Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 29

Morgunblaðið - 24.02.1999, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 29 ja verðbólgu ekki lenfflir mestu ógnina a seðlabankans, leggur áherslu á orð sín í samtali við Wim Duisenberg, bankastjóra evrópska seðlabankans. Oskar ;rra Þýskalands, hlýðir á. Myndin er tekin á fundi fjármálaráöherra G7-ríkjanna í Bonn um síðustu helgi. Lafontaine varar við verðhjöðnun Bonn. Keuters. OSKAR Lafontaine, fjárinálaráð- herra Þýskalands, gerði í gær harða hríð að Evrópska seðlabank- anum og sagði að yrðu vextir ekki lækkaðir fljótlega myndi efnahags- lífið brátt einkennast af verðhjöðn- un. Umræða um þýsku fjárlögin hófst í gær og Iagði Lafontaine áherslu á það í ræðu sinni, að þar sem engin hætta væri á verðbólgu, ætti peningastefnan að miðast við að auka umsvifin í efnahagslifinu. Sagði liann, að verð frá framleið- endum væri á niðurleið og yrði ekki tekið í taumana strax, myndi verð- hjöðnunarvandinn vaxa mönnum mesta erfiðleika að etja. Líklegt er, að þessi ríki rifi seglin mjög skyndilega og dragi úr kaupum sínum erlendis. ■ Mesta hættan er þó sú, að stjórn- málamenn, launþegar, fyrirtæki og fjárfestar, sem eru vanir verðbólgu en ekki verðhjöðnun, bregðist rangleg við. Sem dæmi má nefna viðbrögð Evrópska seðlabankans þegar hvatt er til lægri vaxta. Þá er þvi svarað til, að vextir hafi aldrei verið lægri en það er rangt. Raunvextir hækka í takt við lægri verðbólgu og þeir eru langt frá því lægsta, sem þeir hafa verið. Uppsagnir eina svarið? Launþegai- þurfa líka að hugsa sinn gang. Ef verkalýðsfélögin krefjast mikilla launahækkana _ málmiðnaðar- menn í Þýskalandi krefjast 6,5% þrátt fyrir óbreytt eða lækkandi vöru- verð, þá munu fyrirtækin ekki eiga annars kost en segja upp fólki. Lækk- andi vöruverð getur líka ýtt undir við- skiptaátök. Ódýrari innflutningur frá Asíu gæti vakið upp kröfur um vernd- araðgerðir í Bandaríkjunum og Evr- ópu og þar með dregið enn frekar úr hagvexti í heiminum. Verðhjöðnun er sérstaklega slæm fyrir skuldara. Skuldimar vaxa hlut- fallslega, lækkandi fasteignaverð rýrir veðið og bankarnir verða að afskrifa útlán. Ian Harwood, hagfræðingur við Dresdner Kleinwort Benson, bendir á, yfir höfuð. Talaði hann ekki berum orðum til seðlabankans en boðskap- ur hans var skýr: „Nú þarf að láta hendur standa fram úr ermum. Peningastefnan er ekki áhrifalaus hvað hagvöxtinn varðar. Þegar um er að ræða efna- hagslegan stöðugleika er unnt að beita vöxtum til að örva hagvöxt- inn.“ Lafontaine gaf ekki fagra lýsingu á efnahagsástandinu í Þýskalandi og raunar um heim allan að undan- skildum Bandaríkjunum. Sagði hann að þetta ár yrði erfiðara því sfðasta og nefndi engar tölur yfir áætlaðan hagvöxt. að síðast þegar verðhjöðnun geisaði, hafi skuldir einkageirans verið búnar að aukast mikið vegna aukin frelsis í fjármálum og verðbólgu, sem jók eftir- spum eftir lánsfé. Heildarskuldir einkageirans í Bandaríkjunum eru nú um 130% af þjóðarframleiðslu og 200% í Japan. Þær voru um 100% í Banda- ríkjunum 1928. Verðhjöðnun verður erfið fyrirtækj- unum. Það er ekki auðvelt að