Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 38

Morgunblaðið - 27.01.1999, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 4P t Elskulegur eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR ÞÓRÐARSON, Aflagranda 40, Reykjavík, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju- daginn 12. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingunn Eyjólfsdóttir, Bryndís Óskarsdóttir, Kristján Óskarsson, Svandís Óskarsdóttir, Sigurður Jóhannsson, Dýrunn A. Óskarsdóttir, Gylfi Óskarsson, Guðlaug Árnmarsdóttir, Þórður S. Óskarsson, Hanna Dóra Birgisdóttir, Eyjólfur Óskarsson, Guðbjörg Jörgensen og barnabörn. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR INGI ÞÓRARINSSON, Löngubrekku 27, Kópavogi, lést á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur föstudaginn 22. janúar síðastliðinn. Helga Þórðardóttir, Kristján Þór Guðmundsson, Sigrún Birna Dagbjartsdóttir, Þórarinn Björn Guðmundsson, Guðmunda Ingimundardóttir, Björgvin Már Guðmundsson, Ásrún Þóra Sigurðardóttir og barnabörn. > + Ástkær faðir okkar og afi, INGVALDUR BENEDIKTSSON, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 24. janúar. Erlendur Ingvaldsson, Svana Lára Ingvaldsdóttir, Vilborg Ingvaldsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi SIGTRYGGUR SVEINBJÖRNSSON frá Sandhólum, sem andaðist á Kristnesspítala mánudaginn 18. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju föstudaginn 29. janúar kl. 3:30 Helga Margrét Jóhannesdóttir, Sveinbjörn Sigtryggsson, Jóhannes Rúnar Sigtryggsson, Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir, Hulda Sigurborg Sigtryggsdóttir, Haukur Magnússon, Grétar Sigtryggsson, afabörn og langafabörn. + Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR PÁLMADÓTTUR (Gauju), Lindargötu 57, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur. Sólrún Garðarsdóttir, Reynir Sigurðsson, Erlingur Garðarsson, Anna Valdís Jónsdóttir, Gerður Garðarsdóttir, Helgi Sigurgeirsson, Ragna Rut Garðarsdóttir, Friðgeir Haraldsson, Gréta Garðarsdóttir, Eggert Ólafur Jóhannsson, Sigríður Pálmadóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, ömmuböm og langömmubörn. GUÐMUNDUR EINAR FRIÐFINNSSON Guðmundur Einar Friðfinns- son bryti fæddist í Reykjavík 13. febr- úar 1935. Hann Iést í Reykjanesbæ 20. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Friðfinnur Gíslason, verkstjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, f. 18.10. 1893 í Reykjavík, d. 13.6. 1959, og Stefanía Guðmundsdóttir, f. 11.4. 1900 á Vatnsleysuströnd, d. 28.7. 1983. Systur Einars eru Ingibjörg, f. 8.7. 1924, Þórunn I., f. 4.7. 1930, og Margrét, f. 30.9. 1942. Fyrri kona Einars var Lóa Henný Olsen úr Reykjavík. Þau skildu. Áttu þau Friðfinn, f. 13.6. 1961, Einar Stefán, f. 30.9. 1963, hann lést af slysförum 1.10. 1989, og Þór- unni Ingibjörgu, f. 6.8. 1968. Seinni kona Einars var Helga Jóhanna Svavarsdóttir úr Reykjavík, d. 13. nóvember 1993. Einar lærði mat- argerðarlist í Naustinu. Hann starfaði sem bryti hjá skipafé- laginu Jöklum í um 50 ár. Útför Einars fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Þegar ég frétti af andláti þínu fóru í gegnum huga minn ótal minn- ingar frá meira en 30 ára vináttu okkar. Það sem alltaf mun bera hæst er minning um heilsteyptan góðan dreng, sem öllum vildi vel og hægt var að treysta. Óll mín fjölskylda fagnaði því, þegar þið systir mín tilkynntuð væntanlega giftingu ykkar. Við eig- um öll ánægjulegar minningar frá Borgartanganum og einstakri gest- risni ykkar beggja. Þú áttir margar ánægjulegar minningar úr æsku, frá Nýlendu- götunni, þar sem þú ólst upp hjá miklum