Morgunblaðið - 10.08.1999, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Eyjamenn fögnuðu sigri í Grindavík
Hlynur var
bjarg
vætturinn
MARK fyrirliða ÍBV, Hlyns Stefánssonar, tveimur mínútum fyrir
leikslok gegn Grindavík, innsiglaði sigur liðsins á Grindavík í
heimsókn þess til Suðurnesjamanna á sunnudaginn; lokatölur
2:1. Sigurinn var e.t.v. ekki sanngjarn miðað við gang leiksins
þar sem jafntefli var meira í spilunum. Hann var liði ÍBV nauð-
synlegur í titilvörninni þar sem það fylgir KR eftir eins og skugg-
inn sem fyrr og útlit fyrir hörkukeppni á síðasta þriðjungi leiktíð-
arinnar.
Eyjamenn voru mun sterkari
framan af öllum fyrri hálfleik,
léku oft og tíðum ágætlega úti á
vellinum en gekk
ívar brösuglega þegar
Benediktsson nær dró markinu.
skrifar Heimamenn héldu
sig nokkuð til hlés
og freistuðu þess að komast upp
völlinn með skyndisóknum. Helsti
veikleiki þeirra var hins vegar að
þeir misstu knöttinn alloft á miðj-
um eigin vallarhelmingi með þeim
afleiðingum að hver sóknin buldi á
marki þeirra á fætur annarri. Eyja-
menn fengu sumsé oft fyrirhafnar-
lítil sóknarfæri, sem þeim gekk illa
að færa sér í nyt.
Fyrsta almennilega marktæki-
færið kom á 13. mínútu er Ingi Sig-
urðsson sendi stungusendingu inn á
Steingrím Jóhannesson, en Stein-
grímur missti knöttinn aðeins of
langt frá sér og Albert Sævarsson,
markvörður Grindavíkur, hirti
knöttinn áður en Steingrímur gat
lætt honum í markið. Skömmu síð-
ar tók Ingi horn og Hlynur skallaði
rétt fram hjá. Rétt áður en Eyja-
menn komust á blað fyrsta sinni
varði Albert vel skot Inga af 20
metra færi og Hlynur átti þrumu-
skot sem fór rétt yfir. Hinum meg-
in vallarins var fátt um færi, Hlyn-
ur var sem kóngur í ríki sínu í vörn-
inni og Grindvíkingar komust lítt
áleiðis. Sökum þess að Zoran
Miljkovic var í leikbanni að þessu
sinni hljóp Guðni Rúnar Helgason í
hans skarð í vöminni og tókst
ágætlega upp.
Fyrsta mark Eyjamanna kom á
34. mínútu og var rökrétt framhald
ÍÞR&mR
FOLK
■ ARNÓR Guðjohnsen meiddist í
nára á æfíngu sl. fimmtudag og gat
því ekki leikið með félögum sínum
gegn KR á sunnudaginn.
■ ZORAN Miljkovic lék ekki með
ÍBV gegn Grindavík þar sem hann
tók út leikbann vegna fjögurra
gulra spjalda.
■ SINISA Kekic var valinn knatt-
spyrnumaður júlímánaðar í Gr-
indavík og fékk hann af því tilefni
styttu og gjafabréf á máltíð á mat-
sölustað áður en viðureign Grinda-
víkur og ÍBV hófst.
■ EINS klukkutíma seinkun varð
á leik Grindavíkur og IBV sökum
þess að ófært var frá Eyjum lengi
vel á sunnudaginn. Loks þegar
opnaðist fyrir flug tóku Eyjamenn
næstu vél og lentu á Keflavíkur-
flugvelli þar sem það var styttra að
fara til Grindavíkur en frá Reykja-
vík. Komu leikmenn ÍBV til Gr-
indavíkur réttri klukkustund fyrir
leik.
„VIÐ áttum að vera búnir að gera út um leikinn, við vorum klauf-
ar að tapa leiknum því möguleikinn á sigri var ekkert síður okkar
megin,“ sagði Björn Skúlason, Grindvíkingur, og var daufur í
dálkinn í leikslok. „Við áttum nokkur góð færi til að skora fram-
an af síðari hálfleik en í lokin var meira jafnvægi á leiknum og
þeim tókst með heppni að skora. Úrslitin eru okkur gríðarleg
vonbrigði," sagði Björn ennfremur. „Sérstaklega af því að við
vorum vel stemmdir fyrir leikinn og ætluðum okkur sigur.“
Bjöm segir að sigurmárk ÍBV
megi skrifa á einbeitingarleysi
liðs Grindavíkur, komið var nærri
leikslokum og menn hafi efalaust
verið famir að sætta sig við jafn-
tefli. „Þá gleyma menn sér augna-
blik og það er nóg til þess að tapa.
Það kann aldrei góðri lukku að
stýra að leika upp á janftefli á
lokamínútunum.
Nú verðum við bara að hysja upp
um okkur buxurnar á lokakaflanum.
Fyrir utan leikinn við Breiðablik á
dögunum eru liðin ekki að gera mik-
ið á móti okkur, við erum aðallega
að tapa á okkar eigin klaufaskap.“
„Grindvíkingar fengu sín tækifæri
til þess að skora í síðari hálíleik,
nýttu þá ekki, en við nýttum okkar
og þar skildi á milli," sagði Hlynur
Stefansson, fyrirliði ÍBV og sá sem
skoraði sigurmarkið gegn Grindavík.
„Það er alltaf gaman að skora, mað-
ur gerir svo lítið af því í seinni tíð
þannig að mökin eru ánægjuleg þeg-
ar þau koma,“ sagði Hlynur um
mark sitt tveimur minútum fyrir
leikslok. Þetta var annað mark
Hlyns á íslandsmótinu í sumar.
