Morgunblaðið - 06.03.1999, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 6. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sjónvarpsviðtal við Monicu Lewinsky
Viðtalinu líkt við
„sjónrænt rislyf ‘
London. Reuters. The Daily Telegraph.
MONICU Lewinsky var í gær
hrósað í hástert í breskum fjöl-
miðlum fyrir frammistöðu sína í
klukkustundarlöngu viðtali, sem
sýnt var á fimmtu-
dagskvöldið á bresku
sjónvarpsstöðinni
Channel-4. Þótti
Lewinsky hafa staðið
sig vel er hún íjallaði
um samband sitt við
Bill Clinton, Banda-
ríkjaforseta, afleið-
ingar þess og eftir-
hreytur.
Breska dagblaðið
The Daily Telegraph
segir um viðtalið að
það hafi verið sjón-
varpsefni í hæsta
gæðaflokki og þar
hafi átt sinn þátt skínandi hvítar
tennur, dökk draktin, sem hún
klæddist, tilfinningastunur og
andköf.
„Clinton fór illa með hana,
bandaríska kerfið fór illa með
hana og eigi hún þess kost að
hagnast Qárliagslega á öllu sam-
an, þá njóti hún þess bara,“ sagði
sjónvarpsrýnir blaðsins sem
klykkti út með því að segja við-
talið við Lewinsky hafa verið
„sjónrænt rislyf,“ með tilvísun í
getuleysislyfið Viagra.
Breskir fjölmiðlar báru við-
talið við Lewinsky saman við
frægt viðtal við Díönu prinsessu
þar sem hún greindi opinberlega
frá brestum í hjóna-
bandi þeirra Karls
prins og framhjá-
haldi. Var það niður-
staða Daily Mail að
framkoma Lewinsky
og látbragð hefðu
ekki verið undirbúin
í þeim mæli sem átt
hefði við um Díönu.
Spá „Monicu-fári“
í Bretlandi
Blöðin spáðu því
að í uppsiglingu væri
„Monicu-fár“ í Bret-
landi en næstkom-
andi mánudag mun hún kynna
bók sína í London um samband
sitt við Clinton og eftirmála þess,
sem blaðamaðurinn Andrew
Morton skrifaði. Hann samdi
einnig ævisögu Díönu, sem olli
fjaðrafoki á sínum tíma.
Fyrsti viðkomustaður Lewin-
sky verður Harrods-verslunin,
þar sem hún mun árita bók sína,
við sama borð og Margaret
Thatcher og Mikhaíl Gorbatchev
sátu, er þau árituðu sjálfsævisög-
ur sínar.
Endurskoðun landbunaðarkerfís ESB
Viðræðum
frestað á ný
Brussel. Reuters.
RAÐHERRAR landbúnaðarmála
frá öllum fimmtán aðildarríkjum
Evrópusambandsins (ESB)
ákváðu eftir aðra samningalotu
um uppstokkun á landbúnaðar-
styrkjakerfi sambandsins í gær að
fresta frekari viðræðum fram á
þriðjudag, þrátt fyrir að lítið hefði
miðað í átt að lausn helztu ágrein-
ingsmálanna.
„Það er erfitt að sjá að við séum
nokkru nær en þegar slitnaði upp
úr viðræðunum fyrir viku,“ sagði
Gerry Kiely, talsmaður fram-
kvæmdastjómar ESB eftir að ráð-
herrafundinum lauk í gær.
„Sam-fjármögnun“ enn
sögð á dagskrá
Ágreiningur Frakka og Þjóð-
verja um tillögu þess efnis að aðild-
an-íkin fjármagni niðurgreiðslur til
bænda að meira leyti sjálf en tíðk-
azt hefur fram að þessu var enn
óleystur, eftir að talsmenn stjóm-
valda í Bonn sögðu að tillagan væri
enn uppi á samningaborðinu.
Franski landbúnaðarráðherran
Jean Glavany tjáði fréttamönnum
eftir fundinn að hann hefði verið
fullvissaður um að hin svokallaða
sam-fjármögnun landbúnaðarsjóð-
anna yrði ekki lengur á dagskrá
ráðherraviðræðnanna. En eftir að
þýzkir ráðamenn höfðu gefið til
kynna á fimmtudag að þýzka
stjómin, sem fer þetta misserið
með formennsku í ráðhemaráðinu
og stýrir þar með viðræðunum,
myndi ekki þrýsta á um málið and-
spænis harðri mótspymu frá
Frökkum, sagði Charima Rein-
hardt, opinber talsmaður stjórnar-
innar í Bonn, að tillagan væri enn á
dagskrá.
I Bmssel sagði þýzkur stjórn-
arerindreki að hugmyndin væri
enn á dagskrá, en ekki á samn-
ingaborði landbúnaðarráðherr-
anna.
