Morgunblaðið - 18.04.1999, Side 1
87. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jamie Rubin talsmað-
ur bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins
Loftárásirn-
ar farnar
að skila
árangri
JAMIE Rubin, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins, segir Bandaríkjastjórn
hafa undir
höndum upp-
lýsingar um
nýleg
fjöldamorð af
hálfu Serba
og að fjögur
hundruð þorp
hafi verið
eyðilögð. í
samtali við
Morgunblaðið segir hann þó að
sterkar vísbendingar séu um að
loftárárásirnar séu farnar að
hafa áhrif á getu Milosevics til
að framkvæma grimmdarverk.
„Við teljum að 45 af þessum
400 þorpum hafi verið eyðilögð
á undanfórnum tíu dögum og
þær upplýsingar sem við höfum
fengið um fjöldagrafir ná einnig
til þess tímabils. Herferð Milos-
evics heldur því áfram,“ sagði
Rubin við Morgunblaðið.
Bandarísk blöð greindu
einnig frá því í gær að á gervi-
hnattamyndum mætti sjá nýleg-
ar fjöldagrafir vestur af Pristina
í Kosovo og frásagnir flótta-
manna bentu til að hundruð
óbreytta borgara hefðu verið
tekin af lífi að undanfómu.
Þegar Rubin var spurður
hvort nýjar upplýsingar um
grimmdarverk Serba bentu til
þess að loftárásir NATO hefðu
ekki náð settu marki tO þessa
sagði hann Bandaríkjastjórn
hafa haldgóða vitneskju um að
farið væri að þrengja að sveit-
um Milosevics í Kosovo. „Þær
eiga erfitt með að hreyfa sig um
héraðið og þær eru ragar við að
grípa til aðgerða vegna hætt-
unnar á árásum af hálfu orr-
ustuvéla NATO.“
I liðinni viku vörpuðu orr-
ustuþotur NATO sprengjum á
farþegalest og tveimur dögum
síðar á bílalest flóttamanna frá
Kosovo. Aðspurðm- hvort hann
teldi hættu á að þetta myndi
leiða til þess að drægi úr stuðn-
ingi við aðgerðir bandalagsins
sagði Rubin svo ekki vera.
Þvert á móti teldi hann líkur á
að stuðningur við loftárásirnar
væri að aukast.
Reuters
Vaxandi
óöld á
A-Tímor
HUNDRUÐ vopnaðra manna,
sem hlynntir eru áframhaldandi
yfirráðum Indónesíustjórnar á
Austur-Tímor, fóru með báli og
brandi um höfuðborgina, Dili, í
gær og báru eld að húsum og bíl-
um. Lýsti einn leiðtogi þeirra yf-
ir, að nú skyldi „hreinsa" burt
alla þá, sem vildu endurheimta
sjálfstæði landsins. Sagði einn
leiðtogi sjálfstæðissinna, að son-
ur sinn og nokkrir menn aðrir
hefðu verið skotnir er
indónesískir hermenn gerðu árás
á hús í borginni. Hér eru á ferð
nokkrir stuðningsmenn
Indónesíusljórnar en Indónesíu-
her hefur verið sakaður um að
útvega þeim vopn.
Allt að 20.000 flóttamenn frá Kosovo á einum sólarhring
Farið þorp úr þorpi og fólk-
ið rekið burt með skothríð
Tirana, Belgrad, Washington. Reuters.
Júgóslavíustjórn hafnar
friðartillögum Kofí Annans
ÞUSUNDIR flóttamanna komu til
Albaníu frá Kosovo í nótt mjög illa á
sig komnar. Sagði fólkið að
serbneskir hermenn hefðu farið þorp
úr þorpi og rekið íbúana burt með
skothríð. Júgóslavíustjórn hefur
hafnað friðartillögum Kofi Annans,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna en talsmenn NATO segja, að
loftárásunum verði haldið áfram vik-
um eða mánuðum saman ef þörf
krefur. Bandaríkjaher hefur nú í
haldi sínu fyrsta stríðsí'angann, for-
ingja í serbneska hemum í Kosovo.