„Leikurinn var jafn og Grindvík-
ingar áttu alveg sömu möguleika og
við. Eftir að við náðum forystunni í
fyrri hálfleik bökkuðum við of mikið
og þeir fengu sjálfstraustið og
fengu möguleika til að gera út um
leikinn. Við hins vegar höfðum
þetta, ekki veitir af í keppninni við
KR.“
Hlynur segir að þreytu gæti í
herbúðum IBV eftir erfiða leiki og
ferðalög að undanfömu og það hafi
sett verulegt mark sitt á frammi-
stöðu leikmanna að þessu sinni.
„Þannig að ég held að við getum
verið þakklátir fyrir stigin þrjú að
þessu sinni.“
af því sem áður hafði gengið á í
leiknum. Það kom einnig upp úr
keimlíku færi og Steingrímur hafði
fengið fyrr í leiknum og höfundur
þess var Ingi Sigurðsson.
Við markið færðist ró yfir ís-
landsmeistarana, þeir færðu sig
aftar á völlinn og slökuðu á klónni.
Grindvíkingum óx ásmegin og
sjálfstraust til sóknar. Scott Rams-
ey gerði Eyjamönnum lífið leitt
með lipurlegum leik og skapaði
hann nokkrum sinnum hættu eins
og framherjinn Grétar Hjartarson,
sem ógnaði Eyjamönnum sífellt.
Jöfnunarmark Grindavíkur á 41.
mínútu kom upp úr samvinnu
þeirra tveggja.
Eftir jöfnunarmarkið hljóp nokk-
ur harka í leikinn og því höfðu leik-
menn gott af því er atkvæðalítijl og
frekar slakur dómari leiksins, Ólaf-
ur Ragnarsson, flautaði til leikhlés.
Grindvíkingar komu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og höfðu uppi
talsverða sóknartilburði fyrstu 20
mínúturnar og komu þeir Eyja-
mönnum oft í nokkum vanda. Grét-
ar skoraði mark á 57. mínútu sem
réttilega var dæmt af vegna rang-
stöðu. Skömmu síðar fékk hann því
dauðafæri á markteig eftir send-
ingu Óla Stefáns Flóventssonar.
Birkir sýndi hins vegar hvers hann
er megnugur er hann varði frábær-
lega skalla Grétars út við stöng,
hélt samt ekki knettinum sem
hrökk í átt til Grétars á ný, en hon-
um tókst ekki að skora enda greip
hann nokkurt fát. Heldur dofnaði
yfir leiknum og virtist sem Grind-
víkingar hefðu gefist upp á að skora
og ætluðu að sætta sig við jafn-
teflið. Leikurinn var tíðindalítill um
stund og fór aðallega fram á miðj-
unni. Síðasta stundarfjórðunginn
hljóp hins vegar skyndilegt fjör í
leikmenn á ný og kom þá skemmti-
legasti hluti leiksins, þar sem leik-
menn drógu hvergi af sér. Ramsey
átti glæsilega sendingu inn á Duro
Mijuskovic sem brást bogalistin,
einn gegn Birki í dauðafæri. Rams-
ey átti einnig skot úr aukaspyrnu
sem rétt fór yfir.
Allt kom fyrir ekki en svo virtist
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
ÍVAR Bjarklind og Scott Ramsey í baráttu í Grindavík.
sem einbeitingin væri betri í her-
búðum Eyjamanna þótt leikmenn
virkuðu talsvert þungir, margh-
hverjir að minnsta kosti. Sigur-
markið var þeim kærkomið og það
fór vel á því að það skoraði sá leik-
maður sem ásamt Birki Kristins-
syni stóð upp úr í liði ÍBV, Hlynur
Stefánsson. Markið var sem köld
vatnsgusa framan í leikmenn Gr-
indavíkur sem höfðu sætt sig við
jafnteflið, eftir að hafa þó verið
nærri því að skora.
Hlynur og Birkir voru sem áður
segir bestu leikmenn ÍBV að þessu
sinni. Þá var Ingi Sigurðsson sterk-
ur og gerði usla. Kom það einkenni-
lega fyrir sjónir að honum skyldi
vera skipt út af um miðjan síðari
hálfleik. Goran Aleksic var lipur í
fyrri hálfleik en minna bar á honum
í síðari hálfleik. Baldur átti ágæta
spretti, en aðrir geta eflaust gert
betur. Gæfan var hins vegar með
Eyjamönnum og er það vafalaust
styrkleikamerki þegar lið vinna
þrátt fyrir að eiga slaka leiki, ekki
síst þar sem ÍBV hefur ekki gengið
allskostar vel í Grindavík í gegnum
tíðina.
Grindvíkingar voru lánlausir að
halda ekki a.m.k. öðru stiginu, sem
þeir þurfa svo mjög á að halda í
baráttunni í neðri hlutanum. Á móti
kemur að Eyjamenn skortir einnig
stig, þannig að jafntefli voru
kannski slæm úrslit fyrir báða þótt
ævinlega séu töpin verri.
Grétar, Ramsey og Óli Stefán
voru bestu menn Grindavíkur að
þessu sinni. Nú er það Grindvík-
jnga að bíta í skjaldarrendur á síð-
asta spretti deildarinnar eins og
undanfarin ár.
Gestgjafar EM
2004 ákveðnir
í október
TILKYNNT verður í október
hverjir verða gestgjafar úr-
slitakeppni Evrópumóts
landsliða árið 2004. Talsmað-
ur Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, skýrði frá
þessu á mánudag, en fjögur
lönd hafa sótt formlega um
að halda keppnina. Það eru
Portúgal, Spánn og Austur-
ríki og IJngverjaland hafa
lagt inn sameiginlega um-
sókn.
Gríðarleg vonbrigði