Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Lazio með
nýtt tilboð
í Anelka
LAZIO hefur nú gert Ar-
senal um 2,5 milljarða tilboð
í Nicolas Anelka og vill fá
svar fyrir miðja vikuna.
Lazio-menn segja þetta vera
Iokatilboð. Samningurinn
sem Anelka hefur verið boð-
inn er til fimm ára og laun á
því tímabili alls rúmur millj-
arður eða um 8,3 milljónir á
viku. Að auki mun Lazio
þurfa að greiða tæpar 800
milljónir til að friða Real
Madrid, sem gerði einnig til-
boð. Forráðameim Lazio
virðast staðráðiúr I að hætta
tilboðum í Anelka hafni Ar-
senal boðinu. Þeir eni sagð-
ir hafa undirbúið 1,7 millj-
arða boð í argentínska
landsliðsmanninn Claudio
Lopez, leikmann Valencia.
toúm
FÖLK
■ DAVID Bevis körfuknattleiks-
maður, sem leikið hefur með ísfirð-
ingum og Skagamönnum, verður
með Þór, Akureyri, næsta vetur í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
■ JOHN McEnroe leikur nú í síð-
asta sinn á Wimbledon-tennismót-
inu. I þetta sinn leikur hann í
tvenndarleik með Steffi Graf, sem
nýverið sigraði á Opna franska
meistaramótinu. McEnroe, sem nú
er 40 ára, hefur unnið einliðaleik á
Wimbledon þrisvar, tvfliðaleik
þrisvar og tvenndarleik einu sinni.
■ YAGO Lamela frá Spáni stökk
8,49 m í langstökki um helgina.
Þetta er lengsta stökk ársins utan-
húss og lengsta stökk Evrópu-
manns í næstum 12 ár. Lamela
hafnaði í öðru sæti á heimsmeist-
aramótinu innanhúss í mars.
■ JAN Ullrích, Þjóðverjinn sem
sigraði Tour de France árið 1997,
tekur ekki þátt í keppninni í ár
vegna hnémeiðsla.
■ DAN Petrescu, landsliðsmaður
Rúmena og leikmaður Chelsea,
gæti verið á leiðinni til tyrkneska
liðsins Fenerbache. Hann er 31 árs
og verðlagður á 1,3 milljónir punda.
■ SHEFFIELD Wednesday er til-
búið að greiða þrjár milljónir punda
fyrir 0yvind Leonhardsen sem hef-
ur verið hjá Liverpool. Tottenham
hefur einnig sýnt áhuga á að kaupa
norska landsliðsmanninn.
■ CARLOS Gamarra, landsliðs-
maður Paraguay, skrifaði í gær
undir samning við spænska liðið
Atletico Madrid. Hann hefur leikið
með brasilíska liðinu Corinthians
og var útnefndur besti varnarmaður
Brasilíu síðasta tímabil. Hann gerði
fjögurra ára samning við spænska
liðið sem greiddi 6,25 milljónir doll-
ara eða 450 milljónir íslenskra
króna fyrir leikmanninn.
■ FRODE Grodas, landsliðsmark-
vörður Norðmanna, fer aftur til
þýska liðsins Schalke í sumar.
Hann hefur verið í láni hjá spænska
liðinu Racing Santander síðan í
apríl og hafnaði eins árs tilboði frá
félaginu og fer aftur til Þýskalands.
■ MICHELE Serena, leikmaður
Atletico Madrid, er á leið til Parma
á ítah'u. Hann er ítalskur landsliðs-
maður og hefur verið í herbúðum
Atletico eitt tímabil, en hafði áður
leikið þrjú tímabil með Fiorentina.
Hann mun væntanlega skrifa undir
þriggja ára samning við Parma.
Hann leikur síðasta leik sinn með
Atletico í bikarúrslitaleiknum gegn
Sevilla 26. júní.
Félagarnir ætla
sér lengra
- mun lengra
Alla drengi, sem einhvern tíma hafa leikið sér með
fótbolta, hefur dreymt um að leika listir sínar fyr-
ir framan tugþúsundir æstra aðdáenda. Sumir
komast þó nær því en aðrir og Orn Arnarson
ræddi við tvo knattspyrnumenn af Suðurnesjum
sem hafa atvinnu af íþrótt sinni í Englandi. Hauk-
ur Ingi Guðnason er hjá hinu fornfræga félagi
Liverpool, fór sem sagt úr bítlabæ í bítlaborg, en
Jóhann B. Guðmundsson er launamaður hjá
Watford, sem komst upp í úrvalsdeildina í vor.
