Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 B 11
Stein og Carlos Kleiber. Á síðustu
árum hafa þeir James Levine (frá
1982) og Daniel Barenboim (frá
1981) verið mest áberandi, auk ítal-
ans Giuseppe Sinopoli. Það var
Barenboim sem stjómaði næstsíð-
asta Hringnum í leikstjórn Harrys
Kupfers, en James Levine þeim síð-
asta, sem oft er kallaður Rosalie-
Hringurinn, eftir sviðs- og búninga-
hönnuðinum Rosalie. Sinopoli mun
svo stjórna næsta Hring, sem fer á
svið árið 2000 í leikstjórn Júrgens
Flimm.
Wolfgang hefur haldið áfram að
leikstýra sjálfur og gerir þá jafnan
einnig sviðsmynd verkanna. Hann
hefur tvívegis sett Niflungahring-
inn sjálfur á svið í Bayreuth (1960
og 1970) auk uppsetninga á öllum
hinum óperum Wagners. Nú eru í
gangi í Bayreuth tvær sýningar í
uppfærslu hans, Parsifal og Meist-
arasöngvararnir. Wolfgang hefur
einnig beitt sér fyrir mikilhæfum
úmbótum og endumýjun á Festspi-
elhaus. Um störf hans í Bayreuth
og leikstjóraferil verður ekki fjallað
frekar í þessari grein, en vetrar-
starf Richard Wagnerfélagsins á ís-
landi mun hefjast með fyrirlestri
Stephan Jöris frá Bayreuth um
Wolfgang Wagner og störf hans í
Bayreuth.
Wolfgang Wagner
á íslandi
Við hjónin höfum heimsótt Ba-
yreuthhátíðina frá árinu 1990 og
náð að sjá allar uppfærslur hússins
tO dagsins í dag, þar á meðal tvær
Hringuppfærslur og tvær uppsetn-
ingar á Lohengrin. Arið 1992 tókust
kynni okkar við Wolfgang Wagner
er við vomm í erindagjörðum Lista-
hátíðar í Reykjavík þess efnis að
reyna að fá Wagnerappfærslu á
Listahátíð 1994. Wolfgang Wagner
tók okkur afar vel, minntist þess
strax hversu þýðingarmiklar ís-
lenskar bókmenntir hefðu verið fyr-
ir afa hans, Richard, og hét okkur
liðsinni við þessi áform. Wolfgang
og kona hans, Gudrun, komu síðan í
heimsókn tO Reykjavíkur í janúar
1993 tO að skoða allar aðstæður og
gefa ráð með tOliti tO þeirra. Þau
komu hingað í beljandi stormi og
blindhríð, en létu það ekkert á sig fá
og sýndu öllu hér mikinn áhuga. Á
skoðunarferð um leikhúsin kynntist
maður fyrst óþrjótandi krafti Wolf-
gangs og lifandi áhuga bæði á öUu
því er lýtur að leikhúsi sem og öðr-
um sviðum mannlegs lífs. Tillaga
Wolfgangs tO Listahátíðar var ótrú-
lega framleg og djörf en um leið
sjálfsögð og augljós. Islendingar
voru að fara að haída upp á 50 ára
afmæli lýðveldisins, stjórn Listahá-
tíðar vOdi setja ópera eftir Wagner í
viðhafnarsæti við þessi tímamót.
Auðvitað kom ekkert til greina
nema Niflungahringurinn, þar sem
þýsk óperalist rís einna hæst og
fellst í faðma við dýrmætan bók-
menntaarf Islendinga. Og Wolfgang
lagði það tO, sem aldrei hafði áður
verið gert í heiminum, hvað þá að
uppástungu afkomanda Wagners,
að sett yrði upp stytt eins kvölds
sýning á Niflungahringnum. Valdir
yrðu kaflar eða brot úr þessu 16
stunda langa verki, sem er í raun
fjórar óperar. MOli brotanna yrði
söguþræði eða samhengi haldið með
sérstaklega þar til sömdum texta.
Stóðu Wolfgang og samstarfsmenn
hans í Bayreuth að baki Listahátíð
við uppsetninguna með ráðgjöf og
stuðningi allar götur fram að frum-
sýningu, en þá komu þau hjón í ann-
að sinn til landsins og sáp sýning-
una. Frá þeim tíma hafa Islending-
ar notið einskærrar velvOdar og
hlýju þeirra hjóna. Þau hafa látið
íslendingum í té ákveðinn fjölda að-
göngumiða á hátíðina árlega, sem
era sérstök forréttindi, því annars
er margra ára biðtími eftir miðum.
Richard Wagnerfélagið, sem stofn-
að var 1995, hefur séð um að útdeOa
miðunum.
