Morgunblaðið - 10.08.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LANDSMÓT í GOLFI
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 B S»
Ivar Hjartarson
Morgunblaðið/Golli
iafa náð fugli á sjöundu braut - kom-
enti Björgvin aldrei undir.
Verð bara að sætta
mig við þetta
MÉR líður bara ágætlega. Ég
verð bara að sætta mig við
þetta. Ég náði ekki markmiðinu
sem ég hafði sett mér í mótinu -
að leika á tvö hundruð og áttatíu
höggum. Ég var þremur höggum
frá því,“ sagði Örn Ævar Hjartar-
son, sem beið lægri hlut fyrir
Björgvini Sigurbergssyni í umspili
um Islandsmeistaratitilinn. „Ég er
því ekki alveg sáttur, sérstaklega
vegna þess að ég lék þennan hring
ekki eins og ég ætlaði mér. Ég lék
ekki af þeirri ákveðni sem ég vildi.
Ég hitti líka ekki jafn margar
brautir og æskilegt er og var oft í
vandræðum með að hitta flatirnar.
Ég var heldur ekki nógu ákveðinn
í púttunum. Þetta var ekki eins og
ég vildi hafa það,“ sagði Örn.
„Þetta er ef til vill skiljanlegt.
Ég hef aldrei verið í þessari að-
stöðu - að vera í síðasta holli í
landsmóti. Ég er heldur ekki van-
ur að spila með svona marga
áhorfendur," sagði hann.
Með hvaða hugarfarí mættirðu
til leiks fyrir hringinn?
>,Ég var ekkert feiminn við
þetta þegar ég mætti á svæðið. Ég
hafði ákveðið að reyna að leika á
280 höggum og þurfti því að leika
síðasta hringinn á tveimur undir
pari. Það lagðist mjög vel í mig.“
Hvað hugsaðirðu á átjánda teig,
þegar munurinn var tvö högg og
ein hola eftir?
„Ég taldi að ég yrði að fá fugl -
að það væri eini möguleikinn á að
jafna. Við vorum báðir á svipuðum
slóðum eftir teighöggið. Ég áttaði
mig ekki alveg á högginu sem
hann sló. Sjálfur sló ég lélegt
högg, um þrjátíu metrum of stutt.
Ég vildi fá boltann alveg að stöng-
inni. Ég sló heldur varfærnis-
lega.“
Hvernig leið þér yfír púttinu
fyrir pari á átjándu, sem þú varðst
að setja í til að komast í umspil?
„Ég var óvenju rólegur yfir því
og sagði sjálfum mér að ég myndi
fá mér einn feitan hamborgara ef
boltinn færi í,“ sagði Örn og hló.
Hann sagðist einnig hafa orðið ei-
lítið undrandi á síðustu flötinni.
„Fyrsta púttið hans kom mér á
óvart því hann hafði púttað mjög
vel af þessu færi. Hann virtist
bara of varkár.“
Stí'
5f
Morgunblaðið/Golli
Fjórir 1
dagar í
stuttbuxum
ÖRN Ævar Hjartarson er jafnan
rólyndislegur á að líta og er það
enn á þessari mynd þótt hann
hafi hér saxað á forskot Björg-
vins Sigurbergssonar með góðu
pútti. A myndinni til hliðar ósk-
ar Öm Ævar Björgvini Sigur-
bergssyni til hamingju með fs-
landsmeistaratitilinn eftir að sá
síðarnefndi hafði lokið leik á tí-
undu braut, þriðju og síðustu
holunni í umspilinu.
ll
►lli
59
Sá að minn tími var kominn
Björgvini Sigurbergssyni var létt
eftir að hafa tryggt sér sigur í
umspilinu við Örn Ævar Hjartarson.
Sigurinn var honum sætur. Hann
var á heimavelli, dyggilega studdur
af klúbbfélögum sínum, og sýndi
auk þess sálrænan styrk er hann
hélt velli þrátt fyrir að hafa orðið
fyrir skakkaföllum á átjándu braut-
inni, þeirri sem allir héldu að yrði
lokahola mótsins. „Ég var ánægður
með að þetta skyldi loksins vera bú-
ið - að sigurinn skyldi loks vera í
höfn,“ sagði Björgvin. „Það var
gaman að vinna á heimavelli og mik-
ilvægt fyrir mig að verða Islands-
meistari þar. Það var notalegt að sjá
hve margir fylgdust með, sem var
raunar gott fyrir okkur alla. Mér
finnst gaman að spila fyrir áhorf-
endur og umgjörðin var skemmti-
leg.“
Áður en úrslitin voru kunn hafði
Björgvin sagt að samkvæmt hefð-
inni væri sigurinn hans. Sigurpáll
Geir Sveinsson varð íslandsmeistari
árið 1994 og í fyrra. Björgvin sigraði
árið á eftir Sigurpáli, 1995, og stóð
fast á þeirri skoðun sinni að h;ð
sama gilti um mótið í ár. „Ég sá að
minn tími var kominn,“ sagði Björg-
vin. Birgir Leifur Hafþórsson sigr-
aði árið á eftir Björgvini, 1996, og
Þórður Emil Ólafsson 1997. Er
Björgvin var spurður hvort hann
þyrfti þá ekki að bíða lengi eftir
næsta sigri sínum, því Sigurpáll yrði
að hampa bikamum fyrst, svaraði
hann: „Nei, nei. Nú er allt mynstrið
horfið, því Birgir Leifur er ekki
lengur með.“ Þetta er skarplega at-
hugað hjá Björgvini, því Birgir Leif-
ur sem sigraði á eftir Björgvini síð-
ast, er atvinnumaður og hefur því
ekki keppnisrétt á Landsmóti. Þvi
er ljóst að hefðin verður rofin á
Akureyri á næsta ári og hyggst
Björgvin vera þar fremstur í flokki.