Heildarendurskoðun
fjárlaga ESB í húfi
f húfi er hvernig fjárlögum
sambandsins, sem hljóða núna
upp á um 7000 milljarða króna ár-
lega, verður varið á komandi ár-
um, en leiðtogar ESB höfðu sett
sér að reyna að hafa drög að
rammasamkomulagi um upp-
stokkun fjármálanna tilbúin er
þeir koma saman á aukafundi í
Berlín 24.-25. marz. Það tekst ekki
ef ekki næst fljótlega að málamiðl-
un um breytingar á fjármögnun
landbúnaðarkerfísins, en nærri
helmingur allra fjárlaga ESB fara
í að standa undir því. Þjóðverjar
fara nú fyrir nokkrum ESB-i-íkj-
um, sem greiða mun meira í sjóði
sambandsins en þau fá úr þeim, og
vilja skera niður útgjöldin.
Franskir bændur hafa hingað til
hagnast mest á landbúnaðarkerf-
inu eins og það er.
Tillögur framkvæmdastjórnar
ESB um uppstokkun landbúnaðar-
og byggðasjóðakeifis ESB ganga
m.a. út á að viðmiðunarverð á
korni, kjöti og mjólkurvörum verði
lækkað verulega og bændum boðn-
ar auknar beingreiðslur í staðinn.
Bændur óttast að þetta muni
skerða kjör þeirra.
„Að skjálfa
af skyrinu“
- eða vinna til verðlauna
íslenskir bændur minnast aldaraf-
mælis samtaka sinna þessa dagana og
á yfirstandandi Búnaðarþingi voru
veitt Landbúnaðarverðlaunin. Pétur
Pétursson kann hins vegar að
segja frá verðlaunaveitingum
til bænda í fyrri tíð.
SILFURBIKAR konunglega
danska landbúnaðarfélagsins.
LJÓSMYNDIN af heiðursskjali Odds bónda er
fengin að láni hjá Þórði Tómassyni, safnverði í
Skógum. Hún er þar í góðum höndum. Haraldur
Ólafsson bankamaður, sonur Ólafs Oddssonar
ljósmyndara, var hirðumaður hinn mesti og
safnaði munum og minjum.
Islenskir bændur
minnast þessa dag-
ana hundráð ára af-
mælis samtaka
sinna. Þau eni sprottin
af rót félagsskapar Suð-
uramtsins bústjórnarfé-
lags, sem Þórður, faðir
Sveinbjarnar tónskálds,
veitti forstöðu og áttu að
bakhjarli konunglega
Landbústjórnarfélagið í
Kaupmannahöfn. Sigurð-
ur Helgason dannebr-
ogsmaður á Jörfa kvað
hjartnæmt ljóð til félags-
ins er hann hlaut
„Fimmta bikar af silfii
gjörfa til heiðursverð-
launa hefi þáð“.
Hann var langafabróð-
ir Bjarna ráðherra Ás-
geirssonar, sem var afi
Astu Ragnheiðar þing-
fulltrúa.
Konunglega búnaðar-
félagið veitti allmörgum
íslenskum bændum
heiðursverðlaun. Þótt
landið væri harðbýlt og
erfitt til ræktunar unnu
ýmsir einstakir bændur
stórvirki með aðstoð
dyggra vinnuhjúa.
Margur landinn hvatti
þó til vesturfarar. Egg-
ert Sigfússon, síðar
kenndur við Vogsósa,
samdi ávarp í aprílmánuði 1869
og skoraði á landsmenn að yfir-
gefa skerið. Er það skjal hið
markverðasta og segir dapur-
lega sögu um vantrú Islendinga
á landi sínu. ... „eitthvert hið
aumasta land, sem til er“, „ófrjó-
semi lands vors“, „vér hér erum
dæmdir til að búa við eymd“.
Séra Eggert hvarf þó frá áformi
sínu. Át eina kringlu á dag í Sel-
vogi, kvaðst „skjálfa af skyrinu í
Klausturhólum" og boðaði oftast
messufall í kirkjum sínum.
Oddur bóndi Eyjólfsson á
Sámsstöðum í Fljótshlíð var
önnur manngerð. Hann var
fæddur 8. apríl 1815. Bjó á
Brekkum en fluttist síðar að
Sámsstöðum í Fljótshlíð. Kon-
rad Maurer, fræðimaðurinn
nafnkunni, heimsækir Odd á
ferð sinni um Suðurland. Oddur
er þá hreppstjóri Fljótshlíðar-
hrepps. Maurer segir að sig hafi
langað til að fá að líta í hrepps-
bækurnar. „Oddur upplýsti mig
einnig um að í hreppnum væru
sextíu bændur og aðeins ellefu
ómagar."
Oddur Eyjólfsson var tví-
kvæntur. Fyrri kona hans var
Ragnhildur Benediktsdóttir frá
Fljótsdal. Síðari kona hans Ingi-
björg Ketilsdóttir.
