Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 1
—
MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARDAR • HÝBÝLI
—
FRÉTTIR
Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 16. febrúar 1999
—
Blað D
Mat er ekki
trygging
ÞRÁTT fyrir að greiðslumat
hafi margt til síns ágætis og
gefi góða vísbendingu um
hvort umsækjandi ræður við
kaup er það ekki trygging fyrir
því að hann standi alltaf í skil-
um, segir Þóranna Jónsdóttir
m.a. í Markaðnum. /2 ►
§[ ® 131
” tM
Nýjar gerðir
salerna
NÝJAR tegundir vatnssalerna
eru til umfjöllunar í Lagna-
fréttum Sigurðar Grétars Guð-
mundssonar. Hann segir þvag
og saur manna einn magnað-
asta áburð sem menn þekkja og
farið sé að safna þessum afurð-
um til að nýta í jarðrækt. /12 ►
Ú T T E K T
B&L í nýtt
stórhýsi
eftir páska
STÓRHÝSI B&L við
Grjótháls í Reykjavík
hefur verið reist síðustu
mánuði og er það óðum að
taka á sig endanlega mynd.
Það er sérhannað fyrir starf-
semi fyrirtækisins, bílasölu og
þjónustu sem henni tengist.
Flutt verður inn um páskana.
Hönnuðir eru Björgvin Snæ-
björnsson arkitekt og Kjartan
Rafnsson tæknifræðingur.
Hús B&L er um átta þúsund
fermetrar, stálgrindahús á
tveimur hæðum. Á neðri hæð
er sýningarsalur fyrir nýja
bfla, einn sá lengsti hérlendis,
hátt í 90 metra langur. Þar
verður komið fyrir bflum frá
BMW, Renault, Hyundai og
Rover en auk sölu nýrra bfla
verður fyrirtækið áfram með
sölu á notuðum bflum, vara-
hlutaverslun og verkstæði.
Gísli Guðmundsson, forstjóri
fyrirtækisins, segir það hafa
fengið lóðina fyrir tveimur
áratugum en nú fyrst sé rétti
tíminn til framkvæmdanna.
Byrjað var á byggingunni í maí
á síðasta ári og ákveðið að
drífa hana upp á innan við ári
enda segir forstjórinn það mik-
ilvægt að verja sem skemmst-
um tíma til framkvæmda af
þessu tagi til að geta koinið
fjárfestingunni í gagnið sem
fyrst.
Aðsetur B&L hefur í áratugi
verið við Suðuriandsbraut og
þegar fyrirtækið tók við nýjum
umboðum fyrir nokkrum árum
var bætt við húsnæði Ármúla.
Þá er sala notaðra bfla í þriðja
húsinu við Suðurlandsbraut og
segir forstjórinn það verða
mikinn mun að fá alla starf-
semina undir sama þak. /18 ►
Kirkjutorg
endurnýjað fyrir
90 milljónir
FYRIR dyi'um stendur að endur-
nýja Kirkjutorg í Reykjavík sem
liggur við Dómkirkjuna og Alþingis-
húsið. Verkið verður unnið um leið
og fram fer gagnger viðgerð á
kirkjunni og er ráðgert að hefjast
handa í mars og ljúka verkinu í
byrjun október.
Kostnaðaráætlun fyrir verkið er
um 90 milljónir króna, að sögn Sig-
urðar Skarphéðinssonar gatnamála-
stjóra, og verða fengnir þrír til fjór-
ir verktakar í iokað útboð á næst-
unni. Guðni Pálsson arkitekt hefur
sett fram tillögur að nýju útliti
torgsins í samráði við borgaryfir-
völd. Hefur einnig verið haft sam-
ráð við sóknarnefnd Dómkirkjunn-
ar en hugmynd er uppi um að gera
torgið og lóðarskika við kirkjuna,
sem verið hafa afgirtir, að einni
heild.
Samkvæmt tillögu sem líklega
verður ofan á verður Kirkjutorg
hellulagt, þ.e. gatan og hluti Templ-
arasunds. Torgið verður þá í sömu
hæð og núverandi gangstéttir. Um-
ferð verður áfram leyfð um torgið
og bílastæði gegnt kirkjunni verða
óbreytt. Hellurnar ná alveg að
kirkjunni og verða grasblettir við
kirkjuna því aflagðir og veggir við
kirkjulóðina teknir. Þá verður torg-
ið skreytt trjágróðri.
Sigurður Skarphéðinsson segir
verkið hefjast fljótlega eftir að
störfum Alþingis lýkur í mars.
Hann segir torgið verða lokað með-
an á framkvæmdum stendur en
Skólabrú verður opin þannig að um-
ferð geti farið óhindrað í gegn þótt
ef til vill megi búast við einhverjum
töfum vegna framkvæmdanna.
Jafnframt þessu verður unnið að
endurnýjun Dómkirkjunnar að utan
sem innan og segir gatnamálastjóri
því hentugast að öll þessi verk séu
unnin samhliða.
HUGMYNDIN er að Kirkjutorg og lóðin við Dómkirkjuna verði ein
sanifelld heild eins og þessi tillaga Guðna Pálssonar arkitekts sýnir.
Umferð verður áfram leyfð um torgið og bflastæði verða á sama stað
og verið hafa.
Leitaóu ekki langt yfir skammt.
Vió kaupum alla flokka húsbréfa gegn staögreiðslu
Kaupþing hf.
Ármúla 13A Reykjavík
sími 515 1500
fax 515 1509
www.kaupthing.is
KAUPÞING HF
1-• ri::.
hwr m * m n h3-p=4§