Morgunblaðið - 06.03.1999, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 6. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
______FRÉTTIR____
Islenskir tón-
leikar í Miami
FIMMTUDAGINN 11. mars mun
íslenski kammerhópurinn Polaris
halda tónleika í Lowe-listasafninu í
Miami. Þótt allir meðlimirnir búi á
Islandi og starfi þar við tónlist, er
þetta fjölþjóðlegur hópur, því í
honum eru þrír Islendingar, Oskar
Ingólfsson, Kjartan Óskarsson og
Hrefna Eggertsdóttir, tveir Pól-
verjar, Zbgniew og 41ina Dubik og
einn Bandaríkjamaður, Nora
Kornblueh.
Sú síðastnefnda og systir henn-
ar í Miami, Jean D. Patiky, hrintu
í framkvæmd hugmyndinni um
þessa hljómleikaferð, en síðan hafa
margir sjálfboðaliðar lagt fram
vinnu og fé til að gera tónleikana
mögulega. Má þar nefna Charles
E. Cobb, Jr. fyrrverandi sendi-
Aðalfundur
*
Atthagafélags
Múlasveitar
AÐALFUNDUR Átthagafé-
lags Múlasveitar, Austur-
Barðastrandarsýslu, verður
haldinn í húsnæði Barðstrend-
ingafélagsins, Konnakoti,
Hverfisgötu 105, í dag, laugar-
dag, kl. 15.
Þeir sem áhuga hafa á mál-
efnum Múlasveitar eða vilja
viðhalda átthagatengslum eru
velkomnir á fundinn.
herra Bandaríkjanna á íslandi,
Flugleiðir, Lowe-listasafnið, Fin-
landia Vodka, First Union Bank,
Íslenzk-ameríska félagið á svæð-
inu og ræðismaður Islands í S-
Flórída og eru þá ekki allir upp
taldir.
Á tónleikunum verða leiknar ís-
lenskar og bandarískar tónsmíðar
í viðbót við verk gömlu meistar-
anna. Eftir tónleikana bjóða ís-
lenzk-ameríska félagið í S-Flórída
og ræðismannshjónin hljómleika-
gestunum til móttöku, þar sem
boðið verður upp á íslenskan mat
og drykk.
-----------------
Hagyrðingar á
skagfírskum
skáldadegi
SKAGFIRSKUR skáldadagur
verðui- í Drangey, Stakkahlíð 17, á
sunnudag og hefst hagyrðingaþátt-
ur klukkan 17. Þátttakendur verða
Andrés Valberg, Árni Gunnarsson,
Hjálmar Jónsson, Jóhann Guð-
mundsson, Jón Kristjánsson og
Sigurður H. Guðmundsson. Stjóm-
andi verður Sveinn Skagfjörð
Pálmason. Svanagerðisbræður
syngja á undan vísnaþættinum.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Áðalfundur Skagfirðingafélags-
ins verður að loknum hagyrðinga-
þættinum.
Líföndun^r
Að anda er að lifa x
Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið í líföndun
helgina 20. og 21. mars.
Hvernig vaeri að taka á móti haekkandi sól með því að fylla þig af orku?
Losa um það gamla og búa til pláss fyrir meiri gleði og kærleika?
Líföndun hjálpar við að ná djúpri slökun, takti við okkur sjálf
og er um leið góð leið til að kynnast okkur sjálfum.
Guðrun Arnalds. símar 551 8439 op 896 2396
Ef við lærum að anda léttar verður líf okkar ósjálfrátt léttara.
Y Antikhúsgögn
Giíi, Kjalarnesi, s. 566 8963
Vönduð gömul dönsk húsgögn og antikhúsgögn.
Ath. einungis ekta gamlir hlutir. Úrval borðstofuhúsgagna.
Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00 og þri.- og fimkvöld kl. 20.30-22.30,
eða eftir nánara samkomulagi í síma 892 3041, Ólafur.
KJýjAIX VÖKUP.
stuttkxpux
FXLLGCXR. ÚLPUX
MICXOKXPUR.
