Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sinfónía eftir Pál P. Pálsson flutt á heimsmeistaramóti í skíðaíþróttum í Austurríki
Bruninn á Isafirði
harmóníuhljómsveit-
inni í Osló. Ber Páll
lof á hann. „Eg er
mjög ánægður með
stjórnandann, hann
er góður tónlistar-
maður. Hann hefur
greinilega kynnt sér
mína músík vel og
hefur góðan skilning
á henni. Það er mjög
jákvætt. Eg heyri
heldur ekki annað á
honum en hann sé
hrifinn af Norður-
ljósasinfóníunni. Það
hefur mikið að Páll Pampichler
segja.“ Pálsson
Ekki samráð
við konung
Páll segir heitið, Norðurljós,
hæfa verkinu vel en svo
skemmtilega vill til að Haraldur
Noregskonungur, sem er sér-
stakur gestur heimsmeistara-
mótsins, afhenti Austurríkis-
mönnum við upphaf þess forláta
styttu með sama nafni. „Þetta
er algjör tilviljun, við Haraldur
höfðum ekki samráð með
þetta,“ segir Páll og hlær.
Haraldur og Sonja drottning
hafa ekki, svo Páll viti, staðfest
að þau muni sækja tónleikana
en tónskáldinu þykir
það líklegt.
Auk Norðurljósa
verða flutt á tónleik-
unum Divertimento í
D-dúr fyrir strengi
eftir Mozart og Pí-
anókonsert í a-moll
eftir Grieg. Einleik-
ari verður Markus
Schirmer.
Heimsmeistara-
mótið í norrænum
greinum skíðaí-
þrótta hófst á
fímmtudag í Iiðinni
viku og lýkur næst-
komandi sunnudag.
Eldur kom
upp í bún-
ingsherbergi
RANNSÓKN á brunanum í hús-
næði Bílagarðs og Eyrarsteypu á
ísafirði hefur leitt í ljós að eldsupp-
tök voru í búningsaðstöðu og
þvottaherbergi. Ekki hefur reynst
mögulegt að fullyrða um orsök
brunans að svo stöddu. Lögreglan á
Isafirði vann að rannsókn brunans
og naut aðstoðar rannsóknarlög-
reglumanna frá embætti ríkislög-
reglustjóra. Sem kunnugt er gjör-
eyðilagðist húsnæðið í brunanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Andlát
OLAFUR
BJÖRNSSON
ÓLAFUR Björnsson,
hagfræðiprófessor og
íyrrverandi alþingis-
maður, er látinn, 87 ára
að aldri. Ólafur fæddist
2 febrúar 1912 í Hjarð-
arholti í Laxárdals-
hreppi í Dalasýslu. For-
eldrar hans voru Björn
Stefánsson prestur og
Guðrún Sigríður Ólafs-
dóttir húsfreyja.
Ólafur varð stúdent
frá Menntaskólanum á
Akureyri 1931. Hann
stundaði nám við laga-
deild Háskóla íslands
1931-32 og varð cand. polit. í hag-
fræði frá Kaupmannahafnarháskóla
árið 1938.
Ólafur stafaði á Hagstofu Islands
1938-42. Hann var dósent við laga-
og hagfræðideild Háskóla íslands
1942-48 og prófessor þar 1948-1982.
Ólafur var alþingismaður fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1956-1971. Ólafur
gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum
um margra áratuga skeið. Hann var
formaður Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja 1948-56, átti m.a. sæti
í fræðsluráði Reykjavíkur 1950-
1954 og í undirbúningsnefnd launa-
laga 1949-50 og 1954-55. Hann var
formaður Islandsdeildar Norrænu
menningarmálanefndarinnar 1954-
72 og sat í stjórn' Menningarsjóðs
Norðurlanda 1966-71. _ Ólafur var
formaður bankaráðs Útvegsbanka
íslands 1968-1980 og átti sæti í
bankaráði Seðlabanka íslands
1963-1968. Ólafur var fulltrúi í verð-
lagsnefnd 1960-1971 og í kjaranefnd
1962-1968. Hann var
formaður þingkjörinn-
ar stjórnar Aðstoðar
Islands við þróunar-
löndin 1971-1981. Ólaf-
ur var skipaður í fjöl-
margar nefndir á veg-
um stjórnvalda sem
fjölluðu um málefni at-
vinnulífsins og efna-
hagsmál og vegna und-
irbúnings að löggjöf.
