Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
þrífst neðansjávar. Fólkið sem ég
fer með er flest með réttindi í köf-
un og þeim sem hafa þau ekki
kennir maður. Þótt fólk sé vant að
kafa, fer það yfirleitt ekki á staði
þar sem það þekkir hvorki landslag
né strauma nema í fylgd leiðsögu-
manns.“
Hvernig tilfinning er það að vera
undir yfirborðinu?
„Það er eins og að koma í nýja
veröld. I sjónum hreyfa menn sig í
þyngdarleysi og geta stjórnað floti
sínu. Ef þeir kafa yfir sprungur og
gil, finnst þeim sem þeir fljúgi yfir
fjöll og firnindi.
Margir eru taugaóstyrkir þegar
þeir kafa í fyrsta sinn og verða að
yfirvinna ótta við ímyndaðar hætt-
ur. Ég verð ósjaldan að beita sál-
fræðinni, sýna vissa umhyggju og
vera léttur og brosandi, jafnvel
þótt aðstæður séu kannski ekki
sem bestar. Nemendur horfa ætíð
á kennarann til að sjá hvernig hann
bregst við. Ég leiði hópinn svo um
þessa veröld, oftast fer ég með
tvær til átta manneskjur niður i
einu. Þær eru ekki tengdar bátnum
með taumi, eru aðeins með loftkút
og hann dugar í um það bil þrjú
korter. Það er manninum ekki eig-
inlegt að anda í kafi og það getur
tekið suma svolítinn tíma að venj-
ast þvi. En einn dag venjast menn
öndun og hreyfingu og þá verða
þeir sem selir á sundi.
Fólk sem er með yfirlýsingar um
eigin vanhæfni í köfun áður en lagt
er í hann í fyrsta sinn, kemur ljóm-
andi upp og spyr: Hvenær get ég
farið aftur?“
Hvað er það sem heillar það
svona?
„Það hefur lengi langað til að sjá
þessa veröld. Um sjötíu prósent
jarðar er undir vatni, veröld sem
fæstir sjá en er þó áþreifanleg.
Þegar ég ferðast til framandi staða
nægir mér ekki að vera ofansjávar,
ég verð líka að sjá það sem er neð-
ansjávar, enda er það miklu fal-
legra.
Dagsbirtan nær oft niður á 30
metra dýpi og hvítur sandurinn
endurkastar birtunni. Menn sjá
furðulega veröld, allt að því „súrr-
ealíska“. Stundum minnir hún á
teiknimynd. Litadýrðin er ótrúleg
og formin óraunveruleg. Það er
líka mjög sefjandi, draumkennd til-
fínning að vera neðansjávar, fólk
heyrir fá hljóð. Þetta er eins og að
vera í draumaveröld. A marga hef-
ur það afslappandi og róandi áhrif.
Köfunarferðir eru mjög vinsælar
meðal fólks úr viðskiptalífinu. Þeg-
ar höfuðið er komið í kaf missir það
tengslin við hinn harða heim sem
ríkir ofansjávar og gleymir hvert
það er.“
Ókindin
Köfunarferðir eru ekki síður vin-
sælar hjá spennufíklum. Hjá þeim
fer adrenalínið fyrst í gang þegar
þeir komast í selskap hákarla. Og
Davíð veit hvar þeir halda sig.
„Reyndar fer mjög óverðskuldað
orðspor af hákörlum, kolkröbbum
og þess háttar skepnum. Yfirleitt
eru þetta meinlaus dýr, en þó er
betra að fara að öllu með gát. Við
erum gestir í umhverfi þeirra og
okkur ber að sýna lífríkinu og um-
hverfinu virðingu.
Mergui-eyjaklasinn við Burma
hefur verið lokaður frá stríðsárum
en er nú að opnast. Eyjarnar eru
mjög spennandi, mannaferðir hafa
verið fátíðar og skepnur bæði ofan-
og neðansjávar því óvanar mannin-
um. Á eyjunum lifa villtir fílar og
tígrisdýr og hafið er krökkt af há-
körlum, tegundum sem við vissum
ekki áður að væru til. Þar má með-
al annars finna hvalháfinn, há-
karlategund sem getur orðið um 17
metrar á lengd. Hann er svifæta
með stærðarkjaft, en sauðmein-
laus. Fyrir marga er það hápunkt-
urinn að sjá þessa skepnu og hún
er eftirsótt myndefni fyrir kvik-
myndagerðarfólk og Ijósmyndara.