M/HFTTU
HXTTXX
Opiö laugardag
frá kl. 10-16
Mörkinni 6, simi
Bílastæði við bú
í DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvar eru
endurnar
á Tjörninni?
VIÐ erum hér nokkrir
dýravinir að velta því fyr-
ir okkur hvar allar end-
umar á Tjöminni séu eig-
inlega. Eru þær allar
dauðar úr hungri? Okkur
finnst alveg hræðilegt að
vita af því að dýrin séu
svelt svona inni í miðri
borg. Maður hefur heyrt
að það sé verið að hirða
þessi grey, ekkert nema
fiður og bein.
Við skomm á borgaryf-
irvöld að byrja á brauð-
gjöfum aftur. Og eitt
svona í lokin. Við erum
ansi hrædd um að R-list-
inn missi marga kjósend-
ur út á þetta.
Andrea.
í UMRÆÐUNNI um
flutning Reykjavíkurflug-
vallar og fyrirhugaða
mörg þúsund manna
byggð á svæðinu heyrist
hvergi minnst á aukinn
umferðarþunga um aðal-
götur borgarinnar breyt-
ingunum samfara. Ein-
ungis er rætt um tíma-
bundin óþægindi vegna
þungavinnuvéla og vöm-
flutningabfla sem ættu
leið um svæðið á meðan á
uppbyggingunni stendur.
Verða e.t.v. settir þeir
skilmálar að íbúar megi
ekki eiga bfla svona rétt
eins og verðandi íbúðar-
eigendur við Ástjöm í
Hafnarfirði mega ekki
eiga hunda og ketti?
Hvaða ráðstafanir yrðu
gerðar til þess að mæta
þeirri gifurlegu umferð
um Bústaðaveg, Miklu-
braut og Sæbraut sem
myndi fylgja í kjölfar
hinnar nýju byggðar? Það
er ekki nóg að fjalla að-
eins um flugumferð, um-
ferðin á jörðu niðri er
miklu meiri og hættulegri
og nauðsynlegt að taka
hana með í reikninginn ef
af umræddri byggð verð-
ur á Reykjavíkurflugvelli.
Ásdís Emilsdóttir
Petersen,
Reykjavík.
„Landnám fyrir
landnám"
ÁRNI Óla blaðamaður og
rithöfundur efaðist um
frásagnir af landnámi ís-
lands. Hann ritaði bók
þar sem hann leiðir rök að
því að Island hafi verið
byggt að einhverju leyti,
er norrænir menn tóku
sér hér búsetu. Bókin
heitir „Landnám fyrir
landnám“. Það hefúr verið
furðu hljótt um þetta rit-
verk Árna, hverju sem
það sætir, getur verið að
það sé af því að hann
greinir á um viðurkennda
kenningu um norrænt
landnám, sem íslenskir
fræðimenn hafa tekið
gilda? Örnefnin er benda
til búsetu Vestmanna hér-
lendis fyrir komu nor-
ræns fólks eru mörg og
þá kennd við Papa, sem
eru sagðir hafa farið tfl
Islands tfl trúariðkana því
þeir voru sagðir kristinn-
ar trúar. Það þykja mörg-
um ólíkleg sannindi, að
þeir hafi einir farið tfl
landsins, og ekki hafi aðr-
ir verið þeim samskipa
eða jafnvel flutt þá með
sér er þeir hófu hér land-
nám um árið 700 e.k. Árni
telur einnig að landið hafi
samkvæmt sögum byggst
svo hratt að norskir menn
hafi ekki haft skipakost til
að flytja landa á milli fólk
og farteski, búfénað og
byggingarefni á svo
skömmum tíma sem land
var sagt að byggjast.
Einnig bendir hann á að
er Náttfara sleit frá Garð-
ari Svavarssyni og rak
upp í Náttfaravík og varð
innlyksa, þá hefði hann
ekki komist af um vetur,
nema vegna þess að þau
hafi rekist á mannabyggð.