sæmdarforeldrum og í systra hópi. Einnig voru þar tíðar gestakomur vina og ættingja. Þegar við höfðum þekkst í nokkum tíma varð okkur ljóst að við vorum talsvert skyldir, en ættir okkar sameinuðust í Neðradal í Biskupstungum. Þetta var okkur kærkomið tilefni til nokkurra mjög ánægjulegra ferða um sveitir Suð- urlands til að skoða þar bæi og til þess að kynna okkur staðhætti, einnig að kynnast fólki. Við áttum þó talsverðu af þessu verki ólokið þegar þú veiktist. Ekki er hægt annað en að staldra aðeins við skipafélagið Jökla þar sem þú starfaðir svo lengi, en þar ríkti svo sérstakur starfsandi að annað starf kom ekki til greina fyrir þig. Þakkaðir þú þennan góða anda sérstökum hæfileikum Ólafs Þórð- arsonar frá Laugarbóli forstjóra, en hann var menntaður búfræðingur og stýrði skipafélagi með slíkum ágætum, að ekki verður létt leikið eftir. Það hefur sennilega alltaf ver- ið lítill munur á íslenskum bændum og víkingum til forna. Þú eignaðist stóran hóp vina og kunningja hjá Jöklum og voru þar margir mjög eftirminnilegir per- sónuleikar. Mér er þó þeirra minn- isstæðastur Helgi Guðjónsson skip- stjóri, sem heimsótti þig reglulega fram undir það síðasta. Það hefur mikið verið lagt á þig þessi síðustu árin, fyrst missir þú son þinn, en börnin þín voru þér ómetanleg, síðan misstir þú konuna þína sem var þér svo kær og síðan færðu þennan slæma sjúkdóm. En það er til marks um styrk þinn að þú lést aldrei bugast og þó að þessi síðasta glíma væri mjög UTFARARSTOFA OSWALDS s«M. 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN ; SÓLARHRINGINN | AÐALSTRÆTI ÍH • 101 REYKJAVÍK l.fKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR i. • V 1899 ójafn leikur, þá glímdir þú til vinn- ings, alveg fram á síðustu stundu. Það var þér mikil hjálp að sjálf- sögðu að eiga tvö börn eftir, sem að- stoðuðu þig af ósérhlífni fram á seinustu stundu. Kæri vinur, í dag kveð ég þig og óska þér góðrar ferðar. Guðmundur Svavarsson. í dag kveðjum við elskulegan vin okkar, Einar frænda, en undir þessu nafni gekk hann í fjölskyld- unni og milli vina frá því ég man fyrst eftir mér. Einar móðurbróðir minn var 14 ára þegar hann fór i sína fyrstu siglingu með Vatnajökli í eigu Jökla og þar með voru línumar dregnar hvað varðar ævistarf Ein- ars og var hann starfsmaður Skipa- félagsins Jökla alla sína tíð, að und- anskildum námsárunum í Naustinu þar til hann veiktist fyrir um tveim- ur árum. Einar var gjafmildur og naut þess að gleðja aðra. Þegar hann hóf sínar löngu siglingar út í heim naut að sjálfsögðu lítill frændi góðs af gjafmildi hans, enda urðu augun oft stór á jafnöldrunum þegar sýningar stóðu yfir á gersemunum sem hann færði mér: járnbrautarlest með öllu, kafbátur, bílar, indíánabúningur, kúrekaföt með byssubelti og öllu og margt fleira. Þvílíkt og annað eins hafði aldrei komið fyrir sjónir strák- polla í vesturbænum. Gjafmildi og greiðvikni Einars var alltaf söm. Sem dæmi um það sem aldrei brást var kalkúnninn sem hafður er á borðum foreldra minna á gamlárskvöld. I um þrjátíu ár höfum við systkin ásamt mökum, börnum og barnabörnum í mikilli tilhlökkun lagt okkur til munns gómsætan kalkún sem Einar frændi útvegaði. Miklar breytingar hafa orðið á sjómennsku og ekki síst um borð í millilandaskipum. 