Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 22
> 22 B SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ % i * ROKKSTOKK í KEFLAVÍK SÍÐUSTU tvö ár hefur lífleg hljómsveitakeppni, Rokk- stokk, verið haldin í Keflavík þar sem keppt hafa um hijóð- verstíma og útgáfu hljómsveitir hvaðanæva af landinu. Nú stendur fyrir dyrum þriðja keppnin af þeim toga, haldin 17. og 18. september í Bæjarbíói í Keflavík. IKeflavík veltu menn því fyrir sér að halda árlega rokkhátíð, en eftir að félags- miðstöðin Ungó tók við verkefninu varð úr hljóm- sveitakeppni. Aðstandendur keppninnar segja að tónlist- arlíf í Reylganesbæ hafi alltaf verið blómlegt og með keppninni vilji félagsmið- stöðin auka enn þá grósku. „I þau skipti sem keppnin hefur verið haldin fara alltaf allir sem eru að grúska eitt- hvað að semja og æfa nokk- ur lög fyrir Rokkstokk, en keppnin er ekki bara fyrir Keflvíkinga heldur alla sem vilja,“ segir Jón Rúnar Hilmarsson. I síðustu keppni voru hljómsveitir á þriðja tug og líklegt að enn fleiri sveitir skrái sig til keppni að þessu sinni. Jón Rúnar segir að brugðist verði við því ef þörf krefur, en annars verða keppniskvöldin tvö og úrslit síðan kynnt á sérstöku kvöldi þar sem sex bestu sveitimar spila. Meðal helstu atriða Rokk- stokk hefur verið að gefinn er út geisladiskur með sveit- unum sem lengst ná í keppninni, en að auki fær sigursveitin í verðlaun hljóðverstíma og útgáfu á plötu. Jón Rúnar segir það sitt mat að þátttaka í keppn- inni sé ódýrasta leiðin fyrir bílskúrshljómsveitir til að komast á plast. „Útgáfan er heimild um hvað sé að ger- ast hverju sinni í bílskúrum landsmanna og þótt þetta verði líklega aldrei söluháar plötur þá eru þetta skemmtilegar heimildir að okkar mati.“ Getið er sigurlaunanna, en fleiri verðlaun eru í boði. Pannig fá fimm aðrai’ hljómsveitir hljóðversupp- töku á einu lagi sem sett verða sem aukalög á Rokk- stokk 99 diskinn, besti gít- Umdeildur sextett ÞVÍ HEFUR verið haldið fram að allar listir reyni að nálgast tónlistina og víst láta margir sér ekki nægja að sinna bara einu listformi; til eru fjölmargir málarar sem leika tónlist eða rithöfundar sem mála myndir og svo má telja. Egill Sæbjömsson er myndlistarmaður sem ekki hefur getað látið tónlistar- gyðjuna afskiptalausa og fór svo að hann sendi frá sér plötu á dögunum. Egill segist hafa fengist við tónlist frá því hann var unglingur, byrjaði að spila á kassagítar þrettán ára og spilaði mikið á hann næsta árið, þegar í ljós kom að gítarinn var vitlaust stilltur. Eftir að búið var að stilla gítarinn varð Egill sér úti um fleiri hljóðfæri og tók að taka upp lög í einskonar heimahljóðveri. Lagasafnið er enda orðið mikið að vöxt- um, „ég á örugglega fimm þúsund kassettur", segir hann en bætir við að hann sé misduglegur við laga- smíðamar, enda fái hann yf- irleitt sína útrás í myndlist- inni. „Eg dett jafnan í tón- listina í nokkum tíma í senn, kannski í nokkra mán- uði, og sem þá yflrleitt eitt lag á dag. Platan vai’ð til upp úr svoleiðis lotu,“ segir Egill, en eins og áður er getið gefur hann plötuna út og framleiðir sjálfur. Egill hefur smám saman komið sér upp betri búnaði, festi meðal annars kaup á tölvu og vinnur tónlistina og brennir diskana í henni, en hann segist stefna að því að koma sér upp stafrænu heimahljóðveri á tölvunni og síðan að tengja stafræna myndavél við allt saman og geta þá verið að störfum um allan bæ við alla þætti tón- listar. Á disknum nýja, sem heitir The Intemational Rock ‘n Roll Summer of Eg- ill Snæbjömsson, em fimm lög sem Egill segir að séu mjög mótuð af tækninni, til- raunir og prafur. Egill hefur tekið þátt í ýmsum uppákomum, en aldrei sem tónlistarmaður, enda segist hann lengst af hafa haft mikla óbeit á tón- listariðnaðinum og tónlist- armönnum. „Eg er því bú- inn að lifa í afneitun í mörg ár,“ segir hann og kímir. FÁAR hljómsveitir hafa verið eins umdeildar á síð- ustu árum og þýski rokksextettinn