Einnig segir frá að er
Ingimundur gamli, er tók
land í Borgarfirði vestra,
fór norður yfir heiði og
leit fjörð nokkurn þar em
hann sá hrúta tvo, því
kallaði hann fjörðinn
Hrútafjörð. Það að villifé
var í landi bendir til
bændasamfélags í landi
en ekki vflánga eins og
norrænir voru, og að
vopnaðir landnemar hafi
átt allskostar við þá er
fyrir voru. Eitt nefnir
Árni Óla um að sæfarend-
ur á þeim tíma hafi ávallt
vitað í hvaða átt norður
var. Tfl þess notuðu þeir
lúsina því þá hefur fólk
verið lúsugt eins og enn.
Sólin var náttúrulega veg-
vísir, en í dimmviðri á hafí
úti, þegar hennar naut
ekki þá var ein pulan sett
á slétta fjöl, og þá á hún
ávallt að hafa skriðið í
eina átt, sem var norður.
Á meðan lýs fást í skólum,
ættu dýrafræðingar þar
að kanna þessa sögu
Árna.
Þetta er sett á blað eft-
ir lestur greinar Páls
Theódórssonar um ald-
ursgreiningu á minjum
frá fornöld þar sem hldndi
eru talin á að landnám
hafí hafist hér að minnsta
kosti einni og hálfri öld
fyrr en Ari hinn fróði seg-
ir. Er líklegt að söguritur-
um fornsagna hafi ekki
verið kunnugt um veru
annarra en norrænna
manna á landnámsöld
hérlendis, eða að þeir hafi
verið beittir þrýstingi af
höfðingjum, er kostuðu
ritunina eins og Árni Óla
lætur í veðri vaka, sem
skýringu á þögninni um
írskt landnám. Munnmæl-
in eru lífseig, svo það er
ólíklegt að þau gleymist á
þrem til fjórum öldum.
Jón Hannesson.
Tapað/fundið
Svört handtaska
týndist
SVÖRT handtaska m.a.
með GSM-síma í, veski og
lyklum, týndist í miðbæn-
um sl. laugardagskvöld,
líklega við Lækjargötu.
Fundarlaun í boði. Upp-
lýsingar á morgun í síma
581 1373, Ellen.
Svartur bakpoki
týndist í miðbænum
SVARTUR bakpoki, troð-
fullur af dóti, týndist sl.
miðvikudagskvöld á
Lilliput-barnum, Nelly’s
eða Fröken Reykjavík.
Fundarlaun. Skilvís finn-
andi hringi í síma
552 4918.
Svört axlartaska
týndist
SVÖRT axlartaska týnd-
ist sl. miðvikudag á
Laugavegi. I veskinu voru
persónuskilríki og fleira.
Skilvis finnandi hafi sam-
band við Evu eða Elínu í
síma 552 0494 og
560 3323.
GSM-súni
týndist
PHILIPS Diga GSM-sími
týndist um helgina síð-
ustu, líklega á Nelly’s.
Skilvís finnandi hafi sam-
band við Önnu í síma
898 8224.
Dýrahald
Skjaldbaka
fæst gefins
SKJALDBAKA búr og
matur fást gefins. Frekari
upplýsingar gefur Sigrún
í síma 554 5146.
Víkverji skrifar...
YÍKVERJI er ekki hneykslunar-
gjarn maður, eins og alkunna
er. Honum er á hinn bóginn tekið að
þykja nóg um málflutning þeirra
stjómmálamanna sem kveðast vera
helstu talsmenn íbúa landsbyggðar-
innar. Ef marka má ummæli sem
sumir þessara stjómmálamanna
hafa látið falla um lífið á lands-
byggðinni er með öllu óþolandi að
búa þar.
Guðni Ágústsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, líkti á dögun-
um stórum svæðum landsins við
„flóttamannabúðir“. Orðrétt sagði
þingmaðurinn í grein í Morgunblað-
inu: „Stór svæði landsins minna á
flóttamannabúðir. Auðlindir yfir-
gefnar, eignir og ævistarf yfirgefið,
fólksfæðin í mörgum héruðum slík
að þeir, sem fastast stóðu taka
ákvörðun um að taka sæng sína og
flytja í sælurfldð."
