Morgunblaðið - 29.08.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 E 11
Tölvu- og verkfrœðiþjónustan var stofnuð árið 1986. Helstu verkefni
eru á sviði námskeiðahalds, tölvu- og upplýsingatœkniráðgjafar og
útgáfu. Fyrirtœkið leggur ríka áherslu á sjálfstœði og hlutleysi gagnvart
seljendum hug- og vélbúnaðar.
UPPLÝSINGATÆKNI
LEIÐBEINANDI
Tölvu- og verkfræðiþjónustan óskar eftir að ráða í starf leiðbeinanda í upplýsingatækni.
Starfssvið:
• Kennsla og leiðbeinandastörf fyrir starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja.
• Greinaskrif, handbókargerð og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun.
• Góð tölvukunnátta og námshæfileiki.
Samskipta- og leiðbeinandahæfileikar.
Frumkvæði og vönduð vinnubrögð.
í boði er áhugavert og krefjandi starf og starfsþjálfun fyrir ráttan
einstakling sem vill hasia sér völl í upplýsingatækninni.
Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 10-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs fyrir 4. september n.k. merktar:
„Upplýsingatæknileiðbeinandi"
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16, www.tv.is
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns Náttúrustofu Vesturlands
er laus til umsóknar
Starfssvið:
• Forsvar fyrir stofuna
• Stjórnun og daglegur rekstur
• Umsjón og ábyrgð með fjármálum
• Þátttaka í mótun stefnu stofunnar
Krafist er háskólamenntunar í náttúrufræði eða þekkingar sem meta má til
jafns við slíka menntun, sem og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Gert er ráð fyrir
að viðkomandi hafi fasta búsetu í Stykkishólmi og hafi til ráðstöfunar bíl til
nota fyrir Náttúrustofuna.
Umsókniróskastsendartil Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar
„Forstöbumaður" fyrir 14. september nk.
PríCB/VAÍeRHOUS^OOPERS §
Endurskoðun & ráðgjöf
i!l Ernst & Young endurskoðun & rádgjöf
óskar að ráða löggilta endurskoðendur, við-
skiptafræðinga og nema af endurskoðunar-
sviði. Við leitum að metnaðarfullum starfs-
mönnum sem hafa áhuga á að takast á við
krefjandi verkefni á sviði endurskoðunar, reikn-
ingsskila, skattamála og ýmiss konar ráðgjafar
við viðskiptavini.
Við bjóðum upp á fjölbreytileg störf fyrir breið-
an og ört vaxandi hóp viðskiptavina okkar.
Samstarf okkar á alþjóðlegum vettvangi við
01 Ernst & Young veitir starfsfólki okkar tæki-
færi til að takast á við verkefni af erlendum
toga og jafnframt tækifæri til þjálfunar erlend-
is. Einnig er í boði sveigjanlegur vinnutími,
fagmenntun og fjölbreytt félagslíf.
01 Ernst & Young endurskoðun & ráðgjöf er
ört vaxandi fyrirtæki sem býður upp á mikla
möguleika. í dag starfa um 25 manns hjá félag-
inu og mun félagið flytja í nýtt húsnæði í
Sundagörðum 2 um næstkomandi áramót.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa til að senda
umsóknir þar sem koma fram upplýsingar um
menntun, námsárangur og fyrri störf fyrir 7.
september nk. Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarnnál. Nánari upplýsingar veitir
Símon Á. Gunnarsson í síma 511 5333.
01 Ernst & Young
endurskoðun & ráðgjöf,
Borgartúni 20,
105 Reykjavík.
Iff Ernst & YoUNG endurskoðun og ráðgjöf er aðili að Ernst &
Young International, sem eru ein stærstu samtök endurskoðunarfyrir-
tækja í heiminum. Samtökin hafa samtals 85.000 starfsmenn í 133
þjóðlöndum.
Hefur þú þaö
í þér?
Vegna aukinna umsvifa á fasteignamarkaði þá
vantar okkur sölumann hið fyrsta.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir metnaði
og sýnir frumkvæði. Viðkomandi þarf að hafa
jákvæða og góða framkomu og vera lipur í
mannlegum samskiptum.
Stúdentspróf eða önnur framhaldsmenntun
skilyrði. Reynsla af sölustörfum æskileg.
Umsóknir sem tilgreini menntun og starfsreynslu
óskast sendar á skrifstofu okkar fyrir 3
september nk.
Rótl þekkine
á réttum tínm
-fyrir rótt fyrirtæki
Upplýsingar veita Þórir Þorvarðarson og Auður Daníelsdóttir hjá
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300.
Netföng: thorir.thorvardarson@is.pwcglobal.com
audur.danielsdottir@is.pwcglobal.com
Höfðabakka 9
112 Reykjavík
Sími 550 5300
Bréfasími 550 5302
www.pwcglobal.com/is
Álftanesskóli
Bessastaðahreppi
Grunnskólakennarar
Álftanesskóli óskar eftir kennara í bekkjar-
kennslu, 70—100% starf.
Álftanesskóli er einsetinn grunnskóli frá 1.—7. bekk. Fjöldi nemenda
er 215. f skólanum er unnið öflugt og metnaðarfullt skólastarf sem
gerir kröfur til starfsmanna með áherslu á náttúru og umhverfi.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og HÍK
við Launanefnd sveitarfélaga. Auk þess
var gerður samningur við kennara um við-
bótargreiðslur sem gildirtil 31. des.
2000.
Umsóknir berist til skólastjóra.
Upplýsingar um störfin veita Sveinbjörn
Markús Njálsson, skólastjóri, í síma 565 3662
eða 565 3685 og Ingveldur Karlsdóttir, aðstoð-
arskólastjóri í símum 565 3662 og 565 2657.
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða nú þegar í eftir-
farandi störf:
• Plötusmiði.
• Stálskipasmiði.
• Vélvirkja.
• Rafsuðumenn.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu okkar í Kaplahrauni 17.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma
555 4199 milli kl. 9.00 og 17.00.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Vélsmiðja
ORMS & VÍGLUIMDAR ehf.
Vélsmiðja Orms og Víglundar var stofnuð árið 1973. Hún
hefur sérhæft sig í nýsmíði á tækjum og vélbúnaði fyrir
iðnað og virkjanir. Fyrirtækið er einnig í viðhaldi og þjónustu
á skipum og bátum, þar sem lögð er rik áhersla á vönduð
vinnubrögð. Grunneiningar þess eru plötuverkstæði, renni-
verkstæði, trésmíðaverkstæði, slippur og flotkvíar.
Eignasalan - Húsakaup er framsækið þjónustufyrirtæki.
Starfsmenn okkar hafa víðtæka reynslu á sviði fasteignasölu
og ráðgjafar. Við leggjum ríka áherslu á að nýta ávallt
nýjustu tækni til að ná árangri í störfum okkar.
(\
EIGNASALAN
HÚSAKAUP
Suðurlandsbraut 52 við Faxafen • Sími: 530 1500
Metnaðarfullt starf
Staða leikskólastjóra er laus
til umsóknar
Óskum eftir drífandi manneskju, sem jafnframt
er skipulögð, barngóð og metnaðargjörn.
Við höfum áhuga á manneskju, sem er opin fyrir
hugmyndum annarra, en er jafnframt leiðtogi
og ákveðinn persónuleiki. Mikið og skemmtilegt
starf framundan fyrir rétta manneskju.
Upplýsingar gefur Flulda Ólafsdóttir, rekstrar-
stjóri, í síma 557 5579.
Leikskólinn Barnabær,
Hólabergi 74, Breiðholti.