Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 34

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLADIÐ Stúdentar, stöndum saman í DAG, 24. febrúar, ganga stúdentar við Háskóla Islands að kjörborðunum og kjósa til Stúdenta- og Háskólaráðs. Stúd- entaráð hefur starfað ötullega að hagsmuna- málum stúdenta í ár undir forystu Röskvu. — I vetur náðist m.a. í gegn lenging opnunar- tíma Þjóðarbókhlöðu eftir áralanga baráttu og tölvuátakið, Nám á nýrri öld, skilaði tölv- um og tölvubúnaði sem stúdentar fá til af- nota fyrir 25 milljónir króna og stendur enn yfir. Stúdent- ar settu fram breytingartillögur við drög að sérlögum um Háskóla ís- lands sem Háskólaráð samþykkti. Þarna gafst einstakt tækifæri til þess að hafa áhrif á rekstur og um- hverfi Háskólans og stúdentar nýttu sér það. Sterkt Stúdentaráð Fyrir þessar kosningar hefur Röskva sett fram skýra stefnu í helstu hagsmunamálum stúdenta. Það sem tekist er á um í þessum kosningum er staða Stúdentaráðs. Stúdentaráð er lýð- ræðislega kjörinn vettvangur allra stúd- enta og engar skyldur gagnvart Stúdentaráði fylgja námi við Há- skólann aðeins réttur til að hafa áhrif á starf þess í kosningum. Stúdentar eiga aldrei að þurfa að greiða sér- staklega fyrir kosn- ingarétt, sá réttur verður að vera óháður aðstæðum og efnahag hvers og eins. Með al- mennum kosningarétti geta allir stúdentar haft áhrif á störf Stúd- entaráðs og tryggt því það aðhald sem nauðsynlegt er. Skýr stefna í Lánasjóðsmálum Jafnrétti til náms er grundvöll- ur alls starfs Röskvu. Það á sér- staklega við um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna. LIN er fé- lagslegur jöfnunarsjóður sem skal gera öllum stúdentum kleift að framfleyta sér meðan á námi stendur. Allir vita að sú grunn- framfærsla sem sjóðurinn býður upp á í dag hrekkur ekki til. Stúd- Haukur Þór Hannesson entaráð verður hins vegar að hafa skýra stefnu, hvergi má hnika frá jafnrétti til náms. Því eru hug- myndir um tvö vaxtastig við sjóð- inn og að gefa þeim val um hærri námslán sem sjái fram á að geta greitt afborganir af þeim ótíma- bærar og ekki í þeim anda sem hagsmunabarátta stúdenta þarf á að halda. Röskva hefur áður sýnt fram á að með markvissri og skýrri stefnu ná kröfur stúdenta fram að ganga. Röskva er fólkið sem í henni er á hverjum tíma. Því er Röskva sí- ung. I gegnum tíðina hefur Röskva sett fram raunhæf markmið og skýra stefnu. Þeirri stefnu hefur svo verið fylgt eftir. Þetta hefur Stúdentaráð Jafnrétti til náms, segir Haukur Þór Hannes- son, er grundvöllur alls starfs Röskvu. skilað sér í því að undanfarin ár hefur meirihluti stúdenta treyst Röskvu fyrir atkvæði sínu vegna þess að þeir vita að Röskva tekur kosningaloforð sín alvarlega. Ég hvet stúdenta til að kynna sér mál- efni og vinnubrögð beggja fylk- inga og nýta kosningaréttinn vel. Höfundur er nemi í iðnaðarverk- fræði og skipar 1. sæti á lista Röskvu. Hlutfallskosningar / *• •• • í profkjon ÚRSLIT í nýlegum prófkjörum Samfylk- ingar á Norðurlandi þóttu sumum annarleg. Meðal annars var sá ágalli áberandi að þeg- ar litlu munar á fylgi tveggja írambjóðenda í ákveðið sæti tekur kosningakerfið ekkert tillit til þess hvor hlýt- ur meira fylgi í sætin sem á eftir koma. Sanngjöm aðferð til _ úrbóta væri sú að fylgi hvers frambjóðanda væri reiknað líkt og í hlutfallskosningum, en þær njóta almennrar viðurkenningar í lista- kosningu. Þá mundu frambjóðand- anum reiknast að fullu þau atkvæði