Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 21
ERLENT
Kosningabaráttan hafín í Finnlandi
Lipponen vill
verða forsætis-
ráðherra áfram
Helsinki. Morgunblaðið.
PAAVO Lipponen, forsætisráð-
hen-a Finnlands, hóf á mánudaginn
kosningarbaráttu sína með því að
lýsa því yfír á fjölmiðlafundi að
hann myndi ekki taka við öðru ráð-
herraembætti en embætti forsæt-
isráðherra. Formaður finnska
Jafnaðarmannaflokksins er með
þessari yfírlýsingu talinn hafa tek-
ið enn eitt skref í átt að hugsan-
legri fjögurra ára dvöl í stjómar-
andstöðu.
Skoðanakannanir hafa sýnt að
fylgi jafnaðarmanna sé á leið niður.
I könnunum upp á síðkastið hafa
Hægriflokkur og Miðflokkur til
skiptis hlotið mest
fylgi. Pað væri mikið
áfall fyrir Lipponen ef
flokkur hans yrði ann-
ar eða jafnvel þriðji
stærsti flokkurinn að
kosningum loknum.
Þegar kosningar-
barátta jafnaðarmanna
hófst um síðustu helgi
var þá þegar fullyrt að
flokkurinn myndi ekki
setjast í stjóm ef hann
héldi ekki stöðu sinni
sem stærsti flokkur
Finnlands.
Svipað fylgi þriggja
stærstu flokkanna
Lipponen segist nú vera ákveð-
inn að taka ekki öðm ráðherra-
embætti en starfi forsætisráð-
herra. Hefur hann þar
með hafnað getgátum
um að núverandi
stj órnarmunstur
kunni að halda áfram
þó að hægri menn fái
meira fylgi en jafnað-
armenn.
I síðustu kosning-
um fékk Jafnaðar-
mannaflokkurinn 28%
fylgi. Skoðanakannan-
ir nú sýna hins vegar
að Jafnaðarmanna-
flokkurinn, Hægri-
flokkurinn og Mið-
flokkurinn séu nánast
jafnir. Allir hafa þeir
á milli 20 og 25 pró-
senta fylgi. Þýðir það að borgara-
legu flokkarnir hafa aukið fylgi
sitt á kostnað krata.
Paavo
Lipponen
Vaxandi
áhyggjur
í Brasilíu
GENGI brasilíska gjaldmiðils-
ins, realsins, féll enn í gær og
fara áhyggjur manna af fram-
vindu efnahagsmála í Brasilíu
mjög vaxandi. Hefur gengið fall-
ið um alls 37,5% síðan seðlabanki
landsins féll írá gengisstefnu
sinni 13. þ.m. Þá urðu fjárfestar
fyrir enn einu áfallinu er Fitch
IBCA, sem metur lánshæfi ríkja,
bættist í hóp annarra slíkra
stofnana og lækkaði lánshæfi
Brasilíu. Þýðir það í raun, að
þetta áttunda stærsta hagkerfi í
heimi er komið einu skrefi nær
því að geta ekki staðið í skilum.
Mótmæli
barin niður
ÓEIRÐALÖGREGLA beitti í
gær táragasi og kylfum til að
dreifa fólki, sem safnast hafði
saman í Harare, höfuðborg
Zimbabwe, til að mótmæla
meintum pyntingum á tveimur
blaðamönnum. Voni þeir hand-
teknir fyrir að halda því fi-am í
grein, að heimenn hefðu lagt á
ráðin um að steypa Robert
Mugabe, sem hef'ur verið við
völd í landinu frá því það varð
sjálfstætt 1980. Hefúr þeim verið
sleppt en þeir segja, að þeim hafi
verið misþyrmt í fangavistinni.
Hillary á
suðurskauti
NÝSJÁLENDINGURINN
Peter Hillary, sonur Edmunds
Hillai-ys, sem sigraði Everest,
og tveir félagar hans komust á
suðurskautið í gær eftir erfítt
ferðalag, 1.353 km, í 84 daga.
Voru þeir samt ágætlega á sig
komnir en einu sinni ui-ðu þeir
að hafast við í tjöldunum í 11
daga vegna veðurs. Ætluðu þeir
upphaflega að ganga til baka en
hættu við það.
Freud fær
uppreisn
FYRIR um 30 árum höfnuðu
vísindamenn þeirri kenningu
Sigmunds Freuds, að draumar
stöfuðu meðal annars af duldum
óskum en nú eru komnar nokkr-
ar vöflur á þá. Á sjöunda ára-
tugnum komust menn að því, að
þeim tíma svefnsins, sem tengd-
ur var draumfórum og einkenn-
ist af örum augnhreyfingum,
væri stjórnað af heilastöðvum,
sem hafa ekkert með hugsun að
gera. Nú hafa hins vegar aðrir
vísindamenn slegið því fóstu, að
þessi tími og draumar eigi ekk-
ert skylt. Draumai- eigi upptök
sín í heilahluta, sem gefí frá sér
dópamín en það örvi aftur óskir
manna, langanir og þrár.
Skakki turn-
inn réttur
UM þessar mundir er unnið að
því að^ rétta Skakka tuminn í
Pisa á Itallu en það verður meðal
annars gert
með því að
grafa undan
honum að
hluta. Til að
koma í veg
fyrir, að hann
hrynji við
raskið hefur
hann verið
færður í nokkurs konar stálkápu,
sem stutt er við með stögum.
853»
Hefur þú hjúkrunarmenntun, en starfar ekki
við þitt fag í dag, eða hefur hug á að
skipta um starfsvettvang?
Þá hefur þú þekkingu og reynslu
sem er mikils virði fyrir okkur á Landspítalanum.
slást í hópinn?
ekki Við vinnum
með fólki, fyrir fólk
Hjúkrunarfræðingum sem hefja störf á ný
eftir hlé er boðið upp á aðlögun sem
hentar hverjum og einum.
Hjúkrun byggist á þekkingu, kærleika og
virðingu fyrir sjúklingnum og aðstandendum
hans. Áhersla er lögð á þátttöku sjúklingsins í
eigin meðferð og eflingu heilbrigðis.
Mikilvægt er að menntun hjúkrunarfræðinga
nýtist í starfi og henni sé haldið við með símenntun.
Margbreytileg námstækifæri gefast því á hverju ári.
• Á Landspítalanum bjóðast hjúkrunarfræðingum fjölbreytt störf
og þar starfa nú um 700 hjúkrunarfræðingar á 80 deildum við
hjúkrun sjúklinga á öllum aldri.
Nýtt vaktakerfi er í undirbúningi og verður
að öllum líkindum tekið upp innan árs.
Kraftmikið starfsmannaráð er á Landspítala.
Heilsurækt er einnig í boði.
Starfsemi hinna ýmsu deilda Landspítalans
verður kynnt föstudaginn 29. janúar
kl. 14:00-16:00. Þar er kjörið tækifæri fyrir
hjúkrunarfræðinga til að kynnast því sem er að gerast í
hjúkrun á Landspítalanum í dag og þiggja veitingar.
LANDSPÍTALINN
...íþágu matmtíðar og vísinda