Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.02.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 23 LISTIR , Morgunblaðið/Ásdís SNUÐUR og Snælda er metnaðarfullt og vaxandi leikfélag, segir m.a. í umfjölluninni. AF SÝNINGU Steinunnar Helgadóttur og Sveins Lúðvíks Björns- sonar í gryfju Listasafns ASI. Hvað fínnst þér um Island? Margur er misskilinn MÖGU- LEIKHÚSIÐ Snðður og Snælda MAÐKAR í MYSUNNI ÁBRYSTIR MEÐ KANEL eftir Mark Langham og Sigrúnu Val- bergsdóttur. Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir Lýsing: Benedikt Axels- son. Leikmynd: Bjarni Ingvarsson. Leikendur: Sigrún Pétursdóttir, Ólöf Jónsdóttir, Guðlaug Hróbjartsdóttir, Aðalheiður Sigurjónsdóttír, Guðrún Jóhannesdóttir, Aðalheiður Guð- mundsdóttir, María H. Guðmunds- dóttir, Þorsteinn Ólafsson, Theódór Halldórsson, Sigmar Hróbjartsson, Þorgeir Jónsson. Laugardagur 20. febrúar. LEIKFÉLAG eldri borgara set- ur sýningu sína þetta árið upp í Möguleikhúsinu við Hlemm. Hvort sem velgengni Manns í mislitum sokkum eigi þátt þar í eða ekki, þá eru þessi staðaskipti mjög af hinu góða; það var orðið anzi þröngt í Risinu. Verkefni þessa árs eru tveir ein- þáttungar, Maðkar í mysunni og Abrystir með kanel. Hinn fyrri er eftir Bretann Mark Langham en Abrystirnar er frumfluttur, saminn af Sigrúnu Valbergsdóttur. Er þetta fimmta verkið sem Snúður og Snælda frumflytur, ekki svo slæmt hjá níu ára gömlu leikfélagi. I Möðkum í mysunni eru allar per- sónur konur. Fjórum þeiira er stefnt á heimili þeirrar fimmtu, án þess þó að þær þekkist nokkurn skapaðan hlut. Þetta eru ólíkar konur og náðu þær Sigrún Péturs- dóttir, Olöf Jónsdóttir, Guðlaug Hróbjartsdóttir, Aðalheiður Sigur- jónsdóttir og Guðrún Jóhannes- dóttir vh'kilega góðum tökum á mismunandi einkennum þeii'ra. Eftir því sem á leið kom betur og betur í ljós að fleira en kyn og enskur ríkisborgararéttur samein- ar þær. Höfuðið losnar svo frá skömminni - það var enginn til staðar til að bíta það af, þess vegna losnaði það af sjálfu sér - þegar lögreglukona (Aðalheiður Guð- mundsdóttir) bætist í hópinn. Hvað svo gerist er bara hægt að ímynda sér, höfundur endar leikritið áður en þar að kemur. í síðai'a vei'kinu er sögusviðið bændagisting á Snotrustöðum. Þar sem slíkar gistingar eru nokkuð margar á landinu er góð markaðs- setning nauðsynleg. Gestir sem geta boðið öðrum gestum einhverja þjónustu fá afslátt á gistingu. Það fyrirkomulag heppnast nokkuð vel, að því leyti að „þjónustureiðubúnir" gestir streyma á staðinn. Hins veg- ar er heldur fátt um „óbreytta“ gesti. Eini slíki er gerður að fjósamanni - og fær hann afar hag- stæð kjör sem slíkur. Mikið gengur á í Abrystum með kanel; fólk er alltaf að fara og annað að koma. Gefur það færi á mörgum misskiln- ingnum. „Nýliðun“ er nokkur í þessu sí- unga leikfélagi, auk þess sem mað- ur kannast við ófá andlitin, s.s. úr sjónvarpsauglýsingum og Fóst- bræðrum. Varla er hægt að segja að Snúður og Snælda sé félags- skapur til þess gerður að gamla fólkinu leiðist ekki, heldur er hann metnaðarfullur og vaxandi sem ætti að geta dafnað enn frekar ef Mögu- leikhúsið verður framtíðarhúsnæði. Heimir Viðarsson MYMDLIST Listasafn ASI, Ásmundarsal, Freyjugötu SKIPAN MED IILJÓDVEIIKI Til 7. mars. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Aðgangur kr. 300. UPPSTILLING Steinunnar Helgadóttur, en svo kýs hún að kalla látlausan hægindastól sinn frá lokum 6. áratugarins, í gryfju Ásmundar- salar - framan við hljóðvana sjón- varpstæki ásamt útsaumuðum renn- ingum, römmuðum og órömmuðum - er í hæsta máta kaldhæðin. Aftan við stólinn góða gengur enn nöturlegra leiki'it með tOheyrandi hljóðblöndun eftir Svein Lúðvík Björnsson, og ber hinn merkilega titil „How do you like Iceland?" Allt virkar þetta ágætlega saman, renningarnir, leiki-itið og sjónvai'pið, en það er fullkomlega á sveig við allt hitt, því þar er til sýnis þetta hefð- bundna, aðkeypta íþróttaefni og ann- ar útlendur síðdegispakki sem pass- ar engan veginn við uppbelgdan þjóðræknisvaðalinn umleikis. Út- saumurinn á renningunum er nefni- lega fenginn úr auglýsingaskotnu frasasafni þjóðrembunnar og fellur þvi fullkomlega að hljóðverki Sveins Lúðvíks, en þar er dælt $fir sýning- argesti ekta leikararöddum sem fara með karlmannleg spakmæli úr forn- sögunum, einkum lýsingar á dauða hetjunnar - svo sem Skarphéðins í brennunni og Grettis í Drangey - og kátlegum umsögnum samferða- manna um kappana. Þessi gi'óteska samsetning í litla suðurherberginu er bersýnilega marksækin því það mátti heyi'a saumnál detta þótt gi'yfjan væri full af fólki. Hér er nefnilega velt upp þeirri brothættu sjálfsmynd sem við burðumst með og lýsir sér í gagn- rýnislausri samsömun við hetjurnar fornu, og enn gagnrýnisfirrtari fylgni við alþjóðlegan skyndimynda- samtíma án þess að þetta tvennt geti gengið saman í sómasamlegum máls- verði. Hugsum okkur hamborgara frá Dónaldssyni með súru sméri, sels- hreifum og hákarli. Þannig kemur menning okkar Islendinga glögg- skyggnum fyrir sjónir, eða sem súr- realísk rökleysa í líkingu við sauma- vél og regnhlíf á skurðarborði. Upp- stillingu Steinunnar og hljóðverki Sveins Lúðvíks er gi'einilega beint gegn þeirri höggvinhælu sem við köHum íslensk samtímamenning, og veit ekki gjörla í hvorn fótinn skal stíga; sauðskinnsleppinn eða lakk- stígvélið. Sem lýsing á þeim geðklofa hittir verkið vissulega beint í mark. Halldór Björn Runólfsson Nítján sóttu um stöðu menning- armálastjóra ALLS sóttu nítján manns um nýja stöðu menningarmálastjóra Reykja- víkurborgar, sem auglýst var 24. janúar sl. Starfíð felst í yfirstjórn menningarmála á vegum borgarinn- ar, framkvæmd stefnu í menningar- málum og yfirumsjón með rekstrí menningarstofnana borgarinnar. Umsækjendur um stöðuna eru eftirtaldir: Ása Richardsdóttir, Ásta Hrönn Maack, Benóný Ægisson, Bjarni Daníelsson, Bragi Halldórs- son, Elías Davíðsson, Gunnlaugur Ástgeirsson, Halldór E. Laxness, Halldóra Tómasdóttir, Margi'ét Hallgrímsdóttir, Margrét Oddsdótt- ir, Olína Þoi'varðardóttir, Ólöf K. Sigurðardóttir, Petrína Rós Karls- dóttir, Signý Pálsdóttir,'Soffía Auð- ur Birgisdóttir, Úlfar Bragason, Vignn- Jóhannsson og Þorleifur Hauksson. Að sögn Jóns Björnssonar, fram- kvæmdastjóra þróunar- og fjöl- skyldusviðs hjá Reykjavíkurborg, er verið að fara yfir hverjir úr hópi umsækjenda verði kallaðir til við- tals en hann gerir ráð fyrir að það verði um helmingurinn. Vinnuhópur mun taka viðtöl við þá umsækjend- ur og skila í framhaldi af því tillög- um til menningarmálanefndar, sem svo gerir tillögu til borgarráðs. Jón telur að endanleg niðurstaða verði ljós um miðjan mars. LISTSKAUTAR: Hvítir: 28-44 Svartir: 33-46 Verð aðeins kr.^9SO stgr. Stærðir (28-36) kr. Ar4Stf stgr. Stærðir (37-46) kr. 2.990 LLU- SKAUTAR: Stærðir 29-41 Verð aðeins kr. ÍL74CT stgr. nú kr. 3.990 ' BARNASKAUTAR (Smelluskautar) Stærðir 29-36 Verð aðeins kr.AJWTstgr. nú kr. 2.990 ■ Opið laugardaga frá kl. 10-14 VISA ÍWNINN*' Skeifunní 11, sími 588 9890
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.