Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Wilt Chamerlain í leik með Philadelphia 1968.
haldin voru deilur um skiptingu
tekna af viðureigninni.
Chamberlain fór mikinn í ævi-
sögu sinni „A lifelong bachelor"
þar sem hann kvaðst hafa sængað
með 20 þúsund konum á lífsleið-
inni, sem þýðir að hann haft um
þrjár konur fyrir rekkjunauta á
hverri nóttu í um 20 ár. Þessi um-
mæli komu honum illa og hann
kvaðst síðar hafa séð eftir að hafa
látið þau á prent. Er hann var 55
ára sagðist hann sannfærður um að
geta leikið í NBA á ný og ef hann
sneri aftur ætlaði hann sér að ná
flestum fráköstum í deildinni.
Hann lét meira segja að sér kveða í
kvikmyndum og lék með austur-
ríska vöðvatröllinu Arnold
Schwarzenegger í kvikmyndinni
„Conan the Barbarian“ árið 1984.
Þjáðist af hjartakvilla
síðustu árin
Chamberlain átti við hjartakvilla
að stríða síðustu ár ævi sinnai-, var
meðal annars lagður inn á spítala
fyrir nokkrum árum, en þrátt íyrir
heilsuleysi stundaði hann líkams-
rækt af kappi og keppti í maraþon-
hlaupum og iðkaði aðrar íþrótta-
greinar eins og ekkert hefði í
skorist. Akefð hans virðist hafa
dregið hann til dauða, ef marka má
ummæli systur hans, Selina Gross,
sem telur að hann hefði átt að fara
sér hægar. „Við vissum að hann átti
við vandamál að stríða, en gerðum
okkur ekki grein fyrir hve alvarlegt
það var. Kannski hefur öll þessi
hreyfing haft slæm áhrif á hann, en
hann fór vel með sig og fór reglu-
lega til læknis." Síðustu vikur voru
Chamberlain erfiðar, hann léttist
svo góðu hófi gegndi og sagði önnur
systir hans, Barbara Lewis, að
hann hefði litið illa út nokkrum
dögum áður en hann lést. Cham-
berlain fannst látinn á heimili sínu í
Los Angeles á þriðjudag - bana-
meinið var taiið hjartaáfall. Wilton
Chamberlain varð 63 ára að aldri.
Körfuknattleiksáhugamenn, vin-
ir og fyrrverandi félagar í NBA-
deildinni hafa ekki sparað stóru
orðin um ágæti Chamberlains á
vellinum er fjölmiðlar hafa leitað til
þeitra undanfarna daga. Phii
Jackson, þjálfari Los Angeles La-
kers, sagði meðal annars í samtali
við Los Angeles Times frá því er
hann lék á sínu fyrsta ári í NBA-
deildinni og tókst að hindra skot frá
Chamberlain í einum leik. „Þá
sagði einhver við mig að ég hefði
gert mildl mistök því Chamberlain
gleymdi aldrei ef einhver hefði bet-
ur gegn honum. Það kom á daginn
því hann varði hvert skot sem ég
skaut á körfu í þeim leikjum sem
við áttumst við eftir það. Hann
þoldi ekki að vera niðurlægður."
Jackson segir að líkja hefði mátti
Chamerlain við sofandi risa, sem
lék flesti leiki án vandkvæða. „En
ef hann reiddist í leik var hann
hamslaus af bræði allt þar tö yfir
lauk.“
Walt Frazier, fyrrverandi leik-
maður New York Knicks, segist
gjarnan spurður út í hver sé besti
leikmaður sem leikið hafi í NBA-
deildinni í Bandaríkjunum. „Ég
segi ætíð að það velti á ýmsum
hlutum. Til dæmis sé Bill Russell
sigursælasti leikmaðurinn, Big 0 sé
sá fjölhæfasti en Wilt Chamberlain
er ofurmenni. Það sem hann afrek-
aði er nánast broslegt," sagði Fr-
azier.
Hcimild: NBA stjömurnar, eftir Eggert
Þór Aðalsteinsson og Þórlind Kjartansson.
Bandarískur körfuboltaheimur kveður Wilt Chamberlain
risavaxna
sjátfsímynd
Wilton Norman Chamberlain,
sem var 2,15 m á hæð og ætt-
aður frá Philadelphiu, þótti strax
hæfileikaríkur íþróttamaður. Hann
lét til sín taka í menntaskóla og
varð eftirsóttur hjá háskólum, sem
vildu fá hann í sínar raðir. Hann
lék sitt fyrsta ár í NBA-deildinni
árið 1959, gerði þá 36,7 stig að
meðaltali í leik og komst á stall
með bestu miðherjum deildarinnar.
Tímabilið 1961-62 tókst honum að
gera 50,4 stig að meðaltali og 100
stig í einum og sama leiknum, er
Philadelphia Warriors vann New
York 169:147 2. mars 1962. Glæsi-
legt met sem stendur enn og mun
væntanlega gera um ókomna fram-
tíð. Sjálfur segir Chamberlain að
hann hafi ekki átt sinn besta leik
þann dag. Hann bjó í New York á
þeim tíma þrátt íyrir að leika fyrir
Philadelphiu og kvaðst ekki hafa
sofið dúr nóttina fyrir leikinn.
