Morgunblaðið - 22.06.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 B 7
Ný gullöld í
Safamýrirmi?
Verðum að
halda áfram
á sömu braut
FRAMARAR minntu rækilega á
sig sem eitt af toppliðum efstu
deildar með sætum 2:0-sigri á
sterku liði Leifturs frá Ólafs-
firði á Laugardalsvelli á
sunnudagskvöld. Lokatölur
leiksins segja ekki alla sög-
una, því gestirnir frá Ólafsfirði
sóttu oft hart að marki
Framara og voru á köflum
hreinustu klaufar að ná ekki
að skora. Þess vegna hlýtur að
vera umdeilanlegt hvort sigur
Safamýrarliðsins hafi verið
sanngjarn, en að því er ekki
spurt í íþróttum og stigin þrjú
féllu Frömurum í skaut og eru
þeir nú eina taplausa lið deild-
arinnar. Vesturbæingurinn
Hilmar Björnsson, sem er í láni
frá sænska liðinu Helsingborg,
lék sinn fyrsta leik með Fröm-
urum; fann sig vel og skoraði
seinna mark liðsins. Ekki ama-
leg byrjun það.
Sú var tíðin fyrir ekki ýkja mörg-
um árum að Safamýrarsveinar
stóðu sig öðrum piltum betur í knatt-
■■■■■■ spyrnunni hér á
Björn Ingi landi. Á síðustu árum
Hrafnsson níunda áratugarins
skrífar og fyj-gtu árum þess
sem nú líður senn
stjómaði Ásgeir Elíasson sannköll-
uðu „gullaldarliði" sem var ávallt í
keppni um titla og áhorfendur
flykktust að til að leika skemmtilega
knattspyrnu. Sú „gullöld" leið og
þjálfarinn tók að sér landsliðið með
ágætum árangri, en liðið hans gamla
lenti í djúpum dal og svo fór að það
féll niður um deild. Ekki stóð sá tími
lengi, því Ásgeir mætti aftur til leiks
og náði strax að komast á ný í keppni
þeirra bestu. Á þriðja uppbyggingar-
ári Ásgeirs Elíassonar í efstu deild
er svo komið að Framarar eru í hópi
efstu liða að loknum þriðjungi móts,
hafa tíu stig og virðast á nokkurri
uppleið. Enn er eftir að sníða af
ýmsa galla á leik Safamýi’arliðsins,
og enn er of snemmt að segja nýja
„gullöld“ hafna í Safamýrinni. En
svo mikið er víst að þar eru aðdáend-
ur Framliðsins aftur farnir að sjá
góða knattspymu og lagleg tilþrif og
með sama framhaldi er „gullöldin“
hin síðari ekki langt innan seilingar.
Breytingar Ásgeirs
Leikur liðanna fór fjörlega af stað
og leikmenn nutu þess greinilega að
leika knattspymu í prýðisveðri. Ás-
geir þjálfari hafði gert nokkrar
breytingar á liði sínu frá jafnteflis-
leik við Eyjamenn í deildinni helgina
áður. Ásmundur Arnarson, Valdimar
Sigurðsson og Sævar Guðjónsson
máttu sætta sig við að vera settir á
bekkinn, en í þeirra stað vom mættir
í byrjunarliðið Höskuldur Þórhalls-
son, Sævar Pétursson og svo auðvit-
að Hilmar Bjömsson.
Fyrsta færið féll í skaut heima-
manna og náðu Leiftursmenn að
bjarga á línu frá Marcel Oerlemans
eftir laglegan einleik Freys Karls-
sonar upp völlinn. Framarar höfðu
undirtökin í upphafí leiks og svo var
að sjá sem gestimir væm ekki alveg
tilbúnir í átökin. Þeim óx þó smám
saman ásmegin og fengu hreint og
beint stórkostlegt tækifæri til að
komast yfír á 22. mín., en færeyski
sóknarmaðurinn Uni Arge brenndi
þá af á markteig á næsta óskiljanleg-
an hátt. Heiðuriún allan að því færi
átti Brasilíumaður Santos, sem sól-
aði vamarmenn Framara svo upp úr
skónum að þeir vissu ekki hvort þeir
væm að koma eða fara, en Arge,
sem fékk knöttinn óvænt, var greini-
lega ekki viðbúinn og misheppnað
skot hans fór beinustu leið í fang
Olafs Péturssonar markvarðar.
