Morgunblaðið - 24.02.1999, Qupperneq 38
^8 MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum aðfaranótt þriðjudags-
ins 23. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Stella Berglind Hálfdánardóttir, Viðar Guðmundsson,
Kolbrún Lilý Hálfdánardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
ÓLAFUR GÍSLASON
fyrrv. fulltrúi,
Skagfirðingabraut 33,
Sauðárkróki,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 22. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Svanbergsdóttir.
+
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÓLAFUR BJÖRNSSON
prófessor,
Aragötu 5,
Reykjavík,
er látinn.
Guðrún Aradóttir,
Ari H. Ólafsson,
Björn G. Ólafsson,
Jónas Ólafsson.
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
BRYNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR,
Ofanleiti 13,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 12.
febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bylgja Bragadóttir, Guðmundur Stefánsson,
Brynjar Bragi, Ásdís Elva, Ásta Lára.
+
SVEINN FRÍMANN ÁGÚST BÆRINGSSON
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 23. febrúar.
Birgir Sveinsson og synir,
Helga Bæringsdóttir,
Reynir Ásmundsson,
Elísabet Brynjólfsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR
frá Bergi við Suðurlandsbraut,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 18. febrúar sl., verður
jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 26. febrúar
kl. 15.00.
Páll Þorgeirsson,
Hekla Pálsdóttir, Þorgeir Pálsson,
Björgvin B. B. Schram, Anna Snjólaug Haraldsdóttir,
Brynjólfur Páll Schram, Sigrún Þorgeirsdóttir,
Arnaldur Geir Schram, Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Elísabet Þorgeirsdóttír.
GUÐMUNDUR
HELGASON
+ Guðmundur
Helgason var
fæddur hinn 6. nóv-
ember 1911 í
Reykjavík. Hann
lést í Landakotsspít-
ala hinn 13. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar Guðmundar
voru þau hjónin
Eyrún Helgadóttir,
f. 16. maí 1881, d.
31. mars 1937. Guð-
mundur var elstur
af sex börnum
þeirra hjóna og eru
tvær systur hans
látnar. (1) Guðlaug Helgadóttir,
f. 9. nóvember 1913, d. 8. febrú-
ar 1987, og var hún gift Ragnari
Elíassyni f. 1. nóvember 1909 og
d. 13. október 1991 og (2) Hulda
Helgadóttir, f. 4. september
1930 og d. 1. maí 1995 og er eft-
irlifandi eiginmaður hennar
Pálmi Sigurðsson. Þau þrjú,
sem eftir lifa eru: Sigdór Helga-
son f. 18. janúar 1917, giftur
Guðrúnu Eggertsdóttur, Ingi R.
Helgason f. 29. júlí 1924, giftur
Rögnu M. þorsteins og Fjóla
Helgadóttir, f. 4. september
1930, og er hún gift Birni Ólafi
þorfinnssyni. Árið 1931 kvænt-
ist hann Hansínu Ingibjörgu
Kristjánsdóttur, f. 22. apríl
1904, d. 2. júlí 1968 og átti með
henni tvö börn: (1) Guðríði Guð-
mundsdóttur f. 22. nóvember
1931 og d. 1. júlí 1994, sem var
þríkvænt. Fyrsti maður hennar
var Louis Palumbo, f. 7. febrúar
1932 og með honum átti hún
einn son, Ásgeir Guðmundsson
f. 17. febrúar 1954, sem varð
uppeldissonur Guðmundar. Ás-
geir sem giftur er Erlu Hall-
björnsdóttur f. 24. mars 1957 og
á með henni tvö börn, þau
Dagnýju Ósk Ásgeirsdóttur, f.
29. mars 1978 og Pétur Ásgeirs-
son f. 11. september 1983. Ann-
ar eiginmaður hennar er Einar
Gunnar Ásgeirsson, f. 8. júní
1934 og með honum átti hún
þrjú börn, Hannes Einarsson f.
25. apríl 1957, Örn Einarsson f.