Sumir hafa í þessum dagdraum-
um sínum skorað mikilvæg
mörk á síðustu sekúndu og tryggt
sínu liði Evrópumeistaratitil, aðrir
hafa jafnvel hampað bikar fyrir Is-
lands hönd að lokinni vel heppnaðri
heimsmeistarakeppni.
Lífið er nú samt þannig að fæstir
fá þessa drauma uppfyllta. Sumir
komast þó nær því en aðrir og vin-
irnir tveir af Suðurnesjum eru gott
dæmi um það.
En hvemig gerist það að menn
fara frá því að sparka tuðrum í
garðinum heima í það að verða at-
vinnumenn erlendis? Bæði Haukur
og Jóhann hafa leikið sér með bolta
frá æskuárum og vöktu snemma á
sér athygli fyrir hæfni og vasklega
framgöngu á vellinum. Utsendarar
erlendra liða voru staddir hér á
landi þegar átta liða úrslit í Evr-
ópukeppni landsliða undir 18 ára
var haldin.
„Eftir keppnina var mér boðið að
fara til PSV Eindhoven, Arsenal og
Liverpool,“ segir Haukur aðspurð-
ur um hvernig það hefði atvikast að
hann fór í atvinnumennskuna. „Eg
æfði í viku hjá hverju liði og að lok-
um tók ég ákvörðun um að ganga
til liðs við Liverpool.“
Haukur hafði alltaf verið mikill
Arsenal-aðdáandi, hvers vegna fór
hann ekki til Lundúna? „Liverpool
sýndi mér mestan áhuga og for-
ráðamenn félagsins vildu fá mig
strax til sín. Ég var líka mjög hrif-
inn af umgjörðinni í kringum félagið
og andrúmsloftið var mjög vinalegt.
Eg fann það á mér að þarna yrði
gott að vera.“ Haukur gerði samn-
ing við félagið fram til ársins 2001.
Jóhann B. Guðmundsson vakti
athygli á sér þegar hann lék með
Keflavík. Einn af þjálfurum Wat-
ford-liðsins var staddur hér á landi
og bauð honum að koma út. „Ég
var úti í Watford í þrjár vikur og
stóð mig vel og forráðamenn liðsins
vildu kaupa mig frá Keflvík,“ en til-
boðinu var hafnað. „Það var mjög
leiðinlegt að Keflavík skyldi hafa
hafnað tilboðinu en ég tók gleði
mína aftur þegar það fréttist að
Genk í Belgíu hefði áhuga á mér.“
Genk gerði Keflvíkingum tilboð í
Jóhann en því var einnig hafnað.
Það var ekki fyrr en Watford gerði
annað tilboð að Keflvíkingar þáðu
það og þar með varð Jóhann orðinn
atvinnumaður, rúmum þrem mán-
uðum eftir að vinur hans Haukur
var kominn til Liverpool. Jóhann á
eitt ár eftir af samningi sínum en
segir að viðræður um framlengingu
séu á döfinni.
Lífið í Englandi
Bæði Haukur og Jóhann leigðu
herbergi hjá enskum fjölskyldum
þegar þeir fluttu út. „Ég bjó hjá
ágætri fjölskyldu í þrjá mánuði og
keypti mér svo íbúð. Það hjálpaði
mikið að búa hjá þessu fólki. Maður
fékk smjörþefinn af þessum enska
lífsstfl og kynntist fólki,“ segiri
Haukur. „Maður var enginn snill-
ingur í heimilishaldi þegar maður
kom út, en með elju og stöðugum
símtölum við mömmu er maður far-
inn að bjarga sér,“ bætir Jóhann
við;
Islendingar ferðast unnvörpum
til Bretlandseyja til að gera kjara-
kaup og kanna hina rómuðu pöbba-
menningu, en hvernig eyða íslend-
ingar sem búa þar að staðaldri frí-
stundum sínum? „Maður horfir
mikið á sjónvarpið, röltir um bæinn
og tekur því rólega," segir Haukur.
