Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 24
* 24 E SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ * > -V BRESKA bíómyndin Nott- ing Hill með Hugh Grant og Juliu Roberts er dæmigerð, gamaldags rómantísk gamanmynd með tveim- ur stórstjörnum nútímans. Henni hefur vegnað ákaflega vel í miða- sölunni um allan heim sem sýnir að komi vegleg ástarmynd í bíóin og fyndin í þokkabót er fólk alltaf til- búið til þess að skoða hana. Annars hafa ástarmyndir ekki verið áber- andi í bíóunum hin síðari ár og kannski eru þær vanræktar af kvikmyndagerðarmönnum. Ekki er það algilt; einhver prýðilegasta ástarmynd sem gerð hefur verið, Enski sjúklingurinn, er gott dæmi um hvað snjallir kvikmyndagerðar- menn geta gert úr ljómandi fínni ástarsögu. Ástarmyndirnar Bandaríska kvikmyndatímaritið Movieline bjó nýlega til forvitnileg- an lista yfir fimmtíu bestu ástar- myndirnar sem gerðar hafa verið og kennir þar að vonum ýmissa grasa (þótt margt vanti þar einnig). Þær eru eftir marga af fremstu leikstjórum samtímans og fyrri tíma og nöfn myndanna eru mörg hver fyrir löngu orðin greipt í kvikmyndasöguna, Á hverfanda hveli og Casablanca þar á meðal. Alfred Hitchcock á fjórar myndir á listanum en gæti átt nokkrar fleiri. Roman Polanski kemur við sögu, Peter Weir og James Cameron, svo aðeins fáeinh' séu nefndir. Margar myndanna eru að sjálf- sögðu til á leigunum og því virkar listinn sem ágætur vegvísir ástar- fuglum sem vilja sjá út á hvað þetta allt saman gengur. Elstu myndirnar eru frá árinu 1932 en þær heita Vandræði í para- dís eða „Ti-ouble in Paradise" og Bara aðra leiðina eða „One Way Passage". Sú fyrri er eftir meistara rómantísku gamanmyndanna, Ernst Lubitsch, og segir frá svika- hröppunum Miriam Hopkins og Herbert Marshall og erfingjanum Kay Francis, sem er ábyggilega jafngóð fyrir Marshall og Hopkins. Kay Francis er einnig í hinni síðar- nefndu og leikur á móti William Powell; hún er haldin banvænum sjúkdómi, hann er á leið í lífstíðar- fangelsi en þau vita ekki leyndar- mál hvors annars. Hitchcock-myndirnar sem brunnu af ást eru í réttri tímaröð Rebekka, Alræmd, Lofthræðsla og loks Marnie (hjá Hitchcock var ást- in aldrei langt undan og nefna mætti fleiri myndir eins og Norðnorðvestur). Leikararnir í þessum Hithcockmyndum voru ekki af verri endanum: Joan Fontaine og Laurence Olivier fóru með aðalhlutverkin í Rebekku, Cary Grant og Ingrid Bergman í Airæmdri, Jimmy Stewart og Kim Novak í Lofthræðslu og loks Sean Connery og Tippi Hedren, sem lík- lega er sú sísta af þeim, bæði mynd- in og leikkonan. Ástarmyndir Hitchcocks eru auðvitað um leynd- armál og lygar eins og augljósast er kannski í Lofthræðslu þar sem kon- an í sambandinu gerist varia dular- fyllri eða myndin skemmtilegri. Af eldri myndunum á listanum má ennþá hafa gaman af „It Happ- ened One Night“ eða Það gerðist eitt kvöld frá 1934 þar sem Claudette Colbert og Clark Gable (ástarhnoss númer eitt á þessum árum) leggja upp í langferð og Ga- ble fer úr skyrtunni. Þá er hún ekki síðri rómantíska gamanmynd- in Búðin á horninu eða „The Shop Around the Comer“ frá 1940 eftir Lubitsch; hún er með Stewart og Margaret Sullavan sem fara létt með að slá út Tom Ástin á hvíta tjaldinu Allen og ástin ✓ Astarmyndirnar eru stundum kallaðar klútamyndir og mörgum fínnst þær kannski væmnar en sumar hverjar eru með bestu og vinsælustu myndum sem gerðar hafa verið að sögn Arnalds Indriðasonar, sem skoðaði lista yfír nokkrar frægar ástarsögur sem festar hafa verið á filmu. Yul Brynner og Deborah Kerr í Konungurinn og ég. for the Road“ á móti Albert Finn- ey, einskonar vegamynd um ástar- samband í hættu. I millitíðinni lék Hepburn svo í „Breakfast at Tiffany’s" á móti George Peppard. Frá þessu skeiði em einnig myndirnar Konungurinn og ég með Yul Brynner og Deborah Kerr, stórfengleg í litaskrúði og ekki spillir tónlist Rodgers og Hammersteins. Og „Beauty and the Beast“ eða Fríða og dýrið eftir Jean Cocteau þykir gera ævintýr- inu frábær skil. Þegar komið er nær nútímanum má finna eina og