Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Málefiialeg sam staða meo VG Ámi Þór Signrðsson segir að ef hami heldur áfram í pólitík sé VG sá vettvangnr sem hann eigi helst f&MUr^o Hann hefur alltaf verið svo taumlaus, Magga mín. Gagnagrunnar á heilbrigðissviði Notaðir til rannsókna í Danmörku Thorkild Sörensen ANNAÐ kvöld klukkan 20 mun dr. Thorkild Sörensen að tilhlutan íslenskrar erfðagreiningar halda fyr- irlestur í Odda og ber fyr- irlesturinn heitið; Dönsk reynsla af notkun gagna- grunna á heilbrigðissviði. „Ég mun sem fyrr kom fram tala um danska reynslu af notkun gagna- grunna í heilbrigðisrann- sóknum. I Danmörku höf- um við marga slíka grunna sem reynst hafa mjög nyt- samir til rannsókna. Marg- ir af þessum gagnagrunn- um voru byggðir upp fyrir áratugum. Sérlega nyt- samir eru þeir sem ráða má af fjölda fólks nú og í fortíð. Krabbameinsrann- sóknir hófust hér 1942. Við eigum skýrslur um það efni frá þeim tíma, einnig dauðaorsaka- skýrslur. Og við höfum heilbrigð- isgagnagrunn sem við byggðum upp síðar. Arið 1968 fengu ailir þeir sem þá voru á lífi í Dan- mörku sérstakt númer eða kenni- tölu, CPA-númer. Allir sem fæðst hafa eftir það hafa fengið sína kennitölu. Númerin eru sérstök fyrir hverja og eina persónu. Þessi númer byggjast á fæðing- ardegi, mánuði, ári og svo sér- númeri, rétt eins og þið hafíð á Islandi. Þessi númer hafa verið notuð sem persónuskilríki í næst- um öllum heilsfarsrannsóknum í Danmörku. Þau eru líka á sjúkra- skýrslum sjúkrahúsanna, einnig á skýrslum þeirra sjúklinga sem koma til meðhöndlunar og athug- ana á göngudeildir, svo og þeirra sem koma til rannsókna á slysa- deildum." - Hvað um rannsóknir sem byggjast t.d. á fjölskyldutengsl- um? „Þegar um er að ræða rannsókn- ir sem tengjast fjölskylduástæð- um, t.d. tvíburarannsóknir og aðrar fjölskyldubundnar rann- sóknir ei’u þessar kennitölur einnig notaðar, rétt eins og við aðrar rannsóknir. Inn í þetta per- sónunúmerakerfi er líka stöðugt bætt upplýsingum þannig að á hverjum tíma er vitað hver er á lífí og hvar hann á heima o.fl. Þetta er auðvitað afar hagnýtt þegar við efnum til heilsufars- rannsókna af einhverju tagi. Við getum þannig þekkt fólkið, vitum hvar það býr og við getum einnig fengið upplýsingar frá öðrum stöðum um það fólk sem er þátt- takendur í hverri og einni rann- sókn. Danskar heilsufarsrann- sóknir hafa þarna mikil tækifæri sem hafa verið nýtt vel, ekki síst á síðustu árum og raunar alltaf meira og meira. Mér skilst að miklai’ um- ræður hafi spunnist á íslandi um þetta efni og þess vegna er þessi reynsla í Danmörku vafalaust áhugaverð fyrir íslendinga.“ - Hefur þetta mælst vel fyrir í Danmörku? „Það mikilvæga hér í Danmörku er að meðan við notum upplýs- ingar aðeins til rannsókna þá getum við notað þær án þess að leita sérstaks leyfis í hvert sinn. Við þurfum ekki að fá formlegt leyfí til þess að geta notað upp- lýsingarnar til annarra rann- sókna. Það eru auðvitað takmörk ►Thorkild Sörensen fæddist í Kaupmannahöfn 7. desember 1945. Hann lauk læknaprófi frá háskólanum í Kaupmanna- höfn 1971 og sérfræðinámi Dr.Med Sci, frá sama skóla 1983. Árið 1985 varð hann sérfræðingur í blóðfræði. Hann hefur starfað sem lækn- ir og prófessor við háskólann í Kaupmannahöfn og við há- skóla í Bandaríkjunum, auk þess hefur Sörensen gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa í dönsku heilbrigðiskerfi og fengið margvíslegar viður- kenningar fyrir rannsóknar- störf sín. Thorkild Sörensen er kvæntur Karen Bodil Vall- ing Sörensen og eiga þau þrjú börn, fædd 1972, 1974 og 1977. fyrir hvað við getum unnið með marga í hverri rannsókn, um 100 þúsund í mesta lagi, einkum hvað varðar sjúkraskýrslur. Mjög mikilvægt í þessu sambandi er að það er ekki til eitt einasta tilvik um misnotkun á þessum upplýs- ingum í Danmörku - að minnsta kosti ekki mér vitanlega. Það ríkja strangar reglur um trúnað í þessum efnum. Við þurfum leyfi frá opinberum aðilum til hverrar rannsóknar. Venjulega fáum við þessi leyfi orðalaust gegn því að fylgja þeim reglum sem okkur eru settar. Við sækjum skriflega um leyfí og fáum það skriflegt til baka og undirritum það. í sam- bandi við erfðarannsóknir þurf- um við alltaf að fá leyfi frá sið- fræðinefnd, það er yfirleitt ekki erfitt að fá. Það er alltaf nauð- synlegt að upplýsa hvaða erfða- fræðilegum upplýsingum við er- um að leita eftir, nema að við höfum þegar fengið leyfi frá fólkinu sjálfu í skriflegu formi. Þess ber að geta að við höfum ekki átt í neinum erfíðleik- um með að fá leyfi opinberra að- ila né fólks til þess að gera erfða- fræðilegar rannsóknir - einu erf- iðleikar okkar eru þegar við þurfum að gera fólki grein fyrir hvaða gen það ber og hvaða ekki - það getur verið umdeilanlegt hvaða gagn fólk hefur af slíkum upplýsingum. Það er auðvitað alltaf erfíð spurning; hvað á að segja og hvað ekki. Þetta er það helsta sem ég ætla að fjalla um á mánudagskvöldið - og svo auð- vitað sitt hvað fleira.“ Veit ekki dæmi mis- notkunar uppiýsinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.