„Við Jóhann tölum einnig mikið
saman í síma, allt að tvo tíma á dag,
og reynum að hittast eins oft og
mögulegt er.“ En þeir félagar eru
mjög nánir vinir og hafa verið síðan
þeir léku saman með Keflavík.
„Maður reynir bara að hafa ofan af
fyrir sér. Við erum báðir með tölv-
ur og leikum okkur í þeim,“ segir
Jóhann. „Haukur er alltaf að
hringja í mig og segja mér hvað
hann sé búinn að skora mörg mörk
í Championship Manager, hann
hringir örugglega líka í Houllier og
segir honum frá afrekunum."
Haukur vildi ekki viðurkenna að
hann hefði gi'ipið til þeirra ráða til
að fanga hug franska framkvæmda-
stjórans, en fannst hugmyndin ekki
vond með öllu.
Vonbrigði í Liverpool
Lið þeirra Hauks og Jóhanns
hafa átt ólíku gengi að fagna í vet-
ur. Liverpool hefur ekki gengið
jafn illa síðan sjálfur Bill Shankly
tók við liðinu meðan Watford kom
öllum á óvart komst upp í úrvals-
deildina eftir að hafa sigrað Bolton
í úrslitaleik á Wembley um sætið í
deildinni. Þeir félagar koma frá
vetrinum með ólíka reynslu að baki.
Haukur segir að tímabilið hafi
vissulega verið erfitt. „Það eru
gerðar miklar kröfur til Liverpool-
liðsins. Roy Evans var með liðið í
fimm ár og var með besta árangur-
inn á eftir Alex Ferguson, en það
var ekki nógu gott.“ Eins og flestir
vita var Evans látinn taka poka
sinn á miðju tímabili og Gerrard
Houllier tók við fullri stjórn liðsins
en árangurinn lét samt sem áður á
sér standa og það lenti í sjöunda
sæti í deildinni. „Liverpool-aðdá-
endur sætta sig bara við það besta
og fyrir þeim er sjöunda sætið
martröð. Og martröðin er enn
skelfilegri í ljósi góðs gengis erkió-
vinarins Manchester United.
Houllier mun þurfa nokkur ár til að
byggja upp liðið, en ég held að ef
við vinnum ekki titil á næstu tveim-
ur árum þá verði komin mikil
pressa á hann.“
En heldur Haukur að Houllier
muni takast að breyta liðinu? „Það
er aldrei að vita. Mér skilst að þess-
ir menn sem hann hefur verið að
kaupa séu góðir þótt þeir séu ekki
mjög þekktir. Það þarf minna til að
Liverpool komist á sigurbraut en
menn vilja láta í veðri vaka.“
Er óskrifað blað
hjá Houllier
Haukur byrjaði vel hjá Liverpool
og eftir að hafa æft í nokkra mán-
uði hjá félaginu var hann kominn á
varamannabekkinn hjá aðalliðinu.
„Mér gekk mjög vel undir stjórn
Evans. Lék vel á æfingum og með
varaliðinu. Ég var á bekknum í
þrem leikjum undir lok fyrsta tíma-
bilsins hjá félaginu og lék nokkra
vináttuleiki um vorið.“ Framtíðin
brosti við Hauki þegar hann fór aft-
ur til Liverpool eftir stutt sumarfrí
og leið hans upp á við hjá félaginu
hélt áfram. Hann lék með liðinu í
fyrstu æfingaleikjunum og var á
bekknum þegar liðið lék á móti Int-
er Milan.
En það kom að því að síga fór á
ógæfuhliðina. „Ég meiddist
snemma um haustið. Ég komst aft-
ur á varamannabekkinn þegar ég
var búinn að ná mér en það stóð
stutt yfir. Ég meiddist fljótlega aft-
ur og á meðan dundu öll ósköpin yf-
ir varðandi þjálfaraskiptin."
Eftir að Houllier tók við af
Evans hefur Haukur lítið leikið
vegna meiðsla. „Fyrir Houllier er
ég óskrifað blað. Hann hefur ekki
séð mig leika þegar ég er í leikæf-
ingu. Þess vegna verður það mikil-
vægt fyrir mig að mæta í góðri æf-
ingu þegar liðið kemur saman eftir
sumarfrí. Ég hef trú á því að ég
geti náð langt undir stjórn hans svo
lengi sem ég er heill heilsu,“ segir
Haukur með það mikilli sannfær-
ingu að það er hreinlega erfitt að
ímyndað sér annað en að hann eigi
eftir að ná langt.
