Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 26

Morgunblaðið - 27.01.1999, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 F v^mbl.is -ALLTAf= GITTHXVkÐ NTTT- Aðgengilegt, hraðvirkt og einfalt. Gula línan w ■ ■ ■ Upplýsingar um vörur og þjónustu allan sólarhringinn. Alltaf þegar þlg vantar eitthvað. MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kammertónleikar á fæðingardegi Mozarts #j Kvintettþáttur sem ekki hefur heyrst hér áður J KAMMERTÓNLEIKAR með verkum eftir Wolfgang Amadeus Mozart verða haldnir í hliðarsal Hallgrímskirkju í kvöld, en í dag eru liðin 243 ár frá fæðingu tón- skáldsins. A tónleikunum verður m.a. fluttur kvintettþáttur fyrir strengi og blásara úr verki sem Mozart lauk ekki við að semja og hefur ekki heyrst hér á landi fyrr. Tónskáld að nafni Beyer lauk Iöngu síðar við verkið, sem ber þó höfundi sínum ótvírætt vitni, að sögn Laufeyjar Sigurð- ardóttur fiðluleikara. Einnig verður flutt sónata fyrir píanó og fiðlu K 301, píanótríó K 502 og divertimento fyrir blásara. Flyljendur á tónleikunum eru Bijánn Ingason, sem leikur á fagott, Kjartan Óskarsson á bas- sethorn, Krystyna Cortes, sem leikur á nýjan Bösendorfer flygil Haligri'mskirkju, Laufey Sigurð- j ardóttir á fiðlu, Richard Talk- owsky á selló, Sigurður Snorra- son á klarinett og Þórunn Marin- ósdóttir á víólu. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og eru miðar seldir við inngang- inn. Morgunblaðið/Ásdís ÞÓRUNN Marinósdóttir, Richard Talkowsky, Laufey Sigurðardóttir, Kjartan Óskarsson, og Sigurður Snorrason á æfingu fyrir Mozart-tón- leikana. Fjarstödd voru þau Krystyna Cortes og Bijánn Ingason. Verðlaun fyrir bók um Island DANSKI rithöfundur- inn Poul Vad hlaut um helgina verðlaun í Aust- urríld fyrir bók sína sem á dönsku heitir „Fyrir norðan Vatna- jökul“ en á þýsku „ís- landsferð, á slóðum Is- lendingasögu". I bók- inni fer hann á slóðir Hrafnkelssögu. Hér er um að ræða sérstök verðlaun héraðsins Tírol fyrir ferðabók- menntir og voru þau nú veitt þriðja sinni. V erðlaunaafhending- in fór fram í kvikmynda- húsinu „Gullni öminn“ í Innsbruck að viðstöddum 300 manns. í rökstuðningi dómnefndar fyrir því að bók Vads varð fyrir val- inu segir að í bókinni takist „höfundi ekki aðeins að gæða fomt bók- menntaverk lífi _að nýju; hann [sé] einnig fluglæs á íslendinga.“ Verður að fara á vettvang sögunnar Vitnað er í orð höfundarins að för hans til Islands hafi verið píla- grímaferð á vit ákveðinna bók- mennta. Síðan segir í áliti dóm- nefndar: „Sá serri hyggst rekja slóð ákveðinnar Islendingasögu getur ekki farið að gröf höfundar eða leit- að uppi vinnustofu hans, heldur verður hann að fara á vettvang sög- unnar: „Á meðan skrásetjararnir gerðu síðari kynslóðum hrekk með nafnleysi sínu gerðu þeir landinu ómetanlegan greiða með því að bæta vídd ímyndunarinnar við landafræðina.“ Þegar Poul Vad ferðast um Island ratar hann inn í hjarta sögunnar; er hann gerir sig þar heimakominn opnast einnig fyr- ir honum ísland nútím- ans. Poul Vad er vel lesinn ferðalangur og heimsvanur lesandi. Reynsla hans kann að vera framandi og lestr- L arefnið fjarri alfaraleið, ; en alltaf er férðalagið |j lærdómsríkt. Ástæðan jy er sú að það þegar bækur verða hvati að ferðalögum, sem síðan leiða af sér bækur, er reynsla, sem hinum gaumlausa ferðamanni ætti ekki einu sinni að vera ókunnugt um.“ Undir álitið skrifar L Hermann Wallmann, kennari og stjórnandi alþjóðlega | „Ljóðamótsins í Miinster", en aðiir > dómnefndarmenn voru Erwin Brunner, staðgengill ritstjóra Meri- an-ferðabókaútgáfunnar, Wolfgang Griep, stjórnandi rannsóknarstofn- unar um sögulega ferðamenningu, Gabriele Habinger, útgefandi bóka- flokksins „Edition Frauenfarten" hjá forlaginu Promedia í Vín, Wolf- gang Lechner, ritstjóri hjá tímarit- inu Die Zeit, Rachel Salamander, l| stofnandi „Literaturhandlung" í Munchen, Berlín og Vín, og Tilman g Spengler, höfundur og einn útgef- ' enda tímaritsins Kursbuch. Einnig voru veitt verðlaun fyrir blaðaskrif á sviði ferðamennsku. Þau hlaut Johanna Wieland fyrir greina- röð í tímaritinu Geo, sem fjallaði um ferð hennar um Kína. Jafnframt verðlaunaafhending- unni voru haldnir ýmsir fyrirlestrar og kynntar bækur. Arthúr Björgvin Bollason var meðal fyrirlesara og | fjallaði hann um landslag í bók- I menntum með tilvísun til sögueyj- * unnar íslands. Poul Vad

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.