Morgunblaðið - 24.02.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 17
EIMSKIP hf. hlaut EDI-bikarinn
svokallaða á aðalfundi Icepro-
nefndarinnar í gær fyrir framúr-
skarandi árangur á sviði raf-
rænna viðskipta. Á nieðfylgjandi
mynd sést Óskar B. Hauksson,
forstöðumaður upplýsingavinnslu
Eimskips (t.v.), taka við bikarnum
úr hendi Karls Fr. Garðarssonar,
formanns Icepro-nefndarinnar.
Bikarinn er nú veittur í þriðja
sinn en fyrri handhafar hans eru
embætti ríkistollstjóra og Búr hf.
Á aðalfundinum var því fagnað að
tíu ár eru nú liðin frá stofnun
Icepro-nefndarinnar, en hún er
samstarfsvettvangur einstak-
linga, fyrirtækja og opinberra
stofnana sem vinna að útbreiðslu
rafrænna viðskipta hérlendis. Á
fundinum kom fram að pappírs-
laus viðskipti hafa náð meiri út-
breiðslu hérlendis en þekkist í
mörgum nágrannalöndum og er
stefnt að því að auka hlut þeirra
enn frekar.
Á fundinum var Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri
Verslunarráðs, sæmdur gullmerki
Icepro-nefndarinnar fyrir vel
unnin störf í þágu rafrænna við-
skipta.
2,5% atvinnu-
leysi á landinu
íjanuar
í JANÚARMÁNUÐI síðastliðnum
voru skráðir tæplega 73 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu,
tæplega 30 þúsund dagar hjá körl-
um og tæplega 43 þúsund dagar hjá
konum. Skráðum atvinnuleysisdög-
um hefur fjölgað um tæplega eitt
þúsund frá mánuðinum á undan en
fækkaði um ríflega 40 þúsund frá
janúarmánuði 1998. Mannafli á
vinnumarkaði í janúar er áætlaður
132.570 manns. Þetta kemur fram í
yfirliti yfir atvinnuástand í janúar
sem Vinnumálastofnun hefur sent
frá sér.
Atvinnuleysisdagar í janúar síð-
astliðnum jafngilda því að 3.352
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum. Þar
af eru 1.381 karl og 1.971 kona. Töl-
urnar jafngilda 2,5% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar, eða
1,8% hjá körlum og 3,5% hjá kon-
um. Það eru að meðaltali 36 fleiri
atvinnulausir en í desember en um
1.868 færri en í janúar 1998.
Síðasta virkan dag janúarmánað-
ar voru 3.949 manns á atvinnuleys-
isski'á á landinu öllu, en það eru um
átta færri en í lok desembermánað-
ar. Síðastliðna 12 mánuði voru um
3.633 manns að meðaltali atvinnu-
lausir, eða 2,7%, en árið 1998 voru
um 3.788 manns að meðaltali at-
vinnulausir, eða 2,8%.
Minnst atvinnuleysi
á Vestfjörðum
Atvinnulausum hefur fjölgað í
heild að meðaltali um 1% frá desem-
bermánuði en fækkað um 35,8%
miðað við janúar í fyrra. Fram kem-
ur í yfirliti Vinnumálastofnunar að
undanfarin 10 ár hafí atvinnuleysi
aukist um 21% að meðaltali frá des-
ember til janúar. Því sé árstíðar-
sveiflan milli desember og janúar
óveruleg að þessu sinni, en hún hafí
einnig verið undir meðallagi undan-
farin tvö ár.
Fram kemur að atvinnuleysið
breytist misjafnlega eftir vinnu-
svæðum en það eykst hlutfallslega
mest á Vesturlandi, Norðurlandi
vestra og á Austurlandi. Atvinnu-
leysið minnkar hins vegar á Vest-
fjörðum, höfuðborgarsvæðinu og á
Suðurlandi, en atvinnuleysið er nú
hlutfallslega mest á Norðurlandi
vestra en minnst á Vestfjörðum.
Talsvert minna atvinnuleysi en í
fyrra er nú á öllum atvinnusvæðum.
Atvinnuleysi kvenna minnkar um
1,2% en atvinnuleysi karla eykst um
4,4% milli mánaða. Þannig fækkar
atvinnulausum konum að meðaltali
um 28 á landinu öllu en atvinnulaus-
um körlum fjölgar um 64. Búast má
við að atvinnuleysið minnki á land-
inu í febrúar og geti orðið á bilinu
2,2% til 2,5%, segir í yfirliti Vinnu-
málastofnunar.
NEC segir
upp 15.000
Tdkýó. Reuter.
NEC Corp, helzti ör-
gjörvaframleiðandi Japans,
ætlar að segja upp 15.000
starfsmönnum og efla bágstatt
tölvufyrirtæki sitt í Bandaríkj-
unum vegna mesta taps í sögu
sinni.
Einn fyrsti starfsmaður fyr-
irtækisins sem lætur af störf-
um verður Hisashi Kaneko for-
stjóri. Hann kveðst ætla að
hætta hjá fyrirtækinu 26. marz
til að taka á sig ábyrgðina á
150 milljarða jena áætluðu tapi
fyrirtækins á reikningsárinu,
sem lýkur 31. marz.
SAMTOK
IÐNAÐARINS
Hallveigarstíg 1 • Pósthólf 1450 • 121 Reykjavík
Sími 511 5555 • Fax 511 5566 • www.si.is