Skömmu síðar tókst Frömurum
svo að ná forystu. Hilmar Bjömsson
Morgunblaðið/Jim Smart
HILMAR Bjömsson átti stórleik með Frömurum í fyrsta leik sfn-
um með liðinu. Hér er kominn á fleygiferð, en Steinn V. Gunn-
arsson getur hann lítið gert annað en horft í humátt á eftir.
átti þá ágæta rispu upp miðjuna
hægra megin, gaf fyrir á Oerlemans
sem skallaði að marki og Leifturs-
menn náðu að skalla aftur frá. Ekki
vildi þó betur til en svo að Höskuldur
Þórhallsson fékk knöttinn, skallaði
hann í loftið og fékk hann svo aftur í
sig og þaðan fór hann í netið. Af-
skaplega slysalegt mark og skondið
- en dýrmætt fyrir því.
Leiftursmenn komust næst því að
jafna í fyrri hálfleik er Santos átti
hörkuskalla rétt framhjá markinu og
staðan var því 1:0 í leikhléi, Frömur-
um í vil.
Seinni hálfleikur hófst fjörlega og
greinilegt var að Ólafsfirðingar ætl-
uðu að jafna metin. Uni Arge var
áfram afar skeinuhættur, en hafði þó
ekki erindi sem erfíði upp við markið
þrátt fyrir fjölmargar heiðarlegar
tilraunir. Ekki verða miðjumenn
Leifturs sakaðir um að hafa svelt
framlínumenn sína af sendingum, en
inn vildi knötturinn af einhverjum
völdum ekki; stundum kom til ágæt
markvarsla Ólafs Péturssonar og
stundum smaug knötturinn rétt yfir
eða framhjá.
Ákafír sóknartilburðir Leifturs-
manna skiluðu þannig næsta litlu og
Framarar vörðust af skynsemi og
beittu síðan hættulegum skyndi-
sóknum. Hilmar og Oerlemans voru
þar hættulegir og mjög hreyfanlegir
og oft vantaði aðeins herslumuninn
að þeir kæmust einir í gegnum flata
vörn Ólafsfirðinga. Hefði Anton
Björn Markússon, vinstri útherji
Safamýrarliðsins, að ósekju mátt
vanda fyrirgjafir sínar til mikilla
muna í því sambandi.
Salt í sárin
Hilmar og Orlemans héldu þó
áfram að reyna og mark þess fyrr-
nefnda eftir laglega sendingu þess
síðarnefnda á lokamínútunum hefur
eflaust virkað eins og salt í sár
þeirra fjölmörgu Ólafsfirðinga sem
sóttu leikinn og settu á hann
skemmtilegan svip með hvatningar-
hrópum sínum. Á hinn bóginn var
það aðeins punkturinn yfir i-ið á góð-
um og skynsömum leik Framara
sem uppskera nú eins og til hefur
verið sáð í deildinni.
Segja verður báðum liðum til
hróss, að þau léku á köflum hreint
ágæta knattspymu og víst er að
gegn mörgum liðum hefði sóknar-
þungi Ólafsfirðinga náð auðveldlega
að brjóta sér leið. Sóknarmenn liðs-
ins eru alltaf að reyna, það vantar
ekki, og fyrr eða síðar hlýtur að
koma að því að stíflan bresti hjá
mönnum eins og Santos, sem er
hreint og beint snillingur með knött-
inn, en greinilega ekki í nægri æf-
ingu og þreyttist mjög er leið á
seinni hálfleikinn.
í liði Framara bar mest á nýliðan-
um Hilmari Bjömssyni, sem hljóp og
hljóp út um víðan völl og hafði
greinilega feykilega gaman að þvi að
fá loksins tækifæri til að leika knatt-
spyrnu. Sú leikgleði smitar út frá sér
og sýnist manni sem samvinna
Hilmars og Oerlemans gæti orðið
Safamýrarliðinu gæfurík í sumar. I
því sambandi ætti að verða fróðlegt
að sjá Framarana í nágrannaslagn-
um á fimmtudagskvöld gegn KR
vestur í bæ. Þar ætti Hilmar að
kunna vel við sig.
