Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ í DAG Arnað heilla ORÐABÓKIN Fylgilag - samflot EITT sinn var í blaði rætt um tilraunir til að sameina tvenn samtök útgerðar- manna í eina heild. I frétt- inni komst biaðamaður þannig að orði, þegar Ijóst var, að ekkert yrði úr þessu áformi, að önnur samtökin hefðu reynt að fá hin samtökin til fylgilags við sig. Síðar þennan dag mátti svo einnig heyra sama orðalag um þessa til- raun í frétt í Ríkisútvarp- inu. Frómt frá sagt hrökk ég við að heyra no. fylgilag í þessu sambandi, því að ég kannaðist við allt aðra merkingu í því orðasam- bandi, sem sé þá, sem stendur í orðabókum. í OM frá 1983 eru eftirtald- ar merkingar gefnar upp við no. fylgilag: foruneyti, leiðsaga; ástasamband: fá konu til f[ylgilag]s (við sig). Ég hygg, að síðasta merkingin sé algengust i máli okkar. Því má ljóst vera að no. fylgilag, eins og blaðamaðurinn notaði það, hentar engan veginn þeirri máltilfmningu, sem flestir munu hafa í þessu sambandi, og er raunar óheppilegt. I ísjenskri samheitaorðabók (IS) við no. fóruneyti eru nefnd nokkur no., sem geta verið samheiti við það, m.a. no. samflot. Það orð hefði einmitt farið vel í því sam- bandi, sem stóð í blaðinu um útgerðarmál. Samtök- in reyndu að fá hin sam- tökin í samflot við sig. Ég held enginn hefði misskilið frétt blaðamannsins þannig orðaða, enda um sjávarútveg að ræða. - J.A.J. ^/\ÁRA afmæli. Á I vfmorgun, mánudag- inn 18. október, verður sjötug Hrefna Kristín Gísladóttir, Vallartröð 1, Kópavogi. Hún og eigin- maður hennar, Ingimund- ur Ingimundarson, bif- reiðastjóri, eru stödd í Portúgal á afmælisdaginn ásamt dætrum sínum. Svartur leikur og vinnur. STAÐAN kom upp í deilda- keppni Skáksambands Is- lands um síðustu helgi. Þröstur Árnason var með hvítt, en Jón Viktor Gunn- arsson hafði svart og átti leik. 24. - Hxe4! 25. Rxe4 - Re2+ 26. Khl - Dxh4+ 27. Dh2 - Dxe4 28. a5 - Hd5 29. f3 - De3 30. g4 - h5 31. a6 - hxg4 32. a7 - Hh5 33. Dxh5 - gxh5 34. a8=D - Dg5 35. Db8 - g3 og hvítur gafst upp. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæh, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Éinnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Moigunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. OZ\ÁRA afmæli. Á OV/morgun, mánudaginn 18. október, verður áttræð Guðrún E. Bergmann, Hæðargarði 35, Reykjavík. Guðrún tekur á móti ætt- ingjum og vinum á Hótel Is- landi í dag kl. 15. IT ÁRA afmæli. Næst- I tfkomandi mánudag, 18. október, verður sjötíu og fimm ára Ragna Þ. Stefáns- dóttir, Sogavegi 34, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum á heimili sínu á afmælisdag- inn frá kl. 16-20. SK4K llmsjón Margeir I'étursson ÁSDÍS Á BJARGI Ásdís var í iðju og draumum ein um hitu þá að elska - og stuðla að Grettis gengi og gæfu hans að þrá. En vonir bæði og bænir hennar baming vildu fá. Snemma kenndi mikla manninn móðuraugað glöggt, sá í barnsins vögguvoðum viðbragð hetjusnöggt, það var yndi, - en annars vegar örlögmyrkrið dökkt. Kvíðinn óx, og þrautir þyngdust, þegar hann komst á legg. Stríðnin, hvefsnin, bernskubrekin brýndu lýðsins egg. - Ein hún kveið og ein hún skildi allt það skapahregg. Djánafár úr íoðurgarði fór hinn sterki sveinn. Heillaósk né afturkomu orðaði þar ei neinn. Með honum gekk á mikla veginn móðurhuginn einn. Jakob Thorarensen. ^/AÁRA afmæli. í dag, f Vf sunnudaginn 17. októ- ber, verður sjötug frú Diljá Esther Þorvaldsdóttir, hús- freyja og verslunarmær, Ægisíðu 64, Reykjavík. Hún gerir sér glaðan dag í Kaup- mannahöfn ásamt bónda sínum, Bjarna Guðjónssyni, framreiðslumanni. Biðja þau fyrir bestu kveðjur til alls ættfólks og vina. /?/\ÁRA afmæli. Á morg- vJvfun, mánudaginn 18. október, verður sextugur Björn Kristjánsson, veit- ingamaður, Efstalandi, Ölf- usi. Eiginkona hans er Sig- ríður Svava Gunnarsdóttir. Þau eru að heiman. STJÖRNUSPA eftir Franees Urake VOG Afmælisbarn dagsins: Þú hefur sterka sannfær- ingu og ert reiðubúinn til að leggja ýmislegt á þig málstað þínum til sigurs. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Þótt ráðlegt sé að hafa and- vara á sér, er ástæðulust að mála skrattann á vegginn. Líttu heldur á björtu hliðarn- ar; þær gefa lífinu gleði. Naut (20. aprfl - 20. maí) Margt verður til að dreifa at- hygli þinni. Sestu niður og gerðu lista yfir það, sem þú ætlar að gera. Og láttu hann ráða ferðinni útúrdúrlaust Tvíburar t ^ (21. mai - 20. júní) nA Tækifærið bíður þín handan homsins. Undirbúðu þig vel svo ekkert fari nú úrskeiðis, þegar á hólminn er komið. Reyndu svo bara að njóta stríðsins. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Það er fleira um að hugsa en veraldleg verðmæti, þótt þeirra þurfi líka við. Gaum- gæfðu stöðu þína og leitastu við að auðga þig líka á andlega vísu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Þér er óhætt að láta hugboð þitt ráða, því oftar en ekki dettur þú ofan á réttu lausnina svona fyrirhafnarlaust En íreistaðu ekki gæfunnar um of. Meyja (23. ágúst - 22. september) (C1>L Þrátt fyrir vinsældimar skaltu varast að bera öll þín vanda- mál á torg vináttunnar. Sum eiga þar heima, en önnur ekki og haltu þeim íyrir þig. (23. sept. - 22. október) m Láttu ekld orð og athafnir annarra stjóma þínum. Gefðu þér góðan tíma til þess að kynnast málum af eigin raun og myndaðu þér svo skoðun sem er þín. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Stundum þarf að grípa til sér- stakra aðgerða til þess að vekja athygli samferðarmann- anna. Gættu þess þó að ganga ekki of langt; það hefhir sín. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) itjr Það er engin minnkun að þvf að þekkja takmörk sín og við- urkenna þau. Vertu óhræddur við að leita aðstoðar á þeim sviðum, sem ekki era á þínu valdi. Steingeit (22. des. -19. janúar) Æ Það getur tekið tímann sinn að stilla saman strengina. Ekki herða á hlutunum, heldur leyfðu lífinu að hafa sinn gang. Þá blómstrar hamingjan. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Það er aldeilis furðulegt, hvað litlu hutimir geta leitt af sér mikla gleði. Láttu það því eftir þér að byggja þig upp með þessum jákvæða hætti. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) >%■«> Þú verður að leyfa sjálfum þér að njóta sannmælis. Þú getur ekki búist við því að aðrir kunni að meta hæfileika þína, ef þú gerir það ekki sjálfur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 51 Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér hlýhug með heimsóknum, gjöfum og kveðjum á 95 ára afmœli mínu 29. september sl. Andrjes Gunnarsson. ÆTISTENSLAR FYRIR GLER 60 TEGUNDIR - EINNIG SÉRGERÐIR ItÓöinsgötu 7 Sími 562 84481 Nýlega opnaði Antik 2000 verslun að Langholtsvegi 130, með úrval af fallegum mublum og ýmsum öðrum antik vörum Sérverslun með gamla muni og húsgögn Opiðalla daga: Mán. - föst. 12:00 - 18:00. Helgar: 12:00 - 16:00 Langholtsvegur 130, sími: 533 33 90 Opið kl. 13—16 í dag 15% afsláttur af tvískiptum dressum — aðeins í dag Eddufelli 2 - sími 557 1730. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. SJÁLFSDÁLEIÐSLA STYRKUR EINKATIMAR/NAMSKEIÐ Sími 694 5494 Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. Nániskeiðið hefst 2. nóvember Reynsia Dana af gagna- grunnum á heilbrig&issviði Thorkild I.A. Sörensen prófessor og yfirlæknir við Institut for Sygdomsforebyggelse í Kaupmannahöfn heldur fyrirlestur um reynslu Dana af gagnagrunnum á heilbrigðissviði í kennslustofu 101 í Odda kl. 20.00 mánudaginn 18. október 1999. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku. Thorkild I.A. Sörensen hefur meðal annars sérþekkingu á Land- spatientregistret í Danmörku, gagnagrunni, sem tekur við upplýs- ingum úr sjúkraskýrslum frá danska heilbrigðiskerfinu. Sá gagnagrunnur hefur verið nýttur á margvíslegan hátt til læknis- fræðilegra rannsókna. Opnar umræður verða að fyrirlestrinum ioknum. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn í Odda Sérmerktar íþróttatöskur! Kr. 2.850 m/nafni. Litir: Blár — rauður — grænn. ísaumað nafn Hægt er að fá aukaáletrun (t.d. heimilisfang eða símanúmer). Fáið bækiing eða skoðið vöruúrvaliö á vefnum Sendingarkostnaöur bætist við vöruverö. Afhendingartími 7-14 dagar. PÖNTUNARSIMI virka daga kl. 16—19 557 1960 * _(D!KS f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.