Frá meginlandinu og að vinsæl-
um köfunarstap í Burma er um tólf
tíma sigling. Á þeim stað eru út-
hafshákarlar um þrír metrar á
lengd. Þar eru ekki hinir dæmi-
gerðu og stuttu rifhákarlar sem
eru orðnir mannvanir og sem sjást
æ sjaldnar á fjölförnum slóðum
kafara. Uthafshákarlinn er óvanur
mönnum og því ekki hræddur við
þá. En yfirleitt eru hákarlar
hræddir við okkur og í þeim tilvik-
um sem þeir hafa ráðist á menn
hafa þeir ef til vill tekið feil á fólki
og sel eða skjaldböku. Þeir nema
bylgjur og þegar menn skutla fisk
gefur saerður fiskurinn frá sér
bylgjur. I misgripum bíta hákarl-
arnir svo í kafarana. Þeir ráðast
ekki á fólk alla jafnan, en maður
getur þó aldrei fullyrt neitt í þeim
efnum.“
Hefur enginn þeirra gerst nær-
göngull við þig?
„Reyndar jú, einn er mér minn-
isstæður. Sums staðar er hákörlum
gefið að éta til að laða þá að, og
þegar hákarlar á þessum stað
heyra vélarhljóð koma þeir í von
um að fá æti. Eitt sinn kom ég á
köfunarstað með lítinn hóp stuttu
eftir að hákörlum hafði verið gefið
að éta. Þá eru þeir nærgöngulir,
hafa unnið sig upp í ákveðið ætist-
uð og vilja meira. Maður verður að
vera varkár, halda sig við botninn
og líta vel í kringum sig því þeir
koma að manni úr öllum áttum.
Mér hafði skolað aðeins burt frá
samfylgdarmönnum og fjórir há-
karlar voru farnir að sveima í
kringum mig. Ég var að benda öðr-
um kafara á hákarl til að mynda og
skildi ekki hvers vegna maðurinn
benti í sífellu á mig í stað þess að
koma sér að verki. En þá hafði ég
ekki gætt að mér og var kominn
með einn nærgöngulan yfir höfði
mér. Oftast fælir maður þá frá sér
með loftbólum, andar að sér og frá
sér þegar þeir nálgast, en þessi lét
ekki segjast. Hann var áræðnari,
annað augað hvítt, auðsjáanlega
gamall harðjaxl.
Þetta var í fyrsta sinn sem ég
komst nálægt því að ljúka við loft-
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 B 3
hágæða ofnar
Einu ofnarnir sem hlotið hafa vottun frá
Rannsóknastofu byggingariðnaðarins á
íslandi.
Rekstrarþ rýsti n g u r MPa (10bar)
íslenskur staðall. ÍST EN 442.
OFNASMIÐJA REYKJAVIKUR
Vagnhöfða 11 • TI2 ReykJavíK • Sfmi: 577-5177 • Fax: 577-5178
ofnasmldjareykjavikurðslmnet.is
Fréttir á Netinu
tg>mbl.is
SUMARAUKI FYRIK
HANDHAFA
FIÖFSKYI DUKOpMS
Vikuferð í sólina á Benidorm m
eða Mallorca á aðeins 24.900!*
ÖRUGGLEGA
i bá er tækiíæri nuna tn ao wua -
„LbbumVöku-HelsafefeW'
Handhöfum Fjölskyldukortsins býðst
nú sannkallaður sumarauki
á ótrúlegu tilboðsverði.
Cala Mandia á Mallorca dagana 6.-13.
september á verði frá kr. 24.900 miðað við 4 í
íbúð en kr. 29.900 miðað við 2 í íbúð. Cala
Mandia er sannkölluð fjölskylduparadís með
frábærri aðstöðu til íþrótta, leikja og
skemmtunar.
Gist er á Punta Reina í fallegum, loftkældum
Benidorm á Spáni dagana 7.-14. september á
verði frá kr. 24.900 miðað við 4 í íbúð en kr.
29.900 miðað við 2 í íbúð. Á Benidorm eru
óþrjótandi möguleikar á afþreyingu og
skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Gist er á
Levante Club í góðum íbúðum.
Félagar í klúbbum Vöku-Helgafells fá
Fjölskyldukortið án endurgjalds og geta nýtt sér
þetta frábæra tilboð. Skráning í ferðina fer
fram hjá Samvinnuferðum-Landsýn í síma
569 1010 og hefst á morgun, mánudag.
Takmarkað sætaframboð! Fyrstir panta
fyrstir fál .
HOUSE
ÁTT
einhvern af hinum
sig
þá
fyrir
a, nanudvm--- oS ýmSa Kluuua ---------
ttritónlist, Laxnesskhibbin jy^ ^ ^þess að geta
ráð þig hjá VQku-He ga að bíða?
*' Þessar einstæðu Íerðrn ^ eft ^________
k.
•Miðað við 4 í íbúð. Innifalið er flug, gisting, akstur til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjóm. Verð miðast við staðgreiðslu.
SamvimHriirlnisn VAKA-HELGAFELL
f~Jónlhttir\afn
ásRrtlte)
nújjyjkfMjómtnitm