Morgunblaðið - 20.06.1999, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
/ /
Arni Isleifsson er þekktur tónlistarmaður sem hefur spilað með öllum helstu hljómlistarmönnum landsins
frá því um miðja öldina og reyndar lengur. A áttunda áratugnum flutti hann til Egilsstaða og hefur um árabil
staðið fyrir árlegum djasshátíðum á Egilsstöðum. Djasshátíð Egilsstaða verður haldin í Hótel Valaskjálf
dagana 24.-26. júní næstkomandi með þátttöku margra þekktra djassleikara innlendra og erlendra.
--------------------------2-------------------7-----------------------------------------------------------
Af því tilefni ræddi Olafur Ormsson við Arna, um feril hans og það sem hann er að fást við í dag.
jA RNI ísleifsson tónlist-
armaður er fluttur til
/ W Reykjavíkur eftir að
/■—hafa búið á Egilsstöð-
/ ^ um í um það bil tvo
wJLm JLa áratugi. Hann býr á
jarðhæð í fjölbýlishúsi við Hraun-
bæ. Ilmur af nýútsprungnum trjá-
gróðri barst inn um glugga í stofu á
heimili Árna og konu hans Kristínar
Axelsdóttur þegar ég heimsótti
Ama í byrjun júnímánaðar.
Veggir í íbúð þeirra hjóna eru
þakktir málverkum og teikningum
og þa.r gefur að líta stórt málverk
eftir Áma Elfar frá árinu 1984, Jazz
og blús, og þar er einnig vandað pí-
anó. Ámi ísleifsson er meðalmaður
á hæð, svolítið feitlaginn, með gráan
hökutopp. Hann er rétt nýlega
kominn á eftirlaunaaldurinn og hef-
ur nóg að starfa. Til að halda sér í
góðu formi fer Ámi ísleifsson oft á
reiðhjóli um Árbæjarhverfið. Það er
bæði holl og góð hreyfing.
Uppruni og æskuár
„Ég er fæddur í Reykjavík árið
1927. Foreldrar mínir era ísleifur
Árnason, prófessor í lögfræði, og
Soffía Gísladóttir Johnsen, dóttir
Gísla J. Johnsen, stórkaupmannns í
Vestmannaeyjum. Ég er bæði ætt-
aður úr Eyjum og Geitaskarði í
Langadal í Húnavatnssýslu.
Ég ólst upp í Reykjavík og dvaldi
oft á mínum bernskuáram á Mó-
bergi í Langadal, bæði að vetri til
og á sumrin. Ég man fyrst eftir mér
í vesturbænum á Túngötu 18. Það
hús byggði afi minn, Gísli J. John-
sen. Við fluttum síðan í hús við
Bergstaðastæti og síðar, eða þegar
ég var kominn á fermingaraldur, í
Norðurmýrina, á Skeggjagötu 2.
Pabbi átti þar hús með Sigurði Sig-
urðssyni berklayfirlækni.“
Ertu alinn upp í stórum systkina-
hópi?
„Við erum fjögur systkinin. Syst-
ir mín, Hildur Sólveig, dó íyrir ald-
ur fram, rámlega þrítug. Þá á ég
systur, Ásdísi, húsmóður og Gísla
Guðmund hæstaréttarlögmann."
Hvernig var að alast upp í
Reykjavík á þriðja og fjórða áratug
aldarinnar?
„Það var mjög ánægjulegt og
margs er að minnast frá þeim árum.
Ég man t.d. vel eftir því þegar
breski herinn kom til Reykjavíkur
10. maí árið 1940. Það var í byrjun
síðari heimsstyrjaldarinnar og þá
var ég tólf ára. Margt breyttist með
komu breska hersins og þá fór að
verða nóg atvinna og kaupið hækk-
aði mánaðarlega í Bretavinnunni.
Menn fengu vinnu úti á flugvelli, við
Reykjavíkurhöfn og víðar í borg-
inni. Byggðin var að teygja sig í all-
ar áttir, braggahverfin að rísa á
Melunum, á Skólavörðuholti og inni
í Laugarnesi.
I næsta nágrenni við okkur á
Skeggjagötunni þar sem Skátabúð-
in er núna við Snorrabrautina var
breska herliðið með slökkvilisstöð
og ég man að við keyptum stundum
hnetusúkkulaði, Baby Rutz, af
bresku hermönnunum og eitthvert
fleira sælgæti.
Ég lauk barnaskólaprófí frá
Austurbæjarbamaskóla og var
fermdur í Dómkirkjunni hjá séra
Bjarna. Við voram fermd sama árið,
ég og systir mín. Ég varð að bíða
eitt ár eftir systur minni, Ásdísi.
Það var dýrt að halda stórar veislur
í þá daga og það var ákveðið að við
fermdumst sama árið í Dómkirkj-
unni. Fermingarveislan var haldin í
Oddfellowhúsinu við Vonarstræti."
I tónlistarnám og
verslunarskólanám
Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrir
tónlist?
„Strax í bamæsku þegar ég var
að spila á orgelið á Móbergi í
Langadal. Tvær systur áttu þetta
orgel og önnur þeirra giftist föður-
bróður mínum, Páli Arnasyni, og
bjó á Glaumbæ. Það varð að sam-
komulagi að hún hefði orgelið yfir
vetrarmánuðina, en þegar ég kom í
sveitina á vorin var það fyrsta verk-
ið að leggja á hestinn Stjarna og ná
í kerru og sækja orgelið út á
Glaumbæ, þannig að ég gæti spilað
á það í sveitinni.