Ætlaði að slá fremst á flötina
Björgvin sagðist mjög ánægður
með hvernig hann sneri blaðinu við
eftir mistökin sem hann gerði á átj-
ándu brautinni, þar sem hann glat-
aði tveggja högga forystu. „Ég varð
svolítið vonsvikinn með að hafa ekki
náð að gera út um mótið þarna. Það
var slæmt að fá fyrsta skrambann í
mótinu á síðustu holunni. Þetta var
klaufaskapur. Ég sagði þó strax við
sjálfan mig að það væru þrjár holur
eftir og að það þýddi ekkert að
svekkja sig á þessu. Ég var mjög
ánægður með hvernig mér tókst að
ýta þessu frá mér. Ég hafði leikið
svo vel að ég kveið því ekki að fara í
umspil. Við áttum báðir jafn mikla
möguleika á sigri.“
Hvernig ætlaðirðu að leika braut-
ina?
„Ég ætlaði að slá fremst á flötina
og sjá hvað Örn myndi gera. Það var
erfitt fyrir hann að sækja fugl frá
þeim stað sem hann var. Ég hefði
farið brosandi á fyrsta teig í umspil-
ið ef hann hefði fengið fugl og ég
skolla. Ég sló hins vegar of fast.
Adrenalínið var greinilega orðið
mikið og ég var miklu ákveðnari í
högginu en ég átti að vera. Ég velti
fyrir mér hvort ég ætti að nota
fleygjárn eða níu-jám, tók níu-járn-
ið og ákvað að slá létt högg. Ég hafði
slegið mörg slík högg og gengið
vel.“
Björgvin sagði að það hefði ekki
verið ráðlegt að reyna að slá nærri
holunni frá staðnum þar sem bolti
hans lá innan um steinana. Þess í
stað fór hann lengri leið og sló stutt
inn á stærsta hluta flatarinnar. „Það
var ekkert vit í því, með tveggja
högga forskot. Ég þurfti þá að fara
yfir steina og það eru sandgryfjur á
bak við flötina. Hinn kosturinn var
mun auðveldari. Örn var búinn að
pútta og hann var ekki búinn að
tryggja parið,“ sagði Björgvin.
Hann kvaðst enn fremur ekki hafa
hugað nógu vel að fjórða högginu,
löngu pútti upp halla. „Ég var klaufi
í fyrsta púttinu. Ég hafði púttað vel
af þessu færi, en gaf mér ekki nógu
mikinn tíma í þetta pútt. Ég fann
það um leið og ég hafði lokið við það.
Ég ætlaði mér greinilega að reyna
að komast írá þessu spennulaust."
Björgvin átti þá íyrir höndum
pútt, sem hefði getað tryggt honum
sigur, án alh'a vandræða sem umspili
fylgja. „Það var bara aðeins of mikið
brot í því. Ég hélt að boltinn myndi
læða sér í, en hann beygði frá,“ sagði
hann. Þetta var annað þrípútt Björg-
vins í mótinu. Það fyrra var á sjö-
undu flöt á fyrsta hring.
ÖRN Ævar Hjartarson
vakti mikla athygli á
Landsmótinu í golfi, ekki
aðeins vegna leiks síns, sem
var oft og tíðum glæsilegur,
heldur einnig vegna þess
eins að hann lék alla hring-
ina í stuttbuxum. Það þótti
sjálfsagt á fimmtudag og
föstudag, þegar veðurguð-
irnir léku við mótsgesti.
Hinsvegar var lengstum
skýjað um helgina og var
orðið heldur svalt þegar
kvölda tók. Hvað var Örn
þá að gera í þessum stutt-
buxum sínum? „Ég setti
mér tvenn markmið fyrir
mótið. Annað þeirra var að
leika á tvö hundruð og átta-
tíu höggum, en hitt að leika
alla fjóra dagana í stuttbux-
um,“ sagði Örn. Hann fer
brátt til stærðfræðináms í
Louisiana-ríki í Bandaríkj-
unum, en þar hóf hann nám
í fyrrahaust. Mótsgestir
voru því forvitnir og vildu
vita hvernig Örn væri
klæddur við golfleik þar.
Hann vildi þó ekki svara
því.