Morgunblaðið - 29.08.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.08.1999, Qupperneq 6
6 E SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ Skólaskrifstofa Siglufjarðar skolaski@siglo.is Staða þroskaþjálfa við Skólaskrifstofu Siglufjarðar er laus til umsóknar Um er að ræða nýja stöðu sem skal sinna leik- og grunnskólum bæjarins. Einnig geturverið um að ræða vinnu í tengslum við sambýli fatlaðra. Siglufjarðarkaupstaður lauk stefnumörkun í skólamálum 1987 og í grunnskólanum er unnið að þróunarverkefni þriðja árið í röð eftir breska IQEA-vinnuferlinu (aukin gæði náms). Þeir þroskaþjálfar sem vilja kynna sér þetta betur hafi samband við skólafulltrúa í síma 460 5600 eða 467 1686. Sérstakur bær með sérstakt mannlíf Gamli síldarbærinn Siglufjörður stendur í afar fallegu umhverfi, nyrst- ur allra kaupstaða á íslandi. Lifandi sagan speglast í gömlum og nýjum húsum. Glíman við hafið og óblíð náttúruöfl hafa mótað sér- stakt mannlif, sem einkennist af miklu félagslífi og fjölbreyttu íþrótta- starfi. í bænum er grunnskóli i endurbyggingu, nýr leikskóli, góður tónlistarskóli, öflug heilsugæsla og sjúkrahús, nýlegt íþróttahús, stór innisundlaug og mjög gott og fjölbreytt skíðasvæði. Verið hjartanlega velkomin til Siglufjarðar. Leikskólar Garðabæjar Garðabær auglýsir laus til umsókna störf leikskólakennara við leikskólann Hæðarból. Til greina kemur að ráða fólk með aðra uppeldismenntun og fólk sem hefur reynslu af störfum með bömum. Um er að ræða störf eftir hádegi. Launakjör em samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknum skal skilað til Ingibjargar Gunnarsdóttur, leikskólastjóra, er veitir nánari upplýsingar í síma 565 7670. Leikskólafulltrúi. FræðsJu- og mennmgarsvið HEILSUGÆSLUSTÖÐIN, DALVÍK 620 DALVÍK ■ SlMI: 466-1500 • FAX: 466-1103 Staða heilsugæslu- læknis og hjúkrunarfræðings Laus er til umsóknar staða heilsugæslulækn- is við Heilsugæslustöðina á Dalvík. Staðan veitist frá og með 1. okt. 1999, eða eftir sam- komulagi. Umsóknarfrestur ertil 20. sept. næstkomandi. Krafist er sérfræðiviðurkenning- ar í heimilislækningum. Óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa sem allra fyrst. Starfshlutfall samkomulag. Einnig vantar hjúkrunarfræding í 50% stöðu í Hrís- ey, þarf að hafa búsetu þar. Nánari upplýsingar veita Bragi Sigurðsson yfirlæknir, s. 466 1500/461 3797, Lilja Vilhjálmsdóttir hjúkrunarforstjóri, s. 466 1500/466 1616 og Ásrún Ingvadóttir framkvæmdastjóri, s. 466 1500/4661009. Um- sóknir sendist stjórn heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík, 620 Dalvík. VALHÚSASKÓLI j j Lausar stöður Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða hugmyndaríka og metnaðarfulla starfsmenn. Valhúsaskóli er einsetinn skóli fyrir 8.-10. bekk með um 200 nemendur. Starfsaðstaða er góð og skólinn vel búinn tækjum. Starfsmönnum gefst kostur á að vinna að umbóta- og nýbreytnistarfi í skólanum. Við óskum eftir að ráða starfsfólk í 75% starf, sem felst m.a í umsjón og vinnu með nemendum og j ræstingu á dagvinnutíma. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi stéttar- : félagsins Eflingar. Umsóknir berist til Sigfúsar Grétarssonar skólastjóra, sem veitir nánari upplýsingar um stöðurnar. Símar li 561 2040 og 897 0021, netfang sigfus@ismennt.is. ■ t ■ 2 |f Seltjarnarnesbær jf Umsóknarfrestur | er til 3. september 1999. Grunnskólafulltrúi Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi Gott fólk — góð störf Fólk með fötlun vantar þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa sér til trausts og halds í athöfnum daglegs lífs og til þátttöku í samfélaginu í boði eru fjölbreytt og spennandi störf á starfs- stöðvum Svæðisskrifstofu í Garðabæ, Hafn- arfirði, Kópavogi og Seltjarnarnesi. Um er að ræða 40—100% störf á sambýlum, heimili fyrir börn, skammtímavist og þjónustu- íbúðum. Vaktavinna, aðallega kvöld-, nætur- og helgarvinna. Einnig dagvinna á hæfingar- stöð í Hafnarfirði. 