Allt að 20.000 manns flúðu frá
Kosovo í fyrrinótt og voru margir
mjög aðframkomnir af vosbúð en
miklar rigningar hafa verið í landinu.
Þeir, sem komu til Kukes í Albaníu,
sögðu, að Serbar hefðu komið í
Mitrovica-hérað á miðvikudag og
farið síðan þorp úr þorpi og rekið
fólk allslaust úr húsum sínum með
skothríð. Sagði einn flóttamannanna,
Bedri Kadriu, að amma sín hefði ver-
ið drepin er serbneskir hermenn
skutu á bfla og dráttarvélar til að
reka á eftir flóttanum.
Segjast engan hafa rekið burt
Júgóslavíustjórn hefur hafnað
friðartillögunum, sem Kofi Annan,
framkvæmdastjóri SÞ, lagði fram
fyrir viku. Sagði í bréfi til hans frá
Zivadin Jovanovic, utanríkisráð-
herra Júgóslavíu, að það eina, sem
ógnaði „friðinum í Kosovo“, væri
loftárásir NATO. Fred Eckhard,
talsmaður Annans, sagði, að við-
brögð Júgóslavíusjjórnar hefðu ekki
komið á óvart. I svari Jovanovie
sagði hins vegar, að Serbar hefðu
engan rekið frá Kosovo, heldur hefði
fólkið flúið loftárásirnai-.
William Cohen, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, og Carlo
Scognamiglio, ítalskur starfsbróðir
hans, sögðu að loknum viðræðum
sínum í Washington í fyrrakvöld,
að NATO væri reiðubúið að halda
uppi árásum á Júgóslavíu mánuð-
um saman eða þar til stjórnin í
Belgrad gengi að skilmálum banda-
lagsins.
Bandaríska hermálaráðuneytið
skýrði frá því í fyrrakvöld, að fyrsti
serbneski stríðsfanginn væri nú í
vörslu bandarískra hermanna í
Tirana í Albaníu. Er um að ræða for-
ingja í serbneska herliðinu í Kosovo
en hann féll í hendur skæruliða
Frelsishers Kosovo fyrir nokki'um
dögum.
Þýska tímaritið Focus hafði það í
INDVERSKA ríkisstjórnin féll í
gær en þá var samþykkt á hana
vantraust með eins atkvæðis mun.
Hafði hún setið í 13 mánuði og var
fimmta ríkisstjórnin á þremur ár-
um.
Vantraustið á ríkisstjórn Janata-
flokksins og Atal Behari Vajpayee
forsætisráðherra var samþykkt í
neðri deild þingsins með 270 at-
kvæðum gegn 269. Ætlaði Vajpayee
gær eftir Sergei Krylov, sendiherra
Rússa í Bonn, að Rússar væru reiðu-
búnir að taka þátt í alþjóðlegu
gæsluliði í Kosovo á vegum Samein-
uðu þjóðanna eða ÖSE, Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu. Skilyrði
væri þó, að í gæsluliðinu yrðu ekki
hermenn frá þeim NATO-ríkjum,
sem nú stæðu að loftárásunum á
Júgóslavíu.
að afhenda forseta Indlands, K.R.
Narayanan, afsögn sína og stjórnar-
innar í gær og þykir ekki ólíklegt,
að forsetinn muni þá fela Sonju
Gandhi, leiðtoga Kongress-flokks-
ins, stjómarmyndun. Hafa tals-
menn hans þegar lýst yfir áhuga á
því en takist ekki að mynda nýja
stjórn mun forseti rjúfa þing og
boða til þriðju kosninganna á þrem-
ur árum.
Indverska ríkis-
stjórnin fallin
Nýju Dclhi. Reuters.
AÐ RANNSAKA
MEÐ OPNUM HUG
Vissi nákvæmlega hvernig
heildarmyndin yrði
24
VAR VARAÐUR VIÐAÐ
HEFJA BÓKAÚTGÁFU