Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 10

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Hlaut verkefnastyrk Félagsstofnunar stúdenta vegna lokaritgerðar Netið notað til andspymu í fyrrverandi Júgóslavíu Morgunblaðið/Ásdís HRUND Gunnsteinsddttir hlaut verkefnastyrk Félagsstofnunar stúdenta fyrir B.A.-ritgerð sína í mannfræði „Hið falda handrit - Óformleg andspyrna í stríðinu í fyrrverandi Jiígóslavíu." ÓFORMLEG andspyma í stríðinu í fyrrverandi Júgóslavíu var umfjöll- unarefni B.A.-ritgerðar Hrundar Gunnsteinsdóttur í mannfræði, en hún hlaut verkefnastyrk Félags- stofnunar stúdenta við útskrift úr Háskóla íslands nú í febrúar sl. Verkefnið var unnið undir leiðsögn dr. Sigríðar Dúnu Kristmundsdótt- ur dósents. Hrund fjallar um kenningar um andspyrnu og sögulegan aðdrag- anda stríðsins með áherslu á at- burði sem þjóðernishyggjan byggist á í dag og þær hörmungar sem stríðið hefur valdið fólki. Hvað þjóð- ernishreinsanir fela í sér eins og til dæmis hvers vegna nauðgað hefði verið í umræddu stríði. „Margir telja að þetta sé í fyrsta skipti í sögunni sem nauðgun er notuð í hernaðarlegum tilgangi. Það hefur alltaf verið nauðgað í stríði en talið er að þetta sé í fyrsta skipti sem nauðgun var markvisst notuð til að ná fram hemaðarlegum mark- rniðurn," segir Hmnd. Óformleg andspyrna fjölbreytileg í þriðja kafla ritgerðarinnar er fjallað um óformlega andspymu. „Ófomleg andspyrna er sú and- spyrna sem fólk sem ekki hefur lög- bundið vald veitir. Andspyma fór fram meðal fólks úr öllum stigum samfélagsins óháð trú, þjóðemi og efnahag, en í ritgerðinni einbeitti ég mér að friðsamlegri andspymu. Að- ferðir við að beita andspymu voru mjög fjölbreyttar og einkenndust af sköpunargáfu, dug og þori. Ég tek fyrir andspymu meðal námsmanna og listamanna. Ég skoðaði einnig andspymu meðal fólks í nauðgunar- búðum en við slíkar aðstæður er kúgun mjög mikil og andspyma mjög falin,“ segir Hmnd. Hmnd skoðaði kvennahreyfingu, mannréttindahreyfmgu, andspymu meðal hermanna og hlutverk fjöl- miðla og menntamanna í andspym- unni. „I þessari umfjöllun beini ég sjónum að ákveðnum einstaklingum sem ég hafði samband við í gegnum Netið en þannig er frásögninni ætl- að að vera persónulegri en ella en hún byggir á heimildum frá fólkinu sem sjálft veitti andspymu." Enn- fremur á frásögnin um leið að vera lýsandi fyrir alla andspyrnuhreyf- inguna í heild. Hrund vann mikið af heimilda- vinnu verkefnisins í gegnum tölvu- póst og Netið. Með því móti fékk hún upplýsingar frá fyrstu hendi auk þess sem hún studdist við ritað- ar heimildir. Hún fékk einnig send- ar dagbækur, heimildarmynd, tón- listartexta, skýrslur og aðrar heim- ildir frá fyrrverandi Júgóslavíu auk þess sem viðtöl fóra fram í gegnum síma. Þjóðernishyggja notuð sem pólitiskt tæki „í niðurstöðum reyndi ég að svara spumingum um hvaða áhrif andspyman hafði og hvort hún hefði borið árangur, eða hvort hún hefði leitt til frekari kúgunar í lýð- veldunum. Til þess að rannsaka andspymu þarf að setja atburðarás- ina í víðara sögulegt og pólitískt samhengi sem yrði gert í mun stærri rannsókn en þessari. Hluti af niðurstöðum mínum er sá að að mörgu leyti hafi andspyrnan orðið til þess að fólk hafi verið beitt frek- ari kúgun. Ráðamenn í valdabaráttu sinni notuðu þjóðemishyggjuna sem pólitískt tæki til að egna fólk hvað gegn öðru. Bæði unnu fjöl- miðlar mikið að þessu markmiði og menntamenn sem