Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 B 5
Rafmagn
komið í
Kaldársel
í SUMARBÚÐUNUM í Kaldárseli
fyrir ofan Hafnarfjörð er nú loksins
komið rafmagn. í tilefni af afmæli
Rafveitu Hafnarfjarðar gaf hún inn-
tak fyrir rafmagn og var það tengt
sl. vor.
Undanfarin 10 ár hefur verið not-
ast við ljósavél og þar áður við olíu-
lampa til þess að lýsa upp húsa-
kynnin. Einnig var grafið fyrir
vatnslögn í sumar sem er dýpra
niðri í jörð en frýs á vetrum þannig
að gerlegt er að leigja út húsnæðið
að vetrarlagi. í sumar var jafnhliða
sett niður rotþró sem er nógu stór
fyrir 50 manna byggð.
Að sögn Sigurðar Pálssonar, for-
manns stjómar Kaldársels, var um
95% nýting á plássum í sumarbúð-
unum í sumar. Alls komu 254
krakkar á aldrinum 7-12 ára í 7
flokkum. Starfið hefði gengið vel í
sumar og langt síðan að jafngóð að-
sókn hefði verið að sumarbúðunum
eins og nú.
Þess má geta að í árlegri kaffisölu
í Kaldárseli um síðustu helgi fékk
Sigrún Sumarrós Jónsdóttir, eða
Rúna eins og hún er kölluð, viður-
kenningu fyrir 50 ára starf sem
ráðskona í eldhúsinu. Sigurður
Pálsson veitti henni viðurkenningu
og þakkaði henni fyrir langt og far-
sælt starf.
Forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra og Ellert B. Schram, forseti ISI, voru meðal gesta
á heimsleikunum. Wolfgang Berg, forseti IPZV og framkvæmda-
sljóri HM, er lengst til vinstri á myndinni.
Eiðfaxi í 40
þúsund eintökum
EIÐFAXI International, sem gefinn
er út á ensku og þýsku, verður gef-
inn út í 40 þúsund eintökum nú um
miðjan september og dreift til allra
eigenda íslenskra hesta í heiminum.
Að verkefninu standa Eiðfaxi ehf.,
landbúnaðarráðuneytið, Félag
hrossabænda, Bændasamtökin, Fé-
lag hrossaútflytjenda, Landssam-
band hestamannafélaga, Félag
tamningamanna, útflutnings- og
markaðsnefnd og embætti yfirdýra-
læknis.
Hér er um að ræða meiriháttar
markaðsátak, beint í kjölfar hins frá-
bæra árangurs íslendinga á HM í
Þýskalandi, þar sem lögð verður
megináhersla á ísland sem uppruna-
land íslenska hestsins. Þessu mark-
miði telja menn best þjónað með
risaútgáfu á Eiðfaxa International,
sem að þessu sinni er að mestu helg-
aður umfjöllun um heimsleikana, en
auk þess verður í blaðinu fjölbreytt
efni um hestamennsku almennt.
Hinn margþætti atvinnuvegur sem
skapast hefur í kring um íslenska
hestinn mun því í heild njóta góðs af
markaðsátakinu.
Ekki má heldur gleyma því að
þúsundir ferðamanna koma árlega
hingað til lands vegna ástar á ís-
lenska hestinum. Átak sem þetta er
því ekki síður mikilvægur liður í
markaðssetningu á íslenskri ferða-
þjónustu en á íslenska hestinum.
m
Yoga kennaraþjálfun
Yoga Studio sf. í samvinnu við Shanti Yoga Institute N.J. í Bandaríkjunum mun
halda jógakennaraþjálfun haustið 1999. Kennarar eru Ásmundur Gunnlaugsson,
eigandi Yoga Studio sf., þekktur fyrir námskeiðið „jóga gegn kvíða“, og
Yogi Shanti Desai, sem er jógameistari með yfir 45 ára reynslu af ástundun og
kennslu Hatha Yoga. Þjálfunin er haldin í fimmta sinn á íslandi og er fyllilega
sambærileg við það besta sem í boði er erlendis, auk tækifæris til að nema af
kennurum með mikla reynslu. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja gerast
jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið.
Hún hentar t.d. öllum sem eru í einhvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa,
Ekki er krafist mikillar reynslu og ástundunar af yoga, mikilvægast er áhugi og
jákvætt hugarfar. Einhver grundvallarþekking á yoga er þó æskileg.
Kynningarfundur verður föstudaginn 3. september kl. 20.00.
Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er
föstudagurinn 10. september.
Asmundur
Þjálfunin er alls 6 helgar auk skyldumætingar í jogatíma sem hér segir:
Fyrsti áfangi: 17.-19. september, 24.-26. september og 1.-3. oktðber,
Annar áfangi: 12.-14. nóvember, 19.-21. nóvember og 26.-28. nóvember.
Kennt er föstud. kl. 20-22, laugardaga og sunnudaga kl. 9-16.
STUDIO
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560.
CÐ
Raðgreiðslur til 24 mánaða.
Bókaðu fyrir 10. sept. til
London
með Heimsferðum
og tryggðu þér
• ■ iTiTr
UiUUU kr.
afslátt fyrir manninn
Gildir í ferðir frá mánudegi til fimmtudags
ef bókað er fyrir 10. sept.
Heimsferðir kynna nú fimmta árið í röð, bein leiguflug sín til London,
þessarar vinsælustu höfuðborgar Evrópu, og aldrei fyrr höfum við
boðið jafn hagstæð verð og jafn glæsilegt úrval hótela í hjarta
borgarinnar. Londonferðir Heimsferða hafa fengið ótrúleg viðbrögð
og nú þegar er uppselt í fjölda brottfara. Bókaðu!
Glæsileg ný hótel í boði
Cross
Flug og hótel í 3 nætur
Verð kr. 24«990
Ferð frá mánudegi til fimmtudags,
bókað fyrir 10. sept., Bayswater Inn,
m.v. 2 í herbergi með morgunmat.
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð
Verðkr. 33.590
Ferð frá fimmtudegi til mánudags,
Bayswater Inn hótelið,
m.v. 2 í herbergi með morgunmat.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Flugsæti til London
Verðkr 16,990
Flugsæti fyrir fullorðinn með sköttum.
Ferð frá mánuegi til fimmtudags,
bókað fyrir 10. september.
Flug alla fimmtudaga og mánudaga
í október og nóvember.
HEÍMSFERÐIR
!Sffi
Líttu vel út. Keyrðu öruggasta
bílinn í sínum
Renault Mégane fékk bestu einkunn allra bíla í sínum flokki í Euro NCAP
árekstrarprófinu. Renault Mégane fékk einnig öryggisverðlaun tímaritsins
What Car 1999.
í Mégane er engin málamiðlun milli öryggis og útlits. Áherslan er lögð
á tækninýjungar sem samræma öryggi, aksturseiginleika og fegurð.
Veldu öryggi. Reynsluaktu Renault Mégane.
RENAULT
Crjóthils 1
Stmi 575 1200
Söludeild 575 1220
flokki.
nQr Mégane