Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 12
2 B SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Frumlegir Þeir Chemical-bræður Tom Rowlands og Ed Simons. ÞUNGLYNDISNAUTNASEGGIR sem Noel Gallagher, Oasis-spíra, söng fyrir þá félaga. Það var vís- bending um það hvaða stefnu þeir félagar hygðust taka í framtíðinni og á plötunni nýju, þriðju eiginlegu breiðskífu þeirra, er óvenju mikið um söng af ýmsu tagi. Gallagher lætur aftur til sín heyra á skífunni í prýðis lagi, en aðrir söngvarar sem láta ljós sitt skína eru Bemard Sumner New Order-maður, Bobby Gillespie úr Primal Scream, sem syngur reynd- ar dúett með Sumner, Hope Sandoval úr Mazzy Star og Jonath- an Donahue úr Mercury Rev legg- ur til rödd og gítar í einu lagi. Ekki er bara að þeir félagar séu famir að nota raddir í meira mæli en forðum, heldur em og ýmis til- brigði í tónlistinni, nýir straumar skjóta upp kollinum og eldri hug- myndir birtast í nýju ljósi. Þeir Rowlands og Simons segja að eina markmið sitt með skífúnni hafí ver- ið að setja saman lög sem allir kynnu meta; vildum ekki vera að taka þátt í ein- hverju sem aðrir væm að gera eða gera uppreist, aðeins að setja saman tónlist sem næði til allra og léti þeim sem á hlýddu líða eins vel og okkur leið við gerð plötunnar“, seg- ir Ed Simons og Tom Rowlands heldur áfram: „Við höfum enn mik- ið að segja. Undanfarin tvö ár hafa tónlistarmenn verið iðnir við að vitna hver í annan en vonandi tekst okkur að yfirstíga það og búa tii tónlist sem er meira en summa hugmyndanna sem í hana fóm.“ ÆSINGURINN í kringum breska gítarpoppið hefur sjatn- að að mestu, þó enn teljist sum- ar helstu sveitir Breta tiiheyra þeirri flokkun. Flestar eru þær ráðsettar en inn á milli nýsveitir sem reyna að skapa eitthvað nýtt úr gömlu, þeirra á meðal hljómsveitin Hurricane #1. Hurricane #1, sem dreg- ur nafn sitt af lagi eftir Neil Young, sendi frá sér sína aðra breið- skífu fyrir skemmstu og kallar hana Only the Strongest Will Survive. Fyrri skífu sveitarinnar var vel tekið, en Hurricane #1 vakti fyrst á sér athygli með smáskífunni Step Into My World. Andy Bell, leiðtogi sveitarinn- ar, gítarleikari og lagasmiður, segir að platan nýja sé samin að miklu leyti á tónleikaferð til að kynna frumraunina og þeir fé- lagar hafa einsett sér að reyna að halda stemmningunni af tón- leikahaldi á skífunni. „Upphaf- lega áttu lögin reyndar öll að segja frá þeim stöðum sem við heimsóttum í heimsreisunni, en þegar upp var staðið lukum við ekki við nema eitt slíkt lag sem notað verður sem b-hlið.“ Inn- tak margra textanna er þung- lyndislegt, en Bell þvertekur þó fyrir það að hann sé þunglynd- ur, lögin hafi einfaldlega krafist alvarlegra texta og þegar hann hafi reynt að vera glaðvær hafi það bara ekki gengið upp. „Inn á milli eru svo fjörug rokklög, sem ættu að duga hverjum sem er,“ segir Bell, en bætir við að hægt sé að njóta þunglyndisins eins og höfugs víns. Margur liefur kennt Stones- áhrifa í tónlist Hurricane #1 og Bell segist reyndar hafa mikið dálæti á þeirri sveit; á meðan á upptökum stóð hafi hann hlust- að í sífellu á Goat’s Head Soup með Rollingunum og Mezzanine með Massive Attack sem glöggt megi heyra á lokalagi skífunn- ar. „Ég á gríðarlegt safn af plöt- um og diskum, en þegar allt kemur til alls hlusta ég nánast bara á Stones." m Kií Gítarpopp Liðsmenn Hurricane #1. DÆGURTONLIST TONLISTI BLÓÐINU Áhrifamikið tvíeyki VARLA blandast nokkrum hugur um það að Chemical Brothers er eitt áhrifamesta tvíeyki áratugarins, hvort sem litið er til danstónlistar eða rokksins. Því má halda fram að þeir félagar Tom Rowlands og Ed Simons eigi heiðurinn af einni vinsælustu tónlistarstefnu heims í dag sem menn vilja kalla Big Beat, þótt ævinlega hafi verið erfitt að skipa þeim í ákveðinn bás; til þess eru þeir of forvitnir og hugmyndaríkir. FRÆGASTI tónlistarmaður Norð- manna er líkastil saxófónleikarinn Jan Garbarek. Anja dóttir hans virð- ist hafa erft eitthvað af tónlistarhæfi- leikum fður síns, því hún er óðum að vinna sér nafn sem framúrskarandi frumlegur tónlistarmaður og nefna menn gjaman aðrar söngkonur nor- rænar til samanburðar. Anja Garbarek sendi frá sér breið- skífuna Balloon Mood fyrir skemmstu og hefur fengið fi-amúr- skarandi dóma. Það er þó ekki fyrsta platan sem hún gefur út, Velkommen inn kom út í Noregi fyrir fjórum ár- um. Velkommen inn þótti ekkert sér- stök skífa, þótt ekki færi á milli mála að stúlkan væri