Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 15
Eru rimlagardínurnar óhreinar?
Við hreinsum: Rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúð. Allan
Sækjum og sendum ef óskað er. sólarhringinn.
Tæknihreinsunin
öoineimum 35, sími 533 3634, GSM 897 3634.
Námskeiá í grasalækningum
Anna Rósa Róbertsdóttir
Grasalœknir - Ilmolíunuddari
Verður haldið 27. júní
frá ld. 13 - 17 að Sogavegi 108.
Kennd verður meðferð algengra
íslenskra jurta og sýnd gerð
jurtasmyrsla.
- einkaviðtöl og ráðgjöf -
Skráning ísíma: 561 4646 (e. kl. 20),
Gsm: 6973760
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 B
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
KAMPAKÁTIR veiðimenn við Laxá í Aðaldal, f.v. Jón Helgi Vigfússon, Vigfús B. Albertsson, Jón Helgi
Björnsson og Ingibjörg Sigurjónsdóttir með fallega morgunveiði.
Börnin rót-
fiskuðu í
Elliðavatni
Morgunblaðið/Stefán Á. Magnússon
JOSCHA T. Orloffmeð
silungana sjö.
Segðu Ppiiiince!
Það eiga allir möguleika á verðlaunum í Prince Polo leiknum því
öll svipbrigði eru tekin góð og gild. Eina skilyrðið er að Prince
Polo sjáist vel á ljósmyndinni og að hún sé póstlögð fyrir 10. ágúst
Úrval mynda mun birtast hálfsmánaðarlega í Dagskrárblaði
Morgunblaðsins í allt sumar. „Besta Prince Polo brosið" verður
svo valið og kynnt í blaðinu 18. ágúst. Keppt er um fjölda glæsilegra
vinninga. Taktu þátt og sendu mynd!
Utanáskriftin er: Besta Prince Polo brosið, Pósthólf 8511,128 Reykjavík.
ÁRLEGUR barna- og unglingadag-
ur SVFR við Elliðavatn var haldinn
um síðustu helgi og heppnaðist
prýðilega að sögn Stefáns Á. Magn-
ússonar umsjón-
armanns barna-
og unglingastarfs
SVFR. Alls
mættu 27 félags-
menn 16 ára og
yngri ásamt
systkinum og for-
eldrum. Alls
veiddust 18 urriðar sem vógu á bil-
inu 200 til 350 grömm. Aflakló dags-
ins var Joscha T. Orloff, 12 ára
gamall og nýgenginn í SVFR, en
hann veiddi 7 urriða. í stúlknaflokki
sigraði Ásdís Björg Ólafsdóttir, 14
ára, með fjóra urriða og hún veiddi
einnig stærsta fisk dagsins sem var
350 grömm. Alls voru 9 krakkar
með afla.
Að sögn Stefáns var mikil og góð
stemmning hjá veiðifólkinu og væri
þegar komin mikil eftirvænting eft-
ir næsta dagskrárlið í barna- og
unglingastarfinu, en það eru tveir
veiðidagar í Elliðaánum, annar í júlí
og hinn í ágúst. Síðan yrði klykkt út
í haust með uppskeruhátíð að
vanda.
Rassblauti forstjórinn
Eitt af því sniðugasta sem hér er
selt og framleitt af því sem kalla má
aukabúnað stangaveiðimanna eru
sætaábreiðurnar sem eru fram-
leiddar og seldar í Skóstofunni á
Dunhaga. Lárus Gunnsteinsson
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hann hefði byrjað með þessa fram-
leiðslu fyrir nokkrum árum og væri
nú svo komið að hann hefði ekki
undan. „Nú síðast var hjá mér einn
af þekktari forstjórum í Reykjavík.
Hann var farinn að ganga undir
nafninu rassblauti forstjórinn.
Hann hefur verið
að veiða hér og
þar öll sumur og
bflsætin þornuðu
aldrei á milli. All-
ir farþegarnir
fram í bflnum hjá
honum urðu og
rassblautir. Þess-
ar ábreiður eru sannkölluð þarfa-
þing,“ sagði Lárus.
Stofnar hasla sér völl
Veiði gengur prýðisvel í Tanga-
vatni í Landsveit, en í það er sleppt
eldissilungi sem Sveinn Sigurjóns-
son á Galtalæk, eigandi vatnsins, el-
ur sjálfur . Sveinn sagði í samtali
við Morgunblaðið að hann væri bú-
inn að snúa sér algerlega að urriða
og svo hefði hann sleppt nokkru af
smálaxi að auki. Hann hætti með
bleikju vegna þess hve hún var
dyntótt að taka agn. Urriðinn er
„Skaftfellingur eins og ég sjálfur,"
sagði Sveinn og bætti við að hann
væri af Grenlækjarstofni og svo
skemmtilega vildi til að fiskurinn
heldur silfurlitnum sem menn álíta
að fylgi sjógöngu. „Það er annars
merkilegt, að ég hef séð bleikjur í
vatninu sem eru komnar af hrygn-
ingu eldisfiska og í fyrra fann ég tvo
unglaxa sem leituðu úr vatninu.
Laxinn hefur því einnig hrygnt. Eg
hef giánd sem kemur í veg fyrir að
fiskur sleppi, en til að hafa vaðið
fyrir neðan mig þá hef ég m.a. ekki
afráðið að sleppa regnbogasilungi í
vatnið,“ sagði Sveinn.
MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
KÓPAVOGUR GRAMMAR SCHOOL
Nám sem nýtist þér!
Framhaldsnám á skrifstofubraut
Nú stendur yfir innritun í framhaldsnám á skrifstofubraut
Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á töivunám,
viðskipta- og samskiptagreinar.
Kennt frá 17.20 til 21.00, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga og frá kl. 9.00 til 13.00 á laugardögum.
Inntökuskilyrði: Nemendur sem lokið hafa a.m.k. 5 önnum í
framhaldsskóla eða hafa sambærilega menntun. Þeir nemendur
sem hafa lokið námi af skrifstofubraut Menntaskólans í
Kópavogi ganga fyrir um skólavist. Kennsla hefst 30. ágúst en
innritun stendur yfir til 25. júní.
Upplýsingar veitir kennslustjóri bóknáms milli kl. 9.00 og 15.00.
MENNTASKÓLINN I KÓPAVOGI
Ferðamálaskólinn - Hótel- og matvælaskólinn - Leiðsöguskólinn
Digranesvegur - IS 200 Kópavogur - fsland
Simi/Tel: 544 5510. Fax 554 3961.