Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýting jarðhita
BÆKUR
Fræðirit
AUÐUR ÚR IÐRUMJARÐAR
Saga liitaveitna og jarðliitanýtingar á
íslandi. Safn til iðnsögu íslendinga
XII. bindi. Eftir Svein Þórðarson.
Ritstjóri: Ásgeir Ásgeirsson.
Hið íslenzka bókmenntafélag,
1998, 656 bls.
ENGAN þarf að undra þó að
langt mál þurfi til að greina frá
jarðvarma á Islandi og margvís-
legri notkun hans. Og þó að sú bók
sem hér er til umfjöllunar sé feiki-
mikil að lengd og efnismagni
fannst mér að loknum lestri að hún
hefði mátt vera enn lengri, svo
mikið og margþætt er efnið.
Enda þótt bókin teljist tólfta
bindið í hinni miklu og stórmerku
ritröð Safni til iðnsögu Islendinga,
er hún sextánda bókin af þeim sem
út eru komnar. Þrettánda bindið
kom út fyrir jólin og
sum fyrri bindanna eru
í tveimur bókum. Þetta
er önnur bók sama höf-
undar í þessu safni.
Árið 1993 kom út bók
hans Fæða fryst, saga
kælitækni. Var það hið
prýðilegasta rit.
Svo langt aftur sem
sögur herma hafa Is-
lendingar nýtt sér
jarðvarma að ein-
hverju leyti, enda þótt
menn litu ekki á hann
sem auðlind fyrr en
talsvert var komið
fram á þessa öld.
Fommenn stunduðu
laugarböð, notuðu laugar til þvotta
og síðar kom til sögunnar brenni-
steinsnám og einhverjar tilraunir
voru gerðar með saltvinnslu við
jarðhita. I fyrstu köflum bókarinn-
ar rekur höfundur þessa forsögu á
einkar læsilegan og fræðandi hátt.
Meginefni bókar-
innar fjallar þó um nú-
tímann eins og vera
ber. Lesandinn fylgist
með tilraunum frum-
herjanna til að nota
jarðhita til húshitunar
og sér hvemig nýting-
in stóreykst, verður
tæknilegri og fióknari
og fer að skipta veru-
legu máli um orkubú-
skap og efnahag þjóð-
arinnar. Hitaveitur
rísa víðsvegar um
landið, fjöldi sund-
lauga og margs konar
iðnaður nýtir jarð-
varma og þegar mönn-
um tekst svo að finna leiðir til að
beisla háhita hefst rafmagnsfram-
leiðsla svo að um munar.
Lokaorð höfundar (bls. 529-530)
era meira en lítið athyglisverð:
„Jarðhitinn [er] mikilvægasta
orkulind íslendinga. Sú orka, sem í
Sveinn Þórðarson
'I
I
Ketils saga
flatnefs
sýnd í Iðnó
BRÚÐULEIKURINN Ketils saga
fiatnefs eftir Helgu Arnalds
verður sýndur í Iðnó næstu
sunnudaga kl. 15, en sýningin
hefur að undanfórnu farið á milli
skólanna i landinu.
Inntak sögunnar er fengið úr
íslendingasögunum og íjallar um
fyrstu kynni foreldra Auðar
djúpúðgu, Ketils flatnefs og Yng-
vildar frá Hringaríki. Leiksýn-
ingin er í senn brúður, grímur,
látbragð, texti, tónlist og er jafnt
fyrir börn sem fullorðna.
Sýningin er á vegum Leikhúss-
ins 10 fingur. Leikstjóri er Þór-
hallur Sigurðsson og um leik-
mynd sá Petr Matásek. Bníður
og leikur eru í höndum Helgu
Arnalds en sérstakur verndari
sýningarinnar er Vigdís Finn-
bogadóttir.
------------
Takmarkanir
bókmenntanna
ALÞJÓÐLEGA bókmenntaþingið
í Mokulla í Lahti í Finnlandi verð-
ur haldið í nítjánda sinn 20. - 24.
júní í sumar. Aðalefni þingsins er
Takmarkanir bókmenntanna.
Umræðan snýst um það hvað
veldur takmörkunum bókmennt-
anna: fagurfræðileg, siðferðileg,
pólitísk eða hagræn efni. Meðal
höfunda sem boðnir era til Mokulla
era skáldið Mohammed Bennis frá
Marokkó, rússnesku rithöfundam-
ir Natalia og Tatjana Tolstoja og
kanadíska skáldið Gaston Bell-
mare.
Formaður þingsins er Tarmo
Kunnas prófessor við háskólann í
Jyváskylá.
------------
Sýningum
lýkur
EVRÓPUMEI
ANNA
9
Magnaður kraftur og
ósvikin þœgincfi alla leið.
Alvöru jeppar með hátt og
lágt drif, sjálfstæða grind
og hagkvæmni í rekstri.
Sestu inn...
Sýningarsalur Venusarhópsins,
Súðarvogi 16
SÝNINGU Þorsteins S. Guðjóns-
sonar, 5 vatnslitamyndir, lýkur nú
á sunnudag. Eiga myndirnar það
allar sammerkt að fyrirmyndir
verkanna era fengnar af íþróttasíð-
um dagblaðanna.
Sýningin er opin frá 17-19.30 á
virkum dögum og frá 14-18 um
helgar.