Víkverja þykir þessi málflutning-
ur undarlegur. Hann telur að Guðni
Ágústsson og skoðanabræður hans í
hagsmunavörslu fyrir landsbyggð-
ina ættu að hyggja að því hverju
vinna þeirra og byggðastefna hefur
skilað fyrst ástandið er svo skelfi-
legt. Er þessi lýsing þingmannsins
ekki fyrst og fremst áfellisdómur
yfir störfum hans og samherja
hans?
Víkverji veit fyrir víst að íbúar á
landsbyggðinni hafa ekki gefist upp
þótt fulltrúar þeirra á Alþingi virð-
ist tilbúnir að leggja árar í bát, líkt
og örvæntingarfullur málflutningur
ákveðinna stjómmálamanna er til
merkis um. Ög ekki er þessi mál-
flutningur fallinn til að blása mönn-
um baráttuanda í brjóst. Þvert á
móti brýtur hann niður sjálfsvirð-
ingu og þrek íbúa í dreifbýlinu.
Því fylgja margir kostir að búa í
hinum dreifðari byggðum landsins
rétt eins og það er að ýmsu leyti
með miklum ágætum að búa í þétt-
býli. Mönnum er einfaldlega frjálst
að búa þar sem þeim sýnist á ís-
landi líkt og í öðmm vestrænum
ríkjum. Guðni Ágústsson er á hinn
bóginn ekki sammála þessu. Hann
gerist heimspekilegur og segir:
„Hamingjunni er ekki útdeilt af
réttlæti, valdhafamir verða að
marka stefnu sem slær á þróunina
og snýr henni við.“
Víkverji verður að játa að hann
skilur ekki kenningu Guðna Ágústs-
sonar um hamingjuna. Hann skilur
heldur ekki þær leiðir sem þing-
maðurinn leggur til í því skyni að
„flóttamannabúðimar á lands-
byggðinni" öðlist aftur fyrri reisn.
Þingmaðurinn hefur nefnilega lagt
til að íbúum í dreifbýlinu verði
tryggðar skattalækkanir af ýmsum
toga. Guðni Ágústsson telur að því
er virðist heppilegast að auka enn
frekar bilið á milli þéttbýlisbúa og
landsbyggðarfólks. En á sama tíma
heldur hann því fram að þetta bil í
lífskjörum og fleiru sé rót vandans.
Víkverji fær ekki betur séð en að
röksemdafærsla þingmannsins feli í
sér vítarunu.
„Vandi landsbyggðarinnar“ verð-
ur ekki leystur með því að gera íbú-
ana þar að annars flokks borgumm.
Myndu dreifbýlisbúar geta gert
sömu kröfur um þjónustu og aðrir
landsmenn væri þeim gert að greiða
minni skatta en þeir? Væri ekki
eðlilegt að þess yrði þá krafist á
móti að vægi atkvæðisréttar J)eirra
yrði gert minna en annarra íslend-
inga? Telja menn þetta heppilega
leið til að stuðla að sátt í þjóðfélag-
inu?
xxx
VÍKVERJI er þeirrar hyggju að
skattar á íslandi eigi að vera
lágir en tryggja beri jafnframt að
allir íbúar landsins standi jafnfætis
á því sviði. Þess vegna em allar
undanþágur í skattkerfinu óheppi-
legar mjög. Nú hyggst ríkisstjómin
veita kvikmyndagerðarmönnum
12% skattafslátt. Nú hljóta aðrir
hópar listamanna að krefjast hins
sama. Hér er á ferðinni enn eitt
dæmi þess hvemig stjórnmála-
menn leitast við að kaupa sér vin-
sældir.
xxx
ÍKVERJI hjó eftir því að nú
þykir sannað að hættulegt sé
að skalla fótbolta. Um þetta mátti
lesa í íþróttablaði Morgunblaðsins í
gær og vitaskuld em þegar uppi
hugmyndir um að banna kollspym-
ur í fótboltaleikjum. Hér er á ferð-
inni verðugt verkefni fyrir atvinnu-
menn í góðmennsku. Má vænta
reglugerðar frá heilbrigðisráðherra
í því skyni að vemda heilsu þeirra
þúsunda sem leggja stund á þessa
íþrótt á íslandi?