Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 15

Morgunblaðið - 11.05.1999, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 D 15 ALÞINGISKOSNINGAR síður verður þessi niðurstaða að telj- ast ósigur. Framboðið virðist hafa verið að tapa alla kosningabaráttuna og fær heldur verri útkomu en flest- ar skoðanakannanir voru að spá fyr- ir kosningar. Það er ekki síst útkoman í Reykjavík og Reykjanesi sem hlýt- ur að valda stuðningsmönnum Sam- fylkingarinnar vonbrigðum, en í upphafí kosningabaráttunar virtist sem framboðið hefði nokkuð sterka stöðu í þessum kjördæmum. A Reykjanesi töpuðu Samfylkingar- flokkarnir manni til Sjálfstæðis- flokksins og í Reykjavík fengu þeir 6 þingmenn en höfðu 9 á síðasta kjörtímabili. Ljóst má vera að Vinstrihreyfíngin hefur náð tU sín verulegu fylgi sem frambjóðendur Samfylkingarinnar vonuðust til að skilaði sér til þeirra. Þetta skýrir hins vegar ekki tU fulls fylgistap Samfylkingarflokkanna í þessum kjördæmum. Segja má að Samfylkingin hafi verið í vöm mest alla kosningabar- áttuna. Forystumönnum hennar gekk illa að útskýra skattastefnu framboðsins og hvaða stjórnkerfí það vUdi skapa í sjávarútvegsmálum. Vandamál frambjóðenda flokksins var m.a. það að þeim tókst ekki að láta umræðuna snúast um stefnu Sjálfstæðisflokksins og stjómarinn- ar vegna þess að stefna Sjálfstæðis- flokksins var varlega orðuð, stutt og hnitmiðuð. Forystumenn Samfylk- ingarinnar hefðu hins vegar átt að geta náð taki á andstæðingnum, t.d. með því að beina athyglinni að lands- fundarsamþykktum Sjálfstæðis- flokksins. Samfylkingin var stofnuð í þeim tUgangi að sameina vinstrimenn. Sú spuming hlýtur að vakna hvort það hafí tekist þegar til hliðar við hana hefur myndast stjómmálaflokkur með rúmlega 9% fylgi. Það er einnig ljóst að stuðningsmenn Samfylking- arinnar eiga mikið starf óunnið við að skipuleggja og byggja upp hið nýja stjórnmálaafl. Eitt af því sem þar kemur tU álita er hver eigi að vera í forystu fyrir þessu afli tU framtíðar. Signr fyrir U- og F-lista Einn af sigurveguranum í kosn- ingunum hlýtur að teljast Vinstri- hreyfingin - Grænt framboð. Skoð- anakannanir sýndu að flokkurinn var í sókn alla kosningabaráttuna og má af því draga þá ályktun að barátta flokksins hafi verið betur heppnuð en kosningabarátta Sam- fylkingarinnar. Sigur Steingríms J. Sigfússonar, foi-manns Vinstri- hreyfingarinnar, í Norðurlandskjör- dæmi eystra er sérlega glæsilegur, en hann skilaði tveimur þingmönn- um. Útkoman í Reykjavík, á Aust- urlandi, Vesturlandi og Norðurlandi vestra var einnig góð. Nokkra at- hygli vekur að flokkurinn náði ekki inn manni á Reykjanesi, en það end- urspeglar hugsanlega að einhverju leyti að Alþýðubandalagið hefur alla tíð haft frekar veika stöðu í kjör- dæminu. Vinstrihreyfingunni hefur á undraskömmum tíma tekist að byggja upp heilsteyptan flokk. Þó uppbyggingarstarfinu sé ekki lokið má segja að flokkurinn sé kominn lengra á þessari braut en Samfylk- ingin. Árangur Frjálslynda flokksins er betri en flestir höfðu reiknað með fyrir kosningar. Segja má að flokk- urinn hafi náð markmiði sínu, að koma mönnum á þing. Sigur Guðjóns A. Kristjánssonar á Vestfjörðum er glæsilegur. Færa má rök fyrir því að uppreisn sjálfstæðiskvenna á Vest- fjörðum vegna skipanar framboðs- listans hafi að þessu leyti reynst ör- lagarík, en sem kunnugt er tapaði Guðjón með