Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Á að fara eitthvað ut?
Síminn GSM hefur gert reikisamninga við yfir 100 farsímafyrirtæki
í meira en 50 löndum. Þannig er tryggt að þú ert í aðeins
símtalsii'arlægð frá þínum nánustu á ferð þinni um heiminn.
Síminn GSM. í traustu sambandi erlendis.
SÍMINN<3SM
WWW.BSM.IS
Bókmenntadag-
skrá í Norræna
húsinu
BÓK er engin eyja - The Fabulous
Four & a Blondie er yfirskrift bók-
menntadagskrár með fimm finnsk-
um rithöfundum í Norræna húsinu
á sunnudag kl. 16. Rithöfundamir
eru Timo Emamo, Jakko Heini-
maki, Tapio Koivukari, A.W. Yrjána
og Asta Piiroinen. Boðið verður upp
á tónlist og orð vel krydduð með
grallaraskap og prakkarastrikum,
segir í fréttatilkynningu.
Rithöfundamir eiga það sam-
merkt að taka sig ekki of hátíðlega
og allir hafa þeir fleiri en eitt starf á
hendi. Timo Emamo er útgefandi
og ritstjóri, Jaakko Heinimáki, rit-
höfundur, blaðamaður og prestur er
þekktur höfundur kristilegra bók-
mennta (fékk verðlaun fyrir kristi-
lega bók ársins 1997 í Finnlandi),
A.W. Yrjáná, skáld og tónlistarmað-
ur. Fyrsta ljóðabók hans kom út
1997 og hefur komið út í sjö upplög-
um. Hann er einn vinsælasti rokk-
tónlistarmaður Finnlands. Tapio
Koivukari, kaliaður „rödd hinna
innfæddu“ (hlaut Nortamo-verð-
launin 1999 og Koskenkorva verð-
launin 1990). Tapio Koivukari bjó á
íslandi í nokkur ár, lagði stund á
guðfræði og kenndi m.a. á Vest-
fjörðum. Asta Piiroinen er rithöf-
undur og blaðamaður og býr í
Stokkhólmi. Hún hefur sent frá sér
smásagnasafn og þrjár skáldsögur.
Auk ritstarfa hefur hún unnið sem
skjalaþýðandi og túlkur. Smásögur
undir heitinu Pour Cat, verða gefn-
ar út í Finnlandi í mars á næsta ári.
Ein af smásögum hennar birtist í
safnriti í Svíþjóð um finnskan
húmor, sem En Bok för Alla gaf út.
Rithöfundamir tengjast útgáfufyr-
irtækinu LIKE, sem er lítið neðan-
A.W.
Yrjáná
Timo
Ernamo
Tapio
Koivukari
Asta
Piiroinen
jarðarbókaforlag
í Helsingfors og
hefur vakið mikla
eftirtekt undan-
farinn áratug
meðal bók-
menntasinnaðra
Finna og er nú
orðið að meðal-
stóru bókaforlagi.
Like er helsti út-
gefandi íslenskra
samtímabók-
mennta í Finnlandi og í haust koma
út á þess vegum verk eftir Þórarin
Eldjám, Einar Má Guðmundsson og
Vigdísi Grímsdóttur.
Dagskráin verður á finnsku og ís-
lensku.
Jaakko
Heinimáki
Sá á hund
sem elur
BÆKUR
Náttnrufræði-
rit
ÍSLENSKI
FJÁRHUNDURINN
eftir Gísla Pálsson. 276
bls. Útgefandi er Bóka-
útgáfan á Hofi. Verð kr.
3800.
LÍFSEIG varð sú
saga í ferðabókum af
landi okkar á miðöld-
um, að íslendingar
seldu hunda sína dýrt,
en gæfu börn sín kaup-
mönnum, svo að hin önnur hefðu
fæði. Hafa ummæli þessi farið fyrir
brjóstið á mörgum, en upphaf
þeirra má rekja til manns að nafni
Martin Behaim, sem gerði fyrstu
kúlumynd jarðar 1492 og segir
hann frá þessu þar. Því er þetta
rifjað upp hér, að nýkomin er út
bók um íslenzka fjárhundinn, þar
sem í stuttu máli er sagt frá sögu
hans, helztu einkennum og síðan er
kynning á fremstu ræktendum
kynsins hér á landi. Segja þeir frá
hundum sínum og starfi. Þá eru
einar 30 Ijósmyndir af litbrigðum
íslenzka hundsins og sagt frá nöfn-
vi'mb l.is
—AL.UMf= e/TTHWkÐ tJÝTl—
um á þeim, sem er
mjög fróðlegt. I bókar-
lok er afbragðsskrá yf-
ir hundanöfn, tekin
saman af Hermanni
Pálssyni. En þar með
er ekki öll sagan sögð,
því að hver kaíli er síð-
an birtur bæði á þýzku
og ensku. Lengir þetta
því bókina um tvo
þriðju að undanskild-
um myndum, sem eru
fjölmargar.
Mjög fljótt er farið
yfir sögu íslenzka
hundsins, en þó er
greint frá brautryðj-
andanum Mark Watson og sagt ít-
arlega frá ræktunarstarfi Sigríðar
Pétursdóttur á Olafsvöllum, en
þau eiga bæði lof skilið fyrir ár-
vekni sína. Verður það seint full-
þakkað. Einnig er greint frá stöðl-
um við ræktunarmarkmið eins og
þau eru sett fram nú. Frásagnir
rúmlega 50 ræktenda af hundum
sínum eru oft byggðar á faglegum
grunni eins og vera ber og er ekki
alltaf auðvelt fyrir óinnvígða að
skilja mál þeirra. Til dæmis stend-
ur á einum stað, að Kría hafi verið
HD-mynduð og sé FRI og augn-
skoðun hafi verið neikvæð, og seg-
ir þetta flestum heldur lítið. Af
augljósum ástæðum bera menn yf-
irleitt lof á hundinn sinn og hrósa
honum fyrir geðprýði og gáfur.
Það er þetta með gáfurnar, sem
manni verður ósjálfrátt hugsað til
þess við hvern eigandinn miðar
Gísli Pálsson