sem honum væra greidd í fyrsta sæti. Við þau legðist helmingur fylgis hans í annað sæti, þriðjungur fylgis í þriðja sæti og fjórð- ungur fylgis hans í það fjórða, ef fjórum fram- bjóðendum á að raða. Þannig fæst samanlagt fylgi hvers frambjóð- anda og ræður röð á endanlegum lista, nema samið sé um ann- að. Hér fer á eftir listi yfir úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar á Norðurlandi sam- kvæmt þeirri reglu sætakosninga sem not- uð var og einnig listi yf- ir úrslit eftir reglu hlutfallskosninga. Með fylgi í 4. sæti í sætakosningunni er átt við saman- lögð atkvæði í 1,—4. sæti. Sjá töflu Úrslitin hefðu orðið þau í Norður- landskjördæmi eystra, ef hlutfalls- regla hefði ráðið, að Svanfríður Jón- asdóttir hefði hlotið fyrsta sætið í stað Sigbjarnar Gunnarssonar, en Prófkjör Hlutfallskosninga- reglan, segir Páll Bergþdrsson, er sann- gjarnari. hann hefði færst niður í annað sætið vegna atkvæðatölu, og reyndar í það þriðja vegna sérstaks sam- komulags flokkanna. í Norður- landskjördæmi vestra hefði hlut- fallsreglan valdið enn meiri umbylt- ingu, því að þar hefði röð allra fyrstu fjögurra sætanna breyst. Anna Rristín Gunnarsdóttir hefði hreppt fyrsta sætið, en Kristján Möller fallið niður í annað, Jón Bjarnason hefði tvímælalaust hlotið það þriðja en Signý Jóhannesdóttir færst í það fjórða. Ekki er ólíklegt að jafnvel þeir sem báru hærri hlut vegna sæta- kosningareglunnar muni sjá að hlutfallskosningareglan sé þrátt fyrir allt sanngjarnari, enda gæti síðar bitnað á þeim sjálfum ranglæti þess kerfis sem nú var við haft ef því verður ekki breytt. Höfundur er fv. veðurstofustjðri. Norðurland eystra Sætakosning Illutfallskosning Sigbjöm Gunnarsson 961 í 1. sæti 1372,8 2. sæti Svanfríður Jónasdóttir (951 í 1. sæti) 1537 í 2. sæti 1476,0 1. sæti Örlygur Hnefill Jónsson (1400 í 2. sæti) 1766 í 3. sæti 1322,8 3. sæti Kristín Sigursveinsd. (1532 í 3. sæti) 2122 í 4. sæti 901,3 4. sæti Finnur Birgisson 1882 í 4. sæti 698,3 5. sæti Pétur Bjarnason 1768 í 4. sæti 612,1 6. sæti Norðurland vestra Sætakosning Hlutfallskosning Kristján Möller 852 í 1. sæti 1027,8 2. sæti Anna Kristín Gunnarsd. (810 í 1. sæti) 1117 í 2. sæti 1104,4 1. sæti Signý Jóhannesdóttir (571 í 2. sæti) 1060 í 3. sæti 595,0 4. sæti Jón Bjarnason (1.038 í 3. sæti) 1306 í 4. sæti 843,7 3. sæti Jón Sæmundur Sigurjónsson 1274 í 4. sæti 527,0 5. sæti Steindór Haraldsson 974 í 4. sæti 334,8 6. sæti Pétur Vilhjálmsson 876 í 4. sæti 291,0 7. sæti Björgvin P. Þórhallsson 734 í 4. sæti 263,8 8. sæti Páll Bergþórsson Nýbýlavei Á fermingaborðið Betri Háskóli EITT af helstu bar- áttumálum Vöku und- anfarin ár hefur verið að auka sjálfstæði Há- skólans. I vetur hefur unnist stórsigur í þessu máli. Fyrir skömmu lagði menntamálaráð- herra fram frumvarp til laga um Háskóla ís- lands. Með frumvarp- inu verða lögin einfóld- uð til muna frá því sem var. Háskólaráð, deild- ir og skorir fá aukið vald sem áður var í höndum menntamála- ráðherra. Með þessu vinnst margt. Meðal annars eykst sjálfstæði Háskólans og athafnafrelsi hans er tryggt. Einnig er lagt til að fulltrúum í há- skólaráði verði fækkað. Það þýðir Stúdentaráð Pátttaka stúdenta í mótun Háskólans, segir Berglind Hall- grímsdóttir, er undir- staða þess að Háskól- inn verði betri. virkara háskólaráð og hraðari af- greiðslu mála. Þetta eru stórir áfangar og sigur fyrir alla stúdenta. Önnur mikilvæg breyting er að samkvæmt frumvarpinu geta