lækka launin og þess vegna mun hagnaður þeima minnka. Það er líklega af þess- ari ástæðu, sem forsvarsmenn fyrir- tækja í Bandaríkjunum og Evrópu eru ekki jafn bjartsýnir og almenningur: Neytendur fagna lækkandi verði en fyrirtækin ekki. Á verðbólgutímum er hægt að hækka verðið, á verðhjöðn- unartímum er eina ráðið að ________ lækka kostnað. Á fasteignamarkaði hefur verð- hjöðnun þau áhrif, að fólk vill fremur leigja en festa fé í húsnæði og hvað fjármálamarkaðinn varðar, er nóg að velta fyrir sér ginnungagapinu, sem er á milli hagnaðarvonarinnar, sem held- ur uppi genginu í Wall Street, og hagn- aðarins, sem bandarísk fyrirtæki un'dir verðhjöðnunarþi-ýstingi em líkleg til að skila. Þetta gæti nægt til að sprengja blöðruna og þá myndu bandarískir neytendur kippa að sér hendinni. Samdráttur tæki við og hugsanlega verðhjöðnun eða kreppa um allan heim. Enn er tími til að grípa í taumana Það er raunar ekki líklegt, að vöru- verð muni lækka eitthvað í líkingu við það, sem gerðist á fjórða áratugnum. Vöraverð og laun eru miklu fastari fyr- ir en áður ef svo má segja og þeir, sem fara með fjármálin, telja sig vita til hvaða ráða eigi að grípa gegn verð- hjöðnun. Ástandið í Japan sýnir hins vegar, að hættan er fyrir hendi ef menn sofna á verðinum. Milton Friedman sagði einu sinni, að verðbólga væri „alltaf og alls staðai- peningalegt fyrirbæri" og svo er líka með verðhjöðnunina. Koma má í veg fyrir hana með réttum aðgerðum. Allt of ströng stefna í peningamálum og spennitreyjan, sem fólst í viðmiðuninni við gull, áttu mesta sök á því hvað verðhjöðnunartímabilið á fjórða ára- tugnum stóð lengi. Hvemig á þá að bregðast við hættu- merlg'unum nú? Vaxandi munur á raunveralegri framleiðslu og fram- leiðslugetu og lítill hagvöxtur benda til, að peningalegt aðhald í helstu iðnríkj- unum sé of mikið. Ekki þó í Bandaríkj- unum en vissulega í Evrópu og Japan. John Makin, hagfræðingur hjá Americ- an Enterprise Institute, vekur athygli á því, að þrátt fýrir þetta hafi stjóm- völd í Japan og Evrópu gert minna af því að slaka á peningastefnunni en gert hefur verið í Bandaríkjunum. Háir raunvextir í Japan hefur í raun verið þrengt að í peningamálunum með hækkandi vöxtum á ríkisskuldabréfum og hækk- andi gengi jensins og þótt skammtíma- vextir hafi verið lækkaðh- í Evrópu eru raunvextir ekki lægri en þeir vora í júní sl. vegna þess, að verðbólgan _________ hefur lækkað. í Bandaríkj- unum hafa raunvextir aftur á móti lækkað um tvo þriðju úr pró- sentustigi. Efnahagslífið í heiminum er með öðr- um orðum hættulega nálægt verðhjöðn- unarbrúninni. Ráðamenn hafa enn nægan tíma til að grípa til aðgerða en hættan er sú, að seðlabankamennimir láti sigurinn yfir verðbólgunni villa sér sýn og komi ekki auga á verðhjöðnun- arvofuna. Það yrðu mikil mistök því að sagan sýnir, að verðhjöðnun getur verið miklu skaðlegri en verðbólga. • Heimild: The Economist Stefnan í pen- ingamálum allt of ströng Nígeríumaður grunaður um stórfelld tékkasvik og peningaþvætti Innleysti án at- hugasemda millj- ónir í gjaldeyri 23 ára Nígeríumaður situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa komist yfir 9 milljónir króna í reiðufé með því að innleysa falsaðar -- ----------------7------------------ gjaldeyrisávísanir í Islandsbanka í Kefiavík. ÍGERÍUMAÐUR, sem hefur verið búsettur hér- lendis og starfað við út- flutning á hertum þorsk- hausum í um 2 ár, hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 4. mars næstkomandi vegna grans um pen- ingaþvætti og að hann hafi svikið út 126 þúsund bandaríkjadala, jafnvh-ði um 9 milljóna króna, með því að fá fölsuðum gjaldeyristékkum skipt í ís- landsbanka. Aðeins lítill hluti pening- anna er kominn fram, að sögn lög- reglu en tekist hefur að afturkalla símsendingu á um 30 þúsund dölum, um 2,2 m.kr. til Bandaríkjanna. Jón Þórisson, framkvæmdastjóri hjá Is- landsbanka, segir að í málinu hafi starfsreglum bankans ekki verið fylgt. Að sögn Helga Magnúsar Gunnars- sonar, fulltrúa í efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, kom málið þannig upp að lögreglu barst ábend- ing frá Landsbanka Islands síðastlið- inn föstudag um að maðurinn hefði óskað eftir að fá 85 þúsund dollara, um 6,1 m.kr, greidda út af reikningi sem hann hafði í Landsbankanum í Keflavík. Þetta hefði þótt einkenni- legt og ekki vora til peningar í bank- anum til að afgreiða manninn. Hjá Ríkislögreglustjóra var brugð- ist við í samræmi við ákvæði laga um varnir gegn peningaþvætti þar sem grunur lék á að um ólöglegan ágóða af refsilagabroti gæti verið að ræða. Því aflaði lögregla nánari upplýsinga um málið. „Okkur var ljóst að þessir peningar höfðu borist inn á reikning félags, sem þessi maður er prókúru- hafi fyrir og sameigandi að. Það hafði borist inn á reikninginn ávísun upp á 40 þúsund pund, rúmlega 4,6 m.kr, hinn 10. febrúar og 56 þúsund pund, um 6,5 m.kr, hinn 19. febrúar," sagði Helgi Magnús. Af þessum u.þ.b. 11,2 milljónum hafði maðurinn þá þegar tekið út lið- lega 5,1 m.kr. í reiðufé en afganginn, um 6,1 m.kr., flutti hann á fóstudag af gjaldeyrisreikningi fyrirtækisins í Is- landsbanka í Keflavík inn á sinn eigin reikning í Landsbankanum í Keflavík og óskaði eftir að fá hann greiddan út þar en eins og fyrr sagði tilkynnti Landsbankinn þá lögreglu um málið. Ekki vora til í útibúinu peningar til að afgreiða manninn á þann hátt sem hann óskaði. Á mánudag bárust lögreglu, að sögn Helga Magnúsar, upplýsingar um að maðurinn væri að ná þessum peningum út af reikningnum í fjórum útibúum Landsbankans í Reykjavík. Megnið tók hann út í reiðufé en óskaði eftir að fá um 30 þúsund dali símsenda í tvennu lagi til Bandaríkj- anna. Tóku tékka í innheimtu Helgi Magnús sagði að við eftir- grennslan hefði efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra fengið upplýsing- ar um að maðurinn hefði nokkra áður reynt að innleysa 100 þúsund dala tékka í útibúi íslandsbanka í Lækjar- götu. Bankinn hefði neitað að inn- leysa tékkann en tekið hann til inn- heimtu og sent til Bandaríkjanna en fengið til baka með þeim skilaboðum að hann væri falsaður. Maðurinn hefði sagst hafa tekið við tékkanum í viðskiptum og taldi sig blekktan. Þar með var vakinn grunur um að um ólögmætan ávinning af