eina góða ástar- mjmd þótt slíkar myndir séu eins og áður sagði frekar á undanhaldi. Kínahverfið eftir Polanski er saka- máiamynd strangt til tekið en ást- arsagan í henni milli Jake Gittes (Jack Nicholson) og Evelyn Mulwray (Faye Dunaway) er mergjuð og eins og margar slíkar dauðadæmd. Á níunda áratugnum voru gerðar myndir á borð við „Moonstruck" með Cher og Nieholas Cage undir stjórn Norm- an Jewisons og „Mrs. Soffel“ með Mel Gibson og Diane Keaton sem gerist í fangelsi og segir af ástum dauðadæmds morðingja og eigin- konu fangelsisstjórans. Hún reyn- ir að bjarga sálu hans en svo fer að hún hjálpar honum að flýja. Þá gerði Woody Allen, sem alltaf fjall- ar um ástina á einn eða annan veg, eina af sínum bestu myndum á þessum tíma, Kaírórósina eða „The Purple Rose of Cairo“. Kannski er hún óður til ástar- myndanna. Hún segir af ástum hinnar lánlausu Miu Farrow, er hefur sérstaka unun af rómantísk- um myndum, og kvikmyndastjörn- unnar glæsilegu, sem stígur af hvíta tjaldinu og niður til hennar í bíósalinn. Og loks má nefna Jörð í Afríku eða „Out of Africa“ með Robert Redford og Meryl Streep. Redford hefur átt misjafna daga í róman- tísku myndunum eftir því sem ár- unum hefur fjölgað (Hestahvísiar- inn var hræðileg) en var í essinu sínu þarna og Streep á hátindinum. Ástarsagan var kannski fornaldar- leg en Afríka bætti hana upp. Ekki er hægt að skilja við ástar- myndalistann án þess að nefna tvær myndir í viðbót. Sú fyrri er Enski sjúklingurinn sem áður var minnst á. Þar er á ferðinni klassísk ástarsaga með síðari heimsstyrj- öldina í bakgrunni. Frásagnarað- ferðin er spennandi, sagan um hina stolnu ást í eyðimörkinni er óvenjulega sterk og örlög elskend- anna ættu að fá hjartað til þess að taka kipp, jafnvel í hinu mesta dauðyfli. Hin myndin er Titanic eftir James Cameron. Ástæðan fyrir því að hún varð svona gríðarlega vinsæl er lýsing Camerons á sjálfu slysinu en honum tókst að hreyfa við milljónum áhorfenda með ást- arsögunni milli Leonardo DiCa- prio og Kate Winslet, jafnvel þótt hún væri einfeldingsleg og jafnvel hallærisleg. Konungur heimsins vai'ð einnig konungur ástarsög- unnar. Köld ást; Leonardo DiCaprio og Kate Winslet í Titanic. Ingrid Bergman og Hump- hrey Bogart í Casablanca. Clark Cable og Claudette Colbert í Það gerðist eitt kvöld. Ralph Fiennes og Kristin Scott-Thomas í Enska sjúklingnum. hrey Bogart í hlutverki kaffihúsa- eigandans Ricks og Ingrid Berg- man í hlutverki gömlu kærustunn- ar hans, Ilsu. Af öllum búllunum í öllum heiminum þurfti hún endi- lega að rekast inn á mína búllu, segir Rick angurvær. Og þá er ekki síður angurvær söngur Sams um tímann sem líður hjá. Casa- blanca er ástarsaga úr stríðinu og kannski er það vegna þess að þau þurfa að skilja sem samband þeirra varir að eilífu. Við skulum samt ekki gleyma að það verður upphaf- ið að frábærri vináttu. Audrey Hepburn er mest áber- andi í ástarmyndunum eftir stríð. Hún lék í fjöldanum öllum af slík- um myndum og nægir að nefna „Funny Face“ og „Sabrina“ og auðvitað söng- og dansstykkið „My Fair Lady“. Einnig „Rom- an Holiday“ frá 1953 þar sem hún lék á móti Gregory Peck. Hann var blaðamaður en hún prinsessa, sálufélagar úr ólík- um heimi. Þau vita að það er spurning hversu lengi slík sambönd endast og taka því þá ákvörðun að hætta saman á meðan töfrarnir vara. Þá lék Audrey Hepburn í „Love in the Afternoon" frá 1957 á móti Cary Cooper undir leikstjórn Billy Wild- ers. Háðfuglinn Wilder átt þátt í handritinu og gerði Cooper að auðugum, rosknum manni sem hin unga Hepburn fær ekki staðist. Áratug síðar lék Hepburn í „Two Stewart og Novak í Loft- hrseðslu. Hanks og Meg Ryan í endurgerð- inni sem sýnd var hér um daginn, „You’ve Got Mail“. Leiktu það aftur, Sam Um þetta árabil eða 1942 er svo gerð móðir allra ástarmynda, Casablanca. Hún hefur orðið tilefni endalausra bollalegginga um hvað það nákvæmlega er sem gerir hans svona góða og er listinn sá mjög langur. Ofarlega á honum hljóta að vera þau Hump-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.