29. nóvember 1959 og Ómar
Einarsson f. 6. apríl 1961. Þriðji
eiginmaður hennar
var Sverrir Einars-
son f. 22. september
1936 og d. 16. sept-
ember 1998. (2)
Arnar Guðmunds-
son f. 10. desember
1944, sem giftur er
Sigríði Guðmunds-
dóttur, f. 5. maí
1946 og eiga þrjú
börn, þau Guðmund
Arnarsson, f. 11.
febrúar 1960,
Hönnu Ingibjörgu
Arnarsdóttur f. 22.
mars 1968 og Arnar
Arnarsson f. 4. mars 1974.
Seinni eiginkona Guðmundar er
Elsa Guðmundsdóttir f. 22. júlí
1935, og þau giftust 21. október
1972. Elsa á tvö börn af fyrra
hjónabandi, þau Önnu Kristínu
Einarsdóttur og Krislján Pétur
Einarsson.
Guðmundur fluttist með for-
eldrum sínum og tveimur systk-
inum til Vestmannaeyja árið
1920 og þar stundaði faðir hans
bæði verkamannavinnu og sjó-
mennsku. Árið 1927 fór Guð-
mundur aftur til Reykjavíkur í
atvinnuleit og komst á náms-
samning f húsgagnasmíði árið
1928, lauk námi 1932, tók svein-
stykkið 1936 og meistarapróf í
iðninni tók hann 27. nóvember
1942. Við húsgagnasmíðar vann
Guðmundur í rúm 30 ár, eftir
sveinbréfið og með rekstri eigin
húsgagnavinnustofu með þrem-
ur félögum sínum, eða þar til
hann réðst til Seðlabanka Is-
lands árið 1972. Fyrst, en mjög
stutt, sem umsjónarmaður fast-
eigna bankans, en síðar sem
stjórnandi biðstofu bankastjórn-
ar. Þegar Guðmundur var orð-
inn sjötugur árið 1981, og átti að
hætta sökum aldurs, hélt hann
starfinu áfram fyrir sérstaka
beiðni bankastjórnar eða þar til
1992 og hætti ekki fyrr en 81 árs
að aldri.
títför Guðmundar fer fram
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Jarðsett verður í Gufuneskirkju-
garði.
Hér eru að skilnaði nokkur
kveðjuorð.
Við vorum ekki lengi saman í
uppvextinum í Vestmannaeyjum,
þar sem þú fórst þaðan þegar ég
var þriggja ára. Það má segja að
hálfur mannsaldur hafi verið á milli
okkar.
Eg kynntist þér eiginlega ekki
fyrr en öll fjölskyldan var komin
upp á fasta landið, árið 1930, en þá
skaust þú og þáverandi eiginkona
þín, Hansína Ingibjörg Kristjáns-
Blómabúðin
öarðskom
v/ T-ossvogskiukjugcipð
Símii 554 0500 '
UH’ARA RSIC) FA
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆTI 411 • 101 REYKJAVÍK
LÍI<KISIIJVINNÚSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
dóttir, skjólshúsi yfir okkur öll á
Klapparstíg 42.
þú reifst þig úr foreldrahúsum
16 ára og fórst til Reykjavíkur í at-
vinnuleit. Strax árið eftir, 1928,
varstu kominn á samning í hús-
gagnasmíði. Þó að þér hafi ekki
fundist húsgagnasmíði skemmtileg
í fyrstu, náðir þú í þeirri iðn mjög
góðum árangri, sem helgaðist af
vandvirkni þinni og samviskusemi.
þú sagðir mér einu sinni að á þess-
um námsárum hefðir þú tekið út
mikinn þroska, bæði í færni sem
smiður, sem og aihliða reynslu í
mannlegum samskiptum, sem
komu þér að haldi síðar í lífinu.
þú fékkst í vöggugjöf gott tón-
eyra og gullfallega söngrödd. þeg-
ar þú fermdist á árinu 1925 fékkst
þú peninga í fermingargjöf eins og
enn tíðkast. Þú fékkst heilar 32
krónur, og þær voru allar notaðar
til að kaupa orgel handa þér til að
læra á. Kennarinn þinn var org-
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sínii 551 9090.
anistinn í Betel, Guðni Ingvarsson,
og að þeirri kennslu bjóst þú alla
ævi.