einu atkvæði í kosningu um þriðja sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í vetur. Guðjón sagði sig þá úr flokknum og bauð sig fram fyrir Frjálslynda. Þingmenn Frjálslynda flokksins, Guðjón og Sverrir Hermannsson, hafa nú tækifæri til að koma aðal- baráttumáli sínu, stjórnkerfi fisk- veiða, á dagskrá. Ef flokkurinn á að lifa lengur en eitt kjörtímabil verður hann hins vegar að auka fylgi sitt vegna þess að samkvæmt nýjum kosningalögum fá einungis þefr flokkar kjörna menn á Alþingi sem fá 5% fylgi eða meira í kosningum. REYKJAVIK Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 46,3% 457% ’91 '95 '99 ’91 '95 '99 ’99 '99 B D F H '99 '99 '95 U S+U AGJV VESTURLAND Fylgi i Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 '91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 '99 ’99 ’99 ’99 ’95 B D F H S U S+U agjv NL. VESTRA Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 45 € 30,3% 60,8 -28,t 31,9% -34,2*... 40----38J» 35-3^3 30 25“ 20- 15- 10 5 0 '91 '95 '99 '91 ’95 ’99 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 ’95 B D F H S U S+U agjv 24,8% I 9.4« 1 3ji% 0,2% u AUSTURLAND Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 46,9« -38^%- 32,2% 30,6% 26,3% 21,3 22,5 5 1,2 j 1 1,0» ■ 0,2% '91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 '99 ’95 B D F H S U S+U agjv REYKJANES Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 '91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 '99 '95 B D F H S U S+U agjv VESTFIRÐIR Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 '91 '95 ’99 '91 '95 '99 '99 '99 '99 ’99 ’99 '95 B D F H S U S+U agjv SUÐURLAND Fyigi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999 45 ■seal/ 36,5% 36,0% 33Í 31,6% 0,3% 2^% -28,9« '91 '95 '99 ’91 '95 '99 ’99 '99 '99 '99 ’99 ’95 B D F H S U S+U agjv FRAMSÓKNARFLOKKURINN tapaði fylgi í kosningunum á laug- ardaginn miðað við seinustu kosn- ingar í öllum lyördæmum landsins nema á Vestfjörðum þar sem hann bætti umtalsverðu við sig og á Suðurlandi þar sem hann hélt svipuðu fylgi og hann fékk í kosn- ingunum 1995. Víðast hvar fékk Framsóknarflokkurinn þó svipað fylgi nú og hann fékk í kosningun- um árið 1991. Hann fékk þó tölu- vert minna fylgi á Norðurlandi Miklar sveifiur eystra og nokkru minna fylgi á Austurlandi og Norðurlandi vestra í kosningnnum á laugar- daginn en hann fékk í þessum kjördæmum 1991. Sjálfstæðisflokkurinn jók við fylgi sitt í öllum kjördæmum landsins nema á Vestfjörðum mið- að við seinustu kosningar 1995. Sjálfstæðisflokkurinn bætti hlut- fallslega mestu við fylgi sitt á Reykjanesi (5,4 prósentustigum). Samanlagt fylgi Samfylkingar- innar og Vinstrihreyfingai'innar- græns framboðs varð minna en Al- þýðubandalag, Alþýðuflokkur, Kvennalisti og Þjóðvaki fengu sam- tals í kosningunum 1995 í Reykja- vík, á Reykjanesi og á Vestíjörð- um. Samanlagt fylgi Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar varð hins vegar nokkru meira í öðrum lqördæmum landsins en flokkamir fjórir fengu í seinustu kosningum. ^ Samfylkingin hlaut minna fylgi í kosningunum á laugardagiim en samanlagt fylgi A-flokkanna, Kvennalista og Þjóðvaka 1995 í öll- um kjördæmum landsins nema á Suðurlandi en þar fékk Samfylk- ingin 28,7% samanborið við 28,9% samanlagt fylgi flokkanna Qögurra í kosningunum 1995.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.