Ólafur ritaði mikinn
fjölda fræðirita og
greina, einkum hag-
fræðilegs efnis, Meðal
rita eftir Ólaf eru Þjóð-
arbúskapur íslendinga sem kom út
1952, Hagfræði, alfræðirit Menning-
arsjóðs, kom út 1975, Frjálshyggja
og alræðishyggja, 1978, Saga Is-
landsbanka og Útvegsbanka
1904-1980, sem kom út 1981 og Ein-
staklingsfrelsi og hagskipulag, rit-
gerðasafn sem kom út 1982. Ölafur
þýddi einnig rit hagfræðingsins
Friderich von Heyek, Leiðin til
ánauðar, sem kom út 1946.
Ólafí voru veittar ýmsar viður-
kenningar fyrir störf sín. Hann var
sæmdur riddarakrossi Dannebrogs-
orðunnar 1956, riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu 1972, stórridd-
arakrossi 1981 og stórriddaraki’ossi
með stjörnu 1984. Ólafur var gerður
heiðursfélagi Félags viðskiptafi’æð-
inga og hagfræðinga 1985 og var
gerður heiðursdoktor í hagfræði við
HÍ 1986.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Guðrún Aradóttir og eignuðust þau
þrjá syni.
Heiður að semja
verk fyrir þessa
virtu íþróttakeppni
SINFÓNÍAN Norðurljós eftir
Pál Pampichler Pálsson verður
frumflutt á hátíðartónleikum í
tengslum við Heimsmeistara-
mótið í norrænum greinum
skíðaíþrótta í Austurríki annað
kvöld. Norðurljós er heiðurs-
verk heimsmeistaramótsins í
ár, samið að beiðni forsvars-
manna þess, og tileinkar Páll
það skiðamönnunum sem etja
þar kappi. Sinfóníuhljómsveitin
í Graz annast flutninginn en
tónleikarnir verða haldnir í
Dachstein-Tauernhalle í
Schladming.
„Það er mikill heiður fyrir
mig að vera boðið að semja verk
fyrir þessa virtu íþróttakeppni,"
segir Páll en mótsliöldurum
mun hafa þótt hann ágætur
samnefnari fyrir mótið sem
kennir sig við norðrið og er
haldið í Austurríki. Sem kunn-
ugt er fæddist Páll í Austurríki
en hefur lengst af búið á Islandi.
Kveðst tónskáldið lengi hafa
gengið með þann draum í mag-
anum að skrifa sinfóníu og þetta
hafí því verið kjörið tækifæri til
að láta slag standa.
Sinfónían er í fjórum köflum,
melódisk af nútímatónverki að
vera, að sögn höfundar. Hún
var tíu mánuði í smiðum. „Auð-
vitað kostaði þetta marga svita-
dropa en var samt minna mál en
ég gerði ráð fyrir - maður er
líka kominn á þann aldur að
maður þorir að gera hlutina,"
segir Páll, sem varð sjötugur á
síðasta ári.
Stjórnandi á tónleikunum
verður Norðmaðurinn Arild
Remmereit sem meðal annars
er fastur gestastjórnandi hjá fíl-
Utför Bjarna
Jónssonar
ÚTFÖR Bjarna Jónssonar Iæknis
var gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í gær. Séra Þórir Steph-
ensen jarðsöng. Úr kirkju báru
kistuna Örn Bjarnason (fremstur
frá vinstri), Sigurgeir Kjartansson,
Valur Valsson, Kjartan Gunnars-
son, Guðjón Lárusson (fremstur
frá hægri), Styrmir Gunnarsson,
Valur Ingimundarson og Bjarni
Kjartansson.
Landssíminn
Boðkerfið
enn dvirkt
EKKI hefur enn tekist að gera við
bilun í móðurtölvu boðkerfís Lands-
símans en það hefur verið óvirkt frá
því klukkan 5 á sunnudagsmorgun.