efnileg, en allir ljúka lofsorði á Balloon Mood. Gagnrýnendur hafa gjaman dregið nöfn ann- ama norrænna söngkvenna upp úr pússi sínu til Tónlistar- að líkja saman við kona Anja söngstíl og tónlist Garbarek. Önju og nefna þá Björk Guðmundsdóttur og Stinu Nordenstam. Ekki má þó gera of mikið úr slíkum samlíkingum, því aðrir hafa tínt til önnur nöfn og ólík, til að mynda Lenu Lovich, Portis- head, Tricky, Laurie Anderson og svo má telja. þegar upp er staðið er þó ljóst að Önju hefur tekist að skapa sér eigin stíl. Sambýlismaður Önju Garbarek til margra ára er kvikmyndagerðarmað- ur og henni er líka tamt að lýsa tón- list sinni á myndrænan hátt. Hún ferðaðist um heiminn með foreldrum sínum á tónleikaferðum fóðurins í mörg ár og segist hafa dmkkið í sig ólíka stemmningu og tónlist allan uppvöxtinn; síðan hafi spumingin bara verið hvemig henni myndi ganga að vinna úr öllu saman. „Fyrir mér var tónlistin hans pabba alltaf bara væl og flaut, en einu sinni þegar ég var lítil vomm við í Japan og hann að leika á útitónleikum. Þar sem ég leit til Fuji-fjalls og síðan á kirsu- berjatrén í blóma skildi ég skyndilega tónlistina hans og fór að hágráta. Þá vissi ég að ég yrði tónlistarkona, ann- að kom aldrei til greina eftir það.“ eftir Árnn Matthíasson Þeir Rowlands og Simons kynntust í Háskólanum í Manchester, þótt hvorugur sé ætt- aður þaðan. Það var einlægur áhugi á tónlist sem kom þeim saman og hefur haldið sam- starfinu lifandi upp frá því, en það var ekki bara áhugi á einni gerð tónlist- ar, heldur áhugi á tónlist yfirleitt. Rowlands var í hljómsveit á þeim tíma, dansflokkn- um Ariel, en fannst meira gaman að vera plötusnúður með Simons og þeir fóra að spila um allt sem Dust Brothers eftir uppáhalds upptöku- stjómm sínum. Tónlistin sem þeir léku var samkrull af frumhouse- tónlist, sýrðum djassi, fönki, hiphop og almennri danstónlist. Eftir því sem þeir náðu betur tökum á starf- inu fóm þeir að hræra ólíklegri hlutum saman við sem féll gestum svo vel í geð að þeir ákváðu að reyna að setja saman eitthvað sem næði réttu stemmningunni í einu og •Ssama laginu. Fyrsta lagið sem þeir settu saman var endurgerð gamals lags eftir This Mortal Coil og þótti bráðvel heppnað, svo vel reyndar að þeir félagar fengu skyndilega meira en nóg að gera. Þegar Dust Brothers-nafnið fór að sjást á skífum sem seldust vel um allan heim óskuðu hinir upp- mnalegu Dust-bræður eftir að þeir félagar fyndu sér annað nafn og frumlegra. Það var auðsótt og á fyrstu breiðskífunni, sem kom út fyrir fimm ámm, kynntu þeir félag- ar nýtt nafn, Chemical Brothers. Fyrsta skífan, Exit Planet Dust, gekk bráðvel og næsta enn betur. A -mþeirri plötu, Dig Your Own Hole, '*bar meðal annars merkilegt lag Dauðapopp Fríðleikspiltarnir í Orgy. wmœm .ÞUNGLYNDISLEGT DAUÐAPOPP HELSTA rokksveit Bandaríkjanna nú um stundir er Kom sem hefur náð árangri með því að vera sjálfri sér trú. Þeir Kom-liðar reka eigin útgáfu og fyrsta sveitin sem ráðin var til þeirrar útgáfu var Orgy sem vakið hefur mikla athygli. Orgy svipar reyndar ekki til Kom nema að þvi leyti að báðar leika sveitimar kröftugt rokk, Orgy þó með meira af hljóðgervlum og hljómborðum en Kom-félagar, og enn myrkari textum. Lagið flpem vakið hefúr hvað mesta athygli á sveitinni, Blue Monday, er reyndar ekki eftir hana, heldur gamalt lag eftir New Order-liða. í útgáfu Orgy-manna verður það enn þunglyndislegra en forðum og þá miklu til jafnað, og annað í frumraun sveitarinnar er áþekkt, samsteypa af þungu rokki og hörðum techno-hljómum. Orgy er sprottin úr rokkgörðum Kalifomíu, en ólíkt sveitum eins og Kom höfðu þeir Orgy-félagar lítið látið á sér kræla þar til þeir sendu frá sér fyrstu breiðskífuna. Þeir segjast þó eiga sér lengri sögu í rokkinu en ráða megi af þessu, allir hafa þeir verið að í á annan áratug í ýmsum hljómsveitum á vesturströnd Bandaríkj- anna. Á þeim ámm léku liðsmenn Orgy ólíka tónlist hver fyrir sig, sem þeir segja hafa getið af sér nýja gerð tónlistar og kjósa að kalla „dauðapopp". Blue Monday í búningi þeirra Orgy-manna hefur notið mikilla vinsælda en fmmraun sveitarinnar, Candyass, misjafnlega tekið. Þeir taka þó öllu með ró, enn eigi sveitin eftir að fara í sína fyrstu heimsreisu og sanna sig. Þeir Kom-félagar hafa heldur ekki áhyggjur af skjólstæðingum sínum; „stelpumar fíla þá“, segir Jonathan Davis söngvari Kom, og bætir við: „og strákamir elta þær“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.