Morgunblaðið - 22.06.1999, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
„Anægð-
ur með
stigið“
Sigurður Grétarsson, þjálf-
ari Breiðabliks, var ósátt-
ur við sóknamýtingu sinna
manna, en viðurkenndi að
miðað við lokamínútur leiks-
ins mættu Breiðabliksmenn
gera sig vel ánægða með jafn-
tefli.
„Við fengum fjölmörg færi
til að skora, m.a. skot í stöng í
hvort í sínum hálfleiknum, og
þannig má segja að við höfum
verið óheppnir að komast ekki
yfir í leiknum. En við vorum
síðan heppnir að jafna undir
lokin þegar aðeins nokkrar
mínútur voru eftir. Eftir á að
hyggja er ég því mjög ánægð-
ur með stigið.“
Byrjun ykkar í deildinni
hefur verið mjög góð og þið
voruð taldir sigurstranglegrí
gegn Víkingum. Var það of
mikil pressa fyrirykkur?
„Eg veit ekki hvort það er
erfiðara fyrir okkur að stjóma
leikjum, en það vai' alltént
mjög erfitt í dag. Við náðum
ekki að spila þann fótbolta
sem við höfum spilað hingað
tfl og sérstaklega gekk okkur
illa að láta boltann rúlla. Það
var allt of mikið af tilgangs-
lausum kýlingum fram völlinn
frá báðum liðum. Leikurinn
var því ekki áferðai-fallegur á
að horfa og við verðum bara
að horfa til næsta leiks og
reyna að gera betur þá.“
í fyrstu leikjunum hafíð þið
skapað ykkur mörg mark-
tækifæri, en nýtingin er
kannski ekki mjög góð?
„Nýtingin er alls ekki nógu
góð, það er rétt og við verðum
að laga það í næstum leikjum.
Svo er heppnin ekki alltaf á
okkar bandi og t.d. skutum við
tvisvar í stöngina í þessum
leik. Vonandi breytist það í
næstu leikjum."
„Ótrúlega svekkjandi“
Sumarliði Árnason, sem
skoraði mark Víkinga í leikn-
um, var afar daufur í dálkinn
eftir leikinn. Annan leikinn í
röð náði hann forystu fyrir lið
sitt í jöfnum leik, en þurfti svo
að horfa upp á jöfhunarmark
undir lokin.
„Þetta var alveg ótrúlega
svekkjandi og ég hreinlega
skil þetta ekki,“ sagði Sumar-
liði. „Fyrst og fremst hlýtur
þetta að vera einbeitingar-
leysi af okkar hálfu. Við skor-
uðum og fengum tækifæri til
að skora fleiri mörk áður en
þeir jöftiuðu. En við nýttum
ekki þau færi og ég veit eigin-
lega ekki hvað skal segja við
svona.“
Blikar áttu þó hættulegri færi
áður en þér tókst að skora?
„Jú, og við eigum að geta
leikið miklu betur en við gerð-
um í þessum leik. Það var
hreinlega á stundum, sérstak-
lega í fyrri hálfleik, eins og við
kæmumst ekki upp úr fyrsta
gímum. Skiptingin í seinni
hálfleik hjálpaði þó til og við
náðum aukinni pressu á Blik-
ana. En það er hrikalegt að
tapa unnum leikjum niður á
lokamínútunum - alveg hreint
rosalega sárt. Það má segja að
við höfum tapað fjórum stig-
um í tveimur síðustu leikjum
og maður á eflaust eftir að
rifja þetta oft upp í huganum.
En það þýðir ekkert að gefast
upp - næsti leikur er strax á
miðvikudagskvöld [annað
kvöld] heima gegn Eyjamönn-
um og þá verðum við að vera
tilbúnir,“ sagði Sumarliði, sem
nú er meðal markahæstu
manna deildarinnar, með fjög-
ur mörk í sex leikjum.
KNATTSPYRNA
I
:
Morgunblaðið/Jim Smart
SUMARLIÐI Árnason, framherji Víkinga, er sloppinn inn fyrir vörn Breiðabliks og eftirleikurinn var auðveldur - mark á 74. mín.
Enn glutra Víking-
ar niður stigum
VÍKINGAR glutruðu niður sigri í jafntefli á lokamínútunum gegn
Breiðabliki á Kópavogsvelli á sunnudag, rétt eins og þeir höfðu
gert viku áður á Laugardalsvelli gegn Grindvíkingum. Lyktir
leiksins i Kópavogi urðu 1:1-jafntefli og verða það að teljast
sanngjörn úrslit í fremur kaflaskiptum leik þar sem heimamenn
höfðu frumkvæðið lengst af en voru svo stálheppnir að fá stig-
unum skipt undir lokin.
Breiðablik hefur komið liða mest
á óvart í sumar, m.a. náð fjór-
um stigum af toppliðunum IBV og
KR. Velgengni liðsins
Björntngi hefur vakið athygli,
Hrafnsson enda er það nýliði í
skrifar deildinni. Leiksins
gegn Víkingum - hin-
um nýliðum deildarinnar - var því
beðið með talsverðri eftirvæntingu
og með sigri hefðu Blikar blandað
sér alvarlega í baráttuna á toppi
deildarinnar.
Velgengnin í upphafi móts hefur
þó ekki stigið Blikum til höfuðs ef
marka má leikskrána sem dreift var
til áhorfenda fyrir leik. Undir yfir-
skriftinni „Höldum okkur á jörð-
inni“ er fjallað um gott gengi liðsins
í fyrstu leikjunum en jafnframt á
það minnt að gengi í íþróttum geti
verið fallvalt og nefnt sem dæmi að
Þróttarar hafi haft 13 stig og góða
markatölu eftir fyrri umferð í fyrra
en samt orðið að bíta í það súra epli
að falla niður í 1. deild.