Ramm- stein. Hljómsveitin leikur einkar þekkilega blöndu af harkalegu rokki og mulningsdiskói, sem fellur vel að þýsku textunum. Ekki er það þó tónlistin sem hugnast ekki við- kvæmum sálum, heldur ímyndin sem mörgum fínnst glannalegt daður við þjóðernissósíalisma. Allt frá því Rammstein varð til fyrir sex áram hefur sveitin verið um- deild, ekki bara fyrir tón- listina og harkalega myrka texta, heldur einnig fyrir sviðsfram- komuna sem er oftar en ekki leik- ur að eld- inum í bókstaf- eftir Árna legn Motthíasson merk- ingu. Þeir Rammstein-félagar era flestir upprunnir í Austur- Berlín og aldir upp við kröpp kjör. Að því þeir segja sjálfir frá varð stefnan sem sveitin er hvað frægust fyrir til nán- ast um leið og þeir félagar fóru að æfa saman, „enda voram við allir með á hreinu hvaða tónlist við vildum ekki spila“, segir hljómborðsleikarinn Fla- ke, en aðrir í sveitinni eru gítarleikaramir Richard Kruspe og Paul Landers, söngvarinn og fyrrverandi ólympíusundkappinn Till Lindemann, bassaleikar- inn Oliver Riedel og trommuleikarinn Christoph Schneider. Ekki var bara að þeir félagar vissu hvaða tónlist þeir ekki vildu spila; þeir vissu og hvernig þeir vildu láta á sviði og þannig varð Lindemann snemma al- ræmdur fyrir það að vilja helst ekki syngja nema föt hans stæðu í björtu báli. arleikarinn fær úttekt frá Rín, besti söngvarinn, bassaleikarinn og tölvar- inn/hljómborðsleikarinn fá úttekt frá Tónastöðinni og besti trommuleikarinn fær úttekt frá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Aðstandendur Rokkstokk hafa tekið Netið í þjónustu sína og þannig má skrá hljómsveitir til þátttöku á Netinu, en einnig er frekari upplýsingar að fá á vefsíðu keppninnar, www.gjor- by.is/rokkstokk. Dómnefnd velur sigur- sveitimar en hana skipa Júlíus Guðmundsson, sem sér að auki um upptöku á Rokkstokk-keppninni fyrir hönd Geimsteins, Þráinn Á Baldvinsson, gítarleikari Klamidíu X, sigursveitar- innar frá því á síðasta ári, og Börkur Hrafn Birgisson gítarleikari Jagúar. Morgunblaðið/Gíolli Myndtón- listarmaður Egill Sæbjörnsson. Alræmdir Tónlistarmenn fyrst og fremst - liðsmenn Rammstein. Margir hafa lagst yfir Rammstein-texta og telja sig finna þar her- hvöt til illvirkja og hat- ursmanna litra, en höf- undar textanna eru á öðru máli, segja menn aðeins amast við þeim þar sem hljóm- sveitin sé þýsk. „Við eram bara að syngja um ástina," segir Lindemann,. „í öllum sínum fjöl- breytilegU birtingar- myndum,“ en oftar en ekki er yfir ástartextunum þunglyndislegt yfirbragð og mikil tregi. Þunglyndislegir textar Rammstein-manna, geggj- uð sviðsframkoma og villt keyrsla vann hug og hjörtu þýskrar æsku og sveitinni hefur gengið allt í haginn þar í landi. Utan Þýskalands hefur þeim fé- lögum einnig tekist vel upp og þannig seldist síð- asta breiðskífa sveitarinn- ar í á þriðju milljón ein- taka. Rammstein-menn hafa og lagt mikla áherslu á að fylgja skífunni vel eft- ir, meðal annars með tón- Frá Rokkstokk - leikaferð um Bandaríkin, en heldur þurftu þeir að draga úr hamaganginum á sviðinu til að styggja ekki sið- vanda. Kom þó fyrir ekki, því skammt er síðan Lindemann var handtek- inn eftir að hafa veifað gervilim á sviði og þannig styggt siðprúða tónleika- gesti sem fóra snimmendis í mál til að fá bætta blygð- unarkenndina. Ekki varð svo til að draga úr deilum um sveitina þegar spurðist að skotóðu ungmennin sem myrtu fjölda félaga sinna í skóla í Colorado keppninni í Keflavík á síðasta ári. hefðu haldið sérstaklega upp á Rammstein og margir kröfðust þess að tónlist sveitarinnar, og fleiri áþekkra, yrði bönn- uð. Þeir Rammstein-liðar leggja þó höfuðáherslu á að sveitin sé ekki pólitísk og hafi aldrei samið póli- tískan texta. „Við eram tónlistarmenn fyrst og fremst," segja þeir ákveðnir, en njóta þess þó áfram sem hingað til að ögra siðapostulum, enda betra að vera alræmdur en öllum gleymdur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.