14 ára gamall fékk ég pláss sem messagutti hjá Einari um borð í Langjökli. Áhöfnin var 26 eða 28 manns og voru far- þegar oft tíu til tólf. Þeir sem komu að eldhússtörfum og framreiðslu á matarföngum við farþega og áhöfn gátu verið ansi stressaðir á þessum tímum að einum undanskildum, Einari frænda. Það var alveg sama á hverju gekk, alltaf hélt hann ró sinni og yfirvegun. Sama stilling og prúðmennska hefur ávallt fylgt honum þótt margt Sérfræðingar í blómaskreytingum vid öll tækifæri I HHfci blómaverkstæði 1 BlNNAte I Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sírni 551 9090. mótlætið hafi mætt honum um æv- ina. Einar missti son sinn, Einar Stef- án, í vinnuslysi um borð í flutninga- skipi og síðar seinni konu sína, Helgu Svavarsdóttur. Þetta voru þung áfóll fyrir frænda, en ávallt hélt hann stillingu sinni og prúð- mennsku. Það gerði hann líka kvöldið sem hann hringdi í mig og sagði: „Jæja, nú er það ekki gott, frændi, ég var að fá úrskurð frá læknunum um að ég væri með krabba. Það þýðir ekk- ert að hengja haus maður verður að berjast, þú lætur þetta fréttast svona smátt og smátt.“ Svona var frændi, tók sjúkdómnum eins og hverju öðru verkefni sem hann ætl- aði sér að sigra. Það var mér mikil ánægja seinna meir að fá að sigla nokkra túra sem afleysingamaður og kjmnast því samfélagi sem myndast um borð þegar menn hafa lengi starfað sam- an. Viðurnefni á skipverjum var mjög algengt. Einar hafði nafnið „séra“ eða „fóstri". Það fyrra vegna þess hve auðvelt hann átti með að gefa mönnum nafn (viðurnefni) og hið síðara, „fóstri“, vegna þess að margir sem ílengdust í staifi til sjós hjá Jöklum höfðu byrjað sem mess- ar undir yfirstjóm Einars. Frændi var góður stjómandi og kennari, gerði kröfu um vinnusemi og ábyrgð jafnframt því sem hann benti okkur græningjunum á þær hættur sem yarast skyldi í hinum stóra heimi. í höfnum erlendis tók hann okkur stráklingana oft með sér og sýndi okkur skrúðgarða, dýragarða, söfn og oft var endað í tívolí. Einar las mjög mikið af fræði- bókmenntum svo sem guðfræði, mannkynssögu og heimspeki og var einstaklega gaman að ræða og hlusta á skýringar frænda á hinum ýmsu hlutum sem sífellt voru að velkjast fyrir okkur og erfitt að fá skýringar á. Ég fann vísukom fyrir fáeinum dögum, sem ég hafði párað á pappír í Borgartanganum hjá Einari fyrir sennilega sex áram. Ekki veit ég hver hefur ort og vonandi breytir það litlu. Þetta kvöld hefur umræðu- efnið verið eitthvað tengt lífsgæða- kapphlaupinu. Vísan hljóðar svona: Láttu þér fátt um flos og sessur og fágaða skápa og borð. Sífellt dekur við dauða hluti er dulbúið sálarmorð. Ég vil að lokum, frændi, þakka það að hafa fengið að kynnast þér og sjónarmiðum þínum til þessa heims og hinna ýmsu vídda sem þú áttir svo auðvelt með að segja frá. Elsku Þórunn, Finni, Lilja og börnin ykkar. Megi góður guð styrkja ykkur í sorginni. Hafið hug- fast að minning um góðan mann gleymist ei. Guð blessi minningu Einars. Guðmundur Davíðsson (Skuggi). Kæri vinur. Nú er komið að kveðjustundinni og margs er að minnast og sár söknuður við missi góðs vinar. Það em komin fjömtíu og fimm ár, sem vinátta okkar spannar. Farmennskan varð okkar ævistarf. Einar starfaði allan sinn siglingatíma hjá Jöklum hf., að und- anskildum tveim árum í landi. Far- mennskan var með öðm sniði en nú til dags. Þá gafst góður tími til að skoða sig um á þeim mörgu stöðum, sem skipið kom til. Ferðin gat tekið marga mánuði. I minningunni er mér það hug- stætt, þegar við skipsfélagarnir eyddum gamlárskveldi uppi á Mount Carmel-fjalli rétt fyrir utan Haifa í Israel, ásamt innfæddum við söng og gleði. Otal urðu ævintýrin. Alltaf varstu sami hugljúfi öðlingur- inn, sem höfðinglega veittir þínum gestum. Að leiðarlokum, Einar minn, þakka ég þér samstarfið og vinátt- una, sem þú sýndir mér og fjöl- skyldu minni. Ég óska þér góðrar ferðar um ókunna slóð. Ég sendi hugheilar samúðarkveðjur til bama, barnabarna og annarra ættingja. Helgi Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.