Amór hættur sem
aðstoðarþjálfari Vals
ARNÓR Guðjohnsen, leikmaður Vals, starfar ekki Iengur sem að-
stoðarþjálfari liðsins. Amór starfaði sem slíkur við hlið Kristins
Björnssonar, þjálfara Vals, ( vetur og vor, en við brotf rekstur
Kristins á dögunum hætti Arnór því starfi og hyggst einbeita sér
að því að leika með liðinu í sumar. Ingi Björn Albertsson, nýráð-
inn þjálfari Valsmanna, er því einn við stjórnvölinn og ekki hefur
verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari liðsins.
„MÉR fannst þetta góður leikur
hjá liðinu og við verðum að halda
áfram á sömu braut,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Fram, eftir sig-
urinn. „Leiftursmenn voru meira
með boltann í seinni hálfleik og það
vantaði aðeins upp á varnarvinnu
hjá okkur en þetta slapp allt saman
því þeir fengu engin dauðafæri.
Auk þess vorum við klaufar að
skapa okkur ekki meira.“ Hilmar
Bjömsson lék sinn fyrsta leik með
Fram eftir að hann kom frá Hels-
ingborg í Svíþjóð á fimmtudag. Ás-
geir sagðist ánægður með að fá
hann í liðið og þótti hann standa
sig mjög vel. Hilmar mun leika
með liðinu til 1. september en þá
verður hann að mæta aftur til
Helsingborgar.
„Ég fann mig ágætlega í leikn-
um í kvöld þrátt fyrir smá flensu,"
sagði Hilmar að leikslokum. „Þetta
var hörkuleikur. Við byrjuðum
ágætlega en eftir að við skoruðum
bökkuðum við full mikið og fengum
mikla pressu á okkur en við feng-
um líka skyndisóknir sem voru
hættulegar.“ Hann sagðist vera
ánægður að vera kominn til liðs við
Fram. „Ég vissi að hverju ég gekk,
ég þekki mikið af þessum strákum
og veit að Ásgeir er fær þjálfari.
Framarar leika á móti KR í
Vesturbænum í næstu umferð.
Hilmar sagði tilfinningarnar verða
blendnar. „Það er alltaf erfitt að
spila á móti bestu vinum sínum en
ég er keppnismaður og nú er ég í
Fram og vil vinna leikinn. Við verð-
um að gera svipað og í dag. Það er
mjög mikilvægt að við náum að
halda hreinu á KR-vellinum.“
Djálfari Leiftursmanna
Páll Guðlaugsson, þjálfari
Leifturs, var óánægður með
fyrri hálfleik sinna manna en
sagði síðari hálf-
Qylfi leikinn einn þann
Hafsteinsson besta sem liðið
skrífar hefur leikið í ár.
„Þá tókst okkur
að pressa betur á vörn Fram og
hefðum átt að skora mörk.“
Hann taldi það ekki ósanngjarnt
að sínir menn hefðu fengið annað
stigið út úr þessari viðureign.
„Fyrra markið sem Fram skor-
aði kom upp úr engu og það
seinna var hálfgerð jólagjöf frá
miðjumönnum okkar.“
„Við höfum leikið marga úti-
leiki vel og þess vegna er leiðin-
legt að við skyldum missa þetta
niður í tvö núll. En ég er viss um
að það eiga fleiri lið en við eftir
að tapa fyrir Fram á heimavelli,"
sagði Páll. „Vörnin og miðjan hjá
okkur hafa leikið vel í sumar en
lítið komið út úr sókninni." Hann
sagði erfitt að sækja gegn Fram-
liðinu. „Þeir eru með mjög góða
vörn og góða miðju. Þeir spila
upp á að verjast og sækja hratt.
Það tókst þeim vel í kvöld enda
með mannskap til þess. En í
kvöld áttu nokkur dauðafæri að
nýtast betur. Til að gera það
verðum við að vera þolinmóðari.“
Um framhaldið sagði hann:
„Með tilliti til þess að við skipt-
um út 13 mönnum fyrir tímabilið
í fyrra og tíu mönnum núna þá
hef ég trú á því að við séum á
réttri leið.“ Páll sagðist ekki bú-
ast við léttum leik gegn Val á
Ólafsfirði í næsta leik. „Það
skiptir ekki máli hvort það er
Valur eða eitthvað annað lið.
Þetta eru allt baráttuleikir."
Muum að
skova mörk