Meðal nafnkunnra barna Odds
voru Oddur gullsmiður, Sæ-
mundur bóndi í Garðsauka og
Ólafur Oddsson ljósmyndari.
Konunglega danska landbún-
aðarfélagið heiðraði Odd Eyjólfs-
son 11. mars 1879. Þá hlaut hann
silfurbikar félagsins. Gjöfinni
fylgdi greinargerð:
„12. Oddur hreppstjóri Eyjúlfs-
son á Sámstöðum í Rangárvalla-
sýslu hefur síðan 1847
a) flutt bæinn á ábýlisjörð sinni
um 80 faðma þangað sem hann nú
er á hentugum stað, bæði til þess,
að geta sjeð yfir tún og engi, og
til þess að ná til vatns;
b) hlaðið í kringum tún og
gerði 400 faðma langan torfgarð,
um engið 847 faðma langan torf-
garð;
c) sljettað alls 2679 ferh.
faðma;
d) grafið vatnveitingaskurði
samtals 1267 faðma að lengd.
Bóndi þessi hefur lengst um
haldið að eins einn verkfæran
mann, en hefur sýnt hina mestu
atorku í jarðabótum, og hvatt
aðra til þeirra, enda hefur hann
nú af gerðinu 55 hesta af töðu,
þar sem áður fengust að eins 5
hestai” túnið, sem áður gaf af sjer
140 hesta, hefur nú síðar gefið af
sjer 240 hesta af töðu.
Oddur hreppstjóri Eyjúlfsson á
Sámstöðum í Rangárvallasýslu
(sami og hinn 12. í tölunni hjer að
ofan) hefur byggt sjer 2 kálgarða,
sem til samans era að flatarmáli
264 ferh. faðmar.“
í bændarímu sem Jón Þórðar-
son Hlíðarskáld kvað segir svo
um Odd:
Stjórnar Oddur aldraður
enn með hyggju slynga
einhver besti búhöldur
bygð í Fljótshlíðinga.
Fyrir störfm foldræktar
fræg, sem jörð hans prýða,
heiðursgripur veittur var
vitrum lundi skíða.
Vinnumenn Odds á
Sámsstöðum, þeir sem
deildu heiðri með hon-
um og stóðu í stórræð-
um voru samkvæmt
manntali 1870 Teitur
Ólafsson 27 ára árið
1870, en Guðjón Jóns-
son 31 árs og Jón
Magnússon 27 ára árið
1880.
Jón Þórðarson Hlíð-
arskáld kvað eftirmæli
um Odd bónda:
Nú er ævi gagns og gæfú
gengin braut að friðarskauti,
öldungs kærar ellihærur
og á foldu hyljast moldu;
krept er hönd í heljarböndum
hönd er sú af þreytu lúin;
en hans þarfa afreksstarfið
í hans garð’ er fagur varði.
Móti bárum æviára
örugtbrausthann
sinnishraustur,
þar til elli þung að velli
þrekinn við nam leggja niður;
nú hann sefur sætt og hefur
sigur hlotið stnð við þrotið;
svifinn andi Ijóss að landi
lífsandstreymi öllu gleymir.
Blæju hvita hjer vjer lítum
hjúpa grund um vetrarstundir.
Blítt þá vor með blómstursporum
breiðir klæði grænt á svæði,
grafarreit hans skærast skreyti
skartið ljósa blómgra rósa;
sá þar undir sem nú blundar
sína tíð þeim unni blíðast.
Oddur Oddsson tók við búi á
Sámsstöðum árið 1889 og bjó
þar til ársins 1898. Þá flutti hann
á Eyrarbakka. Reisti sér þar
hús skammt frá Merkisteini. „Á
Flötunum". Það slys varð að eld-
ur kviknaði að nóttu til. Það vildi
þó til happs að Þorgrímur í Rétt-
inni, kunnur Eyrbekkingur, var
á leið til skips. Varð hann eldsins
var og vakti heimilisfólkið. Mátti
ekki tæpara standa. Tókst Oddi
og fjölskyldu hans að komast úr
eldslogunum með sængurfötin
ein. Skautbúningar, ættargripir
fjölskyldunnar, silfurbikar Odds
bónda Eyjólfssonar og allir inn-
anstokksmunir brunnu. Oddur
og kona hans Helga Magnús-
dóttir fluttu í Tún, en síðar í
Regin. Oddur var símstjóri og
gullsmiður. Helga kona hans
rómuð fyrir gestrisni og höfð-
ingsskap.
Meðal núlifandi afkomenda
Odds á Sámsstöðum eru Sverrir
og Gylfi Pálssynir, kennarar,
Davíð forsætisráðherra og Ólaf-
ur menntaskólakennari Odds-
synir.
Höfundur er þulur.