Morgunblaðið - 11.05.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 D 7
ALÞINGISKOSNINGAR
Morgunblaðið/Ásdís
FORYSTUMENN Samfylkingarinnar fognuðu fyrstu tölum þó að margir stuðningsmenn
þeirra hefðu talið að framboðið hefði átt að gera betur í kosningunum. F.v. sitja alþingis-
mennimir Bryndís Hlöðversdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Margrét Frímannsdóttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ARNI Björn Guðjónsson, frambjóðandi Kristilega lýðræðisflokksins, var beðinn að koma
í viðtal við Stöð 2 á kosningavöku Anarkista. Ami Björn kaus að bíða í bílnum eftir að
röðin kæmi að sér frekar en að heilsa upp á Anarkista.
Morgunblaðið/Þorkell
FRAMSÓKNARMENN vom allt annað en ánægðir með úrslitin. Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, fylgdist með
tölunum í hópi stuðningsmanna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MIKIL gleði rikti í herbúðum Vinstrihreyfingarinnar yfir tölunum. Þegar myndin var tekin vom
Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, og aðrir stuðningsmenn hans hættir að fagna og farn-
ir að skoða tölumar betur.
mikils um vert að fulltrúi úr okkar
framboði á Austurlandi skyldi ná
kjöri,“ segir Hjörleifur.
Hann sagði að niðurstaðan í
Reykjavíkurkjördæmi væri góð og
fyllilega í meðaltali fylgis U-listans.
„Eg er að hætta á þingi sam-
kvæmt minni áætlun. Ég gerði mér
engar vonir um þingsæti með því að
taka þriðja sætið í Reykjavík og það
var heldur ekki ásetningur minn
þótt ég hefði að sjálfsögðu tekið
kjöri hefði svo ólíklega viljað til. Ég
kveð Alþingi mjög sáttur. Ég met
það svo að þetta hafí verið rétt
skref hjá mér og ég hafí skilað mínu
inn á þingið. Ég er prýðilega sáttur
og er að byrja nýtt líf frá þessum
degi,“ segir Hjörleifur.
Magnús Stefánsson
Fengum
sama fylgi
og 1991
„ÞETTA var
heldur betri út-
koma á Vestur-
landi heldur en
kannanir og spár
gerðu ráð fyrir.
Við unnum mik-
inn sigur 1995 og
niðurstaðan núna
er sú að við erum
að fá sama fylgi
og við fengum í kosningunum þar á
undan, árið 1991,“ segir Magnús
Stefánsson, sem skipaði annað sæti
á lista Framsóknarflokksins á Vest-
urlandi þar sem flokkurinn fékk
einn mann kjörinn. Magnús fellur
því út af þingi eftir setu þar í eitt
kjörtímabil.
Veruleg spenna
ríkti um
jöfnunarsætin
VERULEG spenna ríkti ailt til
loka talningar á kosninganótt
um hvernig jöfnunarsætum yrði
raðað niður. Við lokatalningu í
báðum Norðurlandskjördæmun-
um tapaði Framsóknarflokkur-
inn kjördæmakjörnum mönn-
um, Daníel Árnasyni og Árna
Gunnarssyni, en fékk í staðinn
tvo uppbótarmenn í Reykjavík
og Reykjanesi, þá Ólaf Örn
Haraldsson og Iljálmar Árna-
son.
Við þetta fékk Vinstrihreyf-
ingin - grænt framboð jöfnun-
arsætin í Norðurlandskjördæm-
unum og þá Jón Bjarnason og
Árna Steinar Jóhannsson inn á
þing. Við það féllu út sam-
flokksmenn þeirra, Halldór
Brynjúlfsson á Vesturlandi og
Kristín Halldórsdóttir á Reykja-
nesi, sem virtust lengi nætur
ætla að tryggja sér þingsæti.
Þetta leiddi til þess að Gísli S.
Einarsson endurheimti þingsæti
sitt fyrir Samfylkinguna á Vest-
urlandi, sem virtist um tíma tap-
að, en Mörður Árnason flokks-
bróðir hans féll út í Reykjavík.
Þá stóð um tíma glöggt hvort
jöfnunarsætið á Austurlandi
kæmi í hlut Þuríðar Backman,
sem hreppti það á endanum, eða
Alberts Eymundssonar Sjálf-
stæðisflokki.