50% og 100% stöður. Óskað er eftir áhugasömu fólki með færni í mannlegum samskiptum. Nýju starfsfólki er veitt vönduð leiðsögn og fræðsla. Laun skv. gildandi kjarasamningum. Umsóknarfresturertil 10. septemberen um- sóknir geta gilt í allt að 6 mánuði. Upplýsingar um ofangreind störf eru veittar í síma 564 1822 á skrifstofutíma. Umsóknareyðublöð eru á skrifstofunni á Digra- nesvegi 5 í Kóavogi og á vef Svæðisskrifstofu á netinu http://www.smfr.is. (Z'A'fji féleu REYKJAVIK Kátar stúlkur og knáir drengir takið eftir Ferskasti og frumlegasti veitingastaður borgar- innar verður opnaður í Kringlunni 30. septem- ber. Aðstoðar ykkar er því óskað við eftirtalin störf: Þjónustu, aðstoð í eldhús og uppvask Frábært andrúmsloft, góður vinnutími, góð laun. Upplýsingar veitir Gísli í síma 895 5389. Mosfellsbær Sálfræðingur Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar óskar að ráða sálfræðing til sálfræði- og ráðgjafarþjónustu við grunnskóla og leikskóla bæjarins. Sérfræðiþjónusta skólaskrifstofunnar er í raðri uppbyggingu og býðst nýjum starfs- manni færi á að hafa áhrif á þá uppbyggingu. Um launakjörfer samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Stéttarfélags sálfræðinga. Umsóknarfrestur ertil 10. september 1999. Allar nánari upplýsingar gefur forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs og skólafulltrúi. I Mosfellsbæ eru fjórir leikskólar, tveir grunnskólar og þriöji grunn- skólinn í uppbyggingu. Fjöldi barna á skólaaldri er u.þ.b. 1400. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í skólum bæjarins á síðustu árum og ríkjandi er jákvætt og metnaðarfullt viðhorf til skólamála. Skólaskrif- stofa Mosfellsbæjar veitir skólunum faglega þjónustu og ráðgjöf jafnframt því sem hún aðstoðar við nýbreytni- og þróunarstarf og stendur fyrir símenntun starfsfólks skólanna. Við skólaskrifstofuna eru tvö stöðugildi sálfræðinga. Fræðslu- og menningarsvið Mosfellsbæjar. Fangelsismálastofnun ríkisins Hefur þú áhuga á að starfa með föngum? Fangelsismálastofnun ríkisins leitarað áhuga- sömum einstaklingum til starfa við Fangelsið Kvíabryggju. Annars vegar er um að ræða framtíðarstarf fangavarðar í dagvinnu og hins vegar starf fangavarðar til afleysinga í vakta- vinnu frá hausti. í Fangelsinu Kvíabryggju starfa 7 manns auk forstöðumanns. Leitað er að áhugasömum einstaklingum á aldrinum 20—40 ára sem lokið hafa grunnskólaprófi og tveggja ára viðbótar- námi eða hafa hlotið menntun eða starfsþjálf- un sem meta má að jöfnu. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð- herra og Starfsmannafélags ríkisstofnana. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, ásamt sakavottorði, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, fyrir 10. september nk. Nánari upplýsingar um störfin eru veittar hjá Fangelsismálastofnun ríkisins í síma 520 5000 og hjá Vilhjálmi Péturssyni, forstöðumanni Fangelsisins Kvíabryggju, í síma 438 6769. Fangelsismálastofnun ríkisins, 27. ágúst 1999. Þórs/iafnar/ireppi/r í Þórshafnarhreppi er laust starf sveitarstjóra Sveitarstjóri erframkvæmdastjóri sveitarinnar, situr á fundum sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, er prókúruhafi sveitarsjóðs og yfirmaður annarra starfsmanna sveitarstjórnar. Ráðningartími sveitarstjóra er hinn sami og kjörtímabil sveitarstjórnar, þ.e. 4 ár. Starfskjör verða ákveðin í ráðningarsamningi. Leitað er eftir starfsmanni með góða menntun og starfsreynslu sem nýtist í þessu starfi. í Þórshafnarhreppi eru nær 500 íbúar og þar er leikskóli, grunnskóli og tónlistarskóli, fjöl- breytt félags- og atvinnulíf og fleira. Margvís- legt samstarf er við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar um starfið veitir Henrý Ásgrímsson í símum 468 1217, 854 9355, 852 8124, og Sigurður Kristinsson í síma 468 1310. Umsóknum skal skila til Henrýs Ásgríms- sonar, Lækjarvegi 7, 680 Þórshöfn. Umsóknarfrestur er til 10. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.