Hann tók lestina um morguninn,
kom við í leikjagarði og hélt síðan á
leikinn og gerði 100 stig. Sá sem
hefur komist næst honum að stig-
um í einum leik er hann sjálfur en
Chamberlain, sem þekktur var
undir heitunum „Wilt the Stilt“ og
„The Big Dipper", gerði 78 stig í
leik árið áður en þá var þrífram-
lengt. Hann náði jafnframt tvívegis
að gera 73 stig í leik. Næstur hon-
um yfir stigahæstu leikmenn í ein-
stökum leik er Michael Jordan með
37,1 stig - reyndar á Chamberlain
56 met í NBA-deildinni en Jordan
aðeins fjögur.
Fyrstur til að gera
4 þúsund stig
Leiktíðin 1961-62 var um margt
merkileg fyrir Chamberlain. Auð-
vitað verður stigamets hans alltaf
minnst enda einstakt afrek. Hann
varð einnig fyrsti leikmaðurinn til
að komast yfir 4.000 stiga múrinn á
einum vetri, gerði 4.029 stig, og
hann tók 25,7 fráköst að meðaltali
þennan vetur og er það þriðji besti
árangur einstaklings í sögu NBA.
Chamberlain vermir sjálfur fyrsta
og annað sætið í fráköstum, tók
27,2 fráköst að meðaltali veturinn
áður og þar áður, 1959-60, tók
hann 27,0 fráköst að meðaltali. Það
sem kemur samt einna mest á
óvart þegar ferill Chamberlains er
skoðaður er að þetta keppnistíma-
bil lék hann að meðaltali í 48,5 mín-
útur en körfuknattleiksleikur í
NBA stendur í 48 mínútur. Hann
lék sem sagt hálfri mínútu lengur
að meðaltali en hver leikur stóð.
Skýring er að sjálfsögðu á þessu;
þetta tímabil lenti Warriors tíu
sinnum í framlengingu.
Vart þarf að taka það fram að
enginn leikmaður hefur leikið eins
margar mínútur með liði sínu á
heilu tímabili. Chamberlain afrek-
aði einnig þennan vetur að leika
allan leiktímann í 79 leikjum af 80
sem liðið lék og alls lék hann í
3.882 mínútur af þeim 3.890 sem í
boði voru fyrir hann. Hann hvfldist
sem sagt í átta mínútur þetta leik-
tímabil. Chamberlain á fleiri met í
NBA-deildinni. Hann tók til dæmis
55 fráköst í leik Philadelphia og
Wilton Chamberlain þykir einn fremsti
körfuknattleiksmaður sem litið hefur dags-
ins ljós. Hann er einkum þekktur fyrir að
hafa gert 100 stig í einum og sama leiknum
en færri vita að hann á 55 önnur met í
NBA-deildinni. Chamberlain, sem andaðist
á dögunum, 63 ára að aldri, vissi vel af
hæfíleikum sínum og haft var á orði að
hann væri risi með risavaxna sjálfsímynd.
Einn mesti körfuknattleiksmaður allra tíma, Chamberlain, er eini
leikmaðurinn sem hefur skorað 100 stig í leik í NBA-deildinni.
Boston 24. nóvember 1960 og það
þrátt fyrir að Bill Russell, hans
helsti andstæðingur, léki með
Boston. Stórleikur Chamberlains
dugði þó ekki til sigurs því Russell
og félagar höfðu betur, unnu
129:132.
Óspar á yfirlýsingar
Chamberlain lék 14 ár í NBA-
deildinni en tókst aðeins tvisvar
sinnum að hampa meistaratitli,
með Philadelphia 76ers 1967 og
Los Angeles Lakers árið 1972. La-
kers þótti yfir að ráða einstöku liði
það ár og tapaði aðeins 13 leikjum,
vann 69, þar af 33 leiki í röð. Hann
lauk ferli sínum tímabilið 1972-73
og hóf þjálfun en gafst fljótlega
upp á þeim starfsvettvangi. Hann
var engu að síður mikið í sviðsljós-
inu enda óspar á yfirlýsingar sem
fyrr og naut þess að lesa ummæli
sín á prenti eða sjá sig gorta í sjón-
varpi. Hann var meðal íyrstu
blökkumanna í bandarískum
körfuknattleik á 7. áratugnum sem
þorðu að láta ýmis ummæli flakka
og var fyrir vikið umdeildur af
áhugamönnum um körfubolta,
enda ekki til siðs að þeldökkir leik-
menn væru spurðir álits á þeim
tíma. Er ferli hans lauk hélt hann
áfram þar sem frá var horfið og var
einkum drjúgur að bera sig saman
við þá leikmenn sem léku í NBA-
deildinni síðar enda tölfræðin nær
öll honum í hag. Þá skoraði hann
eitt sinn á Muhammed Ali í box-
keppni. Chamberlain var sann-
færður um að vinna Ali og það sem
kom í veg fyrir að keppnin yrði
Risi með