þú gekkst til liðs við Karlakór
Reykjavíkur og söngst þar um ára-
bil, en að auki stofnaðir þú kvar-
tett, sem söng víða. A jólum eða við
önnur hátíðleg tækifæri í fjölskyld-
unni varstu hrókur alls fagnaðar,
og um þig verður sagt, eins og um
fóðurafa þinn, Guðmund Jónsson
úr Grindavík, að þú hafir verið
mikill söng- og gleðimaður.
Við vorum ekki á sama kanti í
pólitíkinni, ég hljóp upp vinstri
kantinn, en þú varst í Sjálfstæðis-
flokknum. Marga rimmuna háðum
við, en aldrei olli það vinslitum.
Það má segja frá því hér, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fór fram á það
við þig að þú smíðaðir skrifborð
handa Bjarna Benediktssyni í af-
mælisgjöf; og það var hrein lista-
smíð.
Eg var lengi í bankaráði Seðla-
bankans en hafði ekkert að gera
með ráðningu þína til bankans. Þú
varst þar kominn inn á gólf og
stjórnaðir biðstofu bankastjórnar
áður en ég vissi af. En það segir
kannske meira um mannkosti þína
en löng upptalning, að banka-
stjómin vildi ekki missa þig fyrir
nokkum mun, fyrr en þú varst
kominn á níræðisaldurinn.
Að leiðarlokum vil ég nú,
Mummi minn, þakka þér fyrir allt
og allt, í gegnum lífið, og þar veit
ég, að ég tala fyrir munn allra eft-
irlifandi systkina þinna.
Sár harmur er kveðinn að Elsu,
konu þinni, og börnum þínum og
hennar. Ég og kona mín, Ragna,
sendum ykkur öllum hugheilar
samúðarkveðjur á þessum degi.
Ingl R. Helgason.
Elsku afi okkar. Það er erfitt að
sætta sig við það að þú sért búinn
að yfirgefa þessa jörð, en við vitum
að þú fórst á góðan stað þar sem
þér líður vel.
Þótt þú værir ekki blóðafi okkar
varst þú alltaf eini afi okkar. Frá
því að við fæddumst tókstu okkur í
faðm þinn og sýndir okkur hve
heitt þú elskaðir okkur. Sú minn-
ing mun lifa að eilífu og við eram
þakklátar fyrir að eiga svo góða
minningu. Þó svo að okkur finnist
þetta ekki vera sanngjamt þá get-
um við reynt að sætta okkur við að
minning þín berst til bama okkar
og þannig lifir þú í hjarta okkar.
Élsku afi, það er sárt að horfa á
eftir þér en við vitum að þú ert hjá
okkur og hjá ömmu okkar um alla
eilífð.
Við biðjum Guð að styðja ömmu
okkar í þessari miklu sorg.
Við elskum þig.
Elsa, Rúna, Hulda, Eyrún.
Elskulegur móðurbróðir minn,
Guðmundur, er látinn eftir langa
og farsæla ævi. Kallið er komið,
kveðjustundin runnin upp, en
þannig gengur tilvera okkar
manna fyrir sig. AJlt hefur sinn af-
markaða tíma, að fæðast hefur
sinn tíma og að deyja hefur sinn
tíma. Enginn veit daginn né stund-
ina þegar dauðinn knýr dyra og
sorgin vitjar okkar. Sú fullvissa
kristinnar trúar að við megum
hvíla í kærleiksríkri hendi Guðs
bæði í lífi og dauða er hið eina ör-
ugga sem við eigum andspænis
valdi dauðans.
Guðmundur eða Mummi eins og
hann oftast var nefndur í hópi ætt-
ingja og vina var elstur af sex
systkinum en móðir mín var næst
honum í aldri. I uppvexti mínum
fékk ég að heyra margt skemmti-
legt og margar frægðarsögur af
þeim systkinum frá þeim gömlu
góðu dögum þegar fjölskyldan bjó í
Vestmannaeyjum en þar dvöldu
þau í ein tíu ár. Mummi og mamma
mótuðust af dvölinni í Eyjum þar
sem þau eyddu barns- og unglings-
áram sínum. Mummi var sam-
kvæmt frásögn móður minnar með
afbrigðum vinsæll, afai- fallegur