einkaaðilar veitt fjármagn til Há- skólans í mun meiri mæli en nú. Þarna aukast möguleikar Háskól- ans til öflunar sértekna verulega. Þessi þróun er mjög jákvæð fyrir háskólasamfélagið í heild. Ef rétt er staðið að málum geta framlög frá atvinnulífinu orðið einn af aðal- tekjustofnum Háskólans. Allir stúdentar hafa orðið varir við fjár- skort Háskólans og hljóta því að fagna þessu skrefi. Það er mjög mikil- vægt að stúdentar sýni sjálfir frumkvæði og hafi áhrif á starfsemi Háskólans. Nauðsyn- legt er að stúdentar hafi metnað fyrir menntun sinni og því umhverfí sem þeir starfa í. Þátttaka'stúd- enta í mótun Háskól- ans er undirstaða þess að Háskólinn verði betri. Öflug hagsmuna- gæsla stúdenta Grundvöllur þess að hagsmunagæsla í háskólaráði sé öflug er að hagsmunafélag stúd- enta, Stúdentaráð, sé kraftmikill og raunverulegur málsvari allra stúd- enta. Stúdentaráð á að vera bak- hjarl hagsmunafulltrúa í öllum deildum. Þeir eru mikilvægir í hagsmunagæslu stúdenta. Upplýs- ingaflæði og virk samskipti milli Stúdentaráðs og hagsmunafulltrúa eru forsenda þess að árangur náist í baráttu stúdenta. Almennur áhugi stúdenta á hagsmunabaráttu sinni er bæði aðhald og hvatning til að gera Háskólann betri. Ávinningur- inn af virkum samskiptum er því mikill fyi-ir stúdenta. Vaka vill vinna Baráttan fyrir betri Háskóla er hvergi nærri búin. Næsta vetur verða tekin fyrir mörg mikilvæg mál og er því nauðsynlegt að stúd- entar velji sér fulltrúa með skýr markmið og sameiginlega hags- muni stúdenta að leiðarljósi. Vaka mun halda áfram að vinna að því markmiði að gera Háskólann að betri skóla og vinna markvisst að sameiginlegum hagsmunum stúd- enta með því frumkvæði sem þarf. Höfundur skipar fyrsta sæti á lista Vöku til háskólaráðs. Berglind Hallgrímsdóttir Svavar skipaður sendiherra ÞAÐ VERÐUR að teljast meiriháttar hneyksli og vanvirða, að skipa Svavar Gestsson sendiherra og ekki bætir úr skák að hann á að hefja störf sín í einu traustasta NATO-rík- inu, Kanada. í hvaða landi heimsins myndi yfirlýstur andstæð- ingur allra helztu málaflokka landsins í utanríkismálum þjóð- arinnar vera skipaður sendiherra? Eins og alþjóð er kunnugt, hefur Svavar Gestsson verið á öndverð- um meiði við allar ríkisstjórnir ís- lands í flestum mikilvægustu málaflokkum utanríkisstefnu Is- lands. 1. Svavar var á móti útfærzlu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur. 2. Svavar var á móti aðild ís- lands í EFTA. 3. Svavar var á móti aðild ís- lands að Evrópska efnahagssvæð- inu. 4. Svavar var á móti varnarliði Bandaríkjanna á íslandi. 5. Svavar var á móti NATO. Þarf frekari vitna við? I tíð sinni sem ritstjóri Þjóðvilj- ans tróð hann margoft skóna að þeim, sem höfðu kjark til að standa opinberlega á móti öfgafullum tals- mönnum Sovétstefn- unnar. Nú nýlega fundust tölvugögn yfir 4.200 njósnara DDR. Við bíðum spennt eftir að fá að vita, hverjir voru fulltrúar DDR á íslandi. Námsmaður- inn Svavar Gestsson hefur enn ekki lagt fram námsskrá sína í DDR. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur hlaupið á sig, hún á að afturkalla skipun Utanríkisþjónusta Ríkisstjórnin á að aft- urkalla skipun Svavars Gestssonar sem sendi- herra, segir Hreggvið- ur Jónsson. Annað er ekki boðlegt. Svavars Gestssonar sem sendi- herra, annað er ekki boðlegt. Höfundur er fyrrv. þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Hreggviður Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.