Fimmtán nýir
þingmenn
Nýir þingmenn á næsta þingi
eru Guðrún Ogmundsdóttir,
Kolbrún Halldórsdóttir, Sverrir
Hermannsson og Ásta Möller í
Reykjavfk. Gunnar I. Birgisson,
Þorgerður Gunnarsdóttir og
Þórunn Sveinbjamardóttir á
Reylg'anesi. Jóhann Ársælsson
á Vesturlandi. Guðjón A. Krist-
jánsson á Vestíjörðum. Krislján
Möller og Jón Bjamason á
Norðurlandi vestra. Ámi Stein-
ar Jóhannsson á Norðurlandi
eystra. Einar Már Sigurðarson
og Þuríður Backman á Austur-
landi og Drífa Hjartardóttir á
Suðurlandi. Einnig vora Katrín
Fjeldsted í Reykjavík og Sigríð-
ur Jóhannesdóttir á Reykjanesi
kjömar á þing en þær vom
varamenn á Alþingi á síðasta
kjörtímabili, en tóku sæti þar
þegar Ólafur Ragnar Grímsson
og Friðrik Sophusson sögðu af
sér þingmennsku.
Þeir þingmenn sem féllu af
þingi en sóttust eftir endur-
kjöri, vora Magnús Stefánsson
á Vesturlandi, Kristín Halldórs-
dóttir og Ágúst Einarsson á
Reykjanesi, og Guðný Guð-
björnsdóttir og Hjörleifur
Guttormsson í Reykjavík.
„Ég hafði búið mig undir að
svona gæti farið og þess vegna eru
úrslitin í sjálfu sér ekki sérstakt
áfall. Hvað varðar Framsóknar-
flokki þá eru úrslitin talsverð tíðindi
í báðum kjördæmunum á Norður-
landi. Þar hefur Framsóknarflokk-
urinn verið mjög sterkur alla tíð og
tapar forystu í þeim báðum. Eins
virðist mér eins og vinstri grænir
séu að taka frá okkur á Norðurlandi
vestra og eystra og á Vesturlandi.
Ég er að sjálfsögðu ekki sáttur við
að flokkurinn missi svo mikið fylgi
því við höfum unnið vel á kjörtíma-
bilinu og teljum okkur hafa náð
miklum árangri í stjómarsamstarf-
inu,“ segir Magnús.
Magnús segist kveðja Alþingi með
söknuði og kveðst gjaman hafa vilj-
að fá tækifæri til að halda áfram
störfum sínum þar. Þetta hafi verið
mikill reynslutími og þykir honum
miður að geta ekki notað þá þekk-
ingu sem hann hafi byggt upp í fjög-
ur ár.
Ágúst Einarsson
Vonbrigði
fyrir for-
ystumennina
„VIÐ náðum ekki
því sem við ætl-
uðum okkur sem
var 30% fylgi.
Þetta á samt ekki
að breyta því að
við ættum að
stofna stjórn-
málaflokk strax í
haust. Ég lít svo á
að lýðræðisleg
niðurstaða kosninganna sé sú að
Sjálfstæðisflokkurinn muni vera í
forystu og eigi að mynda næstu rík-
isstjórn," segir Ágúst Einarsson,
sem skipaði 5. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar á Reykjanesi sem fékk
fjóra menn kjöma þar.
Ágúst segir að Davíð Oddsson og
Steingrímur Sigfússon séu sigur-
vegarar kosninganna. „Þetta er
stærsti sigur Sjálfstæðisflokksins í
25 ár og mér finnst langlíklegast að
hann myndi stjórn með Framsókn-
arflokknum. Árangur Steingríms
segir okkur í Samfylkingunni það
að hafa verður náið samstarf á
vinstrivæng stjórnmálanna á næsta
kjörtímabili, ekki síst ef flokkarnir
verða báðir í stjómarandstöðu.“
Ágúst segir það sína skoðun að
meira hafi verið í spilunum fyrir
Samfylkinguna en niðurstaðan hafi
verið. „Menn náðu ekki að vinna úr
þeim möguleikum sem vora fyrir
hendi þegar kosningabaráttan
hófst. Þessi árangur er ekki nógu
góður og það hefði vafalítið verið
hægt að vinna betur úr þessu.
Hljómgmnnurinn var þannig í upp-
hafi kosningabaráttunnar að það
var raunhæft markmið að fá jafnvel
nokkuð yfir 30% fylgi. Það á sínar
skýringar, m.a. þær að haga hefði
mátt kosningabaráttunni öðruvísi.
Þetta hljóta að vera vonbrigði fyrir
forystumenn Samfylldngarinnar,
Margréti Frímannsdóttur og Sig-
hvat Björgvinsson,“ segir Ágúst.
Guðný Guðbjörnsdóttir
Sá lengi í
hvað stefndi
„ÉG hef unnið að tilurð Samfylking-
arinnar í tvö ár og setið í stýrihópi
Sjá bls. 10 ►