Aðdáendur Liverpool gera mikl-
ar væntingar til Houlliers og marg-
ir telja að hann geti stýrt liðinu í átt
til nýrrar gullaldar. Enginn veit
hvort það verður en hins vegar er
öllum Ijóst að hann beitir öðrum
starfsaðferðum en Evans. „Houllier
er mjög lærður þjálfari og er afar
fróður um knattspyrnu og veit út á
hvað hún gengur. Evans var með
aðrar áherslur. Hann er gull af
manni og gaf sér mikinn tíma tfl
þess að sjá um leikmennina sjálfa.
Honum var annt um velferð þeirra
og reyndi að láta öllum líða vel,“
segir Haukur aðspurður um mun-
inn á framkvæmdastjórunum
tveim.
Draumatímabil hjá Watford
Watford átti í engum erfiðleikum
með þjálfaramál á síðasta tímabili.
Reyndar var liðið laust við alla erf-
iðleika og allt gekk upp. Liðið kom
öllum á óvart og komst upp í úr-
valsdeildina. „Þetta er búið að vera
ótrúlegt tímabil og stemmningin í
liðinu er búin að vera ólýsanleg,"
segir Jóhann og ljómar allur þegar
hann rifjar upp sigurstundina.
„Fólk var dansandi á götum úti
þegar við komum heim frá
Wembley.“
Watford er lítill bær með um
fjörutíu þúsund íbúa í útjaðri
London og Jóhann segh- að mikill
áhugi sé fyrir liðinu í bænum. „Það
fá allir áhuga þegar liðinu gengur
vel. Til að mynda komu mun fleiri
en fjörutíu þúsund manns til að
styðja okkur á Wembley.“
Jóhann byi'jaði vel með Watford.
Hann fékk tækifæri til að spreyta
sig með aðalliðinu þegar hægri bak-
vörður liðsins meiddist. „Eg kom
fyrst inn á móti Bolton og stóð mig
ágætlega. Ég var í byrjunarliðinu í
næsta leik og skoraði þá bæði mörk
liðsins í 2:2 jafnteflisleik. Það var
ólýsanleg tilfinning að heyra áhorf-
endur kyrja nafn mitt eftir að ég
skoraði mörkin."
Eftir þessa góðu byrjun fékk Jó-
hann fá tækifæri með aðalliðinu.
„Framkvæmdastjórinn hefur
ákveðnar hugmyndir um hvernig er
best að stilla upp liðinu og við því er
ekkert að segja. Maður bíður bara
eftir næsta tækifæri. Það er líka
erfitt að komast í liðið þegar því
gengur jafn vel og raun ber vitni.
Ég hef spilað mjög vel með varalið-
inu og ég sé enga ástæðu til að ör-
vænta.“
Jóhann lætur mjög vel að félög-
um sínum í Watford. „Það er eng-
inn með stjörnustæla og aflir eru að
Stoichkov til Watford?
BÚLGARSKIR fjölmiðlar greindu frá því að Graham Taylor,
framkvæmdastjóri Watford, hafi reynt að fá Hristo Stoichkov
til liðsins. Stoichkov, sem er 33 ára, lék sinn síðasta landsleik á
móti Englendingxim á dögunum. Hann hefur sagt að hann hafi
áhuga á að halda áfram að leika knattspyrnu og þá helst í
Evrópu, en hann leikur nú í Japan með liðinu Kashiwa Reysol.
Taylor hefur sagt að Stoichkov geti haft upp á mikið að
bjóða fyrir Watford. Ef Stoichkov hefur áhuga er búist við að
viðræður fari í gang seinna í þessari viku.
Taylor á einnig í viðræðum við ítalska varnaijaxlinn
Guiseppe Bergomi. Bergomi er 36 ára gamall og verður laus
allra mála hjá liði sínu, AC Milan, í sumar. Þrátt fyrir aldurinn
er Bergomi talinn til betri varnarmanna í ítalska boltanum.
Taylor er samt ekki einn um hituna því nokkur bandarísk Iið
hafa sýnt því áhuga að fá Bergomi í sínar raðir.