Morgunblaðið - 18.04.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 27
þeirra á Sloba hefur verið býsna
reikult. Eitt árið var honum hrósað
sem manninum er skóp frið í Bosn-
íu og hitt árið er hann svo maður-
inn sem hóf bæði Króatíu-, Bosníu-
og Kosovostríðið. Allt er þetta rétt,
en Sloba byrjar bara og hættir
samkvæmt eigin hentisemi og aðrir
dansa i kringum hann eins og leik-
brúður.
Hvernig tóku menn áður
á Balkanvandamálunum?
Almenn þekking varðandi hin
flóknu vandamál Balkanskagans er
af skomum skammti. Til skamms
tíma var tiltölulega fátt um bækur
varðandi þau mál í bókasöfnum, en
eftir borgarastyrjöldina núna úir og
grúir af bókum, greinum og sjálf-
skipuðum sérfræðingum. Og reynd-
ar er það svo, að því meira sem
vandamálið er skoðað því erfiðara er
að átta sig á hvað er hvað. Bismarck
Þýskalandskanslari sagði á sínum
tíma, að Balkanskagi væri ekki virði
eins einasta prússnesks hermanns.
Flest bendir til að ráðamenn NATO
séu sama sinnis og Bismarck var á
sínum tíma, þótt þeirri skoðun vaxi
fylgi, að óhjákvæmilegt verði að
senda landher inn í Kosovo. En á
meðan heldur NATO áfram loft-
árásum í von um að eitthvað geti
gerst sem verði til að velta Milosevic
úr sessi. Því getur svo farið, ef held-
ur fram sem nú horfir, að h'tið verði
eftir bæði af Kosovo og Serbíu.
Þarna sýnist því nú bara um tvo
kosti að velja: að axla ábyrgðina á
úti’ýmingu Kosovo-Albana annars
vegar og eyðileggingu Serbíu hins
vegar, eða að gjörbreyta um stefnu.
Hernaður á landi af hálfu Atl-
antshafsbandalagsins væri sannar-
lega tvíeggjaður. Land á þessum
slóðum má vel nota til skæruhem-
aðar, sem gæti reynst herjum
bandalagsins erfiður að fást við, ef -
og aðeins ef - Serbar koma á fót
andspyrnuhreyfingu. Núverandi
samstaða bandalagsþjóðanna gæti
hugsanlega riðlast, ef átök verða
langvarandi vegna þess að þær
bandalagsþjóðir sem næstar eru
átakasvæðinu líta vandamálið ekki
sömu augum og menn í Washing-
ton. I versta tilfelli gæti þurft að
ráðast inn í Serbíu og hemema
hana, en slík aðgerð gæti vel orðið
til að þjappa Serbum enn meira
saman til áframhaldandi átaka og
þá jafnvel með stuðningi óform-
legra sjálfboðaliða frá Rússlandi.
Menn geta auðvitað vonað að
stuðningur Serba við Sloba og sí-
felld stríðsátök hans dvini, ef
heppnin er með, en að fara í stríð
upp á von og óvon er alls ekki við-
unandi vegarnesti.
Tilheyrir Balkan-
skagi Evrópu?
Hér kann að þykja kjánalega
spurt, því að vissulega er okkur svo
kennt í landafræðinni. En að öðra
leyti má setja spurningarmerki því
að í pólitísku tilliti er ákveðinn
skyldleiki við Miðausturlönd vegna
áhrifa islams eða múhameðstrúar-
manna innan svæðisins. Mannkyns-
sögunni verður ekki breytt að
þessu leyti þótt menn greini á um
hvernig skuli túlka hana. Hér verða
menn að hafa í huga, að pólitísk
landamæri fylgja ekki endilega
landfræðilegum landamæram.
Klofningur kirkjunnar- í rómversk-
kaþólsku kirkjuna, er lýtur páfanum
í Róm og í rétttrúnaðar-kirkjuna (or-
todox-kirkjuna) sem laut patríarkan-
um í Konstantínopel (nú Istanbul),
fyrir um 1500 áram, olli sldptingu
Balkanskagans svo að skörp skil eins
og dregin eftir línu mynduðust milli
tveggja ólíkra menningarheima.
Króatar urðu vestan megin en Ser-
bar austan megin línunnar. Hinir
fyrmefndu nota latneska stafrófið
eins og við en Serbamir nota kirill-
íska stafrófið, enda þótt talmálið sé
nokkum veginn hið sama.
