menn skyldu ekki leika sér með þá.“ Hún sagði engin uppsagnarákvæði í samningum sveitarfélaganna um kaup á heitu vatni. „Ef hann er uppsegjanlegur af þeirra hálfu hlýtur hann að vera það af okkar hálfu líka. Ástæðurnar fyrir því að ekki em uppsagnarákvæði íyrir hendi em tvær. Annars vegar sú að þegar hann var gerður var orku- skortur og bæjarstjórn Hafnar- fjarðar vildi vera viss um að Hita- veitan gæti ekki sagt honum upp til að geta sinnt Reykvíkingum betur. Hins vegar vildu borgaryfii-völd vera trygg með að færa þau út í miklar fjárfestingar til að standa undir samningum gætu menn ekki hlaupið frá honum í miðjum klíð- um.“ Búist er við að álit borgarlög- manns geti legið fyrir eftir nokkrar vikur. Sveitarfélögum heimilt að innheimta arð „Það liggur fyrir að samkvæmt sveitarstjórnarlögum er sveitar- stjórnum heimilt að heimta arð af fyrirtækjum sínum. Það þarf að breyta orkulögum, lögum um vatnsveitur og líklega hitaveitur líka til að gefa þessu atriði sam- ræmdan og sterkari lagagrund- völl,“ segir Páll Pétursson félags- málaráðherra er hann er spurður um heimild sveitarstjóma til að heimta arð af fyrirtækjum sínum. Páll Pétursson sagði lög um vatnsveitur heyra undir félags- málaráðuneytið en önnur lög þessu viðkomandi undir iðnaðarráðu- neyti. Hann sagði lagafrumvarp í undirbúningi, framvarp um vatns- veitur væri tilbúið í sínu ráðuneyti og kvað hann hugmyndina að leggja þau fram samhliða. „Auðvit- að er það mjög eðlilegt og sjálfsagt að sveitarfélög sem njóta þeirrar góðu aðstöðu að eiga til dæmis stórríkar hitaveitur geti tekið út úr þeim einhvern arð,“ sagði ráðherra og kvaðst aðspurður ekki vilja blanda sér í skoðanaskipti bæjar- stjómar Hafnarfjarðar og borgar- stjómar Reykjavíkur um hvort um eðlileg þjónustugjöld væri að ræða af hálfu Hitaveitu, nú Orkuveitu Reykjavíkur, eða hvort um arðtöku eða skattlagningu væri að ræða. „Mér finnst það hins vegar tölu- verð röksemd hjá borgarstjóra að farið var í Nesjavallavirkjun til að geta fullnægt þeim markaði sem opnaðist í Hafnarfirði enda fer Nesjavallavatnið annað en til Reykvíkinga. Reykvíkingar hafa því ekki notið neins hagræðis af þeirri framkvæmd ennþá. Mér finnst þessi málsupptekt Hafnfirð- inga dálítið undarleg, það myndu mörg sveitarfélög sleikja út um ef þau væra í aðstöðu Hafnfirðinga; að láta aðra útvega sér heitt vatn á þó ekki verri kjöram en þetta, á lúxuskjörum." Útsalan er byrjuð í Metró - Skeifunni best er að koma strax til að ná í toppvöru - hræódýrt (ekki segja neinum)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.