refsiverðu at- hæfi væri að ræða. Þegar þetta kom fram um hádegi á mánudag spurðist embætti Ríkislög- reglustjóra fyrir um hvort maðurinn ætti pantaða ferð úr landi og um klukkan 14 á mánudag bárust upplýs- ingar um að hann ætti pantað far með flugvél til Kaupmannahafnar 20 mín- útum síðar. Þá vaknaði grunur um að ávísan- irnar tvær, sem innleystar höfðu ver- ið í íslandsbanka í Keflavík 10. og 19. febrúar, upp á samtals 11,2 m.kr., væru einnig falsaðar. Það hafði þá ekki verið kannað í íslandsbanka. Engu að síður var ákveðið að hand- taka manninn og var það gert þegar hann kom á síðustu stundu á Kefla- víkurflugvöll til að ná fari með flug- vélinni. Hann var handtekinn á hlaup- um í flugstöðinni og kyi-rsettur. Um 10 mínútum síðar bárust upp- lýsingar frá íslandsbanka að ávísunin sem innleyst hefði verið 19. febráar upp á 56 þúsund pund væri einnig fölsuð, úr stolnu tékkhefti frá bresk- um banka. Sú var stfluð á íslenskt fyrirtæki mannsins en gefin út af er- lendum félögum, sem talin eru tilbú- in. Skömmu síðar bárust skilaboð um að ávísunin sem fengist hafði innleyst 10. febrúar og var upp á 40 þúsund sterlingspund, væri einnig fólsuð; út- gefin á sama fyrirtæki á stolið tékk- hefti frá skoskum banka. Símsending stöðvuð Helgi Magnús sagði að tekist hefði að stöðva símsendingu 30 þúsund dal- anna til Bandaríkjanna en að öðru leyti vantaði töluvert upp á að lög- reglu tækist að hafa upp á þeim um 126 þúsund dolum, 9 milljónum króna, sem maðurinn leysti út í reiðu- fé á 12 dögum. Maðurinn hefði ekki verið með peningana á sér við hand- töku á Keflavíkurflugvelli og óljóst væri hvað orðið hefði um þá. * Maðurinn var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. mars. Hann hef- ur játað að hafa innleyst tékkana en neitar að hafa vitað að þeir væru fals- aðir. Maðurinn hafði nígerísk skilríki en íslenska kennitölu. Helgi Magnús staðfesti að Nígería hefði verið talin miðstöð fjölmargra alþjóðlegra fjársvikabrota og peningaþvættis og að víða væru alþjóðleg viðskipti við Nígeríumenn litin hornauga vegna þess. Aðspurður hvort rannsóknin beindist að könnun á því hvort málið tengdist slíkum alþjóðlegum hring sagði hann að á þessu stigi væri talið að maðurinn hefði ætlað að yfirgefa landið og koma ekki til baka. Maður- inn lægi undir gran um að hafa falsað ávísanirnar eða ætlað að hafa fé út úr bankanum vitandi að ávísanirnar væra falsaðar. Hann sagði að það hefði átt að vekja gran hjá íslandsbanka í Kefla- vík þegar þangað kæmi maður sem legði svo háar fjárhæðir inn á gjald- eyrisreikning fyrirtækis, sem ekki hefði sýnt neina hreyfmgu síðan hann var stofnaður. Hefðu starfsmenn bankans sinnt skyldu sinni sam- kvæmt lögum um vamir gegn pen- ingaþvætti og gert aðvart um færslur < sem gætu verið varasamar hefði e.t.v. mátt stöðva viðskiptin og sannreyna að þau byggðust á því að innleysa falsaða tékka. Samkvæmt lögunum hvfli sú skylda á bankastaifsmönnum að gera lögregluyfirvöldum viðvart ef grunur leiki á um óvenjulega stórar færslur hjá aðilum, sem ekki hafa velt miklum fjármunum áður. ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.