Ofan á þetta bættist síðan út-
þensla Ottomanaríkisins, en leifar
þess era núverandi Tyrkjaveldi,
sem flutti með sér islam eða Mú-
hameðstrú. Sú útþensla varð meðal
annai-s til þess að íbúar hér og þar
á Balkanskaga snerast til islamskr-
ar trúar og gátu þannig lifað í
sæmilegum friði fyrir drottnuram
landsins. Því er það, að áhangendur
islams er að finna víða innan fyrr-
verandi Júgóslavíu, einkum þó í nú-
verandi Bosníu, nokkram svæðum
Serbíu, þar með talið Kosovo-hér-
aði, auk hluta af Makedóníu og
mikils hluta af Albaníu. Þessi fyrr-
verandi yfirráð Tyi-kja þykja mörg-
um Serbum og Grikkjum ófyrirgef-
anleg og era þeir því fullir heiftar
enn þann dag í dag. Serbar biðu
lægri hlut fyrir Tyrkjum í orast-
unni við Kosovo fyrir rúmum 600
áram og sá ósigur, sem jafnframt
leiddi til margra alda hemáms
Tyrkja hefur alla tíð setið í þeim.
Ríki Serba er miklu eldra en Jú-
góslavía, sem ekki verður til sem
sjálfstætt ríki fýrr en á samninga-
borði stórveldanna að lokinni fyrri
heimsstyrjöldinni árið 1918. Ser-
binn Princip, sem myrti Frans
Ferdinand erkihertoga af Austur-
ríki-Ungverjalandi í Sarajevo 1914
og hleypti þar með óbeint af fyrsta
skoti þeirrar heimsstyrjaldar,
kvaðst gera það í nafni sameiningar
Júgóslavíu og ætlaði öllum Jú-
góslövum að lifa þar saman. Fyrst
eftir friðarsamningana 1918 var Jú-
góslavía þó kölluð „Konungsdæmi
Serba, Króata og Slóvena“ en síðan
breytt í „Konungsríkið Júgóslavíu".
Við hemám nasista í síðari
heimsstyrjöldinni varð Króatía
sjálfstætt ríki undir þeirra vemdar-
væng, sem svo varð að engu við fall
Hitlers árið 1945. Harðvítug borg-
arastyrjöld var háð í Júgóslavíu á
hernámsáranum, en þrátt fyrir öfl-
ugt hemámslið tókst nasistum
aldrei að kveða þau átök niður. Þar
tókust á þrjár fylkingar: Usthasa,
sem flestir vora Króatar; Chetniks,
sem vora aðallega Serbar; og Föð-
uriandsvinir (Partisans), sem vora
kommúnistaskæraliðar Josip Bros
Tito. Árið 1943 þótti ljóst hvem
endi heimsstyrjöldin síðari mundi fá
og komu Tito og hans menn sér þá
saman um innri skiptingu landsins
sem verða skyldi „Sósíalíska Sam-
bandslýðveldið Júgóslavía“ með
höfuðborginni Belgrad. Sambands-
lýðveldin urðu sex: Slóvenía, Ki-óa-
tía, Bosnía og Hersegóvína, Svart-
fjallaland, Serbía og Makedón ía.
Niðurstaða þessarar skiptingar
varð sú að mörg þjóðarbrotanna
dreifðust að hluta milli „lýðveld-
anna“ nema Slóvenar, sem alltaf
hafa fundið til meiri tengsla við
Mið- og Vestur-Evrópu, enda tók
sjálfstæðisstríð Slóvena við hran
Júgóslavíu ekki nema 10 daga. Við
lok síðari heimsstyrjaldarinnar varð
Tito nánast einræðisherra í Jú-
góslavíu. Fyrrgreind innri skipting
hans á landinu, hvort sem hún var
óhugsuð hrossakaup eða ekki,
tryggði sundrangu þjóðarbrotanna
og auðveldaði að halda hinum ólíku
þjóðum saman í einni ríkisheild
undir járnhæl kommúnismans.
Fyrrverandi Júgóslavía taldi nánast
23 milljónir íbúa. Af þeim vora um
10 milljónir Serba, 5 milljónir
Króata, 2 milljónir Slóvena, 2 milij-
ónir Albana, milljón Ungveija, tæp-
ar 2 milljónir Makedóníumanna og
2 milljónir Bosníu-múslima, sem
ýmist vora Króatar eða Serbar að
uppruna uns Tito leyfði þeim
(ákvað) að mynda sérstaka þjóð
múslima innan ríkisins.
A stjómaráram Titos var stjóm-
arskrá ríkisins breytt nokki-um
sinnum. Ein breytingin var í þá
vera að draga úr ráðandi áhrifum
Serba innan sambandslýðveldisins
og létta um leið á þrýstingi um
fjölgun lýðveldanna með því að
veita Vojvodina-Ungverjum og
Kosovo-Albönum sjálfstjóm innan
Serbíu. Margar slíkar breytingar
voru gerðar í því augnamiði að auð-
véldara væri að halda sambands-
lýðveldinu saman.