Von var á bandarískum sérfræð-
ingi seint á mánudagskvöld en komu
hans seinkaði um sólarhring og var
von á honum til landsins í nótt. Ólaf-
ur Stephensen forstöðumaður upp-
lýsinga- og kynningarmála Lands-
símans sagði að maðurinn myndi
væntanlega taka til starfa nú í morg-
un.
Nýtt félag í veiðum og vinnslu uppsjávarfíska stofnað
Kaupir tvö nótaskip og
fiskimj öls verksmiðj u
SÍLDARVINNSLAN hf. í Neskaupstað, Kaup-
félag Eyfírðinga og fleiri aðilar hafa stofnað nýtt
fyrirtæki, Barðsnes ehf., sem kaupa mun hluta af
eignum sjávarútvegsfyrirtækisins Snæfells hf.
Nýja fyrirtækið mun yfírtaka eignirnar og rekst-
urinn í lok þessarar viku. Síldarvinnslan hf. mun
annast rekstur Barðsnes ehf. en Landsbanki ís-
lands fjármögnun kaupanna. Hlutafé nýja félags-
ins er 700 milljónir króna og verður reksturinn í
höndum Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað.
Þær eignir Snæfells hf. sem um ræðir eru
nótaveiðiskipin Sólfell EA og Dagfari GK og
skipunum fylgja veiðarfæri og aílaheimildir í
uppsjávarfíski eða 2,3% aflahlutdeild í loðnu, þrír
sfldarkvótar og veiðiréttindi í norsk-íslenska síld-
arstofninum sem á síðasta veiðitímabili var 5.868
tonn. Ennfremur kaupir Barðsnes ehf. físki-
mjölsverksmiðju í Sandgerði, ásamt öðrum eign-
um Snæfells þar.
„Markmið Síldarvinnslunnar með þessum að-
gerðum er að treysta rekstrargrundvöll fyrir-
tækisins. Síldarvinnslan hefur að undanförnu
fjárfest umtalsvert í veiðum og vinnslu uppsjáv-
arfíska, bæði í fískiðjuveri og fískimjölsverk-
smiðju. Við viljum efla þessa vinnslu enn frekar
og tryggja að hún eigi aðgang að sem mestu hrá-
efni,“ segir Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. Hann segir
það jafnframt áhugavert fyrir Síldai’vinnsluna að
hafa svo traustan samstarfsaðila sem KEA í nýja
félaginu.
Minnihluti af umsvifum
og kvótaeign
Magnús Gauti Gautason, framkvæmdastjóri
Snæfells hf., segir sölu á eignum Snæfells sem
tengjast veiðum og vinnslu á uppsjávarfíski í
samræmi við áður kynnta stefnu félagsins. Hann
segir söluna vissulega hafa talsverð áhrif á rekst-
ur fyrirtækisins, enda sé það þar með komið út
úr þessari grein sjávarútvegsins. „Veiðar og
vinnsla uppsjávarfiska hafa hins vegar til þessa
veríð minnihluti af umsvifum okkar og kvótaeign.
Breytingin verður kannski ekki eins mikil og
margur skyldi ætla. Nú mun fyrirtækið leggja
aðaláherslu á bolfískvinnslu en á því sviði er
hæfni og þekking innan fyrirtækisins mest. Við
verðum þó áfram með loðnu- og síldarfrystingu á
Stöðvai-fírði en erum komnir í samkeppni við
aðra um hráefni á frjálsum markaði. En að öðru
leyti verður höfuðáherslan lögð á bolfiskvinnslu,“
segir Magnús.
Ábatasamt fyrir KEA
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA
og stjórnarformaður Snæfells hf., segist afar
ánægður með þessa niðurstöðu. „KEA hefur fjár-
fest verulega í veiðum og vinnslu uppsjávarfíska
á undanförnum misserum, m.a. með stofnun
Snæfells. Nú sjáum við möguleika á að halda
þessu starfi áfram og nýta eignir okkar í þessum
geira atvinnulífsins með arðbærari hætti, enda
tel ég að hér sé um að ræða arðbæra fjárfestingu
fyrir KEA. Þá met ég mikils samvinnuna við
Síldarvinnsluna sem er afar traust og virt félag í
sjávarútvegi,“ segir Eiríkur.