Morgunblaðið - 22.06.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999 B 9
-.■ ■■■■. i i ......... , nnV
KNATTSPYRNA
j Hlynur
frá í tvær
vikur
HLYNUR Stefánsson, fyrir-
liði IBV, sem jafnaði leikinn
gegn KR, var borinn af leik-
velli þegar stundarfjórð-
ungur var til leiksloka
vegna meiðsla sem hann
hlaut eftir samstuð við Þór-
hall Hinriksson. Fyrirliðinn
verður frá æfingum og
keppni næstu tvær vikurnar
og missir því af næstu fjór-
um leikjum liðsins, þremur í
deildinni og bikarleiknum
gegn Keflavík.
Hann fékk djúpan skurð
Iá vinstra hnéð eftir takka á
skóm Þórhalls. Hann var
fluttur á sjúkrahús þar sem
gert var að sárum hans.
„Skurðurinn var nokkuð
djúpur og skaddaði aðeins
liðpokann. Það þurfti að
sauma sex spor inni í hnénu
og síðan 11 spor til að loka
sárinu. Það má segja að ég
hafi verið heppinn því það
munaði aðeins millímetra
að skótakkinn hefði farið
j inn í liðinn og þá hefði
C tímabilið verið búið hjá
; mér. Ég þarf að taka því ró-
lega næstu daga og vera við
hækjur," sagði Hlynur.
Hann sagði að þetta hafi
verið óheppni og ekki um
neinn ásetning að ræða hjá
Þórhalli. „Við lentum sam-
an f „skriðtæklingu" og það
hefði því alveg eins getað
verið hann sem hefði orðið
fyrir meiðslum. Svona er
knattspyrnan og menn geta
átt von á þessu og ekkert
við því að gera. Eg frétti af
úrslitum leiksins uppi á
sjúkrahúsi og létti veru-
lega. Það má segja að sig-
urinn hafi kostað sitt.“
Ingií
leikbann
INGI Sigurðsson, Ieikmaður
ÍBV, fékk að líta rauða
spjaldið er hann fékk aðra
áminningu sína undir lok
leiksins. Hann verður því í
leikbanni í næsta leik IBV
sem verður gegn Víkingi og
fer fram annað kvöld. IBV
verður því án tveggja Ieik-
manna sem byijuðu leikinn
gegn KR því Hlynur Stef-
ánsson fyrirliði er meiddur.
Mark, tap
KR-ingar hafa leikið 24 leiki
í íslandsmótinu í Eyjum frá
1968, unnið níu, tapað átta
og gert sjö sinnum jafntefli.
Þeir hafa einu sinni áður
tapað leik í Eyjum eftir að
hafa skorað fyrsta markið.
Það var 1991, en þá skoraði
I; Ragnar Margeii-sson mark á
7 mín. í leik sem Eyjamenn
unnu 3:2.
spyrnan gengur, en vinnsla og yfirferð hans
mætti vera meiri. Bjarki og Guðmundur eru
ekki nægilega duglegir við að fara aftur til að
hjálpa þar til. Sigþór Júlíusson var yfirburða-
maður á miðjunni hjá KR. Þá kom ákveðin
festa þegar Þórhallur Hinriksson kom inn á.
Eitt er það sem er umhugsunarefni fyrir
KR-inga. Það er hvað þeir virðast vera ber-
skjaldaðir fyrir homspyrnum. Bæði mörk
Eyjamanna komu eftir homspyrnur og í bæði
skiptin vora KR-ingar ekki með á nótunum.
Það var enginn vafi á að í Eyjum mættust
tvö sterkustu lið landsins. Leikmenn liðanna
hafa burði til að gera góða hluti ef þeir leggja
sig fram.
■ „Hundfúir / B10
■ Þungu fargi... / B10
Frábær tilfinning
Ivar Ingimarsson skoraði sigur-
mark IBV þegar skammt var til
leiksloka, með skalla eftir horn-
spyrnu Baldurs Bragasonar. Þetta
var aðeins annað markið sem hann
gerir fyrir ÍBV frá því hann hóf að
leika með liðinu fyrir rúmu ári síð-
an. „Það var alveg frábær tilfinn-
ing að sjá á eftir boltanum í netið.
Þetta var búið að vera mjög erfiður
leikur fram að markinu. Við vorum
farnir að detta svolítið aftarlega á
völlinn í síðari hálfleik, en náðum
að gera það sem þurfti til að sigra,“
sagði ívar með bros á vör eftir leik-
inn.
Hann sagði leikinn hafa verið
mjög góðan og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik. „Ég held að þetta hafi verið
mjög skemmtilegur leikur á að
horfa fyrir áhorfendur, sérstaklega
í fyrri hálfleik. Það var slæmt að fá
markið á okkur í upphafí leiks, en
við náðum að svara fljótlega og
komumst þannig aftur inn í leikinn.
Það er ekki oft sem það hefur tekist
í leikjum okkar í sumar. Það er bú-
inn vera einhver doði yfir leikjum
okkar í upphafi móts en ég held að
nú séum við búnir að yfirstíga það
eftir þennan mikOvæga sigur &
KR.“
Nú geríð þið bæði mörkin úr
homspymum, vom þið búnir að æfa
þær sérstaklega íyrír þennan leik?
„Já, en við höfum hingað til ekki
fengið mikið út úr homspymum.
En við eram með góða skallamenn
og eigum að geta nýtt okkur það
eins og við gerðum í þessum leik.“