A valdatíma Titos fluttust margir
Albanar til Kosovo auk þess sem
fjöldi bameigna var þar meiri en
meðal annarra þjóðarbrota innan
Júgoslavíu. Það þurfti því ekki
nema tvær kynslóðir Albana áður
en Serbar í Kosovo voru orðnir að
minnihluta þannig, að í menningar-
legu tilliti blasti þar alveg ný þjóðfé-
lagsstaða við. í ljósi sögunnar urðu
þessi breyttu þjóðemishlutföll í
Kosovo að púðurtunnu sem lítið
þurfti til að kveikja í. Hinn albanski
meirihluti þar gerði kröfur um
aukna sjálfstjórn, en Milosevic valdi
að snúa við stefnunni, sem Tito
hafði áður markað. Draumurinn um
Stór-Serbíu, en það þýddi öll svæði
byggð Serbum án tillits til innbyrðis
landamæra, var endurvakinn.
Kosovo-héraðið var svipt þeirri tak-
mörkuðu sjálfstjóm, sem það hafði
hlotið. Sama gilti um sjálfstjómar-
héraðið Vojvodina og þá hálfu millj-
ón Ungveija sem þar býr.
Vopnuð átök bratust út í Kosovo
í nafni Frelsishers Kosovo en fram-
an af var litið á liðsmenn hans sem
hreina hryðjuverkamenn hliðstæða
Irska lýðveldishernum eða Verka-
mannaflokki Kúrdistans. En með
vopnuðum aðgerðum Frelsishers
Kosovo gafst Milosevic og öðram
Serbum tækifæri, sem þeir höfðu
beðið lengi eftir, til að „gera hreint"
í Kosovo í eitt skipti fyrir öll. Menn
geta auðvitað spurt sjálfa sig hvers
vegna ekki hefúr brotist út svipuð
uppreisn af hálfu Vojvodina-Ung-
verja, en því er til að svara að sjald-
an veldur einn þá tveir deila. I hug-
um Serba er Kosovo síðan eftir or-
ustuna þar árið 1389 við Tyrki að
mörgu leyti jafnmikilvæg sögulega
séð og Þingvellir Islendingum.
Þarna er því auðvelt að spila á
aldagamalt hatur og heift. Heiður
og blóðhefnd era enn í hávegum
höfð eins og á Sturlungaöld hér.
Dæmin frá Kýpur, Aserbadjan og
Armeníu, Tsjetsjníu og Bosníu
ættu að vera nútíma Vesturlanda-
búanum áminning þess að ólík
menningarviðhorf kristinna og mú-
hameðstrúarmanna þykja enn ærið
tilefni til blóðugra átaka þar sem
vopnin era látin tala.
Makedónía er tímasprengja
• Landfræðilega séð tilheyrir
Makedónía bæði gömlu Júgóslavíu
Aldraðir við aldahvörf
Sagan * Framtíðin
Kynnir:
Rúnar Brynjólfsson,
forstöðumaður.
Málþing í Tónlistarhúsi Kópavogs
Miðvikudaginn 21. apríl, kl. 13.00
Dagskrá
Áður fyrr á árunum:
Síra Sigurður Helgi Guðmundsson.
Söguleg þróun umönnunarmála á íslandi
frá söguöld til síðustu aldamóta.
Félagsleg þjónusta á 20. öld:
Sveinn H. Ragnarsson, fyrrverandi félagsmálastjóri.
Þróun öldrunarmála á 20. öld.
Afstaða sveitarfélaga og þátttaka þeirra í uppbyggingu stofnana.
Ný viðhorf í þjónustu.
Sjúkdómar aldraðra:
Sigurbjörn Björnsson yfirlæknir.
Nýjungar í meðferð.
Nýjar vonir.
Löggjöf í þágu aldraðra:
Guðmundur Hallvarðsson, alþingismaður.
Miðvikudaginn 21. apríl standa hjúkrunarheimilin
Eir og Skjól fyrir málþingi um málefni aldraðra í
fortíð, nútíð og framtíð.
Þingið verður haldið í Tónlistarhúsi Kópavogs,
Salnum, kl. 13.00 - 17.00.
Breyttar lífsvenjur aldraðra:
Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarforstjóri.
Fjallar m.a. um það þegar aldraður einstaklingur
flyst á hjúkrunarheimili.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands.
Óhefðbundið ávarp á málþingi:
örn Árnason, leikari.
Horft til framtíðar:
1. Aðrar leiðir: S/'ra Sigurður Helgi Guðmundsson.
2. Gæðamat: Guðrún Högnadóttir,
M.H.A., rekstrarráðgjafi.
Sungið inn í nýja öld: Kór eldri borgara.
Sigurður Skagfjörð Steingrímsson syngur við undirieik Úlriks Ólasonar.
Sýning í fordyri á ýmsum þáttum sem tengjast öldrunarþjónustu.
Gert verður kaffihlé og veittar verða léttar veitingar í lok þings.
Þingið er öllum opið Ekkert þátttökugjald. HJÚKRUNARHEIMIU HJÚKRUNARHEIMILI