Slík vamaðarorð eru mælt af
skynsemi og greinilegt er að í
Kópavogi er ekki tjaldað til einnar
nætur í knattspymunni.
Sterkur vindur setti mjög svip
sinn á viðureign liðanna á sunnudag
og kom hann að mestu í veg fyrir
skipulegt spil. Þannig áttu langar
sendingar það til að breyta skyndi-
lega um stefnu og eins gekk leik-
mönnum bölvanlega að finna sam-
herja á stundum.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
þessu og liðin skiptust á um að hafa
frumkvæðið. Flest færin féllu
heimamönnum í skaut, það besta
þegar Kjartan Einarsson fékk
knöttinn á auðum sjó í vítateig Vík-
inganna eftir hálftíma leik en var
alltof seinn að athafna sig. í stað
þess að skjóta sendi Kjartan á Ivar
Sigurjónsson og ágætt skot hans
small í stöng Víkingsmarksins og
þaðan út af.
Víkingar fengu einnig nokkur
hálffæri og næst komust þeir því að
skora þegar ágætur skalli Hauks
Úlfarssonar smaug, eftir horn-
spymu, rétt fram hjá stönginni.
Heimamenn urðu að gera breyt-
ingu á liði sínu í leikhléi því Guð-
mundur Karl Guðmundsson meidd-
ist undir lok fyrri hálfleiksins. í hans
stað kom nafni hans Gíslason og átti
ágæta spretti á hægri kantinum.
Þrjár skiptingar Víkinga
Annars var heldur fátt um fína
drætti lengi fram eftir seinni hálf-
leik, utan þess að Marel Baldvins-
son skaut í stöng úr upplögðu færi
og þar sluppu Víkingar aftur með
skrekkinn. Við svo búið gerði Lúkas
Kostic, þjálfari Víkinga, þrjár
breytingar á liði sínu og virtist það
bera tilætlaðan árangur; meiri
kraftur hljóp í sóknarleik liðsins og
sendingar gengu betur á milli
manna. Atti það einkum við um
sóknarmanninn Arnar Hrafn Jó-
hannsson, að betur færi ef hann
sendi stundum á samherja í stað
þess að einblína á eigin möguleika í
stöðunni.
Eftir fremur harða hríð Blika að
marki Víkinga kom svo fyrsta
markið í leiknum - og það skoruðu
Víkingar. Arnar Hallsson sendi þá
laglega sendingu langt upp völlinn
og Sumarliði Ai'nason sýndi mikla
snerpu, sneri af sér varnarmann og
sendi knöttinn laglega fram hjá
Atla Knútssyni markverði.
Skömmu síðar munaði minnstu að
Sumarliði endurtæki leikinn nánast
alveg en ágætt skot hans fór rétt
fram hjá.
Það stefndi því í heldur óvæntan
sigur gestanna er Blikar björguðu
málunum með jöfnunarmarki. Arn-
ar Hallsson braut þá á Guðmundi
Páli, sem reyndi að leika knettinum
inn í vítateig, og Kjartan Einars-
son skaut hörkuskoti að marki úr
aukaspyrnunni. Ekki vildi betur til
en svo að Gunnar S. Magnússon,
markvörður Víkinga, varði en hélt
ekki knettinum og eftirleikurinn
var næsta auðveldur fyrir fyrirlið-
ann, Hákon Sverrisson, sem jafn-
aði metin með skoti nánast af
marklínu.
Skömmu síðar flautaði Gylfi
Orrason, mjög góður dómari leiks-
ins, til leiksloka og ekki var laust við
að heimamenn önduðu léttar en
vonbrigði Víkinga voru að sama
skapi mikil. Annan leikinn í röð
höfðu þeir glutrað mikilvægum sigri
niður í jafntefli á lokamínútunum og
verða að skrúfa fyrir þann leka í
næstu leikjum.
Bestur í liði heimamanna var fyr-
irliðinn Hákon Sverrisson sem vann
vel og lék af skynsemi. Þá var Mar-
el Baldvinsson að venju skeinuhætt-
ur í fremstu víglinu en fékk ekki að
þessu sinni nægan efnivið að moða
úr. I vöminni sást að það munaði
um Che Bunce sem farinn er heim
til Nýja-Sjálands að leika með liði
þjóðar sinnar í Álfukeppninni í
knattspyrnu.
Bestur Víkinga var framherjinn
Sumarliði Árnason en ávallt skap-
aðist mikil hætta í kringum hann.
Þá áttu þeir Gordon Hunter og
Arnar Hallsson ágætan leik og eins
verður þjálfarinn Lúkas Kostic að
fá prik fyrir þrefalda skiptingu sína
í seinni hálfleik - sem færði aftur líf
í leik Víkinga. Þar sýndi þjálfarinn
að hann þorir að taka áhættu. Jafn-
víst er að Lúkas á eftir að velta
jöfnunarmarkinu vel og lengi fyrir
sér.
Bjarki Pétursson treysti
sér ekki til að leika
BJARKI Pétursson, framherji Blikanna, var ekki í byrjunarliði
þeirra eins og til stóð. Leikmaðurinn var á skýrslu, en skðmmu
fyrir leik kom í [jós að hann hafði ekki heilsu til að leika og var
þvf ívar Sigurjónsson settur í framlfnuna f hans stað.
„Bjarki átti að leika, en treysti sér svo ekki til þess skömmu fyr-
ir leik,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari liðsins. Hann nefndi
einnig að Kjartan Einarsson, miðjuleikmaður liðsins, hefði átt við
veikindi að stríða dagana fyrir leikinn, en hefði þó getað spilað
þegar að leiknum kom.