Bók væntanleg um áhrif forn-
bókmennta á Wagner
Eitt af meginverkefnum Richard
Wagnerfélagsins hefur annars verið
að beita sér fyrir rannsóknum á því,
hvemig tengslum Niflungahrings-
ins við íslenskar bókmenntir er
háttað. Þessi tengsl era enginn ný-
uppfundinn sannleikur heldur hafa
verið kunn lengi, en einkum í
þrengri hóp sérfræðinga. Oftast er
þá talað um íslensku bókmenntimar
sem gamlar norrænar, germanskar
eða skandínavískar bókmenntir,
sem er auðvitað rangmæli. Almenn-
ingur hefur aftur á móti lengi talið
að Niflungahringurinn byggði fyrst
og fremst á þýska Niflungaljóðinu.
Richard Wagner taldi sjálfur upp
þær bækur sem mestu máli skiptu
hann við samningu Hringsins, og
era þar Eddukvæðin, Snorra Edda,
Völsungasaga og Þiðrekssaga ofar-
lega á blaði. Einnig skrifaði hann
um hvaða þýðingu það hafði fyrir
hann er hann fann Siegfried í því
tímalausa gervi sem birtist í ís-
lensku heimOdunum, þar sem hann
verður allt önnur persóna en ridd-
arinn og aðalsmaðurinn í Niflunga-
ljóðinu. Auk þess gat Wagner þess
hve gOdandi bragarhættir á hans
tíma hefðu verið alls ónothæfir fyrir
þessa einstöku persónu, og hvernig
hann hefði fundið í hinum fomís-
lensku bragarháttum það tungutak,
sem féll algjörlega að hugmyndum
hans um persónuna. Og Wagner fór
að yrkja með stuðlum og höfuðstöf-
um. Það er sérstakt ánægjuefni að
geta sagt frá því að nú í haust mun
koma út hjá Máli og menningu bók
dr. Ama Björnssonar um rannsókn-
ir hans á áhrifum íslenskra fombók-
mennta á Richard Wagner og Nifl-
ungahringinn.
1. ágúst síðastliðinn urðum við
hjónin þess aðnjótandi að vera boð-
in ein ásamt 5 ára dóttur okkar tO
kvöldverðar hjá Wagnerhjónunum
á heimili þeirra á Festspielhúgel og
tjáðu þau okkur enn sem oftar mik-
inn hlýhug tO Islendinga, sem þeim
finnst bera af flestum öðram þjóð-
um hvað varðar hreinskiptni, kímni-
gáfu og skort á uppskrúfuðum há-
tíðleika. Er liðið var á kvöldið sofn-
aði sú litla undir borðstofuborðinu
sem þau Richard og Cosima sátu
við forðum daga.
I tOefni áttræðisafmælisins var
Wolfgang færð að gjöf frá Richai-d
Wagnerfélaginu á Islandi sérstök
ljósprentun af Konungsbók Eddu-
kvæða, bundin fallega inn í skinn.
Hið upprunalega handrit hafði
Wolfgang áður fengið að skoða und-
ir leiðsögn Jónasar Kristjánssonai' í
Stofnun Ama Magnússonar árið
1994.
Nú þegar sjálfur afmælisdagur-
inn er upp ranninn vO ég fyrir hönd
Wagneráhugamanna á Islandi færa
Wolfgang Wagner sérstakar ham-
ingjuóskir í tOefni áttræðisafmælis-
ins. Framlag Wolfgangs tO Ba-
yreuthhátíðarinnar gegnum tíðina
er ómetanlegt. Það er einlæg ósk
mín og von að hátíðin í Bayreuth
megi njóta starfskrafta hans og
konu hans, Gudranar, sem lengst.
Höfundur er píanóleikari, formað-
ur Wagner-félagsins á íslandi.
Þú gætir átt þess host að geta leihið þér a3 laununum þínum í heilt ár!
Þá borgum ui3 fynr þig af húsinu, þú fær3 nýjan bíl til afnota,
Ui3 borgum hluta í matnum. símanum. bensíni og o.fl.,
Fylgstu me3 á huerjum degi á Létt 96.1.
ShnfaBu niBur nöfn á þremur listamönnum sem þú heyrir á Létt 96.1 á þátttöhusedil
sem þú getur nálgast í uerslun llettó í dljódd
Inguar Helgasyni
Það uerður dregið 3. september næsthomandi
FUJIFILM
VELDU BESTU FRAMKÖLLUNINA
FUJIFILM FRAMKðUUN
www.fuiifilm.is
FUIIFIIM CRYSTAI ARCHIVi
ENDINGARBESTI
UÖSMVNDAPAPPÍR SEM TIL ER
Ljósmyndavörur Reykjavík, Framköllunarþjónustan Borgarnesi, Myndastofan Sauðarkróki, Ljósmyndavörur Akureyri, Myndsmiðjan Egilsstöðum, Ljósey Höfn, Filmverk Selfossi,
Fótó Vestmannaeyjum, Geirseyrarbúðin Patreksfirði, Framköllun Mosfellsbæjar, Ljósmyndastofa Grafarvogs, Úlfarsfell Hagamel.