Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 8

Morgunblaðið - 29.08.1999, Side 8
8 E SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ REKSTRARSTJÓRI 4KULDAB0U Frysti- og kælivöruhús • Þorlákshöfn ísfélag Þorlákshafnar óskar að ráða öflugan rekstrarstjóra að frysti- og kælivöruhúsinu Kuldabola. Starfið er umfangsmikið stjórnunar- og rekstrarstarf. ísfélag Þorlákshafnar var stofnað 1985 um rekstur ísverksmiðju í Þorlákshöfn. Fyrirtækið er að ljúka við byggingu fullkomins frysti- og kælivöruhúss sem hefur hlotið nafnið Kuldaboli. Það er byggt til að standast ströngustu kröfur um geymslu matvæla til iangs eða skamms tíma. Fyrirtækið er vistvænn og reyklaus vinnustaður. Beinar fraktsiglingar eru á milli Þorlákshafnar og Noregs, Spánar og Portúgals allan ársins hring. Kuldaboli er ákjósanlegur söfnunarstaður fyrir kæli- og frystivörur sem stefnt er á Evrópumarkað. Starfs- og ábyrgðarsvið: • Stjórnun • Markaðssetning • Innlend og erlend samskipti • Sala og samningagerð Hæfniskröfur: Rekstrarstjórinn þarf að vera fær um að byggja upp öfluga rekstrareiningu þar sem reynir á skipulagshæfileika, markaðs- og söluþekkingu, dugnað og góða samskiptahæfileika. Góð tungumála- og tölvukunnátta eru skilyrði. Rekstrarmenntun og starfsreynsla úr sjávarútvegi er nauðsynleg. Framtíðarbúseta í Þorlákshöfn er skilyrði. Fyrirtækið býður hæfan mann velkominn til starfa sem fyrst. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar viðkomandi starfi fyrir 7. september nk. í Þorlákshöfn á sér staÖ mikii PRICB/VATeRHOUsEQöPERS § Upplýsingar veítir Katrín S. Óladóttir hjá Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers í síma 550 5300. Netfang: katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com Höfðabakka 9 112 Reykjavík Sími 550 5300 Bréfasími 550 5302 www.pwcglobal.com/is miðlun leitar að sölumanni ! Ef þú ert snjall sölumaður í leit að krefjandi starfi þar sem ffumkvæðis og sjálfstæðis er krafist, er þetta örugglega rétta starfið fyrir þig. Við leitum að metnaðarfullum og heiðarlegum einstaklingi með góða ffamkomu, sjálfstraust og skipulagshæfileika. Áhersla er lögð á tölvukunnáttu og fæmi á vefnum ásamt þekkingu á íslensku atvinnulífi. í boði em árangurstengd laun fyrir starf í spennandi umhverfi þar sem starfsmenn fá tækifæri til að njóta sín og ná árangri. Umsóknarffestur er til og með 3. september n.k. Umsókn óskast send til Miðlunar ehfi, Tunguhálsi 19,110 Reykjavík, merkt sölumaður. Gengið verður ffá ráðningu fljótlega. Miðlun ehf., er framsækið fyrirtæki sem starfar á sviði upplý singamiðlunar. Fyrirtækið rekur Gulu línuna- sími, bók, vefur, og gefur út Netfangaskrána og Iceland Export Directory, ásamt því að bjóða ýmsar veflausnir. Leikskólann Skerjakot vantar nú þegar leikskólakennara eða starfsfólk með aðra uppeldismenntun, einnig kæmi til greina að ráða starfsfólk sem hefur reynslu eða áhuga á að vinna með börnum. Skerjakot ertveggja deilda leikskóli sem hefurverið starfandi sl. 10 ár. Allar nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri milli kl. 9.00 og 14.30. Kennarar [ Mývatnssveit er grunnskóli, í nýju húsnæði, vel búinn tölvum og með mjög góðri vinnuaðstöðu fyrir kennara. Nýtt íþróttahús vel tækjum búið og sundlaug eru við skólann. Skólinn er einsetinn með mötuneyti. Á næsta skólaári verða nemend- ur 75 í 1,—10. bekk. Okkur vantar kennara Margvíslegir möguleikar fyrir áhugasama kenn- ara. Viðbótarsamningur í gildi. Sveitarstjórn útvegar húsnæði. Mývatnssveit er náttúruperla sem á sér engan líka jafnt að vetri sem sumri. Hvernig væri að slá til og a.m.k. fá upplýsingar. Allar nánari upplýsingar veita: Skólastjóri í símum: 464 4104 og 464 4376 og sveitarstjóri í síma: 464 4163. KOPAVOGSBÆR Frá Grunnskólum Kópavogs Kópavogsskóli Starfsmaður í dægradvöl Kópavogsskóla óskast í 63% starf. Menntun á uppeldissviði æskileg. Laun skv. kjarasamningi SFK og Kópavogsbæjar. Umsóknarfrestur er til og með 3. sept. nk. Upplýsingar veitir skólastjóri, Ólafur Guðmundsson í síma 554 0475. Snælandsskóli Við Snælandsskóla vantar stuðningsfulltrúa í 50% starf og tvo starfsmenn í Dægradvöl í 50% starf hvorn. Laun skv. kjarasamningi SFK og Kópavogsbæjar. Jafnframt vantar tvo starfsmenn í 50% starf hvorn í gangavörslu/ræstingar eftir hádegi. Laun skv. kjarasamningi Eflingar og Kópa- vogsbæjar. Umsóknarfrestur er til og með 3. sept. Upplýsingar veitir skólastjóri, Reynir Guð- steinsson í síma 554 4911. Digranesskóli Umsjónarmann Dægradvalar vantar í Digra- nesskóla. Uppeldismenntun æskileg. Þá vantar einnig í 80% starf stuðningsfulltrúa. Laun skv. kjarasamningi SFK og Kópavogsbæjar. Umsóknarfrestur ertil og með 3. sept. nk. Upplýsingar veitir skólastjóri, Einar Long Siguroddsson, í síma 554 0290. Kársnesskóli Kennara vantartil kennslu í 4. bekk. Laun skv. kjarasamningum KÍ og HÍK og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 3. sept. nk. Upplýsingarveitirskólastjóri, Hugrún Gunn- arsdóttir í síma 554 1567. Starfsmannastjóri. VEGAEFTIRUTSMAÐUR REYKJAVÍK Tímabundin staða vegaeftirlitsmanns í þjónustudeild Vegagerðarinnar í Reykjavík er laus til umsóknar. Laun skv. kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra. Starfssvið • Umferðareftirlit. • Eftiriit með öxulþunga, þungaskattsmælum, ökurita og eftirlit með hópferðaleyfum. • Skráning brota og skýrslugerð. • Upplýsingaöflun og miðlun upplýsinga um færð og ástand vega. Menntunar- og hæfniskröfur • Iðnmenntun, stúdentspróf eða sambærileg menntum. • Tölvukunnátta. • Þjónustulund og góðir samstarfshæfileikar. Nánari upplýsingar frá kl. 9-12 veita Jón Birgir Guðmundsson í síma 461 4440 og Magnús Haraldsson í síma 533 1800. Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs á Akureyri eða í Reykjavík fyrir 6. september n.k. merktar: „Vegagerðin - eftirlitsmaður" VEGAGERÐIN I 11 É

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.