endurskrifuðu söguna hverjum þjóðernishóp í hag. Til þess að geta þetta voru sam- skiptaleiðir milli lýðveldanna skert- ar og ef fólk vildi vita um hvað var að gerast í hinum lýðveldunum þurfti það að bera sig sérstaklega eftir því. Þegar stríðið skall svo á bættist ofan á samskiptaörðugleikana að símalínur slitnuðu og vegir eyðilögðust. Þetta varð mjög í þágu ráðamanna en andspymuhreyfingin setti upp Netkerfi í lýðveldunum sem gerði fólki kleift að vinna sam- an að andspymu gegn fordómum og koma boðum út í heim um hvað var að gerast. Kerfið heitir Zamir Transnational Network og ber nafn með rentu því að „za-mir“ þýðir á serba-króatísku „fyrir frið“. Með þessu tókst fólki að brjóta niður þær hömlur sem ráðmenn settu því, í tilraun til að stuðla að friði og um- burðarlyndi. Að mínu mati varð Netið pólitískt tæki í höndum and- spyrnuhreyfmgarinnar í heild sinni,“ segir Hrund að lokum. Doktorsrit- gerð í hag- fræði • ÞÓRARINN G. Pétursson hag- fræðingur lauk hinn 4. desember sl. doktorsprófi í hagfræði frá háskól- anum í Arósum í Danmörku. Ritgerð Þórarins nefnist „Five Empirieal Essays on Identifying Cointegrated Vector Autoregressive Systems". Ritgerðin samanstendur af fimm sjálfstæðum rannsóknum í þjóðhag- fræði. Þrátt fyrir að viðfangsefni greinanna sé ótengt, byggja þær allar á sam- eiginlegri aðferða- fræði í tölfræði- legri hagfræði. Sú fyrsta fjallai- um launamyndun og atvinnu í heildarjafnvægislíkani með launasamningum. Önnur greinin fjallar um peningaeftirspurn í líkani með nytjahámörkun heimila. Síðan koma tvær greinar um verðlags- myndun við skilyrði framsýnna ein- staklinga. Síðasta greinin fjallar um vaxtamyndun og forsagnargildi tímarófs vaxta fyrir spár um þróun skammtímavaxta. Allar byggja rannsóknirnar á íslenskum gögnum, nema sú fyrsta sem byggir á dönsk- um gögnum og er unnin í samvinnu við Torsten Slok frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. Leiðbeinendur Þórarins voru Svend Hylleberg og Torben M. And- ersen, prófessorar í hagfræði við há- skólann í Arósum. í doktorsnefnd- inni voru Niels Haldrup og Henrik Jensen, dósentar við háskólana í Árósum og Kaupmannahöfn, og Stephen Hall, prófessor við Imperial College í London. Þórarinn er fæddur hinn 2. júlí 1966. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í maí 1986. í september 1987 hóf hann nám við Háskóla Islands og lauk þaðan Cand. Oecon-prófi úr þjóð- hagskjarna í maí 1991. Mastersprófi í hagfræði lauk hann með láði frá háskólanum í Essex, Englandi, í september 1992. Þar að auki hefur hann setið ýmiss námskeið í hag- fræði, m.a. á vegum Norræna dokt- orsprógrammsins í hagfræði og Konunglega breska hagfræðifélags- ins. Þórarinn hefur starfað sem sér- fræðingur við Seðlabanka íslands frá janúar 1994 og er nú deildar- stjóri hagrannsókna við hagfræði- deild bankans. Hann hefur einnig kennt við Viðskipta- og hagfræði- deild Háskóla íslands síðan í sept- ember 1992 og er aðjúnkt við sömu deild frá janúar 1995. Rannsóknir hans hafa birst í innlendum og er- lendum fræðiritum. Þórarinn er sonur Sigrúnar Jónatansdóttur verslunarmanns og Péturs Jóhamissonar framkvæmd- arstjóra. Eiginkona hans er Kristín Þórðardóttir kennari og eiga þau þrjár dætur. -------♦ ♦ ♦----- Fyrirlestur um sjálfstæði Færeyja FÆREYSKI landsstjórnarmaður- inn Högni Hoydal flytur fimmtu- daginn 25. febrúar fyrirlestur um sjálfsstjórnarstefnu færeysku landsstjórnarinnar í Hátíðarsal Há- skóla Islands. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Fullveldisætlan landstýrisins" og hefst klukkan 16.15. Fundarstjóri verður Sigurður Líndal lagaprófessor, sem undan- farið hefur veitt færeysku lands- stjórninni ráðgjöf í þessu máli. Fyrirlesturinn er í boði rektors Háskóla íslands og verður öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Hátíð- arsalur Háskólans er í aðalbygg- ingu skólans við Suðurgötu. Eldsupptökin í Galleríi Borg um helgina eru enn óupplýst Engin tímamótaverk brunnu ENGIN tímamótamálverk eða stórar miklar myndir voru á meðal þeirra 100 málverka sem eyðilögðust í brananum í Galleríi Borg aðfara- nótt laugardags, að sögn Péturs Þórs Gunnars- sonar, eiganda íyrirtækisins. Hann áætlar verð- mæti verkanna sem brunnu 15 til 20 milljónir. Stærstu myndimar sem eyðilögðust vora uppstilling eftir Jón Stefánsson, 80 x 100 cm, og Parísarmódel eftir Gunnlaug Blöndal frá 1933. Einnig brunnu myndir eftir Þórarin B. Þorláksson úr Hvalfirði, Mugg, Jóhann Schev- ing, Jóhannes S. Kjarval og Jóhann Briem. 12 til 15 verk eftir Sigurbjöm Jónsson listmálara eyðilögðust einnig í brananum, að sögn Péturs. Ólafur Kvaran, forstöðumaður Listasafns Is- lands, sagði það mikinn missi fyrir íslenska listasögu að verk eftir jafn mikilsmetna lista- menn og um ræðir skuli hafa eyðilagst. Hann sagði að það væri í raun sama hvaða verk væri um að ræða vegna þess að það væri ævistarf listamannanna sem væri mikilvægt og að verk geti haft gildi af ýmsum ástæðum. Lögreglan í Reykjavík er enn að rannsaka hver vora upptök eldsins í Galleríi Borg. Nið- urstaða þeirrar rannsóknar liggur ekki fyrir. Sú staðreynd ein og sér að verslað sé með málverk í einkaeigu í sinni vörslu er ekki nægj- anleg forsenda til að krefjast brunavarnakerfis samkvæmt upplýsingum frá Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur. I nýrri reglugerð um eldvarnir, sem tók gildi síðasta sumar, eru hins vegar gerðar mjög strangar kröfur til opinberra safna, að sögn Eldvamaeftirlitsins. Traustar eldvarnir í Listasafni Islands Ólafur Kvaran sagði að vel væri staðið að eldvörnum á Listasafni Islands. Hann sagði að í ljósi þess tjóns sem varð í Galleríi Borg vakn- aði sú spurning hvort ekki væri eðlilegt að gera þær kröfur að aðilar sem versluðu með mikil- væga þætti í myndlistararfi Islendinga, byggju þannig um hnútana að fyllsta öryggis væri gætt. Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, sagði að á Kjarvalsstöðum væri viðamikið aðvörunarkerfi, sem sneri að eldvörnum, þjófavörnum og vatnsvörnum. Hann sagði að fólk gerði yfirleitt ráð fyrir að öryggisbúnaður á söfnum væri í lagi þegar það lánaði eigin verk til sýningar. Hann sagði að til væru reglur um öryggisbúnað í söfnum, sem gefnar væru út af Alþjóðasamtökum safna. Hann sagði að það væri samt spuming hvort einkaaðilar sem versluðu með málverk og rækju gallerí væru tilbúnir að samræma eigin öryggismál þeim stöðlum sem væru í gildi hjá Alþjóðasamtökunum því þeim bæri í raun eng- in skylda til þess. Pétur Þór Gunnarsson sagði að fólk sem hefði átt verk í galleríinu fengi verk sín bætt því allt hefði verið tryggt hjá Vátryggingafé- lagi íslands. Hann sagði að verið væri að vinna í tryggingamálunum núna og að lögfræðingi gallerísins væru þegar famar að berast kvitt- anir fyrir verkum sem vora í húsinu þegar kviknaði í.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.